Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 13

Morgunblaðið - 27.07.2020, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020 www.gilbert.is Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Upp úr slitnaði í nýjustu lotu til- rauna samningamanna Breta og Evrópusambandsins (ESB) til að komast að samningum um viðskipta- mál og fleira eftir útgöngu Breta úr ESB. Sögðu þeir skjótfengna samn- inga ekki fyrir hendi en létu í ljós vonir um að saman gengi á næstu mánuðum. Boris Johnson, forsætisráðherra Breta, hafði lofað að rjúfa kyrrstöð- una þegar hann tók sjálfur þátt í við- ræðunum í síðasta mánuði. Markmið hans þá var að ná samkomulagi um viðræðurammann fyrir júlílok en með því hefði hann getað sannfært breskt viðskiptalíf um að það þyrfti ekki að búa sig undir samningslausa burtför úr ESB er aðlögunartíma út- göngunnar lýkur. Aðalsamningamennirnir segja nú að það geti ekki orðið að veruleika vegna grundvallarágreinings í stór- málum eins og fiskveiðum og sann- gjörnum samkeppnisreglum. „Því miður er það nú ljóst að samkomulag um gagnkvæman skilning á forsend- um samninga tekst ekki fyrir júlí- lok,“ sagði David Frost, aðalsamn- ingamaður Breta, í yfirlýsingu eftir viðræðurnar í London fyrradag. Hann sagði ESB skorta skilning á efnahagslegu og pólitísku sjálfstæði Breta. Lýsti hann hyldýpinu milli samninganefndanna í nokkrum lið- um sem „umtalsverðu“. Taka nýja stefnu Evrópskur starfsbróðir Frosts, Michel Barnier, gagnrýndi bresk yfirvöld fyrir að neita að gefa nokkuð eftir af kröfum sínum, sem þeir kalla „rauð strik“. „Með því að vilja ekkert skuldbinda sig varðandi forsendur opinnar og sanngjarnrar samkeppni og gagnkvæmra fiskveiðisamninga gera Bretar að verkum að á þessum tímapunkti eru viðskiptasamningar ólíklegir,“ sagði Barnier við blaða- menn. Háttsettur breskur embættismað- ur sagði að samningsaðilarnir myndu á óformlegum fundi í London í þessari viku reyna að ná samkomu- lagi um hvernig endanlegir samning- ar gætu litið út. Gaf hann til kynna að líklegra væri nú að gerður yrði einn allsherjarsamningur í stað margra afmarkaðri samninga. Hann sagði að vænta mætti viðræðna um „mynstur“ samningsins um miðjan ágúst og farið yrði nánar ofan í efnis- atriðin fram eftir september. Breskir fjölmiðlar sögðu að bresk- ir embættismenn litu á leiðtogafund ESB 15. til 16. október nk. sem síð- asta tækifærið til að landa samningi sem hægt yrði að staðfesta á Evr- ópuþinginu fyrir áramót. „Enn nóg um að ræða“ Eftir tæplega hálfrar aldar veru í sambandinu yfirgáfu Bretar ESB 31. janúar sl. á grundvelli þjóðar- atkvæðis árið 2016. Það var persónu- legur sigur Johnsons, eins af leiðtog- um útgöngumanna, er honum tókst að koma í gegnum breska þingið skilnaðarsamningi sem forvera hans, Theresu May, mistókst. Bretar eru bundnir lögum og reglum ESB til 31. desember og vænst er að þá taki við nýr samn- ingur um framtíðarsamskiptin við ESB sem er stærsti markaður fyrir breskar afurðir. Johnson hafnaði því í síðasta mánuði að framlengja aðild- artímabilið vegna pólitískra afleið- inga sem það gæti haft. Bretar segja að aukinn viðræðutími muni ekki leysa grundvallarágreining um hvernig þeir og ESB líta samband sitt til framtíðar. Ráðamenn hjá ESB í Brussel segja að nálægð Bretlands og fyrri aðild geri að verkum að yfirvöld í London verði að fylgja betur en önn- ur ríki stöðlum og reglum ESB vilji Bretar fá opinn aðgang að mörkuð- um ESB. Þessu hafna bresk stjórn- völd og segjast einungis fara fram á sömu meðhöndlun og ESB hefur veitt öðrum sjálfstæðum ríkjum í viðskiptasamningum. Mistakist að brúa þetta bil mun af- leiðingin verða að teknar verði upp lágmarkskröfur