Morgunblaðið - 29.07.2020, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2020
Valur mætir Holstebro frá Dan-
mörku í 1. umferð Evrópudeild-
arinnar í handknattleik en þar spil-
ar hornamaðurinn Óðinn Þór
Ríkharðsson, sem skipti yfir til fé-
lagsins frá GOG í sumar.
„Þetta er sennilega með betri
liðum sem við gátum fengið en ég
gerði mér líka grein fyrir því að
við erum í erfiðari keppnum og
myndum fá erfiða mótherja,“
sagði Snorri Steinn Guðjónsson,
þjálfari Vals, þegar Morgun-
blaðið bar niðurstöðuna undir
hann í gær. „Ég vildi bara fá
Holstebro eða Melsungen. Við er-
um ekki líklegasta liðið í keppn-
inni en það verður gaman fyrir
strákana að sjá hvar topplið á Ís-
landi stendur gagnvart mjög
góðu dönsku liði. Ég held að það
verði mjög gaman, ekki bara fyr-
ir Val heldur alla.“
Fyrstu leikirnir fara fram í lok
ágúst en Íslandsmótið hefst í byrj-
un september og verða þetta því
fyrstu keppnisleikir Valsara á
næsta tímabili. Snorri segir það
óheppilegt en geta að sama skapi
verið leikmönnum sínum aukin
hvatning á undirbúningstímabilinu.
Þrjátíu lið mæta til leiks í 1. um-
ferðinni. Liðunum var raðað í
styrkleikaflokka og svæði til að
lækka ferðakostnað félaga og forð-
ast óþarfa ferðalög á tímum kór-
ónuveirunnar. Valur var í neðri
styrkleikaflokki á svæði tvö og gat
mætt, ásamt Holstebro, Melsungen
frá Þýskalandi, Arendal frá Nor-
egi, Azoty-Pulawy frá Póllandi og
Malmö frá Svíþjóð.
Evrópudeildin er ný keppni sem
kemur í staðinn fyrir EHF-
bikarinn. kristoferk@mbl.is
Snorri vildi mæta Holstebro
Morgunblaðið/Hari
Þjálfarinn Snorri Steinn er sáttur
við niðurstöðuna.
9. UMFERÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
„Það var frábært að klára þetta, á
heimavelli í leik sem við eigum að
vinna. Sérstaklega eftir tvo tapleiki í
röð að komast aftur á sigurbraut,“
sagði sigurreifur Fylkismaðurinn
Valdimar Þór Ingimundarson þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans í
gær. Miðjumaðurinn var allt í öllu í
3:2-sigri Fylkis á HK á Würth-
vellinum í Árbænum á mánudaginn.
Hann lagði upp fyrstu tvö mörk
heimamanna og skoraði svo sig-
urmarkið sjálfur úr vítaspyrnu er
Fylkismenn skutu sér upp í þriðja
sætið á Íslandsmótinu, Pepsi Max-
deildinni. Valdimar fékk 2 M fyrir
frammistöðu sína og er leikmaður 9.
umferðarinnar.
Fylkir er með 15 stig eftir níu leiki,
hefur unnið fimm og tapað fjórum en
sigurinn gegn HK var kærkominn
eftir tvö 3:0-töp í röð, gegn KR og
Val. Árbæingar lentu undir í bráð-
fjörugum leik og þurftu svo sann-
arlega að hafa fyrir hlutunum. Með
sigri tókst þeim svo að halda áfram
vel í við efstu lið. Það eru fyrst og
fremst stigin sem telja og var Valdi-
mar því sáttur, þótt Fylkismenn hafi
ekki spilað sinn besta leik. „Þetta var
kannski ekki okkar besti fótbolta-
leikur en við gerðum það sem gera
þurfti.“
Jafnari deild en menn halda
„Stigasöfnunin okkar hefur verið
fín hingað til, það eru kannski ein-
hver stig sem við hefðum ekki átt að
tapa en önnur sem við erum kannski
heppnir að vinna. Við erum bara í
þessu klassíska, tökum einn leik í
einu og teljum svo upp úr pokanum í
lokin,“ sagði Valdimar og vildi lítið
gefa upp þegar blaðamaður stakk
upp á því að Fylkisliðið væri nógu
sterkt til að blanda sér í baráttuna
um Evrópusæti.
