Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Topplið Breiðabliks í Pepsí Max-
deild kvenna gefur ekki þumlung
eftir og heldur áfram að tína inn
stigin með sannfærandi hætti. Eftir
4:0-stórsigur á Fylki í gær er liðið
ekki enn búið að fá á sig mark í
deildinni eftir átta leiki. Breiðablik
varð meistari árið 2018 og liðið ætl-
ar sér að endurheimta titilinn. Nú-
verandi meistarar í Val eru eina lið-
ið úr því sem komið er sem getur
komið í veg fyrir það.
Árbæingar, sem höfðu fengið tólf
stig í fyrstu sjö leikjunum, máttu
sín lítils gegn Kópavogsbúum og
voru 0:4 undir þegar liðin héldu til
búningsherbergja í Lautinni.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir
skoraði sitt ellefta mark í deildinni í
sumar þegar hún skoraði þriðja
mark Breiðabliks. Þorsteinn Hall-
dórsson, þjálfari Breiðabliks, gat
leyft sér að spara aðeins lykilleik-
menn vegna þeirrar stöðu sem upp
var komin í leiknum. Hann gat leyft
sér að skipta Öglu Maríu Alberts-
dóttur af velli á 66. mínútu og Berg-
lind fór út af á 76. mínútu. Vara-
mannabekkurinn hjá Blikum er svo
sem ekki veikur en þar sat til dæm-
is landsliðskonan Rakel Hönnudótt-
ir þar til á 66. mínútu.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir
skoraði sitt fyrsta mark fyrir
Breiðablik í deildinni í sumar þegar
hún kom liðinu yfir eftir aðeins tíu
mínútur í gær. Hún var ekki lengi
að bæta öðru marki við og hafði
skorað tvívegis þegar innan við
korter var liðið af leiknum.
Hafa ekkert svigrúm
Eins og áður var minnst á er orð-
ið nokkuð ljóst að baráttan um Ís-
landsmeistaratitilinn mun aftur
standa á milli Breiðabliks og Vals.
Meistararnir í Val eru tveimur stig-
um á eftir Breiðabliki en Blikar eiga
leik til góða. Önnur lið eru orðin
ansi langt á eftir. Fylkir er níu stig-
um á eftir Breiðabliki og Selfoss
sem tapaði fyrir ÍBV er ellefu stig-
um á eftir Blikum eins og Þór/KA.
Valskonur unnu FH-inga á Hlíð-
arenda í gær eins og búast mátti við
en FH-liðið var ekki sannfærandi
gegn KR á dögunum. Lið Vals
þurfti á því að halda að finna takt-
inn á ný eftir slæman 4:0-skell gegn
Breiðabliki á dögunum. Valur vann
3:1 eftir að hafa verið 2:0 yfir að
loknum fyrri hálfleik.
Elín Metta Jensen og Hlín Ei-
ríksdóttir skoruðu báðar og hafa
verið djrúgar í sumar rétt eins og í
fyrra. Elín Metta hefur þá skorað
níu mörk í deildinni og Hlín sex.
Fanndísar Friðriksdóttur nýtur
ekki lengur við vegna barnsburð-
arleyfis og Bergdís Fanney Ein-
arsdóttir lék á vinstri kantinum.
Hún skoraði þriðja markið á 62.
mínútu.
Þegar Breiðablik er í slíku fanta-
formi sem raun ber vitni er töluverð
pressa á Valsliðinu að misstíga sig
ekki frekar. Liðið hefur þegar gert
eitt jafntefli og það gæti einfaldlega
reynst dýrt þegar upp verður stað-
ið. Úrslitin í mótinu í fyrra réðust á
því að Breiðablik gerði einu jafntefli
meira en Valur.
Meistararnir geta enn gælt við þá
hugsun að þær geti unnið Blika á
heimavelli á Hlíðarenda en meira
þarf til eins og staðan er núna. Enn
er þó mikið eftir af Íslandsmótinu
en ekki er fyrirsjáanlegt að sjálfs-
traustið minnki hjá Blikum þegar
liðið landar stórsigri í hverri um-
ferð.
