Morgunblaðið - 29.07.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 29.07.2020, Síða 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020 ✝ Ásdís Edda Ás-geirsdóttir fæddist í Reykjavík 9. janúar 1956. Hún lést 17. júlí 2020 á Landspít- alanum við Hring- braut. Foreldrar henn- ar voru Ásgeir J. Sigurgeirsson, f. 8. júlí 1932, d. 2. október 1967, og Margrét J. Hallsdóttir, f. 16. júlí 1935, d. 23. nóvember 2010. Systur hennar eru Hafdís Halla, f. 23. júní 1961, og Jó- hanna Bára, f. 12 febrúar 1963. Eiginmaður Ásdísar Eddu er Andrés Helgason, f. 27. maí 1954. Foreldrar hans voru Helgi Magnússon, bóndi í Tungu, f. 13. maí 1895, d. 25. október 1981, og Elísabet Andrésdóttir, f. 13. nóvember 1912, d. 28. janúar 2006. Ásdís Edda giftist Andrési 11. júní 1977. Börn þeirra eru: 1) Ásgeir Már, f. 11. apríl 1978, barn hans Víkingur Þór, f. 31. Íslands þar til hún réð sig sem kaupakonu í Tungu í Skaga- firði sumarið 1976 tvítug að aldri. Þar kynnist hún Andrési og flutti í Tungu í kjölfarið. Um haustið hóf hún störf á skrif- stofu Kaupfélags Skagfirðinga en skipti fljótlega um starfs- vettvang og vann lengst af hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands við umönnun og símavörslu í móttöku þar til hún lét af störf- um àrið 2015 af heilsufars- ástæðum. Ásdís Edda útskrif- aðist með verslunarpróf frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Ásdís Edda hafði dálæti á hestum og ræktun þeirra og einnig hafði hún mikinn áhuga á tónlist. Hún var meðal annars virkur þátttakandi um tíma í Leikfélagi Sauðárkróks og Kvenfélagi Skarðshrepps.. Barnabörn hennar eru sjö tals- ins og von er á áttunda barna- barninu í lok árs. Útför Ásdísar Eddu fer fram frá Sauðárkrókskirkju í dag, 29. júlí 2020, og hefst athöfnin klukkan 14. Streymt verður frá útförinni á YouTube. Stytt slóð á streym- ið: https://tinyurl.com/ y45264wr Slóðina má einnig nálgast á mbl.is/andlat desember 2003, úr fyrra hjónabandi, unnusta Ásgeirs er Sandra Rós Ólafs- dóttir, f. 11. apríl 1977, og börn þeirra a) Ólafur Andrés, f. 9. októ- ber 2015, og b) Edda Sirrý, f. 25. janúar 2017, 2) El- ísabet Rán, f. 7. desember 1980, maki Benedikt Egill Árnason, f. 2. desember 1980, börn þeirra eru: a) Elísabet, f. 13. nóvember 2011, b) Árni, f. 8. ágúst 2013, og c) Andrés Þórólfur, f. 5. júní 2017, 3) Gunnar Þór, f. 29. mars 1983, maki Elisa Helena Saukko, f. 4. nóvember 1986, og barn þeirra, Óskar Otto, f. 8. desember 2015. Ásdís Edda ólst upp á Mela- braut 47 (í dag nr. 9) á Sel- tjarnarnesi til tvítugs. Hún gekk í Mýrarhúsaskóla og út- skrifaðist 16 ára með gagn- fræðapróf. Ásdís vann við veit- ingastörf og einnig á Hagstofu Mamma mín, Ásdís, Edda, Dísa. Þú komst okkur systkinun- um áfram og kenndir okkur margt. Enn fremur komst þú okkur til manns og gafst aldrei upp á okkur þótt við gerðum þig gráhærða á köflum. Ég gleymi ekki svipnum á þér þegar ég var að rífa í sundur hrærivélina en sem betur fer kom Ingi frændi henni saman aftur. Hrærivélin var ekki fyrsta eða síðasta þolin- mæðisverkefnið okkar. Falleg- asta gjöf þín var gleði. Alveg sama hvað