Morgunblaðið - 22.07.2020, Page 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2020
Frábær vinnukraftur!
Birtm
eð
fyrirvara
um
verð-og
textabrengl.
3.137.000kr.
VIVARO CARGO
Listaverð 3.890.000 kr.
Verð
án vsk. 4.024.000 kr.
VIVARO COMBI - 6 – 9 manna
Listaverð 4.990.000 kr. Listaverð 5.490.000 kr.
Verð
án vsk.2.411.000kr.
COMBO CARGO
Listaverð 2.990.000 kr.
Verð
án vsk. 4.427.000kr.
MOVANO CARGO
Verð
án vsk.
Einnig hagstæð kjör í langtímaleigu
Takmarkað magn á gamla genginu!
Reykjavík
Krókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluaksturopel.is
Magnús Guðmundsson
magnusg@mbl.is
„Ég er að fara inn í steinasafn
Petru á Stöðvarfirði, en það má al-
veg bíða í tíu mínútur á meðan við
spjöllum,“ segir Jón Knútur
Ásmundsson, trommuleikari hljóm-
sveitarinnar Coney Island Babies,
sem sendi frá sér nýja plötu fyrir
skömmu. Platan, sem kallast Curb-
stone, hefur vakið talsverða eftir-
tekt. Jón Knútur er hinn rólegasti
yfir upphefðinni en auk hans skipa
hljómsveitina þeir Hafsteinn Már
Þórðarson á bassa, Guðmundur
Höskuldsson á gítar og Geir Sigur-
páll Hlöðversson sem syngur og
leikur á gítar og hljómborð.
Nýbylgjurokk á Norðfirði
Jón Knútur tekur undir að hljóm-
sveitarmenn séu nú ekkert nýbyrj-
aðir í bransanum því stofnunina
megi rekja aftur til ársins 2004. „Á
þeim tíma vorum við allir búnir að
vera að spila í einhver ár og einn
okkar held ég að hafi byrjað að
spila opinberlega 1974, ef ég man
rétt. Annar var búinn að vera að
síðan á níunda áratugnum og reka
hljóðver að auki, þannig að liðs-
menn hafa komið víða við.
Sjálfur var ég búinn að vera að
spila síðan um 1990 og var eiginlega
búinn að leggja kjuðana á hilluna,
hafði ekkert spilað í nokkur ár þeg-
ar ég byrjaði í þessu bandi.“
Aðspurður hvað hafi þá orðið til
þess að hljómsvetin varð til segir
Jón Knútur að það hafi í raun verið
tónlistarsmekkurinn. „Sjálfur hafði
ég oftast verið að spila dansleikja-
tónlist en það sem dró okkur saman
var að við fíluðum allir Echo & the
Bunnymen. Það er svona ákveðinn
samnefnari fyrir nýbylgjurokk
níunda og tíunda áratugarins sem
sameinaði okkur. Við höfðum hins
vegar ekki verið að spila það með
hljómsveitum lengi, þannig að það
var skemmtileg tilviljun að rekast á
menn með sama smekk og það alla
búsetta á Norðfirði á þessum tíma.“
Stóð ekki til að gefa út plötu
Jón Knútur segir að liðsmenn
sveitarinnar komi víða að þótt leiðir
hafi legið saman á Norðfirði. En
spurður um nafnið Coney Islands
Babies, sem er augljóslega ekki að
Tónlistin sameinaði okkur
Coney Island Babies sendi nýverið frá sér sína aðra plötu og trommarinn Jón
Knútur Ásmundsson segir að þeir félagar njóti þess að hittast og búa til tónlist
Ljósmynd/Esther Ösp Gunnarsdóttir
Hljómsveitin Jón K. Ásmundsson, Geir S. Hlöðversson, Guðmundur Höskuldsson og Hafsteinn M. Þórðarson.
austan, segir hann að það sé nokk-
uð sem þeir virðist sitja uppi með.
„Við erum vissulega að vísa í lagið
eftir Lou Reed, sem er í miklu
uppáhaldi hjá okkur, en fyrir fyrstu
tónleikana stóðum við frammi fyrir
því að vanta nafn. Það vildi þannig
til að við vorum að fara að spila
þetta lag þegar kom að því að við
urðum að velja og þetta varð fyrir
valinu sem einhvers konar skyndi-
lausn. Annað og meira átti það aldr-
ei að verða en við gerðum aldrei
neitt í þessu.
Það fékk svo að fljóta áfram
vegna þess að við ætluðum okkur
aldrei að gefa út plötu. Það var
bara eitthvað sem gerðist. Við vor-
um að koma saman og spila lög með
Lou Reed, Lloyd Cole og fleirum en
svo fór eitt og annað að verða til
eftir okkur. Allt í einu vorum við
komnir með lagasafn sem við gáfum
út að endingu á fyrstu plötunni okk-
ar, en það var aldrei pælingin með
því að stofna þessa hljómsveit.“
Upptökur á Stöðvarfirði
Nýja platan, Curbstone, er
einkar áheyrileg og spurður um til-
urð hennar segir Jón Knútur að
hún hafi komið til í kjölfar þess að
meðlimir sveitarinnar tóku að sér
spilamennsku fyrir sveitunga sinn.
