Morgunblaðið - 27.07.2020, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 2020
Pepsi Max-deild karla
KA – KR.................................................... 0:0
Breiðablik – ÍA ......................................... 5:3
Staðan:
KR 8 5 2 1 13:7 17
Valur 8 5 1 2 18:7 16
Breiðablik 9 4 2 3 19:15 14
Stjarnan 5 4 1 0 12:4 13
Víkingur R. 8 3 3 2 15:12 12
Fylkir 8 4 0 4 11:12 12
FH 7 3 2 2 13:12 11
ÍA 9 3 1 5 21:21 10
KA 8 1 5 2 6:10 8
HK 8 2 2 4 13:19 8
Grótta 8 1 2 5 8:18 5
Fjölnir 8 0 3 5 7:19 3
Lengjudeild karla
Magni – Grindavík.................................... 3:3
Keflavík – Vestri....................................... 4:1
Fram – Þór................................................ 6:1
Víkingur Ó. – Leiknir F ........................... 3:0
Staðan:
Keflavík 8 5 2 1 25:10 17
Fram 8 5 2 1 19:11 17
Leiknir R. 7 5 1 1 19:9 16
ÍBV 7 4 3 0 15:8 15
Þór 8 4 1 3 13:13 13
Grindavík 8 2 5 1 16:15 11
Vestri 8 3 2 3 9:12 11
Afturelding 7 3 1 3 18:11 10
Víkingur Ó. 8 3 0 5 9:17 9
Leiknir F. 8 2 1 5 6:15 7
Þróttur R. 7 0 1 6 3:14 1
Magni 8 0 1 7 6:23 1
2. deild karla
Fjarðabyggð – Kári.................................. 1:0
Dalvík/Reynir – Njarðvík........................ 1:1
Víðir – Haukar .......................................... 0:2
KF – Selfoss.............................................. 2:1
ÍR – Völsungur ......................................... 5:1
3. deild karla
Reynir S. – Sindri ..................................... 7:1
Höttur/Huginn – Álftanes ....................... 3:1
Einherji – Ægir ........................................ 0:1
Augnablik – Tindastóll............................. 3:3
Lengjudeild kvenna
Völsungur – Grótta .................................. 1:2
Staðan:
Tindastóll 6 5 1 0 16:2 16
Keflavík 6 4 2 0 18:3 14
Grótta 7 4 2 1 8:5 14
Afturelding 6 2 2 2 7:5 8
Haukar 6 2 2 2 8:8 8
Víkingur R. 6 2 1 3 9:11 7
Augnablik 5 2 1 2 6:9 7
ÍA 6 1 3 2 11:10 6
Fjölnir 6 1 0 5 3:16 3
Völsungur 6 0 0 6 2:19 0
2. deild kvenna
Grindavík – Sindri .................................... 1:0
Hamrarnir – Álftanes .............................. 0:2
England
Everton – Bournemouth......................... 1:3
Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Everton.
Burnley – Brighton ................................. 1:2
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 75
mínúturnar með Burnley.
Arsenal – Watford.................................... 3:2
Chelsea – Wolves...................................... 2:0
Crystal Palace – Tottenham.................... 1:1
Leicester – Manchester United .............. 0:2
Manchester City – Norwich .................... 5:0
Newcastle – Liverpool ............................. 1:3
Southampton – Sheffield United ............ 3:1
West Ham – Aston Villa .......................... 1:1
Lokastaðan:
Liverpool 38 32 3 3 85:33 99
Manch. City 38 26 3 9 102:35 81
Manch. United 38 18 12 8 66:36 66
Chelsea 38 20 6 12 69:54 66
Leicester 38 18 8 12 67:41 62
Tottenham 38 16 11 11 61:47 59
Wolves 38 15 14 9 51:40 59
Arsenal 38 14 14 10 56:48 56
Sheffield United 38 14 12 12 39:39 54
Burnley 38 15 9 14 43:50 54
Southampton 38 15 7 16 51:60 52
Everton 38 13 10 15 44:56 49
Newcastle 38 11 11 16 38:58 44
Crystal Palace 38 11 10 17 31:50 43
Brighton 38 9 14 15 39:54 41
West Ham 38 10 9 19 49:62 39
Aston Villa 38 9 8 21 41:67 35
Bournemouth 38 9 7 22 40:65 34
Watford 38 8 10 20 36:64 34
Norwich 38 5 6 27 26:75 21
Tyrkland
Yeni Malatyaspor – Gaziantep............... 0:1
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
með Yeni sem féll með þessum ósigri.