gekk á þá var ekki djúpt að gleðinni, húmor og skotum. Síðasta skiptið sem við hittumst sat ég á lúgunni á Norma Mary, Pabbi keyrði og Víkingur sat aftur í. Margir hefðu hugsað hvað þetta hefði verið erfitt að komast ekki í land að knúsa þig. Ég fékk að sjá þig og sýna þér skipið sem ég er vél- stjóri á. Af öllum stöðum, öllum skipum gleður mig að þú sást mig þarna í essinu áður en leiðir okkar skildi. Þú umvafðir okkur með skilyrðislausri hlýju. Sökn- um þín og geymum þig með okk- ur. Þinn sonur, Ásgeir Már Andrésson. Elsku besta mamma mín. Þá er komið að kveðjustund elsku mamma mín. Lífið er ósanngjarnt en ég trúi því að nú sért þú loksins að faðma Ásgeir afa, pabba þinn, sem þú elskaðir og dáðir svo mikið og ömmu Möggu. Ég ætla að varðveita minningu þína og mannkosti eins og þú gerðir með afa Ásgeir. All- ir þekktu afa þótt við hefðum aldrei hitt hann. Þökk sé þér. Ég var stelpan þín! Alltaf í bleiku, bleikir kjólar, bleik föt, bleik úlpa, bleikt eyrnaband, bleikir vettlingar, bleikt her- bergi, bleikar gardínur, það var allt bleikt nema ég þoldi ekki bleikt og öfundaði vinkonu mína svo mikið að vera alltaf í vín- rauðu. Í þá daga hafði ég ekkert neitunarvald, eins og börn í dag. Þú bara settir mig í þessi föt og ég hafði ekkert um það að segja. Ég var stelpan þín! Þú elskaðir að klæða þig fal- lega, það var alltaf nýr síðkjóll fyrir þorrablótið, árshátíð eða eitthvert tilefni, sérsaumaður á þig með þínum óskum. En þetta varst þú, algjör kjóladrottning, elskaðir að vera í fallegum kjól- um, alla þína ævi. Ásdís, Dísa eða Edda, sumir þekktu þig bara sem Dísu eða Ásdísi og aðrir eingöngu sem Eddu. Ég vissi stundum ekkert hvaða nafn ætti að setja í jóla- kortin þegar ég skrifaði þau fyr- ir þig. Heimili okkar var þitt annað heimili, börnin mín þekkja ekk- ert annað en ömmuherbergi. Þú elskaðir Elísabetu, Árna og Andrés Þórólf af öllu hjarta, þau voru hjartagullin þín. Ósk mín rættist, ég hef ætíð óskað þess að börnin mín myndu upplifa það að eiga ömmu eins og ég átti, alltaf til staðar og væntumþykj- an skein úr augunum þínum þeg- ar þú knúsaðir og talaðir við þau. Þú vildir allt fyrir þau gera en heilsuleysi þitt takmarkaði það en í staðinn fengu þau það sem skiptir mun meira máli, hjarta- hlýju, væntumþykju og stuðning. Það verður tómlegt í húsinu án þín elsku mamma. Elísabet vön að skríða upp í til þín á kvöldin og fá að sofna hjá þér, eftir smá knús og trúnóspjall uppi í rúmi með þér eða ræða um hesta, enda ætlaði hún að kaupa af þér hest. Þú vildir ekki koma suður fyrr en Elísabet væri búin að fá ósk sína rætta, „ömmunámskeið í sveitinni“, og það tókst. Árni sat yfirleitt þétt upp við þig í sófanum og fékk ömmuk- nús þar sem hann fann fyrir ör- yggi, hlýju og stuðningi í öllu sínu. Andrés Þórólfur að hlaupa til þín skælbrosandi, knúsandi og vildi helst hafa þig út af fyrir sig. Alltaf að spyrja um ömmu sína, hvar er amma? Hann gerði ráð fyrir því að þú værir heima þegar hann kæmi heim úr leik- skólanum. Ef þú varst ekki heima, þá voru svörin, hún er í sveitinni og kemur bráðum. Faðmur þinn var alltaf opinn, al- veg