Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 52

Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 www.danco.is Heildsöludreifing Ný sending af Decoris matarstellum Fyrirtæki og verslanir Kynntu þér úrval á vefverslun www.danco.is Ármann Jakobsson virðistvera hamhleypa til verka.Fyrir jól sendi hann frásér glæpasögu og nú er sú þriðja í sama flokki og enn betri kom- in út. Á bókarkápu segir að Tíbrá sé hörkuspennandi krimmi og skemmti- saga um glæp. Spennan er vissulega fyrir hendi en viðfangsefnið er langt því frá að vera skemmtilegt heldur grafalvarlegt og ekki til eftirbreytni. Engu að síður er oft hnyttilega að orði komist, þótt öllu megi ofgera, og Njáll á sennilega besta tilsvarið í samræðum hans við Kristínu um rannsókn lögreglunnar: „Þú ert M og ég er Bond,“ með vísun í helstu per- sónur í spennubókum Ians Flemings. mundarson, Ross Dyson (Jim Radcliffe?) og Sophiu Loren fari fyr- ir ofan garð og neðan hjá mörgum. Sagan rennur annars vel og sam- tölin eru yfirleitt eðlileg. Glettnin leynir sér ekki og háðið hittir stund- um vel í mark. Ertu kostgangari? Ha? Margir koma við sögu, jafnvel of margir, þótt þeim hafi fækkað til muna frá fyrstu bók. Lögreglugengið er það sama og fyrr og ástamál Kristínar fá töluvert rými, en það á sínar skýringar. Drottnun og undir- gefni eru áberandi og þjóna ákveðnum tilgangi rétt eins og heilög þrenning. Persónusköpunin er oft góð og þar fer Guðmundur fremst í flokki, en Regína er af svipuðum meiði og gleymist ekki svo auðveld- lega. Ýmsar aðrar eru einnig til í raunheimum. Tíbrá er vel uppbyggð saga og góð tilraun að uppskrift hins fullkomna glæps. Höfundur bendir réttilega á að margur er úlfur í sauðargæru og heldur lesandanum lengi í spennu áð- ur en sannleikurinn kemur í ljós. Það er ákveðin kúnst, en eftir stendur að margir eru með óbragð í munni. Með óbragð í munni Morgunblaðið/Hari Tilraun Tíbrá eftir Ármann Jakobsson er vel uppbyggð saga og góð tilraun að uppskrift hins fullkomna glæps. Glæpasaga Tíbrá bbbmn Eftir Ármann Jakobsson. Bjartur 2020. Kilja, 295 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Sem fyrr í bókaflokknum svífur andi Agöthu Christie yfir vötnum en höfundur er vel að sér í bók- menntum og vitn- ar ótæpilega í verk og sögu- hetjur annarra án frekari skýringa. Virkar sem ákveðin fylling fyrir þá sem til þekkja en vek- ur óþarfa spurningar hjá hinum. Sama á við um tengingar við ýmsar persónur, sem virðast fátt eiga sam- eiginlegt enda almennt ekki af sömu kynslóð. Látið er að því liggja að hljómsveitin New Order sé á allra vörum en ekki er víst að lesendur, sem ekki eru á svipuðum aldri og höf- undur, tengi við breska rokkbandið, þótt „sá gamli lögregluhundur Bjarni Davíðsson“ sé þar á heimavelli sem annars staðar. Hætt er við að samlík- ingar við til dæmis Vigdísi Finn- bogadóttur, Gilzenegger, Skarphéðin Njálsson, Marie Antoinette, Hroll- laug leigubílstjóra (Gunnar Tryggva- son?), Jeanne Moreau, Kára Sól- Leikkonan Helen Mirren, leikkonan Shia LaBeouf og umhverfisvernd- arsinninn Greta Thunberg verða meðal þekktra gesta sem sækja munu alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Feneyjum sem verður sú fyrsta af stórhátíðum kvikmyndaheimsins sem haldin verður í kvikmynda- húsum með gestum eftir að kórónu- veirufaraldurinn hóf að herja á heimsbyggðina. Hátíðin verður samt sem áður ólík þeim fyrri, með mun færri kvikmyndum en venja er og öllu færri gestum. Stjórnandi hátíðarinnar, Alberto Barbera, tilkynnti í fyrradag hvaða kvikmyndir yrðu á hátíðinni og má þar m.a. finna kvikmyndir eftir leik- stjórana Luca Guadagnino, Ahmad Bahrami, Alice Rohrwacher og Abel Ferrara. Einna mest spenna