„Við getum unnið öll lið í þessari
deild á okkar degi, engin spurning,
en þetta er líka bara jöfn deild og all-
ir leikir eru erfiðir. Þetta er jafnari
deild en menn halda og þetta er oft
bara spurning um dagsformið og
hversu tilbúinn þú ert í hverjum leik
fyrir sig.“
Snýst um að tengja saman sigra
Valdimar og félagar eru þó ekki
bara að hugsa um deildarkeppnina,
heldur eru þeir staðráðnir í að fara
langt í bikarkeppninni, keppni sem
Árbæingar hafa unnið tvisvar í sögu
sinni, 2001 og 2002.
„Það er frábært að komast langt í
bikarnum og við ætlum langt. Þetta
snýst um að tengja saman sigra,
hvort sem það er í deild eða bikar,“
sagði Valdimar en Fylkir mætir
fyrstudeildarliði Fram í 16-liða úr-
slitunum á morgun. Liðin mættust
tvisvar á undirbúningstímabilinu í
vetur og vann Fylkir báða leikina en
liðin mættust einmitt líka síðast þeg-
ar Fylkir lék til úrslita 2002. Unnu þá
Árbæingar 3:1-sigur. „Við mættum
Frömurum tvisvar í vetur og vinnum
þá í bæði skiptin en vitum líka að þeir
eru með góða leikmenn, við þurfum
að spila vel til að klára það,“ sagði
Valdimar sem vill fyrst og fremst
vinna alla þá leiki sem hann spilar.
Vill alltaf meira frá sjálfum sér
Sjálfur er hann búinn að skora sex
deildarmörk í níu leikjum, jafn mikið
og hann skoraði í 21 leik í fyrra.
Hann er orðinn 21 árs og er á sínu
fimmta tímabili með Fylki, hefur
spilað 75 leiki og skorað 22 mörk í
deild og bikar. Hann spilaði 18 leiki í
fyrstu deildinni 2018, hjálpaði liðinu
að komast upp í efstu deild og hefur
verið fastamaður síðan. Valdimar
ætlar þó ekki að láta staðar numið og
er greinilega hungraður í að gera
enn betur. Þegar blaðamaður hrós-
aði honum fyrir tvær stoðsendingar
og mark í sigrinum gegn HK vék
hann umræðunni að færunum sem
misheppnuðust. „Ég klúðraði líka
tveimur mjög góðum færum.“
Hann er þó sammála því að
frammistaða hans fer vaxandi, enda
er miðjumaðurinn í liði umferð-
arinnar í þriðja skiptið það sem af er
sumri.
„Þetta er orðið skárra hjá mér, ég
er alveg sammála því en ég get enn
þá bætt mig og vil alltaf meira,“
sagði Valdimar Þór við Morgun-
blaðið.
Úrvalsdeildin er miklu
jafnari en menn halda
Valdimar lagði upp tvö mörk og skoraði eitt í sigri Fylkis en vill gera enn betur
Morgunblaðið/Eggert
Endurkoma Valdimar Þór Ingimundarson hjálpaði Fylkismönnum að snúa aftur á sigurbraut gegn HK í vikunni.
Valdimar Þór Ingimundarson úr Fylki er í liði umferðarinnar hjá Morgun-
blaðinu í þriðja sinn en úrvalslið 9. umferðar Pepsi Max-deildar karla má
sjá hér fyrir ofan. Einn annar leikmaður hefur verið valinn þrisvar í liðið í
sumar en það er KR-ingurinn Pablo Punyed.