Blikar enn í banastuði
Höfðu skorað fjögur mörk í fyrri hálfleik í Árbænum Áfram munar tveimur
stigum á Breiðabliki og Val Valskonur ekki í neinum vandræðum gegn FH
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Skallaeinvígi Bryndís Arna og Heiðdís (8) í leiknum í gær.
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Á Hlíðarenda FH-ingar komust lítt áleiðis þegar þær fengu boltann í gær.
Hólmbert Aron Friðjónsson var í
miklu stuði er Aalesund vann sinn
fyrsta sigur í norsku úrvalsdeild-
inni í fótbolta í gær. Skoraði hann
þrennu í 3:2-heimasigri á Start.
Hólmbert jafnaði tvívegis fyrir
Aalesund áður en hann skoraði
þriðja markið á 80. mínútu. Skoraði
hann tvívegis með skalla og eitt úr
vítaspyrnu.
Framherjinn hefur byrjað leik-
tíðina gríðarlega vel og skorað átta
mörk í fyrstu níu leikjunum í deild-
inni. Aalesund er þrátt fyrir sig-
urinn í botnsætinu með sex stig.
Þrenna í fyrsta
sigurleiknum
Ljósmynd/Aalesund
Þrenna Hólmbert Aron gat leyft sér
að brosa eftir dagsverkið í gær.
Forráðamenn Tindastóls í körfu-
knattleik hafa að sögn staðarmiðils-
ins Feykis lokið við leikmannamálin
hjá karlaliðinu fyrir næsta keppnis-
tímabil á Íslandsmótinu.
Feykir greinir frá því að félagið
hafi tryggt sér starfskrafta Banda-
ríkjamannsins Shawns Glovers. Er
hann þrítugur og kemur frá Dallas
í Texas. Hefur hann leikið víða á
ferlinum: á Spáni, í Danmörku, Ísr-
ael og Úrúgvæ. Í Danmörku lék
hann undir stjórn Israels Martins,
fyrrverandi þjálfara Tindastóls,
sem nú stýrir Haukum.
Fullmannað hjá
Skagfirðingum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson
er þjálfari Tindastóls.
Pepsi Max-deild kvenna
Valur – FH ................................................ 3:1
Fylkir – Breiðablik................................... 0:4
Staðan:
Breiðablik 7 7 0 0 28:0 21
Valur 8 6 1 1 21:8 19
Fylkir 7 3 3 1 11:11 12
Selfoss 7 3 1 3 10:8 10
Þór/KA 7 3 1 3 13:13 10
ÍBV 7 3 0 4 9:17 9
Þróttur R. 8 1 4 3 14:20 7
Stjarnan 8 2 1 5 14:21 7
KR 7 2 1 4 9:17 7
FH 8 1 0 7 3:17 3
2. deild kvenna
Fram – Grindavík..................................... 1:5
England
B-deild, umspil:
Brentford – Swansea .............................. 3:1
Patrik Sigurður Gunnarsson var ekki í
leikmannahópi Brentford.
Brentford vann samtals 3:2 og leikur um
sæti í úrvalsdeildinni.
Ítalía
Lazio – Brescia......................................... 2:0
Birkir Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Brescia.
Fiorentina – Bologna .............................. 4:0
Andri Fannar Baldursson kom inn á sem
varamaður hjá Bologna á 63. mínútu.
Staða efstu liða:
Juventus 37 26 5 6 75:40 83
Inter Mílanó 37 23 10 4 79:36 79
Atalanta 37 23 9 5 98:46 78
Lazio 37 24 6 7 78:39 78
Roma 37 20 7 10 74:50 67
AC Milan 37 18 9 10 60:46 63
Napoli 37 17 8 12 58:49 59
Sassuolo 37 14 9 14 69:62 51
Hellas Verona 37 12 13 12 47:48 49
Fiorentina 37 11 13 13 48:47 46
Parma 37 13 7 17 52:54 46
Bologna 37 12 10 15 51:64 46
Cagliari 37 11 12 14 52:53 45
Úkraína
Kolos Kovalivka – Mariupol ................... 1:0
Árni Vilhjálmsson sat á varamannabekk
Kolos Kovalivka.
Danmörk
AGF – OB.................................................. 2:1
Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á eftir
60 mínútur hjá AGF.
