Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
✝ Sigþór Sigurðs-son fæddist í
Reykjavík 15. mars
1949. Hann lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 20. júlí
2020.
Foreldrar hans
voru Sveinn Sig-
urður Hansson, f.
28. apríl 1910, d. 4.
sept. 1951, Sigríður
Þorbjörnsdóttir, f.
6. jan. 1916, d. 8. júlí 1980.
Systkini: Þorbjörn, f. 29. ágúst
1938, d. 10. febrúar 1984, Gunnar,
f. 19. apríl 1943, og Sigríður Re-
bekka, f. 19. mars 1951.
Eiginkona Sigþórs er Ingigerð-
ur, f. 21. apríl 1973, eiginmaður
hennar er Hilmar K. Lyngmo, f. 7.
maí 1963, og börn þeirra eru Sig-
þór, f. 3 júní 1998, og Eva Björg, f.
2. október 2000. Langafabörn
Sigþórs og Ingigerðar Önnu eru
orðin fimm talsins.
Sigþór ólst upp í vesturbæ
Reykjavíkur, hann fór ungur að
árum til sjós, fluttist vestur á Ísa-
fjörð í september 1969 með eig-
inkonu sinni Ingigerði Önnu.
Hann stundaði sjómennsku þar til
þau fluttust aftur suður til
Reykjavíkur árið 1997. Þar hóf
hann störf á netaverkstæði
Hampiðjunnar, tók próf í neta-
gerð og starfaði sem verkstjóri
hjá Hampiðjunni fram til síðasta
dags.
Útförin fer fram frá Digra-
neskirkju í dag, 30. júlí 2020,
klukkan 13.
ur Anna Guðmunds-
dóttir, f. 13. júlí
1949. Börn þeirra
eru 1) Ragnheiður
Guðrún, f. 18. febr-
úar 1969, og börn
hennar eru Leifur
Sigþór, f. 11. febr-
úar 1988, Svan-
fríður Guðrún, f. 2.
febrúar 1994, Sig-
urður Bjarni, f. 23.
október 1996, Þor-
björn Atli, f. 20. október 1997, og
Ingigerður Anna, f. 30. apríl 1999.
2) Bjarki, f. 5. ágúst 1971, kærasta
hans er Björk Valdimarsdóttir, f.
25. nóvember 1968, og dóttir hans
er Ásdís, f. 20. júlí 1993. 3) Sigríð-
Elsku hjartans pabbi minn.
Það er svo sárt að hafa þig ekki
hjá okkur að glettast og knúsast.
Ég veit þó að þú ert hjá okkur og
verndar. Sérstaklega ástina í lífi
þínu hana mömmu mína.
Endalausar minningar vakna.
Alltaf fannst mér spennandi
þegar þú varst að koma í land á
skipinu „þínu“ Guðbjarti ÍS-16.
Við sátum í bílnum og fylgdumst
með. Alltaf gafstu þér tíma til að
veifa okkur þótt það væri í nógu að
snúast á meðan skipið lagðist að
höfninni og var bundið. Spennan
þegar þú labbaðir niður landgang-
inn og komst að faðma okkur.
Glettnin, stríðnin, hlýjan,
traustið, ástin er það sem ég á eftir
að muna alla ævi.
Börnin mín minnast göngu-
túranna með þér, leikjanna, róló-
ferðanna, sjóferðanna á sjómanna-
daginn og svo margs fleira sem
lifir með þeim.
Barnabörnin og barnabarna-
börnin voru þér svo kær og gleymi
ég aldrei stoltinu í svip þínum og
augum þegar þú varst nálægt
þeim.
Ég gæti endalaust skrifað
minningar um þig en ég geymi
þær með mér og deili með mínum
nánustu.
Þín verður sárt saknað en með
endalausri ást og hlýju.
Þín
Ragnheiður (Ragna).
Í gegnum lífsins æðar allar
fer ástargeisli, Drottinn, þinn,
í myrkrin út þín elska kallar,
og allur leiftrar geimurinn,
og máttug breytast myrkraból
í morgunstjörnur, tungl og sól.
