Morgunblaðið - 29.07.2020, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Enn heldur„RÚV“áfram
óskiljanlegum
árásum á sendi-
herra Banda-
ríkjanna á Ís-
landi. (Glæpur
hans virðist
einkum sá að hafa verið
skipaður, með samþykki
þingsins, af Trump for-
seta.) Síðast í gær var
flutt langt samtal um
illsku sendiherrans og fór
þar bandarísk kona, sem
um skeið sat á þingi fyrir
Bjarta framtíð, sem einn-
ig átti stutt skeið á Al-
þingi. Eftir að hafa for-
mælt sendiherranum gaf
hún þá skýringu á andúð
sinni að hafa ætlað sér að
sækja um vottorð vegna
nafnabreytingar og hefði
þurft að gera það gegn
um dyrasíma sendiráðs-
ins! Ekkert benti til að
núverandi sendiherra
hefði haft eitthvað með
fyrirkomulagið að gera!
Andúð „RÚV“ á Banda-
ríkjunum er alþekkt og
færist mjög í aukana kom-
ist stjórnmálalegir and-
stæðingar þess í meiri-
hlutaaðstöðu á þingi eða í
Hvíta húsinu. Fréttastof-
an hefur um skeið haft
sérstakan fréttamann til
að sjá um linnulausar
árásir á núverandi for-
seta. Þótt sá hafi aðeins
verið hvíldur, eftir að
hafa farið offari, svo ann-
ar annaðist þetta stórmál
með dyrasímann.
Annar fréttamaður
„RÚV“ sagði í vikunni að
hinn umsetni sendiherra
hefði sótt um það til ís-
lenskra yfirvalda að fá að
vera í skotheldu vesti(!)
auk annars. Síðan hvenær
hefur þurft heimild ís-
lenskra yfirvalda til að
velja sér vesti? Skotheld
vesti skaða ekki nokkurn
mann, nema hugsanlega
þá sem burðast með þau.
Þær upplýsingar sem
þessi skrítna fréttastofa
byggir rugl sitt á virðast
vera komnar frá CBS,
sem er sama fréttamiðlun
vestra og fullyrti í tvö ár
með sínum sálufélögum að
Trump hefði orðið forseti
fyrir atbeina og burði
Pútíns forseta Rússlands!
Langvinnar og kostnaðar-
samar athuganir sýndu að
ekki var glóra í
þessum stað-
hæfingum. Ís-
lensk yfirvöld
(utanríkisráðu-
neyti, lögregla)
hafa enn ekki
kannast við
neinar af þess-
um fullyrðingum, en svara
þó ekki spurningum með
afgerandi og skiljanlegum
hætti. Það auðveldar
„RÚV“ að halda haturs-
rugli sínu gangandi.
Eftir hryðjuverkaárásir
á sendiráð Bandaríkjanna
víða um heim fyrir all-
löngu var sendiherrum
hér gert að vera í skot- og
sprengiheldum bifreiðum.
Þeim þótti það til trafala
vegna þyngdar þeirra og
ekki síst vegna óþjálla
hurða. Ekki er vitað til
þess að sérstakt leyfi hafi
þurft frá íslenskum yfir-
völdum vegna þessara bif-
reiða. (Sérstakt leyfi hefði
hins vegar þurft til að aka
á nagladekkjum utan lög-
leyfðs tíma.) Íslenskir for-
sætisráðherrar og forset-
ar sitja iðulega í skot-
heldum bifreiðum og með
allmarga vopnaða verði
um sig þegar þeir gegna
opinberum erindum er-
lendis. Varla nokkur mað-
ur þekkir þá á þeim slóð-
um til þess að hafa þrá til
að skaða þá við þær að-
stæður. Þó mætti hugsa
sér að einhver veiklaður
og ofsakenndur, sem ræk-
ist á slíkan sirkus, kæmi í
hug að miðpunktur hans,
sem hann þekkti þó
hvorki haus né sporð á,
væri nægilega merkilegur
til að eyða mætti á hann
kúlu.
Hitt veit þessi sjálf-
hverfa fréttastofa ber-
sýnilega ekki að Banda-
ríkin hafa varið stór-
brotnum fjármunum til að
tryggja öryggi nýs sendi-
ráðs á Íslandi og hefur
það allt ekkert með nú-
verandi sendiherra að
gera, og dellufréttirnar
um öryggisvesti verða
ömurlega smáar hjá því
öllu.
Einhvern tíma hlýtur
það að gerast að „RÚV“
fái að búa við lágmarks-
stjórn eins og önnur fyrir-
tæki í landinu. Hvernig
væri að auglýsa eftir út-
varpsstjóra?
