Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 37
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
✝ Magnea Kol-brún Sigurðar-
dóttir, Maddí, fædd-
ist í Reykjavík 8.
apríl 1939. Hún lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Ísafold 22. júlí
2020.
Foreldrar Maddí-
ar voru hjónin Sig-
urður Einarsson
pípulagningar-
meistari, f. 29.2.
1908, d. 27.2. 1988 og Guðrún
Gísladóttir húsmóðir, f. 2.5. 1911,
d. 30.1. 1994. Börn Sigurðar og
Guðrúnar eru Katla, f. 1933, d.
1933, Þórdís Katla, f. 1935, Jó-
hanna Sigríður, f. 1937, d. 2015,
Gísli, f. 1941, Einar, f. 1943, d.
2016, Örlygur, f. 1945, Sigurjón,
f. 1947, Þorleifur Garðar, f. 1948,
Sigrún, f. 1951, og Flosi, f. 1955.
Eftirlifandi eiginmaður
Maddíar er Bjarni Pétursson
skrifstofusjóri, f. 30.4. 1936. Þau
dóttur, f. 20.2. 1973. Börn þeirra
eru a) Júlía Kolbrún, f. 7.2. 1999
og b) Jasmín Eva, f. 27.6. 2005.
Heimili Maddíar og Bjarna var
lengst af í Holtsbúð í Garðabæ en
þau fluttust 2017 á Sautjánda-
júnítorg einnig í Garðabæ og síð-
ar á hjúkrunarheimilið Ísafold í
Garðabæ.
Maddí ólst upp á Brávallagöt-
unni og stundaði nám í Melaskóla
og Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar. Síðan lá leiðin í Sam-
vinnuskólann á Bifröst. Magnea
lærði til stúdentsprófs við öld-
ungadeild Menntaskólans við
Hamrahlíð og lauk BA-prófi í ís-
lensku frá Háskóla Íslands. Hún
vann sem einkaritari hjá Sam-
bandinu og Samvinnutrygg-
ingum, á lögmannsstofunni
Höfðabakka 9 og síðast sem fjár-
málastjóri Fjölbrautaskólans í
Breiðholti. Hún var virk í kven-
félagi Garðabæjar og leshring
bókasafns Garðabæjar. Hún
hafði unun af lestri, klassískri
tónlist, ferðalögum og sam-
verustundum með stórfjölskyld-
unni á Brávallagötu.
Útför Maddíar fer fram frá Ví-
dalínskirju í Garðabæ í dag, 30.
júlí 2020, klukkan 13.
giftust 9.11. 1961.
Foreldrar Bjarna
voru Pétur Bjarna-
son, f. 8.12. 1903, d.
10.12. 1944, og Guð-
rún Davíðsdóttir, f.
6.10. 1914, d. 18.10.
1995.
Börn Maddíar og
Bjarna eru 1) Guð-
rún, f. 5.12. 1963,
gift Melchior Lipp-
isch, f. 16.2. 1950.
Barn Guðrúnar og Melchiors er
a) Lea Véný Felice, f. 18.8. 1992.
2) Pétur, f. 20.12. 1967, kvæntur
Brynju Ástráðsdóttur, f. 7.1.
1970. Börn þeirra eru a) Bjarni
Þór, f. 20.5. 1991, í sambúð með
Bryndísi Jónsdóttur, f. 25.10.
1989, og langömmubarn Magneu
er Kolbrún Edda, f. 17.4. 2020 b)
Andrea Sif Pétursdóttir, f. 17.8.
1996, og c) Baldur Ingi Péturs-
son, f. 21.3. 2004. 3) Sigurður,
kvæntur Dröfn Guðmunds-
Yndislega mamma mín, stoð
mín og stytta, fyrirmyndin mín
og besta vinkona lagði af stað í
ferðina miklu hinn 22. júlí 2020.
Þetta voru erfið spor fyrir
okkur, pabba og börn, tengda-
börn og barnabörn, sem flest
voru hjá henni þegar hún kvaddi
og fylgdu henni af stað, en við vit-
um öll að hún var farin að hlakka
til að fara í þessa ferð og losna
undan þjáningum krabbameins-
ins. Hún fór í friði og sátt um-
kringd þeim sem voru henni kær-
astir og var tilbúin að fórna öllu
fyrir.
Hún elskaði að ferðast, sjá
nýja staði og kynnast fólki svo ég
er þess fullviss að hún er byrjuð
enn eitt fallega ferðalagið til við-
bótar í fríðu föruneyti. Þar ber
helst að minnast Hönnu systur
hennar en þær voru mjög sam-
rýndar og upp á síðkastið sagðist
mamma oft dreyma hana og að
þær væru að bralla eitthvað sam-
an.