Noregur
Odd – Aalesund........................................ 2:3
Hólmbert Aron Friðjónsson og Daníel
Leó Grétarsson léku allan leikinn með
Aalesund en Davíð Kristján Ólafsson fékk
rauða spjaldið á 21. mínútu.
Bodö/Glimt – Molde ................................ 3:1
Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Sandefjord – Mjöndalen ......................... 1:0
Viðar Ari Jónsson og Emil Pálsson léku
allan leikinn með Sandefjord.
Vålerenga – Strömsgodset..................... 2:0
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
Manchester United og Chelsea
fylgja Liverpool og Manchester City
í Meistaradeild Evrópu á komandi
vetri. Þetta réðst í lokaumferð ensku
úrvalsdeildarinnar í fótbolta í gær
þegar United og Chelsea tryggðu
sér þriðja og fjórða sætið með 2:0
sigrum á Leicester og Wolves.
Bruno Fernandes og Jesse Ling-
ard skoruðu fyrir United í útisigr-
inum gegn Leicester, sem þar með
sat eftir í fimmta sæti eftir að hafa
verið með meistaradeildarsæti í
höndunum allt tímabilið.
Chelsea lagði Wolves með
mörkum frá Mason Mount og Olivier
Giroud. Þar með duttu Úlfarnir nið-
ur í sjöunda sætið og verða að
treysta á sigur Chelsea í bikar-
úrslitaleiknum gegn Arsenal til að
þeir fái Evrópudeildarsæti.
Tottenham náði hins vegar
sjötta sæti og keppnisrétti í Evr-
ópudeildinni með 1:1-jafntefli gegn
Crystal Palace í London. Harry
Kane kom Tottenham yfir en Jeff-
rey Schlupp jafnaði fyrir Palace.
Virgil van Dijk, Divock Origi og
Sadio Mané skoruðu fyrir Liverpool
sem náði 99 stigum með 3:1-útisigri
á Newcastle.
Aston Villa náði stigi gegn West
Ham í London, 1:1, og þar með
dugði ekki Bournemouth að vinna
góðan útisigur, 3:1, á Gylfa Þór Sig-
urðssyni og félögum í Everton. Eftir
fimm ár í hópi þeirra bestu er
Bournemouth því fallið ásamt Wat-
ford, sem tapaði fyrir Arsenal, 3:2,
og Norwich, sem var löngu fallið.
Kevin De Bruyne skoraði tvö
mörk og lagði eitt upp fyrir Man-
chester City í 5:0-sigri á Norwich.
Þar með skoraði City meira en 100
mörk í annað sinn á þremur árum.
vs@mbl.is
Leicester sat eft-
ir með sárt enni
Man.Utd og Chelsea í Meistaradeild
AFP
Sigur Jesse Lingard skorar seinna mark Manchester United gegn Leicester
City og gulltryggir liðinu þriðja sætið í úrvalsdeildinni 2019-20.
Elvar Már Friðriksson hefur fyrst-
ur íslenskra körfuknattleiksmanna
samið við félagslið í Litháen. Siauli-
ai, frá samnefndri, fjórðu stærstu
borg landsins, tilkynnti á laugar-
daginn að Elvar væri orðinn leik-
maður þess. Þar mun Elvar leika
undir stjórn Antanas Sireika sem
hefur verið sigursæll sem landsliðs-
þjálfari Litháens, sem varð m.a.
Evrópumeistari undir hans stjórn
árið 2003. Elvar varð sænskur
meistari með Borås á síðasta tíma-
bili en hefur leikið með Njarðvík
lengst af ferlinum.
Elvar fyrstur til
liðs í Litháen
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Litháen Elvar Már Friðriksson er á
leiðinni á nýjar slóðir.
Juventus varð í gærkvöld ítalskur
meistari í knattspyrnu níunda árið í
röð og í 36. skiptið samtals með því
að sigra Sampdoria, 2:0, í 36. um-
ferð ítölsku A-deildarinnar. Cristi-
ano Ronaldo skoraði í uppbótar-
tíma fyrri hálfleiks og Federico
Bernardeschi bætti við marki um
miðjan síðari hálfleik. Ronaldo
hefði getað bætt við marki á 89.
mínútu þegar hann tók vítaspyrnu
en hann skaut í þverslána. Juventus
er með sjö stiga forystu þegar
tveimur umferðum er ólokið, er
með 83 stig gegn 76 hjá Inter.
Níundi titill
Juventus í röð
AFP
Níu Juventus hefur einokað ítalska
meistaratitilinn frá árinu 2012.