Vont er fyrir „RÚV“
að enginn þar innan-
húss þekki til örygg-
ismála þeirra sem
eru velkomnir gestir
ríkisins}
Undirmálsstofa ruglar
F
yrsta Covid-19-smitið greindist hér-
lendis 28. febrúar síðastliðinn og
faraldurinn náði hámarki hér í
byrjun apríl. Okkur tókst að bæla
faraldurinn niður með markvissum
aðgerðum; sýnatökum, sóttkví, einangrun og
þátttöku almennings í sóttvarnaaðgerðum. Þeg-
ar fyrsta áfanganum í baráttunni við Covid-19-
sjúkdóminn lauk og örfá eða engin smit voru
farin að greinast hérlendis á hverjum degi tók
svo við sú áskorun að opna landið okkar fyrir
ferðamönnum á öruggan hátt.
Um miðjan júní bættist valkostur um sýna-
töku á landamærum við fyrir þá sem komu til
landsins, þannig að öll sem það kjósa og uppfylla
skilyrði gátu valið að gangast undir sýnatöku í
stað þess að vera í sóttkví í 14 daga við komu til
landsins, eins og öllum hafði verið skylt frá því í mars.
Að tillögu sóttvarnarlæknis ákvað ég hinn 13. júlí að þau
sem búsett eru hér á landi eða eru íslenskir ríkisborgarar
og hafa valið að fara í sýnatöku við komuna til landsins
skyldu viðhafa heimkomusmitgát þar til niðurstöður úr
síðari sýnatöku lægju fyrir. Sú ákvörðun var tekin til þess
að minnka líkurnar á að röng niðurstaða á prófi á landa-
mærum leiddi til hópsmita.
Samhliða því að taka sýni á landamærum höfum við ver-
ið að draga úr samkomutakmörkunum, hægt og rólega.
Þegar leið á vorið voru reglur um fjöldatakmarkanir
smám saman rýmkaðar, leik- og grunnskólar opnaðir á ný
og íþrótta- og æskulýðsstarf hófst aftur.
Til þess að lágmarka áhættuna á því að far-
aldurinn næði sér á strik hér á landi ákvað ég
hinn 3. júlí, að tillögu sóttvarnalæknis, að
framlengja auglýsingu um takmörkun á sam-
komum frá 15. júní. Í gær, 28. júlí, ákvað ég
svo að framlengja núgildandi auglýsingu um
takmörkun á samkomum til 18. ágúst. Fjölda-
takmörk á samkomum miðast því áfram við
500 manns og afgreiðslutími spilasala og veit-
ingastaða með vínveitingaleyfi verður einnig
óbreyttur og heimilt að hafa opið til 23.00.
Í ljósi þess að á undanförnum dögum hafa
innflutt smit greinst hér í vaxandi mæli og
dreifing á Covid-19-sjúkdómnum hefur orðið
innanlands þurfum við að fara með gát varð-
andi tilslakanir á fjöldatakmörkum og af-
greiðslutíma skemmti- og vínveitingastaða.
Við getum verið ánægð með þann árangur sem aðgerðir
okkar hafa borið hingað til en við megum ekki gleyma því
að fara varlega. Við þurfum að gæta sóttvarna vel áfram,
og muna að tilgangurinn með þeim sóttvarnaaðgerðum
sem enn eru í gildi er einmitt sá að hamla því að veiran nái
sér aftur á strik í samfélaginu. Við þurfum að muna eftir
okkar einstaklingsbundnu sóttvörnum, þvo hendur,
spritta og geyma knúsið þar til síðar. Einnig að halda okk-
ur heima ef við sýnum einkenni og vernda okkar við-
kvæmasta fólk. Þannig viðhöldum við okkar góða árangri í
baráttunni við veiruna áfram.
Svandís
Svavarsdóttir
Pistill
Förum varlega áfram
Höfundur er heilbrigðisráðherra.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Veðrið hefur verið mjög leið-inlegt og með því verrasem við höfum lent í und-anfarin ár. Mikið um
brælur. Við rétt náum að ljúka áætl-
un en þetta sleppur,“ sagði Anna
Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur og
leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni
13.-30. júlí. Áður var James Kenn-
edy leiðangursstjóri 1.-13. júlí. Árni
Friðriksson var djúpt suður af land-
inu í gær.
„Þetta er vistfræðileiðangur og
stofnmatsleiðangur vegna makríls.
Stofnmatið verður birt í síðustu viku
ágúst. Við höfum líka mælt hitastig
sjávar niður á 500 metra, tekið átu-
sýni og mælt alla fiska sem koma í
trollið. Við höfum tekið djúptog og
líka mælt kolmunna og síld. Svo höf-
um við skráð hvali,“ sagði Anna.