Við fórum í mörg ferðalög
saman, eiginlega í hvert skipti
sem hún og pabbi komu í heim-
sókn til okkar til Evrópu eða að
við litla fjölskyldan komum til Ís-
lands. Þetta eru minningar sem
ylja okkur Leu dóttur minni og
við tölum oft um.
Lea elskaði að vera ein hjá
ömmu í 4-6 vikur á hverju sumri
frá því að hún var fimm ára. Ég
er viss um að þær heimsóknir
eiga stóran þátt í hversu Lea tal-
ar góða íslensku. Amma sendi
hana í Vindáshlíð, á reiðnám-
skeið, fór í sund, keypti uppá-
halds kókómjólk og snúða og
sýndi henni landið okkar. Þær
keyrðu tvær saman til hins heitt-
elskaða Hornafjarðar mömmu að
heimsækja Steina frænda sem
var í miklu uppáhaldi og skoða
náttúruundur landsins á leiðinni.
Mamma var snillingur í að búa til
góðar minningar sem eiga eftir
að ylja okkur um ókomin ár.
Við megum þakka fyrir auka-
árin þrjú sem við fengum með
henni, en það var haldið að hún
væri að deyja fyrir þremur árum.
En hún var ekki tilbúin þá og ætl-
aði ekki að kveðja bara svona.
Hún átti góðan tíma með fjöl-
skyldunni þrátt fyrir sín miklu
veikindi. Þessi þrjú ár ferðaðist
hún samt á hörkunni einni sam-
an, lífsviljinn var svo sterkur.
Eitt það dásamlegasta sem
gerðist á þessum tíma var að hún
vissi í allan vetur að lítið lang-
ömmubarn væri á leiðinni sem
von var á á afmælisdaginn henn-
ar. Það fæddist lítið ljós hinn 17.
apríl, mitt á milli afmælisdaga
mömmu og pabba.
Mamma var svo ótrúleg að hún
setti allt í að geta farið hinn 17.
júní í skírn litlu langömmustelp-
unnar sinnar til Selfoss. Gleðin
var svo mikil þegar hún fékk
nöfnu sína Kolbrúnu Eddu,
mamma sagðist bara hafa grátið
með Sigga bróður þar sem þau
sátu saman.
Elsku besta mamma mín ég
elska þig endalaust, þú verður
alltaf í hjörtum okkar Leu sem
stóra fyrirmyndin okkar og besta
vinkona, við vitum að þú ert alltaf
með okkur. Góða ferð elsku
mamma og amma, við sjáumst
aftur.
Guðrún, Lea og Melchior.
Ég minnist mömmu með mikl-
um söknuði. Hún var manneskja
friðar og umhyggju. Hún elskaði
alla og ekki einungis þá sem
stóðu henni næst heldur alla í
kringum hana.
Mamma lærði mjög snemma
að lesa, eða um fjögurra ára ald-
ur. Hún lærði af eldri systrum
sínum, þeim Kötlu og Hönnu,
þegar þær voru að læra að lesa.
Hún fór snemma til ömmu sinnar
og afa austur á Hornafjörð í sveit
á Móum, svo síðar í Bjarnanesi.
Undi sér þar mjög vel og var með
Steina frænda, sem er jafn gam-
all og hún. Áttu þau margar góð-
ar stundir og hafa verið mjög ná-
in síðan. Alltaf þegar Steini
frændi kom í bæinn gisti hann
hjá mömmu. Við strákarnir urð-
um fljótt hændir að honum, þar
sem hann var duglegur að kenna
okkur að tefla og spila á spil.
Mamma var mjög góður náms-
maður og fékk aldrei leið á því að
læra. Hún var alltaf með ágætis-
einkunn í hverju því fagi sem hún
tók. Hún var mjög dugleg í að að-
stoða okkur börnin með lærdóm-
inn og hafði mikinn áhuga á námi
okkar. Hún var mjög stolt af því
að öll börnin hennar tóku stúd-
entspróf.
Mamma hafði unun af því að
leysa krossgátur og lesa. Minn-
ingin um hana við eldhúsborðið
með allar bækurnar og blöðin
með krossgátunum er ógleyman-
leg. Hún var svona einn dag að
lesa heila bók og gat bara lesið
svo klukkustundum skipti.
Mamma var mjög yfirveguð og
róleg og aldrei var um neinn æs-
ing að ræða hjá henni. Nema einu
sinni þegar hún var búin að fá
nóg af okkur bræðrum og sló
okkur með blautri eldhústusk-
unni. Sem betur fer fékk hún smá
útrás þar, en við lærðum að sjálf-
sögðu ekkert á þessu. Þetta var
eina skiptið sem mamma reiddist
okkur og er undantekningin sem
sannar regluna. Við vorum
reyndar frekar hressir við bræð-
ur og kveið fólk því stundum þeg-
ar mamma kom með okkur báða í
heimsókn.