sama hversu þreytt eða veik þú varst. Þau máttu alltaf koma til þín. Þú hefur verið svo stór hluti í lífi okkar og ég er svo þakklát fyrir það og hvað börnin mín náðu að kynnast þér á fallegan hátt og munu búa að því alla sína ævi. Það er ómetanlegt. Mamma, ég elska þig af öllu mínu hjarta og vona svo innilega að þér líði vel núna því þú átt það svo sannarlega mest skilið eftir allt sem þú hefur gengið í gegnum. Hvíl í friði, elsku besta mamma mín. Þín dóttir, Elísabet Rán Andrésdóttir. Elsku mamma. Litla barnið skrifar þér eins og þú kallaðir mig alla tíð og breyttist það ekkert þrátt fyrir að árin liðu og ég að nálgast fer- tugt. Hvernig móðir varst þú mér? Þú varst minn helsti stuðn- ingsmaður í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Sérstaklega var þér umhugað að styðja mig í íþróttunum og voru það ófá íþróttamótin sem þú fylgdir mér hvort sem það var knattspyrna, frjálsar íþróttir eða körfuknatt- leikur. Ég á margar minningar af okkur að horfa á íþróttavið- burði og var það okkar sameig- inlega áhugamál. Við útskrift í grunnskóla fáum við Grettis út- skriftarpeysu eins og venja er og fáum við að ráða hvað er skrifað aftan á peysuna. Eftir mikla um- hugsun varð „mömmustrákur“ fyrir valinu. Þú veist af hverju og ég þakka þér fyrir alla hjálp- ina og stuðninginn. Í framhalds- skóla snerti ég ekki vín en hafði afskaplega gaman af því að skemmta mér og fara á sveita- böllin. Oftar en ekki keyrði ég vini mína og ekkert vesen á mér en samt þurfti ég alltaf að til- kynna mig í hús og í öllum til- fellum varstu vakandi eftir mér. Þú vildir bara að ég kæmi öruggur heim, ég skil vel af hverju. 15. mars var dagurinn okkar. Á hverju ári hafði ég samband við þig frá 1998 til að óska þér til hamingju með að vera hætt að reykja. Ég var stoltur af þér fyrir að hætta og byrja ekki aftur. Ég lét alla vita og bar út boðskapinn að allir gætu hætt að reykja. Takk fyrir að hafa verið alltaf svo góð við son okkar Elisu, Óskar Otto barnabarn þitt, og þrátt fyrir að við höfum verið búsett í Finn- landi síðastliðna 19 mánuði þá talaði hann oft um þig og við átt- um okkar spjöll í gegnum sam- skiptamiðla. Áttunda barnabarn- ið er á leiðinni og kemur í desember, þú fylgist með. Við gátum alltaf talað saman og samskipti okkar vingjarnleg og sýndum hvort öðru virðingu. Ég hef lært af ykkur pabba helstu styrkleika mína sem snúa að framkomu og tel ég það vera gríðarlegan fjársjóð sem nýtist við allar aðstæður og verið far- sæll í leik og starfi. Því á ég þér afskaplega mikið að þakka. Ég þarf ekki að lofa móður mína mikið því allir sem þekktu hana vissu hvað hún stóð fyrir og í því felst viðurkenningin á hennar persónu. Minning hennar mun lifa áfram með sögum, myndum og minningum. Ég veit að þið vinir og ættingjar hugsið vel um hann pabba minn í Tungu á næstu misserum. Elsku mamma hvíldu í friði. Stoltur sonur kveður þig og ég veit að það fer vel um þig núna. Takk fyrir lífslexíurnar og gildin sem munu lifa áfram í gegnum allt þitt fólk. Ég elska þig. Þinn sonur, Gunnar Þór. Mín fyrstu kynni af Ásdísi voru fyrir um 18 árum þegar ég hóf