Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Þór Steinarsson thor@mbl.is Sex ný kórónuveirusmit greindust í gær til viðbótar við fimm smit sem greindust á laugardag, þar af þrjú innanlandssmit og tvö smit sem greindust í landamæraskimun. Öll sex smit tengjast manni sem kom til landsins 15. júlí og viðhafði ekki heimkomusmitgát vegna galla í skráningarformi. Sá hinn sami fékk neikvæða niðurstöðu á veiruprófi við komuna til landsins en greindist með veiruna á laugardag. Allir sex einstaklingar höfðu verið settir í sóttkví eftir að áðurnefndur einstaklingur greindist jákvæður fyr- ir veirunni. Sá sem smitaði þá kom frá Eystrasaltsríki. „Í heildina í því máli eru sjö núna í einangrun og það er verið að vinna að því að rekja smit í kringum þá. Smit- rakningarteymið er að störfum en það er ekki alveg komið í ljós hvort og þá hversu margir þurfa að sæta sóttkví í kjölfarið,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, samskiptastjóri al- mannavarnadeildar ríkislögreglu- stjóra. Ekki sést hér á landi Íslensk erfðagreining raðgreindi þrjú jákvæð sýni í fyrradag, en tvö þeirra sýndu sams konar afbrigði veiru sem ekki hefur sést hér á landi áður. Þá var einstaklingur sem greindist með veiruna á fimmtudag- inn einnig með afbrigði af henni sem ekki hefur sést áður. Þetta staðfestir Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, sérfræðingur í sóttvörn- um hjá embætti landlæknis, í samtali við blaðamann. Hún segir að bæði afbrigðin séu örugglega nýlega innflutt til landsins. Annað afbrigðið er komið frá einstak- lingi sem er búsettur í Ísrael en kom til Íslands í gegnum Evrópulönd þannig að ekki er hægt að staðfesta að smitið eigi uppruna sinn í Ísrael. „Ef hann hefði komið jákvæður til landsins hefði það nú verið lang- líklegast en af því að hann veiktist ekki fyrr en hann var búinn að vera hér í nokkra daga er ekki óhugsandi að hann hafi smitast á ferðalaginu,“ segir Kamilla. „Ný veira þýðir bara að þetta hefur verið einstaklingur sem kom að utan. Þetta er ekkert sem hefur verið að malla hér innanlands,“ segir Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúk- dómadeild Landspítalans, um þær fregnir að „ný tegund veiru“ hefði greinst hér á landi. Már tekur fram að ekki sé um nýja veiru að ræða heldur sé þetta sama veira og hefur breitt úr sér um heim allan, þ.e. nýja kórónuveiran SARS- CoV-2. Það sé réttara að tala um nýtt afbrigði af þeirri veiru en nýja teg- und. Spurður hvað það þýði og hvort það geti sagt eitthvað til um að önnur bylgja faraldurs sé byrjuð segir Már að eins og er sé um stakt tilvik að ræða og það gæti farið svo að ekkert meira yrði úr því. „Hins vegar ef það fara að koma upp tilfelli innanlands sem ekki eru með tengsl að utan og eru með sömu arfgerð og þetta tiltekna afbrigði þá væri hægt að draga þá ályktun [um seinni bylgju] en það er ótímabært að svo stöddu,“ útskýrir Már. Tvö ný afbrigði veirunnar á Íslandi  Tvö afbrigði kórónuveirunnar sem ekki hafa áður sést hér á landi greindust um helgina  Galli í skráningu varð til þess að smitberi viðhafði ekki heimkomusmitgát  Sex smit greindust í gær Landspítali/Þorkell Þorkelsson Veira Már tekur fram að frekar sé um að ræða nýtt afbrigði en nýja veiru. