Morgunblaðið - 27.07.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 27.07.2020, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w w. i t r. i s 60 ára Erna er frá Hvammi í Ölfusi en býr í Reykjavík. Hún er matsveinn frá Hótel- og veitingaskóla Ís- lands og starfar sem matveinn á Hjúkr- unarheimilinu Eir. Maki: Jón Bergur Gissurarson, f. 1948, húsasmiður. Börn: Bjarki Steinar, f. 1979, Jóna Krist- ín, f. 1984, og Dísa Björg, f. 1990. Barna- börnin eru orðin fimm. Foreldrar: Guðmundur Bergsson, f. 1915, d. 2000, og Þrúður Sigurðardóttir, f. 1924, d. 2000. Þau voru bændur í Hvammi. Erna Björk Guðmundsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Samband veltur á því að vita ná- kvæmlega hvar maður vill miðla málum og hvar ekki. Einbeittu þér að því að leggja inn á bankareikning tilfinninganna hjá öllum. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú munt hitta fólk sem hefur sömu áhugamál og þú. Ekki fara fyrr en þú ert viss um að vera með allt sem þú komst með. Leggðu gamla hluti til hliðar og haltu á vit framtíðarinnar. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er óþarfi að taka allt per- sónulega sem sagt er í hita leiksins. Leyfðu fleirum að láta ljós sitt skína og sýndu öðrum þá þolinmæði sem þú vilt njóta. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Stundum verða hlutirnir að fá að hafa sinn gang, þótt allt sé ekki eins og þú helst kysir. Virtu skoðanir annarra. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Af einhverri ástæðu ertu meira í sviðsljósinu en venjulega. Mundu að eng- inn er fullkominn og þá þú ekki heldur. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú færð óvænta athygli sem þú kærir þig alls ekki um. Aðrir þurfa á nær- veru þinni að halda og þú þarft einnig á öðrum að halda. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú hefur haft í mörgu að snúast og þarft eiginlega að læra að verja sjálfan þig betur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sambönd við aðra eru fjár- sjóður lífsins. Munið að góð vinátta er gulli betri og hún er ekki einstefna. En mundu að þolinmæðin þrautir vinnur allar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það besta sem gæti komið fyr- ir þig er að taka ábyrgð. Afleiðingarnar eru minniháttar, en samt fyrir hendi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þér líður eins og tilfinningarnar ætli að kaffæra þig. Nýjar hugmyndir gætu meira að segja látið á sér kræla í nótt, vak- ið þig og krafist athygli. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú þarft að sýna mikla þolin- mæði í samskiptum þínum við vini og kunningja í dag. Treystu hugmyndum sem þú færð. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki ráð vina og vandamanna lönd og leið þótt þér lítist ekkert á þau í fyrstu. Kannski er einhver reiður yfir því að þú hafir hærri tekjur en hann eða hún. öryggisráðs um upplýsingaóreiðu og COVID-19. Áhugamál Jóns Gunnars eru margskonar. „Ég er virkur með- limur í hlaupahópnum Richa 116, sem er félagsskapur hlaupara í HÍ, nefndur eftir Marokkómanninum Richa sem getið er í annál Björns sló öll met og greinilegt að lands- menn voru á kafi í veirum og kófinu. Við bjuggum til nýjan flokk, Veirur og COVID-19, og í bígerð er að gera bók handa börnum og fróðleiks- fúsum almenningi um veirur og erfðafræði.“ Vísindavefurinn hóf ný- verið samstarf við vinnuhóp þjóðar- J ón Gunnar Þorsteinsson fæddist 27. júlí 1970 í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var í sveit á Sóleyjarbakka og Syðra- Langholti í Hrunamannahreppi og vann sumarstörf við Sogsvirkjanir og í steypuskála Ístaks. Hann var síðan sviðsmaður hjá Leikfélagi Reykjavíkur 1992-1996 meðfram há- skólanámi. Jón Gunnar gekk í Melaskóla og Hagaskóla og varð stúdent af eðlis- fræðideild II. frá Menntaskólanum í Reykjavík 1990. Hann lauk BA-námi í almennri bókmenntafræði frá Há- skóla Íslands 1995 og MA-námi í enskum bókmenntum frá University of Sussex 1997. Jón Gunnar var ættfræðingur hjá DeCode og Friðriki Skúlasyni 1997- 2000. Hann varð síðan aðstoðarrit- stjóri Vísindavefs Háskóla Íslands og hefur verið aðalritstjóri frá 2010. Hann gerði stutt hlé á störfum sín- um við Vísindavefinn þegar hann var ritstjóri á vefdeild Símans 2006- 2007. Jón Gunnar hefur einnig kennt námskeiðið Inngang að bókmennta- fræði við HÍ og ýmis önnur nám- skeið á vegum Háskóla unga fólks- ins, Háskólalestarinnar og Vísindasmiðju HÍ, aðallega um vís- indaheimspeki og sögu vísindanna. Hann hefur skrifað greinar í ýmis tímarit, aðallega um vísindi og bók- menntir, síðast greinina „Hvaða hlutverki gegnir draumurinn í Draumi Keplers?“ í vorhefti Skírnis 2018. Vísindavefurinn var opnaður í jan- úar 2000 og í tilefni af 20 ára afmæl- inu var haldið málþing í janúar. „Til- gangurinn með vefnum var og er að opna Háskólann út á við eins mikið og hægt er og miðla vísindum til al- mennings. Vinsældir vefsins fóru fram úr björtustu vonum og hafa síð- an aukist jafnt og þétt,“ segir Jón Gunnar. Yfir 800 manns eru í höf- undaskránni og þar af langflestir vís- indamenn við Háskóla Íslands. Sjálf- ur hefur Jón Gunnar skrifað tæplega 700 svör á vefinn, ýmist einn eða sem aðalhöfundur. „Aðsókn að Vísindavefnum er allt- af mjög mikil en marsmánuður í ár Halldórssonar í Sauðlauksdal og var „hlaupari að profession“ eins og seg- ir í annálnum.“ Hann varð fremstur í sínum aldursflokki í Fjölnishlaupinu í 5 km hlaupi í ár. „Önnur áhugamál mín eru matargerð og eldamennska, aðallega í anda Yotams Ottolenghis og Samis Tamimis. Svo hafa orðið til ný áhugamál í tengslum við vinnuna. Ég hef mikinn áhuga á sögu vís- indanna, vísindabyltingunni og sér í lagi tengslum vísinda og bókmennta. Nýjasta áhugamálið er síðan auðvit- að veiru- og örverufræði.“ Fjölskylda Eiginkona Jóns Gunnars er Helga Brá Árnadóttir, f. 25.8. 1966, um- sjónarmaður styrktarsjóða Háskóla Íslands. Þau eru búsett í Reykjavík. Foreldrar Helgu Brár eru Margrét Oddsdóttir, f. 28.9. 1945, fyrrv. dag- skrárstjóri Rásar 1, og Árni John- sen, f. 1.3. 1944, fyrrv. þingmaður, þau skildu. Uppeldisfaðir Helgu Brár er Hörður Filippusson, pró- fessor emeritus í lífefnafræði við HÍ. Fyrri eiginkona Jóns Gunnars er Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefs Háskóla Íslands – 50 ára Fjölskyldan Valgerður, Jón Gunnar, Helga Brá, Þorsteinn Gunnar, Margrét Lára og Þórunn Helena fyrir framan. Veirur eru nýjasta áhugamálið Afmælisbarnið Jón Gunnar í tjaldútilegu í Langaholti á Snæfellsnesi en fjölskyldan hefur verið dugleg að ferðast um landið í sumar. 30 ára Karítas er frá Þórshöfn en býr í Nes- kaupstað. Hún er hjúkrunarfræðingur að mennt frá Háskól- anum á Akureyri. Kar- ítas er hjúkrunarfræð- ingur á sjúkradeild Umdæmissjúkrahússins Neskaupstað. Maki: Steinar Pálmi Ágústsson, f. 1987, vinnur hjá Síldarvinnslunni. Börn: Dögun Rós, f. 2013, og Björn Jörfi, f. 2018. Foreldrar: Svala Sævarsdóttir, f. 1966, bókari hjá Langanesbyggð, búsett á Þórshöfn, og Agnar Bóasson, f. 1963, bif- vélavirki hjá Bíley, búsettur á Reyðarfirði. Karítas Ósk Agnarsdóttir Til hamingju með daginn Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.