Það var svo gaman að fara með
mömmu til ömmu og afa á Brá.
Þar hitti maður alla í litlu íbúð-
inni þeirra og alltaf fékk ég Sí-
ríuslengju frá ömmu. Afi kenndi
mér öll spilin sem hann kunni og
einnig að leggja kapal. Afi var
ekki hrifinn af því þegar ég var
að reyna að svindla.
Hún passaði svo mikið upp á
mig, kallaði mig lillann. Þegar ég
fékk snert af heilahimnubólgu sá
hún alltaf til þess að ég væri með
húfuna mína. Hún kallaði á eftir
mér þegar ég fór út að leika:
„Siggi, ertu með húfuna?“ Hún
sá alltaf til þess að ég fengi nóg
af borða og á uppvaxtarárum
mínum var ég alltaf svangur.
Þegar ég kom inn þambaði ég 2
lítra af mjólk og fékk mér stóra
skyrdós. Alltaf sá hún til þess að
það væri nóg handa mér í ís-
skápnum og ég hlakkaði alltaf til
þegar hún kom heim úr búðinni
og hjálpaði henni að bera pokana
úr bílnum og inn í eldhús og beið
spenntur eftir því sem upp úr
pokunum kom.
Hún var mjög félagslynd og
undi sér með fólki. Hafði hún
mjög gaman af klassískri tónlist
og fór ég með henni á ófáa sin-
fóníutónleika hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands.
Elsku mamma, ég kveð þig í
miklum söknuði og trega. Þú
varst stoð mín og stytta og leyfð-
ir mér alltaf að njóta mín og
stóðst með mér þegar á reyndi
og leiddir mig á rétta braut aft-
ur. Hvíldu nú í friði hjá ömmu,
afa, Hönnu og Einari.
Meira: mbl.is/andlat
Sigurður Bjarnason.
Elsku Maddí hefur nú kvatt
þennan heim og við fjölskyldan
kveðjum hana með söknuð í
hjarta.
Maddí opnaði faðm sinn fyrir
mér þegar ég kom fyrst inn í líf
Sigga, yngsta sonar hennar fyrir
27 árum. Eins og hennar var lag-
ið. Alltaf hlý. Alltaf brosandi,
gefandi, einlæg, áhugasöm og
ástrík. Hún hafði frá mörgu að
segja og það var alltaf gaman að
spjalla við hana um lífið, til-
veruna, bækur, tónlist, ferðalög,
æskuslóðirnar, fjölskylduna og
síðast en ekki síst barnabörnin
sem hún sá ekki sólina fyrir.
Hún var ekki bara amma barna-
barna sinna. Hún var trúnaðar-
vinur þeirra. Alltaf var gott að
koma til ömmu og spjalla. Hún
hlustaði, sýndi skilning og
dæmdi aldrei. Faðmur hennar
var alltaf opinn og hún var alltaf
til staðar. Hún leiðbeindi af sinni
einstöku visku og hlýju. Gaf góð
ráð. Og hlustaði.
Maddí var einstök á svo marg-
an hátt og frábær fyrirmynd.
Hennar verður sárt saknað.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Hvíl í friði.
Dröfn Guðmundsdóttir.
Gott er ein með guði að vaka,
gráta hljótt og minnast þín,
þegar annar ylur dvín,
seiða liðið líf til baka,
og láta huggast, systir mín!
Við skulum leiðast eilífð alla,
- aldrei sigur lífsins dvín.
(Jóhannes úr Kötlum)
Margar eru minningarnar
tengdar henni Maddí systur
minni, en það var hún Magnea
Kolbrún alltaf kölluð af okkur
systkinunum og öllu frændfólki
okkar. Hún var snemma mjög
dugleg stelpa, fljót að læra vísur
og hafði gaman af að syngja og
hlusta á sönglög í útvarpinu.
Hún var snemma læs, fylgdist
vel með okkur Hönnu, sem vor-
um eldri systurnar, þegar við
vorum að lesa heimalesturinn
fyrir mömmu og enginn vissi
hvernig hún varð svona snemma
læs.
Við Maddí áttum margt sam-
eiginlegt. Við fórum snemma
austur á Hornafjörð til sumar-
dvalar. Hún tók við af mér að
vera hjá Sigjóni bróður pabba,
fyrst á Móa og síðan í Bjarna-
nesi. Hún tók líka við af mér að
vinna hjá Sambandinu á sínum
tíma.
