Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma533 1320
Við tökum vel á móti ykkur í Vegmúla 2
Húðgreining er meðferð sem gefur þér
góða sýn á raunverulegt ástand húðar
Hreyfimynd af öldrunarferli húðar næstu árin
Húðgreining
Sonja Sif Þórólfsdóttir
sonja@mbl.is
Fríða Bjarnadóttir, skurðhjúkr-
unarfræðingur og Hringskona,
hljóp fyrst íslenskra kvenna
maraþon á Íslandi árið 1984.
Upphaflega ætlaði Fríða að
hlaupa í maraþoninu árinu áður
en fékk þá ekki að hlaupa.
„Konur máttu ekki hlaupa
maraþon. Þetta þótti ekki kven-
legt sport á Íslandi en þá var ég
búin að hlaupa að minnsta kosti
tvö maraþon í Bandaríkjunum,“
segir Fríða.
Byrjaði að hlaupa
í Bandaríkjunum
Fríða er gift Tómasi Zoëga
geðlækni og eiga þau saman
þrjár dætur og einn son. Árið
1976 héldu Fríða og Tómas til
náms í Bandaríkjunum. Á náms-
árum hellti Fríða sér í hlaupin,
en þau voru bæði góð æfing og
ódýr leið til heilsuræktar.
„Þetta er ódýrt sport, maður
þarf bara að kaupa sér góða skó.
Reyndar hljóp ég á tennisskóm í
tvö ár, sem ég held að hafi bara
verið gott fyrir mig,“ segir Fríða
og bætir við að hún hafi aldrei
átt neitt hlaupaúr og fundist það
bara truflun.
Á árunum í Bandaríkjunum
hljóp hún hartnær á hverjum
degi og tók þátt í skipulögðum
keppnum flestar helgar. Fyrstu
árin í Bandaríkjunum fór Fríða
styttri vegalengdir, 5 og 10 kíló-
metra. Síðan fór hún að hlaupa
lengri vegalengdir og tók þátt
sem fyrr segir í tveimur mara-
þonum og nokkrum hálf-
maraþonum áður en hún hljóp í
maraþoninu hér heima.
Hljóp í gegnum
heila meðgöngu
„Ég hljóp líka í gegnum eina
meðgöngu úti í Bandaríkjunum.
Ég hljóp eiginlega alla níu mán-
uðina nema að ég hvíldi mig að-
eins á sjötta mánuði,“ segir
Fríða. Hún segir að hún hefði
ekki hlaupið alla meðgönguna
nema fyrir það að hún hafði
heyrt frá nokkrum konum sem
höfðu gert það áður.
Þegar Fríða og Tómas fluttu
heim til Íslands frá Bandaríkj-
unum hélt Fríða hlaupunum
áfram þó að hún hafi unnið krefj-
andi vaktavinnu sem skurðhjúkr-
unarfræðingur
„Hlaupin eru andleg hvíld og
styrkur fyrir líkamann,“ segir
Fríða. Hlaupin voru hvíld frá
amstri dagsins og þó að hún hafi
oft komið líkamlega þreytt heim
eftir langan vinnudag dreif hún
sig út að hlaupa 10 kílómetra og
kom endurnærð til baka.
Fríða hefur hlaupið þó nokkur
maraþon í gegnum árin, það
fyrsta í Boston árið 1981 og það
síðasta í París árið 1994. Hlaupa-
skórnir fóru ekki á hilluna þó að
hún hlypi ekki lengur 42,2 kíló-
metrana. Hún hljóp eftir það 10
kílómetra fimm sinnum í viku og
tók tvo frídaga. Enda segir Fríða
að hlaup séu lífsstíll.
Þó að Fríða hafi lagt hlaupa-
skóna á hilluna fyrir 10 árum, þá
64 ára, hefur hún ekki sagt skilið
við hlaupin. Hún tekur þátt í
fjáröflun Hringskvenna á ári
hverju og stendur við hlaupa-
brautina í Reykjavíkurmaraþon-
inu og hvetur hlauparana áfram.
„Ég var búin að vinna við
barnaskurðlækningar og kynnst
mikið veikum börnum og taldi
það gott og gefandi að verða
Hringskona. Þegar ég hætti á
skurðstofunni byrjaði ég í
Hringnum og hef haft gífurlega
mikla ánægju af því,“ segir
Fríða.
Hreyfing og heilbrigður lífsstíll
er enn hluti af lífsstíl Fríðu, sem
byrjaði að stunda golf þegar hún
lagði hlaupaskóna á hilluna. „Ég
er mjög stolt af því að ég hef
kennt flestum barnabörnunum
mínum bæði á skíði og golf,“ seg-
ir Fríða, sem á níu barnabörn.
Auk þess sem hún stundar golf
syndir hún á hverjum morgni og
fer í leikfimi þrisvar sinnum í
viku.
„Konur máttu bara ekki hlaupa“
Hringskonan Fríða Bjarnadóttir hljóp fyrst íslenskra
kvenna maraþon á Íslandi. Hún þurfti að berjast
fyrir því að fá að hlaupa, en árið 1983 þóttu mara-
þonhlaup ekki fyrir konur.
Morgunblaðið/Árni SæbergLjósmynd/Aðsend
Hjón á hlaupum Fríða er gift
Tómasi Zoëga geðlækni og hljóp
hann stundum með henni.
Hringskona Fríða Bjarnadótt-
ir barðist fyrir því að fá að
hlaupa í maraþoninu 1984.