Morgunblaðið - 27.07.2020, Page 4

Morgunblaðið - 27.07.2020, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 Meiriháttar ehf. er vel tækjum búið alhliða jarðverktakafyrirtæki Allar nánari upplýsingar eru á, meiriháttar.is í síma S:821 3200 eða með tölvupósti í info@meirihattar.is Við höfum mikla reynslu og erum lausnamiðaðir þegar kemur að húsgrunnum sama hvort sem er í auðveldu moldarlagið eða klöpp sem þarf að fleyga. Við útvegum einnig allskyns jarðvegsefni. Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Undanfarið hafa einn til tveir skjól- stæðingar leitað daglega á bráða- móttöku Landspítalans í Fossvogi eftir slys á rafmagnshlaupahjólum, svokölluðum skútum. Æ fleiri fara nú um á slíkum farartækjum og í sumar hefur orðið sprenging í notk- un þeirra. „Hvort sem fólk ferðast í bíl, hleypur, hjól- ar eða er í bolta- leikjum; öllu fylgja slys. Við á bráðamóttöku teljum samt ekki að slys af völdum rafknúinna hlaupahjóla séu óvenju mörg, mið- að við hve margir nota þau. Kannski þvert á móti,“ segir Hjalti Már Björnsson yfir- læknir í samtali við Morgunblaðið. Brák og högg Flest slys sem tengjast notkun rafmagnsskúta hafa hingað til verið minniháttar, að sögn Hjalta Más. Þeir sem skúturnar nota eru yfirleitt ungt fólk sem hefur til dæmis misst vald á farartækinu og dottið, ekið á gangstéttarbrúnir og svo framvegis. Sumir hafa af þessu brákast á hönd- um, fengið minniháttar höfuðhögg og slíkt, þótt í einstaka tilvikum hafi þurft meiri inngrip lækna. „Að vera á rafmagnshjóli er til- tölulega nýr ferðamáti og þá eru byrjendurnir margir. Ég hvet fólk því til að fara hægt af stað meðan það venst hjólunum og lærir hverjar hætturnar sem þeim fylgja eru. Í stöku tilvikum hefur á bráðamóttöku komið fólk sem var á hjólunum undir áhrifum áfengis, sem á auðvitað ekki að eiga sér stað,“ segir Hjalti Már, sem kýs að líta á fjölgun þeirra sem ferðast á rafmagnsskútum, reiðhjól- um, fara ferða sinna gangandi og svo framvegis í stóru samhengi, sam- félagið sé að breytast. Jákvætt sé al- mennt að fleiri tileinki sér umhverf- isvænar samgöngur, í stað þess að nota einkabílinn með mengun og hættum sem honum fylgja. Raunar hafi verið algengt fyrr á árum að 20- 30 manns hafi látist í umferðarslys- um á Íslandi á ári hverju en með fjöl- þættum aðgerðum og vitundarvakn- ingu sé það nú liðin tíð. Álag á bráðamóttökuna vegna slysa á veg- um úti í sumar sé sömuleiðis minna en mörg undanfarin ár og komi þar einkum til að mun færri erlendir ferðamenn séu á landinu en verið hefur. Fólk hreyfi sig meira Á vef Samgöngustofu er fjallað ítarlega um ýmis öryggisatriði er lúta að rafskútum, en þær eru hann- aðar fyrir sex til 25 metra hraða á klukkustund. Óheimilt að breyta hjólunum svo þau komist hraðar yfir. Engar tryggingar þarf vegna skút- anna en eigendur eru hvattir til þess að leita ráða um ábyrgðartrygging- ar. Hlaupahjólafólki fjórtán ára og yngra ber að nota hjálm og eldra fólk er hvatt til að gera slíkt hið sama, enda sé hjálmurinn öllum sem raf- skúturnar nota mikilvægt öryggis- tæki. Svo virðist raunar sem almenn vitundarvakning eigi sér nú stað um öryggi við notkun rafskúta. Má þar nefna auglýsingu um málefnið sem Slysavarnafélagið-Landsbjörg birti á facebook í gær. Fleiri sambærileg skilaboð úr ýmsum áttum mætti þá tína til. „Skútuferðir og hjólreiðar eru hættulitlar séu þær á afmörkuðum brautum og vel staðið að hönnun um- ferðarmannvirkja. Einkabíllinn á ekki að hafa þann forgang sem tíðk- ast hefur,“ segir Hjalti Már Björns- son og að síðustu: „Það sýnir sig líka í löndum þar sem aðstaða hjólreiða- fólks er góð, svo sem í Danmörku og Hollandi, að slysatíðnin er lág. Þá eru heldur ekki með í jöfnunni heild- aráhrif vegna hreyfingarleysis vegna ofnotkunar á bílum, sem kem- ur fram í offitu, áunninni sykursýki, stoðkerfisvanda og öðru. Ég er já- kvæður gagnvart öllu sem leiðir af sér að fólk hreyfi sig meira og meng- un af völdum samgangna verði minni.