Ung kynntist hún honum
Bjarna sínum og var þeirra brúð-
kaupsveisla haldin heima hjá
okkur Hilmari árið 1961. Þannig
er það í stórum systkinahópi að
fjölskyldan hjálpast að eða þann-
ig hefur það verið hjá okkur.
Hanna og Maddí hjálpuðu okkur
á sínum tíma í okkar veislum svo
sem við fermingar og ef á þurfti
að halda. Við Maddí vorum báðar
bókaormar frá því við vorum litl-
ar og síðustu árin fórum við sam-
an í leshring Bókasafns Garða-
bæjar og höfðum báðar mikla
ánægju af bæði lestri góðra bóka
og félagsskapnum þar. Við áttum
einnig sameiginlegt að bæta við
okkur námi fram eftir aldri og
taka háskólapróf eftir fimmtugt.
Síðustu árin voru Maddí erfið
vegna mikilla veikinda en alltaf
hafði hún jákvæðnina með sér og
góða minnið og lagði mikið á sig
til að komast á góða tónleika,
horfa á góð leikrit, að ég ekki tali
um að mæta á sem flesta fjöl-
skylduviðburði. Lífsviljinn og já-
kvæðnin skipta örugglega miklu
máli í lífinu.
Við fjölskyldan okkar Hilmars
sendum ykkur, elsku Bjarni,
Guðrún, Pétur og Siggi, ásamt
öllu ykkar fólki, innilegustu sam-
úðarkveðjur vegna fráfalls henn-
ar Maddíar okkar allra.
Blessuð sé minning þín elsku
Maddí.
Þórdís Katla
Sigurðardóttir.
Magnea Kolbrún
Sigurðardóttir
Fleiri minningargreinar
um Magneu Kolbrúnu Sigurð-
ardóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir
og afi,
BJÖRN KRISTJÁN HAFBERG
frá Flateyri,
Boðagranda 7, Reykjavík,
sem lést laugardaginn 18. júlí, verður
jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn
5. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Kristbjörg Sunna Hafberg Gunnar Geirsson
Arnheiður Gróa Björnsdóttir Hafberg
Friðrik E. Hafberg Halldóra Helgadóttir
Ægir E. Hafberg Margrét Thorarensen
Sesselja Hafberg Theódór Vilbergsson
Sigurður Jóhann Hafberg Þorbjörg Sigþórsdóttir
Ágústa Margrét Hafberg
afastelpurnar Ísabella Hafdís og Ingibjörg Þórdís
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR JÖRUNDSDÓTTUR
frá Hrísey,
sem lést á Hrafnistu miðvikudaginn 24. júní.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu fyrir einstaka
hlýju og frábæra umönnun.
María Aldís Kristinsdóttir Haraldur G. Blöndal
Friðgeir Sv. Kristinsson Aðalheiður S. Jörgensen
Jörundur Kristinsson Hafdís Þorsteinsdóttir
Jóhannes Kári Kristinsson Ragný Þóra Guðjohnsen
barnabörn og barnabarnabörn
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
SVEINS ÓLA JÓNSSONAR
hljóðfæraleikara.
Sérstakar þakkir færum við yndislegu
starfsfólki líknardeildarinnar í Kópavogi sem annaðist hann
af einstakri umhyggju og hlýju.
Anna Lilja Kvaran
Anna Katrín Sveinsdóttir Guðni Jónsson
Sveinn Óli, Kolbrún Elsa, Jón Atli og Hafdís Rún
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MAGDALENA ERLA JAKOBSDÓTTIR
frá Síðu,
lést mánudaginn 27. júlí. Útför fer fram frá
Blönduóskirkju laugardaginn 1. ágúst
klukkan 14.
Jakob Svavarsson Hrefna Kristófersdóttir
Sigurður Svavarsson Ásta Andrésdóttir
Einar Svavarsson Sigríður Hermannsdóttir
Baldur Svavarsson
Elinborg Svavarsdóttir Ingimar Ástvaldsson
Björn Magni Svavarsson Þórunn Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir,
tengdafaðir, tengdasonur og afi,
STEINÞÓR BJÖRGVINSSON
rafeindavirkjameistari,
Miðvangi 100, Hafnarfirði,
lést föstudaginn 24. júlí á heimili sínu.
Útför hans fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 5. ágúst
klukkan 13.
Þökkum hlýhug og samúð.
Bryndís Gestsdóttir
Gestur Steinþórsson Rósa Stefánsdóttir
Lea Steinþórsdóttir Gunnar Már Steinarsson
Björgvin Steinþórsson Þórunn Björk Jónsdóttir
Lea Þórarinsdóttir Gestur Óli Guðmundsson
og barnabörn