FRJÁLSAR
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Meistaramót Íslands í frjálsum
íþróttum fór fram í 94. skipti um
helgina. Keppt var á Þórsvelli á
Akureyri. Átti mótið upprunalega
að fara fram í Kópavogi en var fært
þar sem Kópavogsvöllur var ekki
klár í tæka tíð. Guðbjörg Jóna
Bjarnadóttir, Íslandsmethafi í 100
og 200 metra hlaupum, varð fjór-
faldur Íslandsmeistari. Kom hún
fyrst í mark í 100 og 200 metra
hlaupum og þá var hún hluti af
4x100 og 4x400 metra boðhlaups-
sveitum ÍR sem báru sigur úr být-
um. Guðbjörg var nokkuð frá Ís-
landsmetum sínum, en hún var sátt
við árangurinn miðað við aðstæður,
en nokkuð kalt var á Akureyri um
helgina.
Stífnar upp í þessum kulda
„Miðað við veður og aðstæður er
þetta mjög fínt. Það var mjög kalt,
undir tíu gráðum, og í flestum lönd-
um er ekki æft og hvað þá keppt
nema það sé að minnsta kosti 15
gráðu hiti. Við Íslendingar skerum
okkur svolítið út hvað varðar að
keppa úti á stuttbuxum og í toppi í
hvaða veðri sem er. Þetta er mjög
góð braut og mjög gaman að keppa
á Akureyri en maður stífnar svolítið
upp í þessum kulda. Þegar það er
hiti er maður mýkri og þarf að hafa
minna fyrir hlutunum,“ sagði Guð-
björg í samtali við Morgunblaðið.
Það hafði ekki mikil áhrif á undir-
búninginn að mótið var fært með
stuttum fyrirvara. „Það eina var að
maður þurfti að redda gistingu með
stuttum fyrirvara, en það redduðu
þessu allir. Það er alltaf gaman að
fara eitthvað annað að keppa,“ sagði
Guðbjörg.
Var hún á meðal keppenda á
meistaramóti 15-22 ára í Kaplakrika
um síðustu helgi. Kom upp kór-
ónuveirusmit á mótinu og viður-
kennir fremsti spretthlaupari Ís-
lands að það hafi verið óþægilegt.
„Ég er stressuð þegar kemur að
Covid og þetta hefur mikil áhrif á
fólk. Ég var persónulega ekki ná-
lægt þessum einstaklingi sem smit-
aðist og það var alls ekki honum að
kenna að smitast. Ég reyni eins og
ég get að fara varlega, því í frjálsum
getur verið nálægð. Fólk notar
sömu áhöld, en það var tekið mjög
vel á þessu um helgina og sprittað
vel á milli öll áhöld og brautir.“
Vill keppa á Norðurlöndunum
Guðbjörg getur lítið keppt erlend-
is á árinu vegna kórónuveirunnar,
en hún vill ólm komast út á næstu
mánuðum. „Ég vil komast á danska
eða norska meistaramótið sem er í
ágúst og september. Ég og þjálf-
arinn erum að vinna í því. Ég er
ekki að fara til Svíþjóðar þar sem
hafa verið mörg smit. Maður reynir
að bjarga sér eitthvað því ég vil fara
í hitann að keppa. Það er mjög erfitt
að hlaupa í þessum kulda. Ég finn
að ég er í góðu formi og ég vil nýta
það,“ sagði Guðbjörg Jóna.
Íslandsmet Guðbjargar í 100
metra hlaupi er 11,56 sekúndur en
hún hljóp á 11,70 sekúndum á laug-
ardag. Metið í 200 metra hlaupi er
23,45 sekúndur og hljóp Guðbjörg á
24,04 sekúndum í gær. Var hún því
nokkuð frá báðum Íslandsmetum.
Fleiri Íslandsmethafar náðu í
gullverðlaun um helgina; Vigdís
Jónsdóttir kastaði 60,82 metra í
sleggjukasti og setti mótsmet í leið-
inni. Hilmar Örn Jónsson gerði slíkt
hið sama er hann kastaði 73,84
metra. Hafdís Sigurðardóttir vann
langstökk með 6,25 metra stökki. Þá
kom Íslandsmethafinn Kolbeinn
Höður Gunnarsson fyrstur í mark í
200 metra hlaupi er hann hljóp á
21,57 sekúndum. Vann hann einnig
100 metra hlaup á 10,68 sekúndum.
Vil nýta mér góða formið
Guðbjörg Jóna fjórfaldur Íslandsmeistari Ætlar sér að keppa í Noregi eða
Danmörku Mótsmetin féllu í sleggjukasti Kuldi gerði keppendum erfitt fyrir
Morgunblaðið/Eggert
Tvöfalt ÍR-ingurinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sigraði í bæði 100 og 200
metra hlaupi kvenna á Meistaramóti Íslands á Akureyri um helgina.