(Matthías Jochumsson)
Elsku pabbi, það er með mikl-
um söknuði sem ég skrifa þessi
orð. Pabbi og mamma kynnast í
Reykjavík 1968 og hafa verið mjög
samrýnd alla tíð. Pabbi var klett-
urinn okkar, ljúfur og góður, vildi
allt fyrir alla gera, barngóður og
naut þess að vera með barnabörn-
um sínum, hann var stríðinn þessi
elska en bara á góðan hátt. Pabbi
var sjómaður þegar þau bjuggu
vestur á Ísafirði, hann var mikið á
sjó, en alltaf þegar hann kom í land
vorum við systkinin mjög glöð og
spennt að geta átt tíma með hon-
um. Það var alltaf mikil spenna
fyrir sjómannadeginum, þegar
pabbi kom í land, þá var mamma
búin að klæða okkur systkinin í
okkar fínustu föt og fórum við með
pabba í sjómannadagssiglinguna,
auðvitað á besta skipinu að okkur
fannst, skipinu hans pabba, Guð-
bjarti ÍS 16. Það var alltaf mikið
um að vera á sjómannadeginum á
þessum árum og áttum við alltaf
virkilega skemmtilegar stundir
með pabba. Pabbi og mamma urðu
alsæl þegar ég kynnist eiginmanni
mínum en pabbi og Hilmar höfðu
starfað saman í rúm 10 ár á Guð-
bjarti ÍS 16. Við Hilmar giftum
okkur í maí 1997 og eftir brúð-
kaupið sagði pabbi við mig „nú get
ég verið rólegur, litla barnið er
komið í öruggar hendur“. Pabbi og
mamma flytja til Reykjavíkur í
ágúst 1997, eftir það urðu suður-
ferðirnar fjölmargar, alltaf var
tekið vel á móti okkur og gott að
vera hjá pabba og mömmu. Árið
1998 eignuðumst við Sigþór og
Evu Björgu árið 2000, pabbi hafði
mjög gaman af því að sprella með
þeim og lagðist alltaf á gólfið til að
leika við þau, fór með þeim út í
göngutúra, á róló, í Húsdýragarð-
inn, ófáar voru sundferðirnar og
svo margt fleira. Við fjölskyldan
erum svo heppin að hafa farið í
margar útilegur, í sumarbústað og
einnig utan með pabba og mömmu
og eigum við margar ljúfar og góð-
ar minningar sem við getum ornað
okkur við.
Pabba/afa er svo sárt saknað.
Minning þín lifir, elsku pabbi
minn
Þín dóttir,
Sigríður (Sigga).
Ég kynntist Sigþóri þegar ég
byrjaði á Guðbjarti ÍS 16, í júlí
1985. Í gegnum árin mynduðust
vinatengsl milli mín og þeirra Sig-
þórs og Gerðar. Ýmislegt var
brallað með áhöfninni og mökum,
enda áhöfnin samhent í vinnu og
leik.
Þegar við Sigga byrjuðum sam-
an 1995 var mér vel tekið í fjöl-
skylduna og kom fyrir að sagt væri
að ég hefði valið tengdaforeldrana
fyrst.
Margar voru samverustundirn-
ar gengnum árin, jól og páska
komu þau yfirleitt vestur til okkar,
margar ferðir í bústaði og útilegur,
man eftir einni útilegunni þar sem
við eltum Sigþór frá Skagaströnd
til Egilsstaða af því þar átti sólin að
vera daginn eftir. Það átti ekki að
missa af henni. Enda elskaði hann
sólina.
Ekki byrjaði ég að drekka bjór
fyrr en ég var skilinn eftir á hand-
klæðavakt á ströndinni á Almeria
2011 og Sigþóri þótti ómögulegt að
skilja mig eftir með ekkert að
drekka.
Alltaf var gott að leita til hans
og vildi hann allt fyrir mann gera,
ekki var tekið í mál að maður gisti
annars staðar en hjá þeim þegar
við áttum erindi suður, fylgdi því
að spila lágmark eitt spil á kvöldi.
Mikill vinur afabarnanna og lék
sér við þau þegar þau voru lítil, fór
með þau út á leikvöll og í sund. Átti
það til að vera stríðinn.
