Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 30.07.2020, Qupperneq 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 ✝ Gunnar Sig-urðsson fæddist í Reykjavík 3. maí 1946. Hann lést í Danmörku 21. júní 2020. Faðir hans var Sigurður M. Þor- steinsson, f. 25.2. 1913, d. 3.1. 1996. Móðir hans var Guðrún Ásta Jóns- dóttir, f. 11.7. 1916, d. 20.12. 2009. Systkini Gunnars eru Óskar, f. 11.10. 1935, d. 18.11. 2014, m. Brynja Krist- jánsson. Hörður, f. 22.3. 1937, d. 18.5. 2019, m. Svala Birgisdóttir, f.m. Sif Ingólfsdóttir. Marta Guð- rún, f. 18.4. 1948, m. Magnús Sig- steinsson. Jón, f. 18.2. 1952, m. Margrét Einarsdóttir. Bróðir Gunnars samfeðra var Sigurður Runólfur, f. 6.6. 1929, d. 3.10. 2003, m. Guðbjörg Óskarsdóttir. Gunnar kvæntist 6. ágúst 1967 Ellen Maju Tryggvadóttur, f. 2.8. 1948. Þau bjuggu lengst af og stunduðu búskap á Tindstöðum, Kjalarnesi. Þau skildu árið 1994. Börn þeirra eru: 1) Sigurður, f. 29.1. 1968, m. Carmen Isabell Schmidt. Börn þeirra: Ellen Kongelige Veterinær- og Landbohöjskole með áherslu á fóðurfræði og nautgriparækt. Hann starfaði m.a. sem héraðs- ráðunautur hjá Búnaðarsam- bandi Austurlands og var, sam- hliða bústörfum, m.a. deildarstjóri eftirlitsdeildar Rannsóknarstofnunar landbún- aðarins á Keldnaholti og síðar forstöðumaður Aðfangaeftirlits ríkisins til ársins 1997. Gunnar flutti þá til Danmerkur og vann út starfsferilinn sem skoðunar- maður hjá Plantedirektoratet. Í starfi sínu þar aðstoðaði hann m.a. ný Evrópulönd við innleið- ingu Evrópureglna á fagsviðinu. Hann var virkur í félagsstörfum, m.a. sem formaður Félags ís- lenskra náttúrufræðinga árin 1983-85, sat til margra ára í hreppsnefnd, í sóknarnefnd og var meðhjálpari og burðarás í kirkjukór Saurbæjarkirkju. Í Danmörku gekk hann í Frímúr- araregluna og var m.a. virkur í starfi dönsku parkinsonsamtak- anna, um tíma sem formaður Vestur-Sjálandsdeildar. Útförin fór fram frá Tølløse- kirkju 26. júní 2020. Minningarathöfn verður í Laugarneskirkju í dag, 30. júlí 2020, klukkan 11. Jarðsetning verður síðar í garði Saurbæjar- kirkju á Kjalarnesi. Maja, f. 2005, og Gabríel Áki, f. 2009. 2) Tryggvi Þór, f. 20.9. 1972, m. Linda Björk Ómarsdóttir. Börn þeirra: Ingi Már, f. 1997, og Gunnar Már, f. 2004. Dóttir Tryggva er Anna Dóra, f. 1995, m. Viktor Sveinsson. 3) Gígja, f. 26.11. 1973, m. Þorkell Guðjónsson. Börn þeirra: Guðjón, f. 2011, og Sól, f. 2013. 4) Guðlaug Dröfn, f. 14.5. 1979. Börn hennar: Kári Rafn, f. 2010, og Nína, f. 2013. 5) Eymar Birnir, f. 10.9. 1980, m. Dagný Kristín Jakobsdóttir. Sonur þeirra er Jakob Meyvant, f. 2010. Gunnar kvæntist 28. mars 1998 Anne-Marie Sigurðsson, f. 24.3. 