að heimsækja tengdafor- eldra mína í Skagafirðinum. Ég komst fljótt að því að Ásdís vildi öllum vel og að hún væri með sterka réttlætiskennd. Mér þótti alltaf gaman að spjalla við Ásdísi um menn og málefni en hún hafði iðulega sterkar skoðanir á hvoru tveggja og stóð iðulega með þeim sem minna máttu sín. Oft hef ég heyrt ég sögur af því þegar Ásdís réð sig sem kaupakonu að Tungu um sum- arið 1976 þar sem hún kynntist lífsförunauti sínum, Andrési. Hjónaband ykkar Andrésar var sannanlega farsælt og eignuðust þið þrjú dugleg börn. Heimili ykkar var alltaf gestkvæmt enda vinamörg. Ásdís var afar félagslynd og hafði sterkt net af vinkonum sem hún var í miklum samskipt- um við, auk þess að vera alltaf í tíðum samskiptum við systur sínar, þær Haddý og Hönnu Báru. Það var ósjaldan sem maður heyrði hana vera í síman- um að fara yfir hin ýmsu mál og oft snerust samtölin um upp- skriftir eða vörur í verslunum. Þakklátastur er ég fyrir hversu góð amma Ásdís reyndist börnunum okkar þremur. Hún myndaði afar sterk tengsl við þau, gerði mikið fyrir þau og með þeim og tók ósjaldan þátt í að lesa fyrir þau og svæfa. Líf Ásdísar snerist mikið um barna- börnin sín sjö og munu þau minnast hennar með mikilli væntumþykju. Það tók mig mörg ár að átta mig fyllilega á því hversu veik Ásdís raunverulega var en hún glímdi við mikil veikindi allan þann tíma sem mér lánaðist að vera í lífi hennar. Þótt andlát hennar bæri óvænt að garði, ein- ungis 64 ára að aldri, lá fyrir að það væru ekki mörg ár fram- undan. En þegar maður hugsar tilbaka þá kvartaði Ásdís aldrei yfir vanheilsu sinni. Ég minnist Ásdísar tengda- móður minnar með miklum hlý- hug, þakka henni fyrir allt og óska henni góðrar ferðar. Benedikt Egill Árnason. Elskulega stóra „litla“ systir, nú er komið að kveðjustund í bili en við eigum örugglega eftir að hittast aftur. Elsku Edda við þurftum ung- ar að ganga í gegnum það að missa pabba okkar og þá kom það í þinn hlut að passa okkur systur á meðan mamma var að vinna. Það hefur ekki verið auð- velt fyrir þig svona unga stúlku þar sem við yngri systur þínar vorum frekar erfiðar saman en við erum þér þakklátar fyrir það. Hvert eigum við nú að leita þegar okkur vantar upplýsingar um ættingjana á Króknum? Hvert eigum við að hringja þeg- ar við lendum í vandræðum með að finna nýjustu uppskriftirnar að einhverju góðgæti í matar- heiminum. Þú varst svo dugleg að fylgjast með öllu, en ekki við. Lífið verður ekki það sama nú þegar þig vantar. Elsku Edda okkar, við munum sakna þín mikið, vorum farnar að hlakka svo til að koma að heimsækja þig í nýju íbúðina í Garðabænum, gista hjá þér og eiga fleiri sam- verustundir með þér, sem var ekki hægt áður vegna fjarlægð- ar. Fara saman að heimsækja allar frábæru vinkonur þínar sem okkur þykir líka vænt um og búnar að þekkja síðan við vorum börn. Skjótt skipast veð- ur í lofti og á skammri stundu breyttist allt hjá okkur og fjöl- skyldu þinni. Elsku Andrés, Ásgeir, Beta Rán, Gunni og fjölskyldur, okkar innilegasta samúð og megi Guð gefa ykkur ást og styrk til að takast á við sorgina og munið að „í augum alls