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Til skoðunar er að sameina dýra- eftirlit hjá Reykjavíkurborg. Það er meindýraeyðingu, eftirlit með kött- um og hundum og búfé, að sögn Ár- nýjar Sigurðardóttur, framkvæmda- stjóra Heilbrigðiseftirlits Reykja- víkur. „Þetta heyrir allt undir heilbrigð- isnefnd borgarinnar,“ segir Árný. Hún segir að t.d. meindýraeyðar starfi í umboði heilbrigðisnefndar líkt og hundaeftirlitsmenn og búfjár- eftirlitsmenn. Markmiðið er að hag- ræða og auka skilvirkni með því að geta samnýtt starfsfólk. Árný nefnir t.d. að meindýraeyðar séu vanir því að umgangast dýr. Verði af þessum áformum verður hægt að kalla þá til aðstoðar vegna eftirlits með hund- um, köttum eða búfé ef þörf krefur. Hún segir að nú þurfi Heilbrigðis- eftirlitið að vera með tvo hunda- eftirlitsmenn svo a.m.k. einn sé til taks ef hinn forfallast. Óánægðir hundaeigendur Félag ábyrgra hundaeigenda for- dæmdi nýlega „vinnubrögð og metn- aðarleysi Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur“ á facebooksíðu sinni. Það var vegna þess að hvorugur hundaeftirlitsmannanna var til taks þegar þurfti að handsama hund. Árný segir að annar tveggja hundaeftirlitsmannanna sé í veik- indaleyfi og hinn hafi farið í sum- arleyfi. Ráðinn var afleysingamaður í hundaeftirlitið. „Til að bæta gráu ofan á svart þá er að nafninu til feng- inn meindýraeyðir til að sinna hundaeftirliti í fjarveru beggja hundaeftirlitsmannanna,“ sagði Fé- lag ábyrgra hundaeigenda og þótti það „verulega kaldar kveðjur“. Árný segir að sá sem leysir nú af sem dýraeftirlitsmaður hafi leyfi til starfa sem meindýraeyðir. Mestu máli skipti í þessu sambandi að hann sé mjög vanur hundum og öðrum dýrum og kunni að umgangast þau. „Það krefst ekki neinnar sérstakr- ar menntunar að vera hundaeftirlits- maður en þeir sem við það starfa þurfa að kunna að fara með dýr. Það kann þessi maður og hann nýtur fulls trausts okkar til þessara starfa,“ segir Árný. Sameining dýraeftirlitsins  Reykjavíkurborg skoðar það að hagræða með því að mein- dýraeyðar og eftirlitsmenn með hundum og búfé starfi saman Reykholtshátíð var haldin í 24. sinn um helgina. Hátíðin hófst með tónleikum á föstudagskvöldi og henni lauk með síðdegistónleikum á sunnu- degi að lokinni hátíðarmessu og kirkjukaffi á kirkjudegi, þegar minnst var vígslu kirkjunnar á Ólafsmessu á sumri. Meðal flytjenda voru feðgarnir Kristinn Sig- mundsson og Jóhann Kristinsson, sem sungu saman í fyrsta skipti opinberlega. Ljósmyndari/Guðni Páll Sæmundsson Feðgarnir Kristinn Sigmundsson og Jóhann Kristinsson fluttu meðal annars þýska ljóðatónlist og Grannmetislög Þórarins Eldjárns og Hauks Tómassonar. Sungu saman opinberlega í fyrsta sinn Maður sem braust inn í Odda, hús Háskóla Íslands, í þrígang er nú kominn aftur á bak við lás og slá. Fljótlega beindist grunur að þessum manni og náðist hann á fimmtudag- inn var. Hann gekkst við innbrotun- um við yfirheyrslur hjá lögreglunni. Daginn eftir var maðurinn úrskurð- aður í fangelsi og í framhaldi af því hóf hann að afplána eftirstöðvar fyrri dóms. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni fékk maðurinn reynslu- lausn hinn 16. júlí og braust fyrst inn í Odda daginn eftir. Hann endurtók svo leikinn tvisvar sinnum. Maður- inn braut upp margar skrifstofur í húsinu og virðist aðallega hafa sóst eftir fartölvum. Ekki hafði tekist að endurheimta mikið af þýfinu í gær, að sögn lögreglunnar. Margir starfsmenn í Odda eru í sumarfríum og fengust þær upplýs- ingar frá Háskóla Íslands að ef til vill komi ekki í ljós hve miklu var stolið fyrr en fólk snýr aftur til vinnu. Komið var að þjófnum við iðju sína á þriðjudag í síðustu viku en hann komst þá undan á hlaupum. gudni@mbl.is Oddaþjóf- ur náðist  Nýsloppinn út  Aftur í afplánun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.