Valdimar er jafnframt kominn með 8 M samtals í M-gjöfinni í sumar og
er búinn að ná þeim Stefáni Teiti Þórðarsyni úr ÍA og Valgeiri Valgeirs-
syni úr HK en þessir þrír eru nú jafnir og efstir. Næstir með 7 M eru Pablo
Punyed úr KR, Thomas Mikkelsen úr Breiðabliki, Steven Lennon og Þórir
Jóhann Helgason úr FH, Ágúst Eðvald Hlynsson úr Víkingi og Tryggvi
Hrafn Haraldsson úr ÍA. vs@mbl.is
9. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2020
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
24-4-2
Haraldur Björnsson
Stjörnunni
Arnþór Ingi
Kristinsson
KR
Lasse Petry
Val
Kristinn
Steindórsson
Breiðabliki
Gísli Eyjólfsson
Breiðabliki
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
Mikkel Qvist
KA
Aron Bjarnason
Val
Steven Lennon
FH
Ívar Örn Jónsson
HK
Davíð Örn
Atlason
Víkingi
2 2
2
2 2
2
3
2
Valdimar valinn í þriðja sinn
Pepsi Max-deild kvenna
Þór/KA – KR............................................. 2:1
ÍBV – Selfoss ............................................ 3:2
Stjarnan – Þróttur R................................ 5:5
Staðan:
Breiðablik 6 6 0 0 24:0 18
Valur 7 5 1 1 18:7 16
Fylkir 6 3 3 0 11:7 12
Selfoss 7 3 1 3 10:8 10
Þór/KA 7 3 1 3 13:13 10
ÍBV 7 3 0 4 9:17 9
Þróttur R. 8 1 4 3 14:20 7
Stjarnan 8 2 1 5 14:21 7
KR 7 2 1 4 9:17 7
FH 7 1 0 6 2:14 3
Lengjudeild kvenna
Fjölnir – ÍA ............................................... 1:1
Keflavík – Víkingur R .............................. 4:1
Haukar – Tindastóll ................................. 2:0
Augnablik – Afturelding.......................... 3:3
Staðan:
Keflavík 7 5 2 0 22:4 17
Tindastóll 7 5 1 1 16:4 16
Grótta 7 4 2 1 8:5 14
Haukar 7 3 2 2 10:8 11
Afturelding 7 2 3 2 10:8 9
Augnablik 6 2 2 2 9:12 8
ÍA 7 1 4 2 12:11 7
Víkingur R. 7 2 1 4 10:15 7
Fjölnir 7 1 1 5 4:17 4
Völsungur 6 0 0 6 2:19 0
2. deild kvenna
Sindri – HK............................................... 0:7
ÍR – Hamar............................................... 7:2
Staðan:
HK 7 7 0 0 32:1 21
Fjarð/Hött/Leikn. 5 4 0 1 13:11 12
Grindavík 5 3 0 2 13:6 9
Álftanes 5 3 0 2 8:15 9
ÍR 6 2 2 2 14:13 8
Hamrarnir 5 2 1 2 7:8 7
Hamar 6 1 1 4 10:20 4
Sindri 7 1 0 6 8:19 3
Fram 6 0 2 4 9:21 2
3. deild karla
KV – Elliði................................................. 5:1
Staðan:
Reynir S. 8 6 2 0 23:11 20
KV 8 6 0 2 23:10 18
Tindastóll 8 4 3 1 18:15 15
Sindri 8 3 2 3 16:21 11
Augnablik 8 2 4 2 16:15 10
KFG 8 3 1 4 17:18 10
Ægir 8 3 1 4 13:16 10
Einherji 8 3 1 4 14:18 10
Vængir Júpiters 8 2 3 3 9:13 9
Elliði 8 2 2 4 14:16 8
Höttur/Huginn 8 2 1 5 12:16 7
Álftanes 8 1 2 5 9:15 5
KNATTSPYRNA
Pepsí Max-deild kvenna:
Würth-völlurinn: Fylkir – Breiðablik..19:15
Origo-völlurinn: Valur – FH ................19:15
2. deild kvenna:
Framvöllur: Fram – Grindavík............19:15
Í KVÖLD!
Enska knatt-
spyrnufélagið
Manchester City
mun spila í Meist-
aradeild Evrópu
á næstu leiktíð
eftir að alþjóða-
íþróttadómstóll-
inn dæmdi félag-
inu í hag eftir að
UEFA hafði úr-
skurðað það í
tveggja ára bann frá Evrópukeppn-
um fyrir brot á fjármálareglum í
febrúar á þessu ári. Stefndi allt í að
félagið yrði því ekki í Meistara-
deildinni á næstu leiktíð.
Forráðamenn City ákváðu að
áfrýja úrskurðinum til alþjóða-
íþróttadómstólsins sem tók málið
fyrir og ákvað að taka áfrýjun enska
félagsins til greina. Þá sektaði
UEFA City um 30 milljónir evra
vegna brotanna en alþjóðaíþrótta-
dómstóllinn hefur ákveðið að lækka
þá sekt niður í 10 milljónir evra.
Dómstóllinn gaf í gær út 93 blað-
síðna skýrslu vegna málsins. Í henni
kemur fram að ekki hafi verið hægt
að sanna sekt félagsins og því hafi
bannið verið dregið til baka. City var
hins vegar sektað um 10 milljónirnar
þar sem félagið þótti ekki samvinnu-
þýtt við rannsókn málsins.
johanningi@mbl.is
Ekki hægt að
sanna sekt
Man City
Pep
Guardiola