Þegar hann hætti til sjós og þau
Gerður fluttu suður 1997 fór hann
að vinna hjá Hampiðjunni, var
fljótlega orðinn verkstjóri á neta-
verkstæðinu, einn gamall togara-
jaxl sagði við mig þegar ég kíkti í
kaffi til þeirra að Sigþór hefði verið
ráðinn til að kreista síðustu blóð-
dropana úr þeim og glotti svo.
Hann aflaði sér réttinda sem neta-
gerðarmaður eftir að hann flutti
suður.
Vann þar alla tíð síðan, Sigþór
afastrákurinn hans, sem vann með
skólanum í Hampiðjunni, sagðist
skilja það að afi hans vildi ekki
hætta að vinna þegar hann varð sjö-
tugur, það væri svo góður mórall og
afi hans „hefði svo gaman af að
stríða köllunum í vinnunni“.
Hann ætlaði að hætta að vinna
24. júlí og hafa það gott með Gerði
sinni, en að morgni 15. júlí líður
honum illa og fer á bráðamóttökuna
á Landspítalanum, var þá kominn
með blóðtappa í lunga og lungna-
bólgu.
Það er með miklum söknuði sem
Sigþór er kvaddur í dag.
Þinn tengdasonur,
Hilmar.
Góður vinur minn Sigþór Sig-
urðsson er fallinn frá, eftir skyndi-
leg veikindi, hjartað gaf sig.
Hann var aðeins 70 ára gamall
og ætlaði að hætta að vinna 24. júlí,
en hann var netagerðarmeistari hjá
Hampiðjunni.
Sigþór var rúmlega meðalmaður
á hæð, herðabreiður, breiðleitur,
bar höfuðið hátt, brosmildur,
lausnamiðaður og velviljaður öllum.
Mikill harmdauði fjölskyldu og
vinum, en hann var kletturinn sem
menn treystu.
Sigþór fór ungur á sjóinn, sigldi
fyrst í fáein ár á farskipum um öll
heimsins höf, en hitti svo ástina sína
á Ísafirði hana Ingigerði Guð-
mundsdóttur. Á Ísafirði festi hann
rætur, fékk vinnu sem bátsmaður á
togaranum Guðbjarti ÍS 16, varð
stjórnarmaður í sjómannafélaginu
og gekk í Oddfellowstúkuna Gest.
Vestfjarðamiðin voru gjöful af
fiski, en þau voru einnig hættuleg,
ísing, mikill veðurofsi, kraftmiklar
togvélar og ungir óreyndir hásetar
eða vélstjórar, sem gæta þurfti að
færu sér ekki að voða. Menn gættu
vel að öryggismálum á Guðbjarti ÍS
16. Einu sinni buðu skipverjar vel-
komna um borð vélstjóra, unga
konu, sem var svikin um vinnu á
öðrum togara frá Ísafirði, hún fór
svo í verkfræði og varð þekkt í öðru
starfi, þar sem hún gætti einnig vel
að öryggismálum. Sigþór sagði mér
að hún hefði saumað brúðarkjólinn
um borð og skipverjar dáðst að
handbragðinu við saumaskapinn,
ásamt því að vera ánægðir með vél-
stjórakunnáttu hennar. Sigþór
sagði mér líka frá því að öll áhöfnin
hefði sent skeyti til frú Vigdísar
Finnbogadóttur, þar sem þeir skor-
uðu á hana að bjóða sig fram til for-
seta. Sjómenn vissu að treysta
mátti konum til allra verka.
Það voru mikil og gefandi sam-
skipti sem ég og kona mín Katý,
systir Gerðar, áttum við Gerði og
Sigþór. Við gistum oft hjá þeim á
Ísafirði með börnum, fórum á skíði,
golf, tefldum og spiluðum ótal cön-
ustur. Þau gistu svo hjá okkur í
Reykjavík. Fórum einnig í utan-
landsferðir saman.
Fyrir rúmum 20 árum fluttu
Gerður og Sigþór svo til Reykjavík-
ur, Sigþór flutti sig yfir í Oddfellow-
stúkuna Gissur hvíta. Hann bauð
mér að koma þangað með sér, sem
ég og gerði og hafði gott af. Ég er
mjög þakklátur fyrir öll þessi góðu
samskipti.