“ Margir hafa slasast á rafmagnsskútunum  1-2 leita á bráðamóttöku Landspítala daglega eftir óhöpp á hlaupahjólum  Hættulítið og minni mengun, segir læknir Morgunblaðið/Hari Skútari Á siglingu á ferðamáta framtíðar. Rafknúin hlaupahjól þykja henta vel til dæmis í borgarumferðinni og seljast eins og heitar lummur. Hjalti Már Björnsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Stórhýsi í Reykjanesi í Grímsnesi, 1.400 fermetra bygging, hefur staðið fokhelt í áratugi og ekki er útlit fyrir að það komist í notkun í bráð. Fram- kvæmdir við byggingu hússins hóf- ust árið 1981, en áratug fyrr hafði Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) eignast Reykjanesjörðina, sem er um 300 hektarar. Framkvæmdum hætt 1983 Hjá ÍBR stóð til að koma upp al- hliða æfingaaðstöðu á svæðinu fyrir aðildarfélög bandalagsins, með sundlaug, íþróttavöllum og fleiru. Um þessar ráðagerðir sagði í Morgunblaðinu árið 1971 að íþrótta- miðstöð yrði ekki byggð „án jarðhita til upphitunar á húsum og til sund- laugar. Tókst ÍBR að festa kaup á jörðinni“. Sagði í fréttinni að und- irbúningur og skipulagsvinna á svæðinu vegna nýrra nota væri þeg- ar hafin. Framkvæmdir hæfust svo á næstu árum. Leyfi til þeirra var gef- ið út árið 1980 og smiðir hófust handa árið eftir. Þegar húsið, sem er á þremur hæðum, hafði verið steypt upp var hins vegar ljóst að ekki fengist meira fé til verkefnsins. Runnu áform sem fyrir lágu því út í sandinn. Fram- kvæmdum var hætt árið 1983 og þar við situr enn í dag, 37 árum síðar. Grunnskóli eða elliheimili Hópur fólks, meðal annars af höfuðborgarsvæðinu, keypti Reykja- nesjörðina árið 1998 og hefur þar byggt sumarhús og beitt búpeningi á hagann. Húsið mikla sem fylgdi með í kaupunum hefur verið aukaatriði. Þó má geta þess að útigangshross og sauðfé sem beitt er í Reykjaneslandi leita í stormviðrum stundum inn í bygginguna, á jarðhæð þar sem átti að vera borðtennissalur. Herbergi í heimavistarstílnum eru á efri hæð- um og raunar átti að reisa heilt íþróttahús á staðnum. Af því varð hins vegar aldrei. Guðmundur Ingi Leifsson í Kópa- vogi, fyrrverandi fræðslustjóri, er einn eigenda Reykjanessins. Hann segir að í tímans rás hafi komið fram ýmsar hugmyndir um hvernig megi nýta bygginguna, sem í fasteigna- mati er metin á 38,8 milljónir króna. „Auðvitað kostar heilmikið að full- gera stórt fokhelt hús. Að gera þetta að alifuglabúi var ein hugmyndin, hótelrekstur hefur verið nefndur, grunnskóli, starfsemi munkaklaust- urs og friðarsetur á vegum Ástþórs Magnússonar. Sjálfum hugnast mér best að þarna verði dvalarheimili aldraðra; eins konar sveitasetur. Okkur landeigendum er ekki alveg sama hvaða starfsemi verður þarna og viljum við hóflega umferð um þennan sælureit,“ segir Guðmundur Ingi og að síðustu: Dínamítið væri best „Við kaupin á Reykjanesjörðinni fyrir um tuttugu árum sögðum við eigendurnir að tækist ekki að koma stórbyggingunni í notkun eftir þrjú til fjögur ár væri dínamítið best. Af sprengingum hefur enn ekki orðið, en við skulum sjá hvað setur. En vissulega er þessi bygging sveipuð dulúð og þegar þoka liggur yfir land- inu lýsa þessu sumir sem miðalda- kastala í mýrinni efst í Grímsnes- inu.“ Kastalinn verið fokheldur í áratugi  Íþróttasetur í Grímsnesi sem aldrei varð  Stórhýsi yfirgefið í mýrinni  Hrossin leita í borðtenn- issalinn  Munkaklaustur og friðarsetur Ástþórs Magnússonar meðal hugmynda um nýtingu hússins Morgunblaðið/Sigurður Bogi Grímsnes Stórbyggingin í Reykjanesi er alllangt frá þjóðvegi og þangað fara fáir. Ekkert er í hendi um nýtingu hússins, sem er opið fyrir veðri. „Það hefur verið ánægjulegt að sjá hversu áhugasamir Íslendingar hafa verið að heimsækja okkur í sumar. Hins vegar eru gestir auðvitað mun færri en við eigum að venjast á þess- um árstíma,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu-, markaðs- og vöruþróunarsviðs Bláa lónsins. Þétt hefur verið bókað í lónið und- anfarið og Íslendingar hafa verið duglegir að nýta sér plássin sem er- lendir ferðamenn taka alla jafna. Ferðagjöf stjórnvalda hefur verið mikið nýtt í Bláa lóninu. „Það fer eftir því hvað þú berð saman við en jú það er hægt að segja að fjöldi gesta sé umfram væntingar í sumar. Það var erfitt að segja ná- kvæmlega fyrir hvernig sumarið yrði í ljósi aðstæðna,“ segir Helga. „Ferðagjöfin virðist hafa fallið vel í kramið og Íslendingar hafa verið duglegir að nýta hana hjá okkur eins og á öðrum ferðamannastöðum,“ bætir hún við. Líkt og mörg fyrirtæki sem reiða sig á ferðaþjónustu hefur Bláa lónið þurft að segja upp starfsmönnum. 164 var sagt upp í marsmánuði og 403 var sagt upp í maí. Óljóst er á þessari stundu hversu marga verður hægt að ráða að nýju. „Við höfum ekki tekið endanlegar ákvarðanir hvað það varðar,“ segir Helga. Fyrirtækið rýnir nú í stöðuna. thor@mbl.is Þétt bókað í Bláa lónið en gestir færri en vant er  Fjöldi gesta er umfram væntingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.