Morgunblaðið - 27.07.2020, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 27.07.2020, Blaðsíða 27
Ljósmynd/Þórir Tryggvason Atgangur KA-menn með Ívar Örn Árnason fremstan í flokki sækja hart að Beiti Ólafssyni markverði KR í leik liðanna á Akureyri í gær. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Breiðablik er komið í þriðja sæti Pepsi Max-deildar karla á ný eftir fyrsta sigurinn í sex leikjum. Blik- ar hristu af sér tapið gegn HK á dögunum með því að skora fimm mörk á fyrstu 50 mínútunum gegn Skagamönnum en lokatölur á Kópavogsvellinum í gærkvöld urðu 5:3. ÍA tapaði þar með sínum þriðja leik í röð og hefur fengið á sig þrettán mörk á meðan. „Thomas Mikkelsen er orðinn besti hreinræktaði framherjinn í deildinni og þegar kantmennirnir og miðjumennirnir eru í stuði fær Breiðablik fullt af færum og það eru næg gæði þar á bæ að nýta þau og skora mörk, eins og sást í kvöld. Eftir fimm leiki í röð án sig- urs gæti þessi leikur verið vendi- punktur hjá Blikum og byrjunin á einhverju góðu,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. um leikinn á mbl.is.  Kristinn Steindórsson bætti enn markamet sitt fyrir Breiðablik í efstu deild þegar hann skoraði annað og fjórða mark liðsins. Hann hefur nú skorað 39 mörk í deildinni fyrir félagið, fimm þeirra í sumar.  Thomas Mikkelsen er orðinn næstmarkahæsti Blikinn frá upp- hafi. Danski framherjinn skoraði þriðja og fimmta markið gegn ÍA og er kominn með 32 mörk fyrir Breiðablik. Hann fór uppfyrir Sig- urð Grétarsson sem gerði 31 mark fyrir félagið í deildinni.  Mikkelsen er jafnframt orðinn markahæstur í deildinni með níu mörk. Óttar Magnús Karlsson úr Víkingi er með sjö mörk, Patrick Pedersen úr Val og Steven Len- non úr FH með sex mörk hvor.  Hlynur Freyr Karlsson, 16 ára, kom inn á í sínum fyrsta leik í efstu deild hjá Breiðabliki. Morgunblaðið/Íris Liggjandi Blikarnir Gísli Eyjólfsson og Elfar Freyr Helgason sækja að Jóni Gísla Eyland bakverði Skagamanna sem er í óvenjulegri stellingu. Beitir bjargvættur KR-inga Beitir Ólafsson kom í veg fyrir að Íslandsmeistarar KR töpuðu sínum öðrum leik á tímabilinu þegar hann varði vítaspyrnu Guðmundar Steins Hafsteinssonar á 90. mínútu í leikn- um gegn KA á Akureyri í gær. Þar með skildu KA og KR jöfn án marka á Akureyrarvelli annað árið í röð. KR-ingar komust með stiginu á topp deildarinnar á ný en það merkilega er að öll þau stig sem þeir hafa tapað á tímabilinu hafa farið til liða í hópi fjögurra neðstu liðanna í deildinni, KA, Fjölnis og HK. Arnar Grétarsson hefur enn ekki fengið á sig mark sem þjálfari KA. Markatala Akureyrarliðsins í þrem- ur leikjum undir hans stjórn er 1:0 og uppskeran fimm stig. Um umdeilt atvik seint í leiknum skrifaði Baldvin Kári Magnússon í grein um leikinn á mbl.is: „Á 83. mínútu leiksins varð umdeilt atvik sem verður án efa mikið rætt næstu daga. Beitir gerði þá slæm mistök þegar hann sparkaði boltanum beint í fæturna á Guðmundi Steini sem stóð í markteignum. Guð- mundur Steinn setti boltann í netið en að lokum var rangstaða dæmd. Dómaratríó leiksins mat það svo að Ásgeir Sigurgeirsson hefði truflað Beiti þegar hann reyndi að verja skot Guðmundar. Ásgeir er fyrir innan þegar Guðmundur tekur skotið og stendur við Beiti en hvort hann hefur áhrif á markmanninn er umdeilt og erfitt að meta þrátt fyrir mörg áhorf á endursýningar.“  KR-ingar misstu enn út mið- vörð þegar Aron Bjarki Jósepsson meiddist í upphitun fyrir leikinn og lék ekki með. Arnþór Ingi Krist- insson fór í miðvarðarstöðuna í hans stað. Arnór Sveinn Að- alsteinsson var ekki með vegna meiðsla og Gunnar Þór Gunn- arsson spilar ekki meira á tíma- bilinu. Byrjun á einhverju góðu?  Blikar skoruðu fimm mörk á fyrstu 50 mínútunum gegn Skagamönnum  Ásdís Hjálmsdóttir Annerud hafn- aði í öðru sæti í spjótkasti á al- þjóðlegu frjálsíþróttamóti í Zwei- brücken í Þýskalandi á laugardaginn. Hún kastaði 60,27 metra en sig- urvegarinn Christin Hussong frá Þýskalandi kastaði 61 metra sléttan. Þriðja varð Annika Marie Fuchs frá Þýskalandi en hún kastaði 55,68 metra.  Knattspyrnumaðurinn Bjarki Steinn Bjarkason gæti verið á leið frá ÍA til Venezia í ítölsku B-deildinni. Geir Þorsteinsson framkvæmdastjóri Knattspyrnufélags ÍA staðfesti við Morgunblaðið í gærkvöld að viðræður væru í gangi. Bjarki er tvítugur kant- maður og hefur ekki verið með Skagamönnum í síðustu fjórum leikj- unum en hafði fram að því leikið 25 leiki með þeim í úrvalsdeildinni og skorað í þeim fjögur mörk.  