„Hann heitir Guðmundur R., var í
Súellen, en byrjaði svo að gefa út
sólóplötur fyrir nokkrum árum og
við spiluðum inn á aðra plötuna
hans sem kom út 2017. Þar kynnt-
umst við Jóni Ólafssyni, sem stjórn-
aði upptökum, og hann hvatti okkur
til þess að gera aðra plötu sem við
og gerðum með hann sem upptöku-
stjóra. Við byrjuðum á því að senda
Jóni slatta af lögum og úr þeim
valdi hann ein átta sem við svo tók-
um upp í hljóðverinu hérna á
Stöðvarfirði.
Það er reyndar gaman að segja
frá því að þetta er ljómandi gott
hljóðver sem írskur strákur að
nafni Vincent Wood byggði á
nokkrum árum. Það merkilega er
að þarna er hægt að taka upp á
band eins og í gamla daga og við
nýttum það við að taka upp grunn-
ana.“
Löngu hættir að spá í þetta
Aðspurður hvort að sveitin sé
mikið á ferðinni og upptekin við að
spila lög af nýju plötunni segir Jón
Knútur að það sé reyndar ekki svo.
„Við höfum ekki verið mikið í að
fylgja henni eftir en erum svona að
skoða eitt og annað þegar líður að
hausti.“
Lagið „Swirl“ náði talsverðum
vinsældum á Rás 2 og Jón Knútur
segir að það hafi í sjálfu sér komið
þeim á óvart. „Við sendum þetta lag
inn og svo var það allt í einu komið
á spilunarlista og náði greinilega í
gegn. Það segir manni það eitt að
maður hefur ekkert vit á þessu.
Enda stundum verið með eitthvað í
höndunum sem maður heldur að nái
í gegn en svo gerist það bara ekki,
þannig að við erum löngu hættir að
spá í þetta en kunnum að sjálfsögðu
að meta áhugann á tónlistinni okk-
ar.“
Jón Knútur bætir við að hljóm-
sveitarliðsmenn séu fyrir löngu
orðnir góðir félagar og vinir en það
sem sameinaði þá hafi verið tónlist-
in. „Þannig að við gerum þetta á
okkar forsendum og ætlum að
halda því áfram. Í grunninn gerir
þetta hversdaginn skemmtilegri; á
meðan sumir fara í golf og aðrir í
fótbolta hittumst við og búum til
tónlist.“
Eitt þekktasta og virtasta tónlistar-
tímarit heims, hið breska Q, leggur
brátt upp laupana. Síðasta tölublað-
ið verður gefið út 28. júlí og lýkur
þar með 34 ára sögu tímaritsins.
Ritstjóri Q, Ted Kessler, skrifaði
í byrjun vikunnar á Twitter að kór-
ónuveirufaraldurinn hefði endan-
lega gert út af við blaðið. Í leiðara í
síðasta tölublaðinu skrifar hann að
allra leiða hafi verið leitað í hans
ritstjórnartíð til þess að halda tíma-
ritinu á lífi á afar erfiðum prent-
markaði. Covid-19-faraldurinn hafi
gert allar þær tilraunir að engu.
Kessler biðst innilega afsökunar á
því að honum hafi ekki tekist að
halda Q á floti.
Útgáfa Q hófst árið 1986 og var
tímaritið stofnað af Mark Ellen og
David Hepworth. Hlaut ritið fljót-
lega mikið lof og vinsældir fyrir
áhugaverðar umfjallanir, ítarleg
viðtöl, fjölda plötudóma og víðsýni í
tónlistarvali. Er tímaritið til að
mynda ein helsta heimildin í Bret-
landi þegar kemur að hinu svo-
nefnda Brit-poppi og sögu þess.
Q-tímaritið gefið
út í hinsta sinn
Brit-sveit Damon Albarn og félagar
hans í Blur komu oft við sögu í Q á
tímum Brit-poppsins svonefnda.
Íslenska útgáfan X/OZ Music gaf í
gær út mikið safn laga íslenskra
raftónlistarmanna á plötunni In-
visible Limits Vol III. Á henni eru
22 lög eftir marga þekktustu tón-
listarmenn íslensku danstónlistar-
senunnar og segir í tilkynningu að
safnplatan gefi yfirsýn yfir fortíð,
nútíð og framtíð X/OZ-útgáfunnar.
Bæði má finna lög sem ekki hafa
verið gefin út áður sem og eldri lög
á plötunni og meðal höfunda eru
Ozy, Biogen og Octal.
X/OZ Music hefur verið starf-
rækt frá árinu 2017 og er platan
áttunda útgáfa fyrirtækisins.
Plötuna má nálgast á bandcamp-
síðu útgáfunnar á vefslóðinni
xozmusic.bandcamp.com.
22 lög eftir jafn-
marga listamenn