virðist vera í kringum kvikmynd Chloé Zhao, Nomadland, en hún sló óvænt í gegn með kvikmyndinni The Rider árið 2017. Nomadland er byggð á sannsögulegum atburðum og segir af bandarískum verkamönnum sem þurfa að ferðast um landið í leit að vinnu á tímum efnahagskreppu. Handrit myndarinnar er byggt á bókinni Nomadland: Surviving Am- erica in the Twenty-First Century eftir Jessicu Bruder. Nomadland verður frumsýnd 11. september og verður einnig sýnd á hátíðum í Tor- onto og New York. Fátt er annars um bandarískar kvikmyndir á dag- skrá hátíðarinnar en finna má rúss- neskar, ísraelskar, ítalskar og ensk- ar myndir, svo dæmi séu tekin, og þá m.a. nýjustu kvikmynd Rogers Michells, The Duke, en Michell leik- stýrði hinni sívinsælu Notting Hill fyrir margt löngu. Búist er við því að hátíðin verði fámennari en vanalega og að færri muni mæta úr kvik- myndabransanum en venja er. Þá verður allrar varúðar gætt þegar kemur að smithættu og fleiri myndir verða sýndar utandyra en vanalega. Jafnara kynjahlutfall Hátíðarhaldarar hafa verið gagn- rýndir á undanförnum árum fyrir karllægt val á kvikmyndum en afar fáar kvikmyndir í leikstjórn kvenna hafa verið sýndar á hátíðinni. Tvær konur áttu myndir í keppnisflokkum í fyrra og aðeins ein árið 2018. Í ár hefur verið bætt úr þessu upp að vissu marki því átta kvikmyndir í leikstjórn kvenna munu keppa um aðalverðlaunin, Gullna ljónið, en alls eru myndirnar í þeim flokki 18. Þá munu leikkonan og leikstjórinn Ann Hui og leikkonan Tilda Swinton hljóta heiðursverðlaun á hátíðinni og leikkonan Cate Blanchett mun fara fyrir aðaldómnefndinni. Hátíðin hefst 2. september og lýkur tíu dög- um síðar. helgisnaer@mbl.is Formaður Cate Blanchett leiðir að- aldómnefnd Feneyjahátíðarinnar. Feneyjahátíðin verður haldin Kanadíski tónlistarmaðurinn Drake hefur slegið met banda- rísku tónlistarkonunnar Madonnu yfir fjölda laga sem komist hafa á lista yfir þau tíu vinsælustu í Bandaríkjunum. Rapparinn á tvö lög í flokki þeirra tíu vinsælustu í þessari viku, annars vegar lagið „Popstar“ í þriðja sæti sem hann vann með DJ Khaled og hins veg- ar „Greece“ sem situr í áttunda sæti. Þar með hefur hann átt 40 lög á lista yfir þau tíu vinsælustu en met Madonnu var 38 lög. Í mars sló Drake metið yfir flest lög á lista yfir þau hundrað vinsæl- ustu í Bandaríkj- unum, 208 tals- ins. Nú eru lögin orðin 224, þar sem nýjasta breiðskífa hans, Dark Lane Demo Tapes, hefur notið mik- illa vinsælda frá því hún kom út í maí. Öll lög þeirrar plötu hafa komist á listann yfir þau 100 vin- sælustu. Drake slær bandarískt met Madonnu Drake Streymisveitan og framleiðslufyrir- tækið Netflix hlaut í gær fleiri til- nefningar til Emmy-verðlaunanna en nokkurt framleiðslufyrirtæki hef- ur hlotið áður í sögu verðlaunanna. Sló Netflix met HBO með því að hljóta 160 tilnefningar fyrir efni sitt en met HBO var 107 tilnefningar. Þáttaröð HBO, Watchmen, hlaut þó flestar tilnefningar, 26 talsins og næstflestar, 20 tilnefningar, hlaut þáttaröð Amazon, The Marvelous Mrs. Maisel. Í frétt The New York Times segir að Netflix og HBO hafi á undanförn- um árum keppt um tilnefningar og verðlaun Emmy og er þetta annað árið í röð sem Netflix hlýtur fleiri til- nefningar en aðalkeppinauturinn. Hin nýja streymisveita Disney+ hlaut tilnefningu í dramaflokki fyrir The Mandalorian, sem mörgum kann að koma á óvart þar sem þætt- irnir eru ævintýralegir og segja af persónum ú́r Stjörnustríði. Hlutu þættirnir 15 tilnefningar. Öflug Netflix sækir enn í sig veðrið. Hér má sjá stillu úr þáttaröð Netflix, Ozark, en sú nýjasta hlýtur 18 tilnefningar til Emmy-verðlauna. Netflix slær met HBO

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.