heimsins ertu ef- laust bara ein lítil mannvera. En í augum einnar lítillar mannveru er þú líka eflaust allur heimur- inn“. Kærleikskveðja, Hafdís Halla og Jóhanna Bára. Edda var einlæg, hlý og traust. Hún var alltaf glöð og kát þrátt fyrir þau veikindi sem hún átti lengst við að stríða sem fæstir vissu kannski af. Með sínu bjarta brosi og yndislega viðmóti leið öllum vel í kringum hana. Ég var svo lánsöm að kynnast Eddu og eignast hana sem stjúp- systur þegar pabbi minn og mamma hennar hófu sambúð um 1970. Við náðum strax vel saman og urðum góðar vinkonur sem aldrei hefur borið skugga á. Við höfum haldið vináttunni áfram í gegnum fullorðinsárin þrátt fyr- ir að hafa hafið búskap okkar hvor í sínum landshlutanum og alltaf reynt að vera duglegar að hittast. Hvort sem við hittumst einungis tvær eða leyfðum körl- unum okkar að vera með, alltaf fundum við okkur eitthvað skemmtilegt að gera. Stuttu eftir að við kynntumst saumaði Magga, mamma Eddu, á okkur nákvæmlega eins skó- síðar kápur úr brúnu leðurlíki og vorum við ekkert smá montnar. Við hlógum oft að minningu okk- ar um kaffihúsaferð í borginni einu sinni sem oftar, við fundum hvergi bílastæði þannig að við enduðum á því að keyra bara í Þorlákshöfn á gott kaffihús þar, alsælar. Eins þegar við Benni vorum eitt sinn fyrir norðan hjá þeim Andrési, þá skutumst við Edda á kaffihús á Siglufirði, ekkert mál. Við vorum farnar að hlakka mikið til flutnings þeirra Andr- ésar hingað suður og byrjaðar að skipuleggja ný ævintýri, en þau þurfa að bíða þar til við hittumst á ný. Elsku Eddu verður sárt saknað. Elsku Andrés og fjölskylda, missir ykkar er mikill, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hugrún og Bernhard (Benni). Mig langar að minnast Ásdís- ar mágkonu minnar með þökk fyrir notalegar samverustundir, umburðarlyndi og móttökur, hvenær sem mig bar að garði og hvað hún reyndist Þórólfi bróður vel. Þrátt fyrir skerta heilsu sem ekki fékkst bót á hvorki með hol- skurði, sjúkrahúsvist, lyfjum né ótal læknisferðum tókst henni alltaf að lifa lífinu lifandi með reisn og brosi á vör, en fór ekki alltaf troðnar slóðir. Hún varð á ungum aldri fyrir sárum missi þegar faðir hennar lést í bílslysi. En hún gat lagt mótlætið til hlið- ar, þrátt fyrir vanheilsu, með sterku viljaþreki og stuðningi frá hennar einstaklega trausta lífsförunauti og góðum vinum og hún átti miklu barnaláni að fagna. Ásdís var sérstök per- sóna, hetja, í mínum huga. Kæri bróðir, Andrés minn, ég bið fjölskyldu þinni, systrum hennar og vinum allrar bless- unar, með þökk fyrir góðar minningar, María Helgadóttir (Mæja). Með þessum línum langar mig að minnast frænku minnar Ás- dísar Eddu Ásgeirsdóttur. Vegna náinna ættartengsla voru samskiptin alltaf sterk á milli fölskyldna okkar á æskuslóðum mínum á Sauðárkróki og í Skagafirði. Frændræknin ein- kenndi samskiptin á okkar æskuárum, heimsóknir voru tíð- ar þvert yfir landið, nánast ár- lega kom Ásgeir frændi, faðir Ásdísar, norður á Krók, svo stoltur með frumburðinn sinn sem var orðin sex ára áður en önnur dóttir fæddist og sú þriðja fæddist tveimur árum