Morgunblaðið - 30.07.2020, Síða 26
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Búist var við að verulega hart yrði
sótt að Ola Scholz fjármálaráðherra
og Peter Altmaier efnahagsráðherra
Þýskalands er þeir báru vitni í þýska
þinginu í gær vegna rannsóknar á
meiriháttar
svikamáli sem
leiddi til falls
greiðslumiðlun-
arinnar Wirecard
og þykir hið
mesta hneyksli.
Forstjóri Wire-
card, Markus
Braun, var hand-
tekinn í síðustu
viku en látinn
laus gegn tryggingu. Hann er grun-
aður um að hafa falsað reikninga og
stundað blekkingar á markaði.
Fjárhagsnefnd þingsins í Berlín
stefndi Scholz og Altmaier fyrir sig
til lokaðrar vitnaleiðslu sem vonast
er til að varpi ljósi á hneykslismálið.
Búist var við að þeir yrðu spyrðir
spjörunum úr um það nákvæmlega
hvenær ríkisstjórnin og eftirlitsaðil-
ar fengu vitneskju um ólöglegar
bókhaldsfærslur hjá Wirecard og
hvort eftirlitskerfinu hefði yfirsést
þær.
Báðir ráðherrarnir hafa heitið
fullu gagnsæi í málinu sem Scholz
segir að sé „óviðjafnanlegt hneyksli“
og áfall fyrir fjárhagslegt orðspor
Þjóðverja. Hann hefur heitið því að
stokka upp starfsemi fjármálaeftir-
litsins, Bafin, sem sagt er hafa farið
of mjúkum höndum um Wirecard, og
veita því víðtækari heimildir til að
fara inn í mál og hefja rannsóknir.
Mistök úti um allt
Formaður fjárhagsnefndarinnar,
Katja Hessel, þingmaður FDP,
sagði útvarpsstöðinni Deutschland-
funk að „mistök hefðu verið gerð úti
um allt“ í starfsemi Wirecard sem fá
þyrfti fram skýringar á. Hún útilok-
aði ekki að formleg þingrannsókn
yrði hafin ef vitnisburður ráð-
herranna yrði talinn ófullnægjandi.
Fall Wirecard er farið að vinda upp
á sig, ekki síst eftir að skýrslur úr
fjármálaráðuneytinu sýndu að
Scholz hefði verið skýrt frá grun-
semdum um misferli í fyrirtækinu í
febrúar í fyrra, 2019.
Klifur og steypiflug
Wirecard var stofnað af frum-
kvöðlum árið 1999. Óx það úr fyrir-
tæki sem streymdi fé til klám-
framleiðenda og veðmálasíðna í
virðulegt greiðsluþjónustufyrirtæki
sem ruddi forystufyrirtækinu á því
sviði, Commerzbank, úr DAX 30-
vísitölunni 2018. Á einu stigi nam
verðmæti Wirecard 23 milljörðum
evra, sem skákaði risanum Deutsche
Bank. Hlutabréf í Wirecard hafa
hrunið um 98% frá í fyrra.
Erfiðleikar Wirecard hófust í jan-
úar 2019 er viðskiptablaðið Financ-
ial Times birti greinaflokk með
ásökunum um bókhaldssvindl í Asíu-
útibúi greiðslumiðlunarinnar.
Fjármálaeftirlitið Bafin svaraði með
því að hefja rannsókn á blaðamönn-
um FT. Sprakk blaðran svo endan-
lega í júní í fyrra er bókhalds-
fyrirtæki Wirecard til margra ára,
Ernst & Young, kvaðst ekki finna
1,9 milljarða evra í seðlum sem átti
að vera að finna í fjárvörslureikn-
ingum hjá tveimur bönkum á Fil-
ippseyjum. Viðurkenndi Wirecard
svo að peningarnir, um fjórðungur
veltunnar, væru „líklega ekki til“.
Sakar Ernst & Young Wirecard um
margbrotin og gríðarlega flókin bók-
haldssvik til að fela taprekstur sinn.
E&Y hefur ekki sloppið við gagnrýni
en fundið er að því að það hafi skrif-
að upp á ársreikninga Wirecard ár-
um saman athugasemdalaust.
Hart sótt að ráðherrunum
Fall Wirecard á eftir að hafa milljarða evra tap í för með sér og málið þykir skaða orðspor þýskrar
fjármálastarfsemi Fjármálaráðherra Þýskalands segir málið vera „óviðjafnanlegt hneyksli“
AFP
Hneyksli Óreiða og blekkingar ein-
kenndu bókhald Wirecard.
AFP
Fyrir þingnefnd Olaf Scholz, fjármálaráðherra og varakanslari Þýskalands, kemur í þýska þinghúsið í gær.
Markus Braun
TRÉSMÍÐAVÉLAR
Rennibekkur
Lata
Verð 158.300
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Spónsuga 2 stærðir
Verð frá 89.800
Slípivél BTS800
Verð 49.980 Smergill BG150
Verð 21.460
Rennibekkur DMT 460
Verð 70.700
Bandsög
2 stærðir
Verð frá 59.960
Slípivél
OSM100
Verð 45.630
Tifsög 2 stærðir
Verð frá 22.620
Borabrýni
BPS 800
Verð frá 12.980
Borðsög HS80
Verð frá 34.210
Þyktarhefill/afréttari
HMS 1080
Verð frá 107.100
Bútsög HM80L
Verð 22.620
Súluborvél
DP16SL
Verð 60.900
Súluborvél
DP18VARIO
Verð 95.960
Spónsuga
HA1000
Verð 28.340
Slípivél
OSM600
Verð 58.150
Erum með þúsundir
vörunúmera inn á vefverslun
okkar brynja.is
Vélar fyrir
atvinnumenn
og
handverksfólk
Yfir 40 ára
frábær reynsla á
Íslandi
Fræsari HF50
Verð 74.420
Slípiband BTS700
Verð 26.850