Danski knattspyrnumaðurinn Tobi- as Thomsen gæti yfirgefið KR í næsta mánuði, eða þá eftir tímabilið. Hann sagði við bold.dk um helgina að sig langaði aftur til Danmerkur, KR- ingar hefðu sýnt því skilning og hann hefði rætt við lið í dönsku B-deildinni.  GR og GKG urðu Íslandsmeistarar golfklúbba 2020 en úrslitaleikirnir í 1. deildum karla og kvenna fóru fram á Urriðavelli á laugardag. GKG sigraði Keili 4:1 í úrslitaleiknum í 1. deild karla og GR sigraði Keili 4:1 í úrslita- leik í 1. deild kvenna og vann titilinn í 21. skipti.  Jón Dagur Þorsteinsson hjá AGF og Aron Elís Þrándarson hjá OB mætast með liðum sínum í hreinum úrslitaleik um Evrópusæti. AGF end- aði í þriðja sæti dönsku úrvalsdeild- arinnar í knattspyrnu eftir 0:1-tap gegn Hirti Hermannssyni og sam- herjum í Bröndby í gær. OB vann úr- slitaeinvígi umspils liðanna sem end- uðu fyrir neðan sjötta sæti, 4:2 samanlagt gegn Horsens, og komst þar með í leikinn gegn AGF.  Svava Rós Guðmundsdóttir skor- aði sitt fjórða mark í fyrstu sex um- ferðum sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á þessu tímabili þegar lið hennar gerði jafn- tefli, 3:3, við Guðrúnu Arnardóttur og sam- herja hennar í Djurg- ården í gær. Kristi- anstad, undir stjórn Elísabet- ar Gunnarsdóttur, lenti 3:0 undir í leikn- um. Liðið er í sjötta sæti með átta stig eftir sex umferðir í deildinni. Eitt ogannað ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Gömlu stórveldin Keflavík og Fram eru jöfn á toppi 1. deildar karla í fótbolta eftir sann- færandi heimasigra í gær en gætu misst Leikni R. og ÍBV upp fyrir sig þegar áttundu umferðinni lýkur í kvöld.  Keflavík lagði Vestra á heimavelli, 4:1, og gott gengi nýliðanna var þar með stöðvað í bili. Kian Williams og Josep Gibbs gerðu tvö mörk hvor fyrir Keflavík en Milos Ivank- ovic svaraði fyrir Vestra.  Fram valtaði yfir Þór í Safamýri, 6:1. Fred Saraiva og Alexander Már Þorláksson gerðu tvö mörk hvor, Albert Hafsteinsson og Haraldur Einar Ásgrímsson eitt hvor, eftir að Izaro Abella gerði fyrsta mark leiks- ins fyrir Þór. Álvaro Montejo hjá Þór var rekinn af velli í stöðunni 4:1.  Rúnar Þór Brynjarsson jafnaði fyrir Magna gegn Grindavík, 3:3, í dramatískum leik á Grenivík. Costelus Lautaru og Tóm- as Veigar Eiríksson gerðu hin mörk Magna en Josip Zeba, Guðmundur Magn- ússon og Oddur Ingi Bjarnason skoruðu fyrir Grindavík sem missti Sindra Björns- son af velli með rautt spjald.  Guðjón Þórðarson stýrði Víkingi í Ólafsvík til sigurs í fyrsta heimaleik sín- um, 3:0 gegn Leikni frá Fáskrúðsfirði. Vignir Snær Stefánsson, Gonzalo Zamor- ano og Billy Stedman skoruðu mörkin. Gömlu stórveldin eru efst Morgunblaðið/Íris Mark Fred Saraiva skorar annað marka sinna fyrir Fram í stórsigrinum gegn Þór í Safamýri í gær. KA – KR 0:0 M Mikkel Qvist (KA) Ívar Örn Árnason (KA) Sveinn Margeir Hauksson (KA) Bjarni Aðalsteinsson (KA) Finnur Orri Margeirsson (KR) Arnþór Ingi Kristinsson (KR) Atli Sigurjónsson (KR) Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 7. Áhorfendur: 844. BREIÐABLIK – ÍA 5:3 1:0 Alexander Helgi Sigurðarson 11. 2:0 Kristinn Steindórsson 17. 3:0 Thomas Mikkelsen 37. 4:0 Kristinn Steindórsson 39. 4:1 Tryggvi Hrafn Haraldsson 43. (víti) 4:2 Hlynur Sævar Jónsson 48. 5:2 Thomas Mikkelsen 51. (víti) 5:3 Viktor Jónsson 53. MM Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki) Kristinn Steindórsson (Breiðabliki) M Alexander Helgi Sigurðarson (Breið.) Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki) Thomas Mikkelsen (Breiðabliki) Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki) Viktor Jónsson (ÍA) Tryggvi Hrafn Haraldsson (ÍA) Stefán Teitur Þórðarson (ÍA) Marcus Johansson (ÍA) Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 8. Áhorfendur: 1232.  Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Würth-völlur: Fylkir – HK....................... 18 Extra-völlur: Fjölnir – Valur............... 19.15 Kaplakriki: FH – Grótta ...................... 19.15 Samsungv.: Stjarnan – Víkingur R..... 20.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Þróttur R ............. 18 Varmá: Afturelding – Leiknir R ......... 19.15 2. deild karla: Framvöllur: Kórdrengir – Þróttur V.. 19.15 3. deild karla: Fjölnisvöllur: Vængir Júpíters – KFG.... 20 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.