Sendi Ingigerði og fjölskyldu
innilegustu samúðarkveðjur vegna
fráfalls Sigþórs, en minningarnar
lifa.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum)
Hans Óskar Isebarn.
Sigþór Sigurðsson
Fleiri minningargreinar
um Sigþór Sigurðsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Harpa Heimisdóttir
s. 842 0204
Brynja Gunnarsdóttir
s. 821 2045
Kirkjulundur 19 | 210 Garðabær
s. 842 0204 | www.harpautfor.is
Okkar elskaði eiginmaður, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR PÁLMAR ÖGMUNDSSON
rafeindavirki,
Brekkugötu 7, Hafnarfirði,
lést á líknardeildinni í Kópavogi mánu-
daginn 13. júlí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þeim sem vilja minnast Pálmars er bent á Umhyggju - félag
langveikra barna eða önnur líknarfélög.
Þórunn Blöndal
Bryndís Pálmarsdóttir Hannu von Hertzen
Hjördís Pálmarsdóttir Guðlaugur Hjaltason
Halldóra Pálmarsdóttir Jón Júlíus Tómasson
Grímur Jóhannsson Justine Piret
Egill Øydvin Hjördísarson Íris Ösp Traustadóttir
Þórunn Hjördísardóttir
Álfheiður Dís Stefánsdóttir
Pálmar Stefánsson
Hildur Rut Egilsdóttir
Snædís Grímsdóttir Piret
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og systir,
ERNA EINARSDÓTTIR VARTIA,
Helsinki,
lést mánudaginn 20. júlí.
Útför auglýst síðar.
Antero Vartia
Lisa-Lotta Vartia
Elinora Vartia Cheyne Fowler
Aron Arvo Fowler
Elísabet, Róbert, Edda og Pétur
Ástkær faðir okkar, afi og langafi,
SIGURÐUR JÖRUNDUR SIGURÐSSON,
þjónn og strætisvagnabílstjóri,
lést að morgni fimmtudagsins 23. júlí.
Útför hans fer fram frá Seljakirkju
miðvikudaginn 5. ágúst klukkan 13.
Börn, barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir
og afi,
ÞORBERGUR ÞORSTEINN REYNISSON,
Gauksrima 9, Selfossi,
andaðist aðfaranótt 22. júlí.
Útför hans fer fram frá Selfosskirkju
þriðjudaginn 4. ágúst klukkan 14.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á björgunarsveitirnar.
Gunnhildur Haraldsdóttir
Haraldur Þór Þorbergsson
Hafdís Unnur Daníelsdóttir Björn Þór Jóhannsson
Gunnhildur Karen, Elísabet Arney, Ísold Klara
Okkar dásamlegi
ÚLFAR DANÍELSSON
kennari og víkingur,
Skógarhlíð 7, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 23. júlí.
Útför hans fer fram frá Víðistaðakirkju
fimmtudaginn 6. ágúst klukkan 11.
Adda María Jóhannsdóttir
Hildur Jónsdóttir Silja Úlfarsdóttir
Sara Úlfarsdóttir Sindri Dan Vignisson
Melkorka Rán Hafliðadóttir Snævar Dan Vignisson
Kormákur Ari Hafliðason Þorkell Magnússon
og aðrir aðstandendur
Ástkær bróðir okkar,
EINAR FRIÐRIKSSON
húsasmiður,
Krummahólum 6,
lést á Landspítalanum þriðjudaginn 21. júlí
eftir skamma legu.
Páll Friðriksson
Ólafur Þór Friðriksson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
GUÐMUNDUR MARÍASSON
Faxabraut 13, Keflavík,
lést á Hrafnistu Hlévangi laugardaginn
25. júlí. Útförin mun fara fram í kyrrþey að
ósk hins látna.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hlévangs fyrir einstaka umönnun
og hlýtt viðmót.
Anna M. Guðmundsdóttir Brynjar Sigtryggsson
Ingigerður Guðmundsdóttir Gissur Bachmann Bjarnason
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn