Morgunblaðið - 27.07.2020, Blaðsíða 8
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Búðardalur Krambúðin þykir dýr.
Óánægja er meðal íbúa í Dölum með
verðlagningu í verslun Samkaupa í
Búðardal, sem sveitarstjórn telur að
sé langt umfram það sem boðað hafi
verið. Forsagan er sú að í maí sl. var
versluninni breytt úr kjörbúð í kram-
búð og því fylgdi að vöruverð myndi
hækka um 7,5%. Því mótmælti sveit-
arstjórn og taldi að verið væri að
leggja aukna áherslu á að ná til ferða-
manna, sem kæmi niður á þeim sem
byggju á svæðinu. Var því skorað á
Samkaup að breyta engu, því verð-
stefnan hefði leitt til þess að fólk
verslaði í heimabyggð frekar en ella.
Á fundi sveitarstjórnar fyrir
helgina kom fram að skv. nýjum kvitt-
unum hefði vörukarfa með 52 vörulið-
um hækkað um 25% frá í apríl.
„Það er himinn og haf á milli 25%
hækkunar vöruverðs og 7,7% hækk-
unar, sem hefði þó verið meira en
nóg,“ segir í ályktun sveitarstjórnar,
sem lýsti vonbrigðum með þróun
mála. Verslun væri nauðsynlegur
hluti í grunnþjónustu í hverju sam-
félagi og verðlagning þyrfti að vera
boðleg.
Fram kom ennfremur í sveitar-
stjórn að forstjóri Samkaupa væri
ósammála þeim verðmun og hækkun-
um sem sýnd hefðu verið. Hann hefði
sömuleiðis lagt til að stjórn Sam-
kaupa fjallaði um málefni verslunar-
innar í Búðardal á fundi sínum í næsta
mánuði. sbs@mbl.is
Verðhækkanir meiri en boðað var
Samkaup í Búðardal Verð hækkað um 25% frá í apríl Forstjóri ósammála
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020
Við erum sérfræðingar
í malbikun
Trausti Jónsson veðurfræðingurritar skemmtilega pistla á
blog.is um hugðarefni sitt og
flestra landsmanna, veðrið. Hann
hefur síðustu daga minnst á þrá-
látan kuldapoll,
sem hefur verið að
fríska upp á land-
ann að undanförnu.
Trausti skrifaði
pistil um kuldann
sem hófst svo:
„Skemmtileg staða
uppi í dag (föstu-
dag 24. júlí). Nokkuð heiðarlega
má segja að neðri hluti veðra-
hvolfs sé nú kaldari yfir landinu
norðvestanverðu heldur en yfir
nokkru öðru byggðu bóli á öllu
norðurhveli – og á suðurhveli er
það aðeins yfir Eldlandi syðst í
Suður-Ameríku sem kaldara er
yfir byggðum heldur en hér og nú
(en þar er auðvitað harðavetur).“
Ekki er víst að allir landsmenntaki undir að staðan sé
skemmtileg og hefðu líklega frek-
ar kosið hlýindin sem Trausti seg-
ir óvenjuleg norðan Noregs og
raunar almennt á norðurhveli.
En auðvitað er skemmtilegt aðslá met og þá skiptir ekki
endilega öllu hvort um hita-,
kulda- eða jafnvel úrkomumet er
að ræða.
Samt er ekki víst að allir gleðj-ist yfir því sem Trausti nefnir
einnig, að spár um hlýindi liggi
ekki á lausu, þó að hann bæti því
við að vel sé hægt að vona að
sumarhlýindi reki hingað um síð-
ir.
Þó að hnattræn hlýnun sé auð-vitað ekki efst á vinsældalista
margra er ekki ólíklegt að lands-
menn myndu þiggja í það minnsta
staðbundna hlýnun eftir nýfallið
kuldamet.
Trausti Jónsson
Skemmtilegt
kuldamet
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Alls 94,8% landsmanna segjast
treysta almannavörnum og heil-
brigðisyfirvöldum. Þetta kemur
fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup, þar
sem viðhorf fólks til ýmissa atriða
varðandi kórónveirufaraldurinn
voru könnuð. Séu niðurstöður könn-
unarinnar brotnar niður segjast
35,2% treysta nefndum stofnunum
fullkomlega í ráðstöfunum sínum og
aðgerðum, 43,8% mjög vel og 15,8%
frekar vel. Aðeins 1,2% þátttakenda
segjast hvorki treysta þeim vel né
illa, og 3% frekar illa. Traust til al-
mannavarna og heilbrigðisyfirvalda
hefur verið nokkuð stöðugt í alls 15
könnunum sem Gallup hefur gert frá
því veiran fór á kreik.
Þegar litið er til efnahagslegra af-
leiðinga kórónuveirunnar telja
61,5% þeirra sem Gallup spurði að
ríkisstjórnin sé að gera hæfilega
mikið til að bregðast við faraldrinum
en tæpur fjórðungur telur of lítið
hafa verið aðhafst og 9% segja að
alltof lítð hafi verið gert. Samanlagt
5% telja á hinn bóginn að of mikið
hafi verið gert. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Traust Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Víðir Reynisson yfirlög-
regluþjónn hjá Almannavörnum á blaðamannafundi, einum af mörgum.
Stofnunum treyst og
aðgerðir hæfilegar
Gallup kannar viðhorf á veirutíma