1948. Börn hennar eru Jette, Helle og Christian. Gunnar og Anne-Marie bjuggu lengst af í Skellingsted og síðar í Tølløse, Danmörku. Gunnar ólst upp í Laugarnes- hverfinu í Reykjavík. Hann lauk námi í búvísindum frá Landbún- aðarskólanum á Hvanneyri og síðar Licentiat-prófi frá Den Ég sá andlit pabba aldrei án al- skeggs. Hann var músíkalskur, há- vaxinn og sterkur maður, með stórar hendur sem báru vinnu lið- inna ára merki. Höndunum elskaði hann að nudda á kinnar lítilla barna sem emjuðu undan grófleika lófanna, slípandi svolítið eins og sandpappír nr. 80. Pabbi var mjög hrifinn af börnum og var það gagn- kvæmt. Hann átti góð, ísblá augu sem kunnu að brosa af einlægni. Börn löðuðust að honum með kær- leikspússuð andlit sín. Hann hafði andstyggð á tilgerð og yfirlæti og bjó yfir óbeygjan- legri réttlætiskennd sem hann lagði sig fram um að miðla áfram til þeirra sem þáðu tilsögnina. Það er skrýtið að kveðja pabba sinn. Ég ímynda mér marga í þeim sporum sem fullorðið fólk, verða eitt augnablik aftur átta ára og rifja upp hvað eigin hendur voru smáar í samanburði við hendur hans. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að leiða pabba síðasta spölinn, sjá örin á handar- bökunum eftir „andskotans kött- inn“ minn og nöglina á vísifingri hægri handar sem var eilítið skökk eftir slys með sög fyrir einhverjum áratugum. Pabbi var ekki saddur lífdaga en líkaminn var því ekki sammála. Nú er nóttin komin og þú þarft að leggja þig. Allt sem þarf að segja og gera höfum við nægan tíma til að ræða innra með okkur um komandi framtíð. Þegar ég skipti um ljós, gróðurset plöntur og tekst á við áskoranir lífsins munt þú vera þar líka. Augun þín lifa áfram í mér og augu mín munu lifa áfram í börnunum mínum. Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesús mæti. (Höf. ók.) Góða nótt og guð geymi þig, elsku pabbi minn. Við sjáumst seinna. Þín Guðlaug. Gunnar mágur minn kvaddi þennan heim um sumarsólstöður á sjúkrahúsi í Danmörku. Hann greindist með Parkinson-sjúkdóm fyrir nokkrum árum, fékk í vor slæma lungnabólgu og einhverja veiru og var þá lagður inn á sjúkra- hús þaðan sem hann átti ekki aft- urkvæmt. Ég kynntist Gunnari fyrst lítil- lega þegar við um fermingaraldur vorum kúskar á traktorum á sitt hvoru býlinu í Mosfellssveit, hann hjá Lorenz bústjóra á Skálatúni og ég á búi foreldra minna á Blika- stöðum. Svo var það sumarið 1964 að Gunnar var ráðinn kaupamaður á Blikastöðum. Það sumar tókst með okkur góð vinátta sem hélst allar götur síðan. Næstu sumur var svo Jón bróðir hans kúskur á Blikastöðum og þá fór ég að gefa Mörtu systur þeirra auga og í framhaldinu varð hún eiginkona mín og traustur lífsförunautur. Ekki skyggði það á vináttu okkar Gunnars. Við völdum báðir að mennta okkur til starfa í landbún- aði. Gunnar fór að Hvanneyri í bændaskóla og síðan í búvísinda- deildina en ég fór eftir stúdents- próf í bændaskóla í Noregi og svo í landbúnaðarháskólann að Ási með landbúnaðarbyggingar og bú- tækni sem aðalnámsgreinar. Gunnar fór svo síðar í framhalds- nám í fóðurfræði við landbúnað- arháskólann í Kaupmannahöfn og lauk þaðan licensiatprófi. Starfaði hann síðan hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins sem fóðurfræðing- ur og síðar deildarstjóri/fram- kvæmdastjóri aðfangaeftirlitsins. Gunnar og fyrri eiginkona hans, Ellen Maja Tryggvadóttir, keyptu jörðina Tindstaði á Kjalarnesi og byggðu þar myndarlegt íbúðarhús þar sem þau eignuðust og ólu upp fimm mannvænleg