Heimsviðskipta- stofnunarinnar (WTO). Það leiddi til hærri tolla og þungbærra kvaða á fyrirtæki sem stofnað gætu viðskipt- um í hættu og minnkað tiltrú fjár- festa á Bretlandi. Hvað sem því líður gefa ráðamenn í Brussel og London ekki upp vonina. „Framvinda viðræðnanna er ósvikin. Það er nóg á borðunum í viðræðun- um til að halda samtalinu áfram,“ sagði háttsettur fulltrúi bresku stjórnarinnar. Samningar taka nýja stefnu  Vegna kyrrstöðu og þráteflis er búist við að viðræður Breta og ESB færist nú inn á nýjar brautir  Grundvallarágreiningur í stórum málum er hamlandi AFP ESB-maður Michel Barnier, aðalsamningamaður ESB, með grímu á leið á blaðamannafund í kjölfar viðræðna. Hann gagnrýndi bresk yfirvöld fyrir að neita að gefa nokkuð eftir af kröfum sínum, sem þeir kalla „rauð strik“. Kvikmyndahús í höfuðborg Kína, Peking, voru opnuð nú fyrir helgi. Nýjar myndir voru á dagskránni, en kvikmyndahús landsins hafa eitt af öðru verið opnuð síðustu daga. Slíkt er þó takmörkunum háð enda mjög stífar sóttvarnareglur í gildi í landinu. Að því er segir í umfjöllun kínverskra miðla um málið má einungis selja í þriðjung sætanna, en tryggt er að auð sæti séu milli allra gesta. Þá hefur áhorfendum verið gert skylt að bera grímu meðan á sýningu stendur. Í höfuðborginni eru 262 kvik- myndahús og voru flest þeirra opnuð nú fyrir helgi. Meðal bíómynda sem standa til boða í framangreindum kvikmyndahúsum eru Hollywood- myndirnar Dolittle og Bloodshot. Þó verða kvikmyndahús á svæðum, þar sem enn eru einhver smit, áfram lok- uð. Kínversk kvikmyndahús hafa verið lokuð frá því í upphafi árs. Var það hluti af hörðum aðgerðum stjórn- valda þar í landi til að sporna við út- breiðslu kórónuveirunnar. Nú þegar árangur hefur náðst í baráttunni hef- ur verið slakað umtalsvert á takmörk- unum. aronthordur@mbl.is AFP Kvikmyndahús Gestir kínverskra kvikmyndahúsa eru skyldugir til að bera grímu. Kvikmyndahús í Kína hafa verið opnuð eitt af öðru á síðustu dögum. Kvikmyndahús í Peking opnuð á ný  Grímuskylda meðan á sýningu stendur Nýtt Norður- skautshaf er að koma í ljós með auknum þör- ungabláma og stærri sjávar- öldum. Þetta og fleira minnir meira á Atlants- hafið og Kyrra- hafið, að því er fram kemur í nokkrum nýjum og nýlegum rann- sóknum. Skellið skuldinni á – eða þakkið – bráðnun hafíss, ekki síst á jað- arsvæðum Norðuríshafsins, og hlýnun sem jaðarsvæðin ýta norð- ur á bóginn, segja rannsóknirnar. „Í mörgu tilliti sýnist Norður- íshafið eins og nýtt úthaf,“ segir Igor Polyakov, haffræðingur við háskólann í Fairbanks í Alaska. Hann fór fyrir samstarfshópi vís- indamanna frá háskóla hans, finnsku veðurfræðistofnuninni og fjölda annarra stofnana í Banda- ríkjunum, Kanada, Noregi, Svíþjóð og Rússlandi. Í tímaritinu Frontiers in Marine Science er skýrt frá greiningu á gögnum 37 ár aftur í tímann um vistkerfisbreytingar á norður- slóðum á því tímabili, svo sem hita- breytingar, breytingar á efna- samsetningu og lífríkinu. Voru breytingarnar drifnar áfram af sjó frá svæðum þar sem norðlægir og suðlægir hafstraumar mætast. Á Evrópuhlið norðurskauts- svæðisins, þar sem streymir inn hlýrri sjór úr Barentshafi og Kyrrahafi, er blöndun ferskvatns og saltvatns meiri og hefur hún leitt til aukinnar líffræðilegrar framleiðni í sjónum. Ameríku- og Asíumegin gætir áhrifa Berings- sunds og Chukchihaf en þar hefur ferskvatn aukist við ísbráðnun og árrennsli. Hvílir það ofan á eðlis- þyngri saltari sjó sem dregur úr sjávarblöndun en það gæti leitt til minni framleiðni þeim megin í haf- inu. Líkjast meira syðri höfum  Bráðnun hafíss Ís Hvítabjörn og bráðnandi ís.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.