Morgunblaðið - 29.07.2020, Síða 2

Morgunblaðið - 29.07.2020, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 TÆKNI A FYRIR H TVINNUMANNSIN E I www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar er létt og meðfærilegt og þú ert fljótari að strauja en nokkru sinni fyrr. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Útlit er fyrir gott berjaár ef svo held- ur fram sem horfir, að sögn Sveins Rúnars Haukssonar, heimilislæknis og berjaáhugamanns. Hann sagði að enn væri helst til fljótt að spá um berjasprettu og berjauppskeru. „Þetta lítur vel út mjög víða, en það getur margt gerst á þeim vikum sem eftir eru. Það skiptir miklu núna að við fáum áfram hlýindi með svolítilli vætu. Það er óskaveðrátta fyrir ber- in,“ sagði Sveinn Rúnar. Eins þarf að fást ráðrúm til að tína berin áður en næturfrost fer að spilla fyrir berja- tínslu. Hann sagði að sætukoppar hefðu verið fallegir og áberandi víða um land í sumar. „Berin eru enn græn en eru byrjuð að dökkna. Krækiberin eru oft fyrst til og þau ætla að verða það núna. Sums staðar eru þau að verða svört en þau eru enn pínulítil. Það eru tvær til þrjár vikur í að það verði hægt að fara í berjamó svo vel sé,“ sagði Sveinn Rúnar. Á Vesturlandi hafa bæði verið hlý- indi og væta inn á milli. Þótt kuldi hafi aðeins gert vart við sig hefur hann ekki náð að spilla kartöflu- grösum eða öðrum lággróðri. Sveinn Rúnar hafði heyrt úr Fljótum í Skagafirði að snjó hefði tekið seint upp og berjaspretta því seint á ferð- inni. Hann taldi að nú væru sennilega þrjár vikur þar til fólk gæti farið að tína ber þar. Á Austurlandi hefur ver- ið fallegt sumar og sýnist Sveini Rúnari að þar séu menn bjartsýnir á berjasprettu. Hann hafði ekki heyrt berjafréttir af Suðurlandi. Auk krækiberja vaxa hér einnig bláber, aðalbláber, hrútaber og jarð- arber. „Engin jarðarber eru betri en þau villtu íslensku,“ sagði Sveinn Rúnar. „Það þarf ekki að fara lengra en í Esju eða í nágrenni Herdísar- víkur til að finna þau.“ gudni@mbl.is Krækiberin koma fyrst  Horfur á góðri berjasprettu  Þurfa hlýindi og smá vætu Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Bláber Útlit er fyrir góða berja- sprettu, ef góð tíð heldur áfram. Búið er að raða stólum og borðum í Alþingishús- inu fyrir athöfn, sem fer þar fram á laugardag, 1. ágúst, þegar Guðni Th. Jóhannesson verður settur í embætti forseta Íslands í annað skipti. Innsetningarathöfnin er mjög formföst en vegna ráðstafana í tengslum við heimsfaraldur kórónu- veiru verða mun færri gestir viðstaddir en venja er. Eins og sést á meðfylgjandi mynd er talsvert bil á milli stóla í salnum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Stólum raðað fyrir innsetningarathöfn Forseti Íslands settur í embætti í Alþingishúsinu á laugardag Flugsamgöngur og heims- faraldur kórónu- veiru voru til umræðu á fundi ríkisstjórnar- innar í gær. „Þetta snerist fyrst og fremst um þá ánægju- legu staðreynd að það eru margir sem vilja koma til Íslands,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra. Hann segir að ríkisstjórnin hafi farið yfir „hvert útlitið væri í fluginu núna í ágúst, hve margir eru líklegir til að koma og þá frá hvaða löndum“. Sigurður segir mikilvægt að áfram sé gætt að því að viðhalda skimun fyrir veirunni á landamær- um. „Við erum með ákveðna greiningargetu og sjáum það núna að við þurfum að einbeita okkur meira að innanlandsgreiningum. Þá þurfum við að passa upp á að geta viðhaldið skimun á landa- mærum,“ segir Sigurður. Ræddu útlit flugsins í ágústmánuði  Mikill áhugi ferðafólks á Íslandi Sigurður Ingi Jóhannsson Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Vinnueftirlitið hefur um árabil tekið saman tölur um fjölda öryggis- skoðana sem gerðar eru á bygging- arkrönum. Þessir vinalegu risar eru taldir ágætis vísbending um stöðu efnahagsmála hverju sinni, en nokk- uð hefur dregist saman í byggingar- iðnaði síðasta misseri. Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs Sam- taka iðnaðarins, segir að síðasta út- tekt hafi leitt í ljós 53% samdrátt í húsbyggingum, sem valdi nokkrum áhyggjum þar á bæ. Þéttingarstefna eykur kostnað Um orsakir samdráttar segir Jó- hanna að þar komi að margir sam- verkandi þættir. Hún tiltekur að margar byggingar hafi verið á síðari stigum, en erfiðlega hafi gengið að selja íbúðir í hærri verðflokkum. Það megi rekja til þess að þétting- arstefna auki byggingarkostnað en ákall markaðarins sé fremur eftir ódýrari íbúðum sem henti fyrstu kaupendum og tekjulægri. Hún tel- ur stefnu sveitarfélaga gagnrýni- verða og segir að þörf sé á meiri sveigjanleika til að lækka bygging- arkostnað. Þessi staða hafi m.a. orð- ið til þess að verktökum gengur verr að fjármagna frekari uppbygg- ingu. Þörf á frekari uppbyggingu Spurð um framtíðarhorfur segir Jóhanna að spár sýni áframhaldandi spurn eftir íbúðum á markaði. Hún varar við því að sofið sé á verðinum og bendir máli sínu til stuðnings á það bil sem myndaðist eftir efna- hagshrun, þar sem byggingarkran- ar nær hurfu sjónum. Hún segir nokkrar væntingar gerðar til hlutdeildarlána, úrræðis sem kynnt hefur verið af stjórn- völdum til fyrstu kaupenda. Telur Jóhanna að áhrif þeirra gætu orðið til að gæða byggingariðnaðinn nýju lífi. Vísbending í krönum  Samdráttur í byggingariðnaði  Þéttingarstefna eykur kostnað  Meiri sveigjanleika þarf til að byggja ódýrari íbúðir Væntingar til hlutdeildarlána Kranavísitala Vinnueftirlitsins 2017-2020 Fjöldi skoðaðra byggingarkrana skv. kranaskoðunum á landinu öllu 400 300 200 100 0 '07 '08 '09 '10 '11 '12 '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 364 310 155 113 121 140 159 193 224 277 303 385 284 175 209 138 161 Allt árið Janúar til júlí Íslenski tónlistar- maðurinn Ólafur Arnalds hlaut í gær tilnefningu til Emmy-verðlauna fyrir tónlist sína í þáttunum Defend- ing Jacob, sem framleiddir eru af Apple TV+. Ólafur samdi þematónlist þáttanna sem hafa getið sér gott orð þar vestanhafs. Árið 2014 hlaut Ólafur BAFTA- verðlaun fyrir tónlistina sem hann gerði fyrir breska dramaþáttinn Broadchurch. Fyrir tónverk í sömu þáttum fékk hann tilnefningu árið 2018 til Brits Awards sem tónverk árs- ins. Tilnefndur til Emmy- verðlauna  Ólafur tilnefndur fyrir þematónlist Ólafur Arnalds

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.