börn. Á Tind- stöðum höfðu þau nokkrar kindur og hesta. Auk starfsins á Rala keypti Gunnar vörubíl og tæki til túnþökuskurðar og stundaði tún- þökusölu. Hann var harðduglegur og fylginn sér og vinnudagurinn varð oft langur. Gunnar og Ellen Maja slitu samvistir og þá kvæntist Gunnar danskri konu, henni Anne Marie. Þau bjuggu tvö ár á Íslandi og leigðu þá íbúð af foreldrum mínum á Blikastöðum. Við vorum þá í ná- býli. Eftir það fluttust þau til Dan- merkur, keyptu einbýlishús í sveitaþorpinu Skjellingsted og Gunnar fékk starf hjá danska fóð- ureftirlitinu sem hentaði honum og menntun hans vel. Börn Anne Marie og þeirra fjölskyldur tóku Gunnari afskaplega vel og hann eignaðist þannig tvær fjölskyldur, aðra á Íslandi og hina í Danmörku. Minnisstætt er þegar Gunnar skipulagði sameiginlega fjöl- skylduferð um hálendi Íslands. Í upphafi ferðalagsins komu fjöl- skyldurnar saman hjá okkur Mörtu á Neistastöðum. Farið var á hestbak og haldin mikil og fjörug grillveisla um kvöldið. Síðan fór Gunnar með allan hópinn í rútubíl norður Kjöl og til baka suður Sprengisand með viðkomu á ýms- um stöðum. Gunnar hafði létta lund og var oft hrókur alls fagnaðar í góðra vina hópi. Hann hafði gaman af að syngja og smitandi hlátur hans kom fólki í gott skap. Ég sakna þín mágur, við áttum margar góðar og glaðar stundir saman. Minning- arnar lifa og veita mér gleði. Við Marta vottum Anne Marie, fjöl- skyldu hennar og börnum Gunn- ars og þeirra fjölskyldum okkar dýpstu samúð. Magnús. Íslandsvísur Jóns Trausta; „Ég vil elska mitt land, ég vil auðga mitt land …“ voru sungnar á stórum stundum Bændaskólans á Hvanneyri í tíð Guðmundar Jóns- sonar, þess mikla frömuðar bú- fræðslu og búmenningar í landinu. Hann hvatti nemendur til að „auðga sitt land“ og búa sig undir að verða góðbændur og með hans eigin orðum: „Framámenn, hver í sinni sveit!“ Þannig andi sveif yfir vötnum haustið 1964, þegar við, sjö ungir búfræðingar, hófum saman undir- búning að þriggja ára framhalds- námi við búvísindadeild. Við vorum samstillt og bjartsýn og fundum til mikillar ábyrgðar. Ekkert var til sparað af skólans hálfu, en hæf- ustu sérfræðingar, hvar sem fund- ust, kallaðir til kennslu. Við höfum nú haldið þétt saman í rúma hálfa öld og styrkjum böndin með all- tíðum samfundum. Gunnar Sigurðsson, sem hér er minnst, og nú hefur fyrstur kvatt eftir baráttu við illvígan sjúkdóm, var sá okkar sem helst var litið til, vegna glaðværðar og þess hve fas hans var hispurslaust og opið og viðmótið einlægt og gefandi. Hann var traustur og góður félagi og sannkallaður gleðigjafi og það var bara eins og birti yfir öllu, hvar sem hann kom. Við Gunnar deildum herbergi og störfuðum saman á Hvanneyri milli námsvetra. Við lifðum ótrú- legt sælusumar tvítugir, þegar við fengum nýju traktorana. Gunnar Massey Ferguson, MF 135X með Multi-Power, sem þá var talinn ígildi Rolls Royce, og ég IH B414. Nýir tímar voru þá fram undan í landinu eins og alltaf og við fund- um sterka köllun til að vera með við að „efla þess dáð og styrkja þess hag“. Þá var alltaf sól og gott