Aron Elís Þrándarson kom inn á eftir 30
mínútur hjá OB.
Svíþjóð
A-deild kvenna:
Kristianstad – Piteå ................................ 3:1
Svava Rós Guðmundsdóttir lék fyrstu 78
mínúturnar hjá Kristianstad. Sif Atladóttir
er í barnsburðarleyfi. Elísabet Gunnars-
dóttir þjálfar liðið.
Djurgården – Eskilstuna ........................ 2:1
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården. Guðbjörg Gunnarsdóttir
er í barnsburðarleyfi.
Vittsjö – Uppsala ..................................... 4:2
Anna Rakel Pétursdóttir lék fyrstu 55
mínúturnar hjá Uppsala.
Noregur
Aalesund – Start ...................................... 3:2
Hólmbert Aron Friðjónsson skoraði öll
mörk Aalesund, Daníel Leó Grétarsson lék
allan leikinn en Davíð Kristján Ólafsson
var í leikbanni.
Mjöndalen – Odd...................................... 0:2
Dagur Dan Þórhallsson sat á vara-
mannabekknum hjá M.
Kristiansund – Sandefjord ..................... 3:1
Emil Pálsson er fyrirliði Sandefjord og
lék allan leikinn og Viðar Ari Jónsson lék
fyrstu 65 mínúturnar.
Strömsgodset – Brann ............................ 3:1
Ari Leifsson var ekki í leikmannahópi
Strömsgodset.
Molde Vålerenga ..................................... 4:1
Matthías Vilhjálmsson lék fyrstu 88 mín-
úturnar hjá Vålerenga.
Staðan:
Bodø/Glimt 10 10 0 0 38:11 30
Molde 11 9 1 1 33:11 28
Odd 11 6 1 4 18:13 19
Vålerenga 11 5 4 2 14:14 19
Stabæk 10 4 4 2 13:12 16
Kristiansund 11 3 6 2 21:15 15
Rosenborg 10 4 3 3 13:8 15
Brann 11 4 3 4 15:17 15
Strømsgodset 11 4 3 4 14:20 15
Haugesund 11 3 3 5 7:16 12
Sarpsborg 11 3 2 6 10:12 11
Viking 10 3 2 5 13:18 11
Sandefjord 11 3 1 7 9:19 10
Mjøndalen 11 2 2 7 10:15 8
Start 11 0 6 5 10:19 6
Aalesund 11 1 3 7 16:34 6
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 16-liða úrslit:
Greifavöllurinn: KA – ÍBV ...................17:30
Kaplakrikavöllur: FH – Þór ......................18
Kórinn: HK – Afturelding ....................19:15
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Grótta ..19:15
Meistaravellir: KR – Fjölnir ................19:15
Framvöllur: Fram – Fylkir ..................19:15
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur – Víðir .......................17
Í KVÖLD!
FYLKIR – BREIÐABLIK 0:4
0:1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 10.
0:2 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 14.
0:3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 29.
0:4 Sjálfsmark 37.
MM
Karólína Lea Vilhjálmsd. (Breiðabliki)
M
Berglind Rós Ágústsdóttir (Fylki)
Eva Rut Ásþórsdóttir (Fylki)
Hafrún Rakel Halldórsd. (Breiðabliki)
Berglind Björg Þorvaldsd. (Breiðab.)
Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðabliki)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Breiðabliki)
Áslaug Munda Gunnlaugsd. (Breiða.)
Andrea Rán Snæfeld (Breiðabliki)
Dómari: Steinar Berg Sævarsson – 7
Áhorfendur: 387.
VALUR – FH 3:1
1:0 Elín Metta Jensen 38.
2:0 Hlín Eiríksdóttir 41.
3:0 Bergdís Fanney Einarsdóttir 62.
3:1 Maddy Gonzalez 78.
MM
Guðný Árnadóttir (Val)
M
Bergdís Fanney Einarsdóttir (Val)
Elísa Viðarsdóttir (Val)
Hlín Eiriksdóttir (Val)
Ída Marín Hermannsdóttir (Val)
Helena Ósk Hálfdánardóttir (FH)
Maddy Gonzalez (FH)
Dómari: Bríet Bragadóttir – 6.
Áhorfendur: 268.
Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.