Morgunblaðið - 29.07.2020, Page 1

Morgunblaðið - 29.07.2020, Page 1
Blómatíð hjá blómabændum Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Þorgeirsson, formaður Sambands garð- yrkjubænda, segir sölu á íslenskum blómum hafa gengið mjög vel í vor. Þá hafi sala á garðplöntum slegið met. Gengi garðyrkju og blómaræktar vitnar um að ýmsar greinar hafa ekki gengið í gegnum sam- drátt, þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn. „Það er okkar upplifun að garðplöntusala hefur aldrei verið eins góð og á vordögum. Það er auð- séð að Íslendingar eru heima og vilja hafa huggu- legt í kringum sig,“ segir Gunnar. Sala á íslensku grænmeti hafi einnig verið góð. Sala til veitinga- húsa hrundi í faraldrinum en jókst til smásölu- verslana. Gísli Jóhannsson, rósabóndi í Dalsgarði, segir sömu sögu. „Við finnum fyrir miklum meðbyr í dag. Það er meðbyr með íslenskri framleiðslu – landbúnaðar- afurðum, blómum og grænmeti – og menn eru til- búnir að spýta í lófana og sinna markaðnum eins og á að gera. Það hefur gengið mjög vel að selja. Það hefur frekar vantað blóm en hitt. Það hefur verið mikil innanlandsneysla,“ segir Gísli. Máli sínu til stuðnings bendir Gísli á að nú séu tugir þúsunda Íslendinga ekki á ferðalagi erlend- is. „Við gerum vel við okkur í útlöndum. Nú er fólkið heima og gerir vel við sig þar í staðinn,“ segir Gísli en nánar er fjallað um málið í ViðskiptaMogganum í dag. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rósagarður Daiva Roze, starfsmaður Dalsgarðs í Mosfellsdal, vann við það í gær að snyrta rósir í einu gróðurhúsa fyrirtækisins.  Salan sjaldan verið meiri  Sala á garðplöntum í vor meiri en dæmi eru um M I Ð V I K U D A G U R 2 9. J Ú L Í 2 0 2 0 Stofnað 1913  177. tölublað  108. árgangur  FYRSTA FLOKKS TÓNLISTARFÓLK Á ÓLAFSFIRÐI HIKA VIÐ PÖNTUN Á SÓLARLANDAFERÐUM TOMMI GERIR UPP FERILINN Í OPNUVIÐTALI FJÖLDI ÞÓ FARINN TIL SPÁNAR 6 VIÐSKIPTAMOGGINNBERJADAGAR 24 A ct av is 91 10 13 Omeprazol Actavis 20mg, 14 og 28 stk. Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og auka- verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is  Umtalsvert magn af makríl fannst í mið- og norðurhluta Nor- egshafs, þar á meðal suðsuðaustur af Jan Mayen. Þetta kom fram í frétt norsku hafrannsóknastofn- unarinnar í gær. Makríllinn við Jan Mayen var stór og feitur og stút- fullur af átu. Fjölþjóðlegur leiðangur í Norð- urhöfum að sumarlagi (IESSNS) hefur staðið yfir. Árni Friðriksson RE tók þátt í honum fyrir hönd Ís- lands en einnig voru með í för skip frá Noregi, Færeyjum, Grænlandi og Danmörku. Von er á tilkynningu frá Hafrannsóknastofnun um fyrstu niðurstöður. »12 Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Hafrannsóknaskip Árni Friðriksson RE hefur verið í mánaðarlöngum leiðangri. Fundu talsvert af makríl í Noregshafi og við Jan Mayen  Þóranna K. Jónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Samtaka versl- unar og þjónustu, segir í samtali við ViðskiptaMoggann að erfitt sé að segja fyrir um langtímaáhrif hér á landi af uppgangi netverslunar í kórónuveirufaraldrinum, en vegna samkomubanns jukust viðskipti við netverslanir umtalsvert á tíma- bilinu. „Ég held að breytingin verði meiri víða erlendis þar sem samkomubannið stóð mun lengur,“ segir Þóranna. Hún segir að þar sem samkomubann hafi varað skemur hér á landi hafi landsmenn ekki haft eins langan tíma til að festa netverslun í sessi. Meiri áhrif erlendis af netverslun í samkomubanni Snorri Másson snorrim@mbl.is Stjórnvöld eru með það til skoðunar hvort herða eigi samkomutakmark- anir og gera tveggja metra regluna aftur að reglu. Um hádegi í dag eiga niðurstöður úr raðgreiningu Íslenskr- ar erfðagreiningar á tveimur innan- landssmitum frá því í gær að liggja fyrir. Ef í ljós kemur að þau veirutilfelli hafa sama mynstur og veiran í tilfelli flestra í nýuppkominni hópsýkingu á Íslandi þýðir það að aðgerðir verða hertar. Það gefur enda til kynna að hinir smituðu hafi smitast af sömu umferð veirunnar og í hinum tilfell- unum, án þess að hafa hitt hina sem hafa greinst. Það gefur aftur til kynna að samfélagssmit sé enn útbreiddara en þegar er vitað. Jóhann K. Jóhannsson, samskipta- stjóri almannavarna, segir að fundað verði eftir að niðurstöðurnar liggja fyrir og ákveðið hvort gripið verði til ofangreindra ráðstafana. Sem stendur er vitað af 24 virkum smitum á Íslandi. Þar sem ekki hefur tekist að rekja sameiginlegan upp- runa fjölda þeirra telur Kári Stefáns- son, forstjóri Íslenskrar erfðagrein- ingar, að útbreiðslan í samfélaginu gæti verið mikil. Hann telur einsýnt að herða þurfi ráðstafanir á Íslandi. „Ef heilbrigðisyfirvöld ákveða að breyta engu þrátt fyrir þetta, þá verð- um við ekki með í leiknum. Þetta er ekki ástand sem býður upp á að standa hjá og horfa á.“ Ræða hertar aðgerðir  Samkomutakmarkanir og tveggja metra regla ef smit frá því í gær eru af sömu gerð og hópsmitið  Kári Stefánsson skimar ekki ef aðgerðir verða ekki hertar Áhyggjur af helginni » Almannavarnir hafa áhyggj- ur af mannfagnaði um versl- unarmannahelgina. Er fólk hvatt til varkárni. » Þótt mörgum útihátíðum hafi verið aflýst verður víða boðið upp á dagskrá fyrir gesti og gangandi. MÁhrif kórónuveiru »4, 6 og 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.