að vera til! Gunnar var fjölhæfur maður og spannaði vítt svið hæfileika og til- finninga. Hann gat kveðið fast að orði, en undir bjó kvikur og hrif- næmur hugur, og samkennd með fólki. Hin eðlislæga góðvild Gunnars kom skýrt í ljós á námsárunum, þegar dráttarvél nágrannabónda skemmdist allmikið í aurskriðu. Hann gerði sér lítið fyrir og sótti gripinn og notaði frístundir vetr- arins til að koma honum í samt lag. Stoltur afhenti hann bóndanum endurbættan traktorinn um vorið. Innan Öndvegisdeildar, eins og hópurinn okkar hefur verið nefnd- ur, voru góðir söngmenn. Undir styrkri handleiðslu Ólafs Guð- mundssonar, þess hógláta og prúða tónsnillings, stofnuðu þeir Hvanneyrarkvartettinn, og skemmtu með söng við ýmis til- efni, og má nú heyra söng þeirra af og til í Ríkisútvarpinu. Gunnar var tónlistarmaður af Guðs náð. Hann hafði góða bassarödd, og söng ann- an bassa í Hvanneyrarkvartettin- um. Hann spilaði á harmóniku sér og öðrum til gleði og lék einnig á trommur og söng í hljómsveitinni AGRÓ-trío, sem lék fyrir dansi við ýmis tækifæri vítt um Borgarfjörð. Hann var sannkallaður gleðigjafi. Með trega í sinni kveðjum við nú vin okkar Gunnar Sigurðsson, og þökkum fyrir að hafa átt hann að skólabróður og traustum og gefandi ævifélaga. Við vottum ástvinum hans öllum okkar dýpstu samúð. Lokastefið í minningu Gunnars Sigurðssonar er hér að láni frá Þorsteini Valdimarssyni: „Sumir kveðja og síðan ekki söguna meir - aðrir með söng, er aldrei deyr.“ Fyrir hönd Öndvegisdeildar, Valur Steinn Þorvaldsson. Það var haustið 1964 sem fund- um okkar bar fyrst saman. Við vor- um að hefja nám til undirbúnings náms í búvísindadeild Bændaskól- ans á Hvanneyri, en þaðan útskrif- uðumst við saman sem kandídatar í búvísindum B.Sc. vorið 1968. Gunnar Sigurðsson var vörpu- legur ungur maður, opinn og skemmtilegur persónuleiki, gleði- gjafi sem skemmtilegt var að vera með við ýmis tækifæri. Með okkur tókst vinátta sem staðið hefur síð- an, en nú er hann farinn feðra sinna til. Gunnar hafði mikinn áhuga á vélvæðingu landbúnaðarins og kunni vel til þeirra verka, einnig á fóðurfræði, sem reyndist hans að- allífsstarf. Gunnar hafði mörg áhugamál, m.a. í tónlist og söng, en á því sviði hafði hann hæfileika. Hann var tónviss, hafði góða bassarödd, hljómfagra og djúpa, sem féll vel að samsöng. Á því sviði var vinátta okkar sterkust, einkanlega meðan á skólavist okkar stóð, en við vor- um saman í heimavist í nánu sam- býli. Við mynduðum kvartett ásamt skólafélögum okkar þeim Ólafi Vagnssyni frá Hriflu og Jó- hannesi Torfasyni frá Torfalæk. Söngkennari skólans, Ólafur heit- inn Guðmundsson, annaðist undir- leik, hvatti okkur áfram og þjálfaði okkur af sinni alkunnu hógværð og snilld. Við sungum við margvísleg tækifæri á vegum skólans og við aðrar aðstæður. Naut Gunnar sín afar vel á slíkum skemmtunum. Til marks um taugar hans og þakklæti til tónlistarinnar voru hugmyndir hans um einhvers kon- ar gjöf til minningar um Ólaf heit- inn fyrir störf hans að söngkennslu og tónlist. Við ræddum þetta oft og úr varð að ég tók að mér