Hún sagði að margt aukafólk
væri um borð og ynni það m.a. að
rannsóknum á miðsjávarlögum
sunnan Íslands og í Irmingerhafi
sem nær frá Hvarfi og norður að
Grænlands-Íslandshryggnum milli
Grænlands og Vestfjarða. Tekin eru
tog á mismunandi miklu dýpi og
gerðar bergmálsmælingar í mikilli
upplausn og umhverfisrannsóknir.
Auk þess eru gestavísindamenn
um borð sem tengjast miðsjávar-
rannsóknunum. Þeir safna m.a.
bakteríum til að rannsaka hvort í
þeim séu einhver efni sem nota má
t.d. í lyf. Auk þess eru rannsakaðar
fitusýrur og orkuflæði í fæðukeðj-
unni í uppsjávarlaginu.
Anna sagði kvaðst ekki geta
tjáð sig um makrílmælinguna en
sagði að von væri á fréttatilkynn-
ingu í dag eða á morgun. Þá munu
niðurstöðurnar liggja fyrir þegar
sameiginleg leiðangursskýrsla kem-
ur út undir lok ágúst.
Umtalsvert magn af makríl
Umtalsvert magn af makríl
fannst í mið- og norðurhluta Nor-
egshafs, þar á meðal suðsuðaustur
af Jan Mayen. Þetta kom fram í
frétt norsku hafrannsóknastofn-
unarinnar í gær. Makríllinn við Jan
Mayen var stór og feitur og stút-
fullur af átu. Þar sagði einnig að
makríllinn væri harðsækinn og víl-
aði ekki fyrir sér að synda inn í kald-
ari sjó, þótt talað sé um að tegundin
vilji vera í hlýrri sjó. Hann getur
þrifist í 5-25°C sjó. Í norðurhöfum er
mikið af næringarríku æti. Auk þess
gerir mikil birta á norðurslóðum yfir
sumarið bæði makríl og síld kleift að
éta allan sólarhringinn.
Einnig kom fram í frétt norsku
hafrannsóknastofnunarinnar að
2016 árgangurinn af norsk-íslenskri
síld í norðausturhluta Noregshafs
lofaði góðu. Þá fannst kolmunni en
hann heldur sig á töluvert meira
dýpi en makríllinn og síldin. Ungan
kolmunna var aðallega að finna við
landgrunnsbrúnina í austri en
stærri kolmunni hélt sig vestar á
stóru svæði úti á hafinu. Hann var
mjög dreifður og á 80-400 metra
dýpi samkvæmt bergmálsmæl-
ingum.
Norsku skipin höfðu fengið
villta laxa í trollið. Hver og einn
þeirra verður rannsakaður, meðal
annars á að kanna erfðaefni þeirra
til að sjá hvaðan þeir eru ættaðir.
Færeyingar og Danir hafa
lokið rannsóknum í kringum
Færeyjar, í Norðursjó og
Skagerrak. Norska skipið
Eros var í grænlensku lögsög-
unni en norsku skipin Vendla
og Kings Bay hafa verið í Nor-
egshafi og meðfram ströndum
Noregs. Þá hefur Árni Frið-
riksson rannsakað ástand-
ið sunnan og vestan við
Ísland.
Umtalsvert magn af
makríl við Noreg
Þrjátíu daga sumaruppsjávar-
leiðangri Hafrannsóknastofn-
unar lýkur á morgun þegar
hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson kemur til hafnar.
Skipið tók þátt í árlegum fjöl-
þjóðlegum leiðangri í Norður-
höfum að sumarlagi (IESSNS)
og er þetta ellefta sumarið
sem Hafrannsóknastofnun er
með. Alls voru sex skip frá Ís-
landi, Noregi, Færeyjum,
Grænlandi og Danmörku í
leiðangrinum.
Meðal annars átti að meta
magn og útbreiðslu mak-
ríls, kolmunna og norsk-
íslenskrar síldar í
Norðaustur-Atlantshafi
að sumarlagi.
Árni Friðriksson átti
að sigla rúmlega 10
þúsund kílómetra í leið-
angrinum. Um borð voru
14 vísindamenn og 17
manna áhöfn.
10.000 kíló-
metra sigling
ÁRNI FRIÐRIKSSON RE
Anna Heiða
Ólafsdóttir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Ekki fengust upplýsingar í gær um hvernig gekk að finna makríl
við Ísland. Von er á tilkynningu þar að lútandi í dag eða á morgun.