Morgunblaðið - 27.07.2020, Side 32
Svissneska dagblaðið Le Temps hefur birt lista sinn yfir
30 bestu evrópsku glæpasögurnar sem komið hafa út á
frönsku á síðastliðnum 40 árum og eru bækur tveggja
íslenskra höfunda á listanum, Mýrin eftir Arnald Ind-
riðason í þýðingu Erics Bourys og Búrið eftir Lilju Sig-
urðardóttur í þýðingu Jean-Christophes Salaüns. Með-
al annarra höfunda á listanum eru Ruth Rendell, Colin
Dexter, Fred Vargas, Jo Nesbø, Pierre Lemaitre, Henn-
ing Mankell og Stieg Larsson. Arnaldur og Lilja eru,
eins og sjá má, í góðum félagsskap.
Arnaldur og Lilja á lista yfir 30
bestu glæpasögur síðustu 40 ára
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Ætlun mín er að spila á öllum golf-
völlum landsins og á síðustu vikum
hef ég færst óðum nær því tak-
marki,“ segir Haukur Örn Birgis-
son, forseti Golfsambands Íslands.
Tólf daga hringferð með fjölskyld-
unni notaði hann til að reyna sig á
nokkrum völlum sem hann átti eftir.
Alls eru golfvellirnir á Íslandi 66 og
eftir ferðalagið á Haukur Örn tutt-
ugu velli eftir og vonast til að spila á
þeim flestum seinna á sumrinu.
„Þegar lagt var af stað sagði ég
fjölskyldunni að ég þyrfti svigrúm
fyrir íþróttina og því sýndu konan
mín og börnin góðan skilning. Fyrst
tók ég golfvöllinn í Vík, þar sem ég
spilaði raunar hring fyrir 20 árum.
En svo komu vellirnir sem eru nýir í
bókinni hjá mér; Höfn í Hornafirði,
Neskaupstaður, Ekkjufell á Fljóts-
dalshéraði, Ásbyrgi í Kelduhverfi,
Katlavöllur á Húsavík og Siglufjarð-
arvöllur,“ segir Haukur.
Falleg umgjörð vallanna
„Vissulega eru stóru vellirnir hér
á höfuðborgarsvæðinu betur útbúnir
með allri þeirri glæsilegu aðstöðu
sem þeim fylgir. Á litlum völlum úti
á landi hefur samt víða tekist að gera
ótrúlega flotta aðstöðu með sjálf-
boðavinnu fólks í golfklúbbunum.
Margir vallanna hafa fallega um-
gjörð í stórbrotinni náttúru, svo sem
á Hornafirði þar sem Vatnajökull í
allri sinni dýrð blasir við frá braut-
unum. Hönnun vallarins á Húsavík
er sömuleiðis mjög eftirtektarverð
og sumar holurnar þar verða mér
minnisstæðar. Þá hefur vel tekist til
á Siglufirði á velli sem var fullgerður
fyrir tveimur árum, af klúbbi sem er
50 ára um þessar mundir og afmæl-
ismót var haldið um síðustu helgi,“
segir Haukur Örn.
Skráðir félagar í golfklúbbum
landsins eru í dag rúmlega 17 þús-
und og hefur fjölgað jafnt og þétt á
undanförnum árum. Þó telur Hauk-
ur Örn nærri láta að aðeins um
helmingur þeirra sem leggja stund á
sportið sé skráður í klúbba; efalítið
séu iðkendur nú um 35 þúsund, sum
sé um tíund landsmanna. Leiknum
hringjum á völlum landsins fari líka
fjölgandi.
Leikurinn verður betri
„Flestir eru í golfinu ánægjunnar
vegna. Betri árangur og lægri for-
gjöf eru bónus. En á góðu sumri
þegar fólk getur verið mikið á vell-
inum segir það sig sjálft að leikurinn
verður betri. Íslenskt atvinnufólk í
greininni eru sterkar fyrirmyndir og
hvetjandi,“ segir Haukur Örn, sem
hefur nær alfarið verið á Íslandi í
sumar, aðstæðna vegna. Sem forseti
Evrópska golfsambandsins reiknar
hann þó með ferðalögum víða um álf-
una á næstunni, þegar mótaraðir
hefjast að nýju, en þær hafa verið
stopp síðan í vor vegna Covid.
Ljósmynd/Hari-Golfsamband Íslands
Fjölskyldusport Haukur Örn á golfvellinum í Vík í Mýrdal með börnunum sínum, Stefáni Inga og Ragnhildi Ylfu.
Spilar golf um land allt
Forseti á faraldsfæti Tíund þjóðarinnar er í sportinu
Ljósmynd/Hari-GSÍ
Golf Betri árangur og lægri forgjöf
eru bónus, segir Haukur Ingi.
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 10 Verð 369.000,-
L 206 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
DUCA model 2959
L 215 cm Áklæði ct. 70 Verð 369.000,-
L 215 cm Leður ct. 10 Verð 529.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 279.000,-
L 198 cm Leður ct. 10 Verð 379.000,-
GOLF model 2945
L 216 cm Áklæði ct. 70 Verð 259.000,-
L 216 cm Leður ct. 10 Verð 399.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 70 Verð 449.000,-
L 202 cm Leður ct. 25 Verð 669.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
MÁNUDAGUR 27. JÚLÍ 209. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Breiðablik komst upp í þriðja sætið í Pepsi Max-deild
karla í fótbolta í gærkvöld með sigri á Skagamönnum í
markaleik á Kópavogsvelli, 5:3. Þetta var fyrsti sigur
Blika í sex leikjum en ÍA tapaði þriðja leik sínum í röð. Á
Akureyri slapp KR með skrekkinn þegar Beitir Ólafs-
son, markvörður Íslandsmeistaranna, varði vítaspyrnu
á lokamínútunum í markalausu jafntefli gegn KA. »27
Blikar þriðju og Beitir bjargaði KR
ÍÞRÓTTIR MENNING