fram- kvæmd á þessari hugmynd Gunn- ars. Málað var olíumálverk af Ólafi heitnum, sem Landbúnaðarhá- skólanum á Hvanneyri var fært að gjöf til minningar um störf Ólafs að söng- og tónlistarmálum. Málverk- ið málaði listakona úr bændastétt, Ellisif Malmo Bjarnadóttir, garð- yrkjubóndi í Laugarási, Biskups- tungum, af nákvæmni og smekk- vísi. Gjöfin er frá samnemendum Gunnars í búvísindadeild og var af- hent Landbúnaðarháskólanum við athöfn 28. september 2018 að við- stöddum stórum hópi fólks, þar á meðal fjölskyldu Ólafs. Talaði Gunnar fyrir afhendingu gjafar- innar. Með þessum orðum kveð ég þig kæri vinur með þökk fyrir okkar góðu kynni og margar skemmti- legar samverustundir. Þú hverfur héðan of fljótt, en far í friði vinur. Jón Hólm Stefánsson. Vinátta okkar skaut rótum fyrir hálfum sjötta áratug, á björtu sumri 1965. Við vorum þá starfs- menn Verkfæranefndar ríkisins á Hvanneyri er var að renna sitt far- sæla skeið, að hverfa inn í stærri stofnun: Rala. Við glímdum á veg- um nefndarinnar við prófanir nýrra búvéla, heyverkunartilraun- ir, vinnurannsóknir og fleira undir stjórn ljúflingsins Ólafs Guð- mundssonar. Gunnar var þar á heimavelli: búfræðingur sem kunni vel til véla og verka, áhuga- samur, dugmikill, fölskvalaus í öll- um gerðum og kryddaði marga stundina með kímni, sem ekki þurfti alltaf ofurskammt til þess að vekja. Hana kunnum við vel að meta. Þá um vorið fékk Gunnar í hendur nýja og afar vel búna MF- dráttarvél verkfæranefndar, sem hann vann með sumarlangt. Um haustið, þegar Gunnar lauk störf- um og hóf nám við framhaldsdeild Bændaskólans, leit dráttarvélin eiginlega betur út en nýkeypt. Þá um veturnætur datt okkur þremur félögum í hug að stofna hljómsveit okkur til sálubótar og skemmtunar. Gunnar settist þar við trommur eftir að hafa í jóla- leyfi sínu sótt örnámskeið í trommuleik hjá kunnáttumanni í Reykjavík. Hljómsveitin, sem nefnd var AGRO-tríó, herjaði einkum á spilakvöldum og öðrum Borgarfjarðarsamkomum sunnan Hvítár við bærilegar vinsældir, að við sjálfir töldum, einkum þó með- al rosknara kvenfólks er samkom- urnar sótti. Gleðigjafinn var Gunnar sem jafnan lék á als oddi og söng hástöfum bak fábrotnu og lúnu trommusettinu, en það hafði bandið fengið að láni vestan úr Dölum. Gunnar varð líka óum- deildur kynningarstjóri og PR- maður sveitarinnar því að hann átti einkar auðvelt með að kynnast fólki og að spjalla við alla, háa og lága. En þótt við þremenningarnir teldum að dansmúsíkbraut frægð- ar og frama biði okkar hindrana- lítil greindust leiðir. Alvarlegri ævistörf tóku við. Alltaf vissi þó hver af hinum. Sannarlega höfð- um við rætt upprifjunartónleika að hætti nútímans og hinna fræg- ari tónlistarmanna. Þær hug- myndir lentu hins vegar í útideyfu og bíða nú endurfunda í sumar- landinu Laugardagskvöldið fyrir síð- ustu páska áttum við Gunnar langt símtal. Þótt óvelkominn og illur gestur hefði þá fyrir nokkru sest upp hjá honum, gestur sem tafði honum mál og gerðir, var glaðværðin enn á sínum stað þeg- ar við minntumst löngu horfinna samverustunda. Meinvaldurinn