síðar. Foreldrar Ásdísar Eddu, Ásgeir og Margrét, eða Magga Halls, eins og hún var ætíð kölluð, komu fagnandi, svo hress, skemmtileg og alls staðar aufúsugestir. Það sem vakir sterkt í minn- ingunni er persónuleiki föður hennar og frænda míns, Ásgeirs, en hann var náskyldur báðum foreldrum mínum. Ásdís móðir hans var ömmusystir mín frá Reykjavöllum, í móðurætt, og Sigurgeir, faðir Ásgeirs, var ömmubróðir minn í föðurætt. Ásgeir var einkabarn foreldra sinna, fæddist á Króknum en flutti þaðan ungur með móður sinni. Tengslin við Krókinn og ættingja í Skagafirði voru mjög sterk og rækti Ásgeir þau alla tíð. Enginn vafi er á því að þau hafa gengið í erfðir. Ásdís Edda fæddist fyrir sunnan, fjölskyldan bjó lengst á Seltjarnarnesinu, og þar bjó Ás- dís amma hennar síðustu árin. Hún lést 1962, aðeins sextug að aldri, en litla nafna hennar náði að kynnast henni vel. Hörmulegt slys sló fjölskylduna þungt þeg- ar Ásgeir fórst í bílslysi í Reykjavík, aðeins 35 ára, árið 1967. Allt í einu var hann horf- inn, faðir, eiginmaður og ástvin- ur. Þrjár ungar dætur og móðir misstu þarna máttarstólpann sinn. Þannig lífsreynsla getur sett sitt mark á allt líf þeirra sem fyrir verða og afleiðingar á heilsu og lífsviðhorf orðið þung- bærar. Þrátt fyrir það hefur reynslan sýnt okkur frændfólk- inu að lífsgleði, frændrækni og tryggð urðu ofan á og voru það þau lífsviðhorf sem einkenndu Ásdísi Eddu, móður hennar og systur, sem allar hafa rækt þessi lífsgildi af alúð og einlægni. Fyr- ir þær fyrirmyndir ber að þakka og gleðjast yfir við leiðarlok. Það er mér eftirminnilegt þegar Ásdís Edda leitaði til mín með ljósmyndasafn ömmu sinn- ar, og bað mig að greina mynd- irnar eins og hægt var. Þær voru nær allar ómerktar en þarna voru innan um mjög merkilegar myndir af elstu kynslóð ættingja á Reykjavöllum, myndir sem ég hafði ekki séð og vissi ekki að væru til. Amma hennar hafði haldið þessum gersemum til haga sem nú voru í höndum Ás- dísar Eddu og teygði sagan sig til vesturfara í Ameríku. Sú saga verður vonandi sögð á öðrum blöðum. Ásdís Edda eignaðist traustan ævifélaga og eiginmann, Andrés, og saman eignuðust þau þrjú börn og barnabörnin eru orðin sjö. Þetta var henni auður alls auðs. Hún bjó sín búskaparár í Ásdís Edda Ásgeirsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Ásdís amma. Ég er leið en samt mun ég elska þig áfram. Þú lifir enn í hjarta mínu. Ég sakna alls þess sem við gerðum eins og að hlæja, kaupa okkur ís, fara í heimsókn og allra mest að lesa fyrir þig. Ég sakna þess líka að hringja í þig eftir skóla til að kanna hvað þú varst að gera og tala um Visku og hesta. Ég man svo vel eftir þér. En greyið Andrés var bara 3 ár með þér. Ég vona að sveita- lífið haldi áfram, það væri gaman, en mest gaman að hafa þig með. Við tvær vor- um bestu vinkonur. Ástkær kveðja, Elísabet Benediktsdóttir. Elsku Ásdís og amma í Tungu, við kveðjum þig með söknuði og minning þín mun lifa í hjörtum okk- ar. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Sandra, Víkingur, Ólafur Andrés og Edda Sirrý.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.