hafði ekki megnað að brjóta hana niður. Gunnar hafði raunar varist honum með aðdáunarverðum hætti. Við áttum því von á að stundirnar yrðu fleiri. En hún brást. Á kveðjustund vitja okkar minningar sem vekja gleði, minn- ingar um góðan félaga sem gerði daga okkar bjartari og skemmti- legri. Þær minningar þökkum við hjónin af alhug og sendum fjöl- skyldu Gunnars Sigurðssonar innilegar samúðarkveðjur. Bless- uð sé minning hans. Bjarni Guðmundsson. „Det er Gúnnar,“ hljómaði ávallt með tilþrifum þegar hringt var til Gunnars eftir að hann flutt- ist búferlum til Danmerkur. Smám saman hóf kveðjan sig til flugs með gríntengdu ívafi innan fjölskyld- unnar og varð loks að vinalegu vörumerki þessa góða manns sem nú er genginn á vit feðra sinna. Búvísindamaðurinn Gunnar Sigurðsson gerði víðreist sökum verkefna sinna og sama á við um þá stóru fjölskyldu sem Gunnar lagði grunn að. Enda þótt börn hans hafi numið, starfað og fest rætur víða um heiminn veittist honum ávallt létt að fylgjast vel með og rækta af mikilli alúð tengsl við bæði sína nánustu og einnig fjölmarga vini sína. Á sumum reglum í Íslandsferðum sínum urðu engar undantekningar og voru m.a. foreldrar mínir þeirrar ánægju aðnjótandi að Gunnar bankaði ávallt upp á þegar leið hans lá til landsins. Þær glaðværu stundir yljuðu þeim alla tíð um hjartarætur. Eflaust hefur annáluð ná- kvæmni Gunnars verið honum í blóð borin og einkenndi hún bæði vönduð vísindastörf hans og ár- vekni gagnvart öllu sínu fólki. Ver- aldlegar eignir hans nutu sömu- leiðis góðs af yfirsýn, agaðri notkun og eðlilegu viðhaldi. Þannig fékk t.d. rauði fjölskyldubíllinn, sem Gunnar ók vel yfir 500 þúsund kílómetra og löngu var orðinn bleikur sökum upplitunar, aldrei bensínáfyllingu án þess að sam- viskusamlega væru færðar til bók- ar upplýsingar um dagsetningu, kílómetrastöðu, lítramagn og með- altalseyðslu „á hundraðið“. Gunnar hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum. Hann hafði líka lausnir á takteinum við flest- um vanda og var bæði fús til að tala fyrir þeim og framkvæma sjálfur ef því var að skipta. Minnisstætt er m.a. þegar marraði í hjörum hjá okkur Gígju dóttur hans á Haga- melnum og hurðarskrá stóð að auki á sér. Þar til gerð smurolía lá ekki á lausu en Gunnar bjargaði sér af útsjónarsemi á nokkrum lýs- isdropum sem hann fann í ísskápn- um. Síðar um kvöldið voru þeir reyndar svo lítið bar á þrifnir upp eins og frekast var unnt þar sem lyktin var ekki öllum að skapi. Gunnar lagði sig mikið fram við að rækta og efla fjölskyldutengsl- in. Þannig stóð hann m.a. fyrir fjöl- mennum hópferðum fjölskyldunn- ar annars vegar á Íslandi og hins vegar í Danmörku. Við hossuð- umst meðal annars öll saman í rútu yfir Kjöl og betur verður vart nokkur hópur hristur saman í orðsins fyllstu merkingu. Nú hefur Gunnar knúið dyra í nýjum heimkynnum. Ekki er að efa hvernig hann hefur kynnt sig þar til leiks: „Det er Gúnnar.“ Hvíldu í friði kæri vinur og takk fyrir kynnin. Þorkell Guðjónsson. Gunnar Sigurðsson Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.