Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 47

Morgunblaðið - 30.07.2020, Side 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Nýliðarnir í Þrótti hafa spjarað sig vel í Pepsí Max- deild kvenna í sumar. Í það minnsta er ekki auðvelt að leggja liðið að velli. Þróttur hefur tapað þremur af fyrstu átta leikjunum. Fyrirfram var búist við því að nýliðarnir Þróttur og FH myndu eiga erf- itt sumar í efstu deild. FH- ingar eru í verri málum með einn sigur og sex töp. Ljóst hefur verið undanfarin ár að styrkleikamunurinn á tveimur efstu deildunum er mikill. Eins og gengur. Þrótti gengur hins vegar nokkuð vel í sumar og í fyrra voru nýliðarnir öflugir. Fylkir hefur byggt upp sterkt lið og Keflavík hefði hæglega getað haldið sér uppi en féll. Er þetta í það minnsta vísbending um að sterkustu liðin í b-deildinni geti staðið í liðum í efstu deild. Hjá körlunum var ekki búist við miklu af Gróttu og Fjölni. Grótta hafði farið upp um tvær deildir á jafn mörgum árum og Fjölnismenn eru ekki með stór nöfn í sínum leikmannahópi. Ekki vantaði hrakspárnar varð- andi Gróttu. Liðið átti að vera fallbyssufóður og þar fram eftir götunum. Enn er fyrirkomulag- ið þó þannig hjá KSÍ að spila þarf leikina áður en stórsigrar eru settir inn í úrslitakerfið. Nú getur vel farið svo að þessi lið fari aftur niður en þau eru hins vegar alveg gjaldgeng í efstu deild. Fjölnismenn eru þó án sigurs, sem er að sjálfsögðu slæmt eftir níu leiki. Liðið hef- ur hins vegar náð í stig á úti- velli gegn bæði KR og Víkingi sem er merkilegt. Fékk liðið færin til að vinna KR-inga. „Deildin er jafnari en menn halda,“ benti Fylkismaðurinn Valdimar Þór Ingimundarson á í samtali við Morgunblaðið í vik- unni. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is NBA Gunnar Valgeirsson Los Angeles Keppnin í NBA-boltanum hefst að nýju í kvöld og nótt í „kúlunni“ svo- kölluðu í Walt Disney World Sports Complex í Orlando eftir fjögurra mánaða bið vegna stöðvunarinnar sökum kórónuveirunnar í mars. Þeg- ar NBA tilkynnti endurkomu deild- arkeppninar með 22 liðum í byrjun júní, hrökk undirritaður í gang á þessum síðum til að lofa gott sam- band forseta NBA, Adam Silver, við stéttafélag leikmanna – sérstaklega í samanburði við aðrar atvinnudeildir hér vestra. Þessi góða samvinna aðilanna er nú að skila sér í endurkomu leikjanna á skjánum með leikjum Utah og New Orleans, og síðan innbyrðisleik Los Angeles-liðanna þar á eftir. Vissulega komu upp erfiðar hindranir á vik- unum síðan ákvörðunin var tekin, en aðilum tókst á endanum að vinna bug á þeim og ekkert virðist því til fyrir- stöðu að NBA-eðjótar geti tekið gleði sína að nýju. Liðin munu leika átta deildarleiki á næstu vikum og eftir það verða sex- tán lið eftir til að leika úrslitakeppn- ina sjálfa. Markmiðið er að klára síð- an keppnístímabilið í síðasta lagi 13. október. Deildin réð slatta af sérfræðingum til að hjálpa til við smitforvarnir og öllu því tengdu. Leikmenn fara í gegnum skimun áður og eftir að þeir mæta í kúlun og síðan reglulega eftir það. Slík er skipulagningin að deild- ing setti saman 113 síðna skjal fyrir leikmen og hafa smitsérfræðingar hér vestra ekki séð jafn alhliða skipu- lag fyrir vinnustaði áður. Eitthvað hefur þetta virkað til þessa því enginn leikmaður hefur fengið jákvæða skimun fyrir veirunni sem af er eftir rúmlega 400 skimanir. Ekki slæmt fyrir leikmennina í einangruninni Þessi svokallaða kúla er á 220 ekra svæði með tólf æfingavöllum og þremur keppnisvöllum til leikja svo hægt sé að hafa þrjá leiki í einu í sjón- varpinu. Leikmenn verða einangraðir fyrstu sjö vikurnar þar til önnur um- ferð úrslitakeppninar hefst, en þá verður fjölskyldum leyft að heim- sækja þá. Þá verða aðeins átta lið eft- ir í kúlunni og það er talið gera hætt- una á smiti viðráðanlegri. Leikmenn munu búa á þremur lúx- ushótelum á staðnum, með alls konar hlutum til afþreyingar, auk þess sem leikmenn hafa aðgang að náttúrunni á svæðinu – þeir geta t.d. eytt tíma í að veiða í vötnum á staðnum (Chris Paul var að fá hann um daginn) og leikið golf daglega eins og þeir vilja. Eftir að leikmenn koma úr sóttkví, hafa þeir aðgang að lúxusveitinga- stöðum hótelanna og geta pantað mat frá slatta af öðrum veitingastöðum nálægt. Það ætti því að fara vel um þá. Eftir að liðin fóru smám saman að þyrpast til Disneyheims á undan- förnum vikum var ljóst að einstaka leikmenn myndu þurfa að fara í sóttkví hér og þar, t.d. vegna brota á öryggisreglum. Þar að auki hafa leik- menn þegar yfirgefið kúluna af per- sónulegum ástæðum. Slík mál gætu sett strik í reikninginn á næstu vik- um, en forráðamenn NBA halda samt að ef takist að halda veirunni utan kúlunnar (sem verður ekki auðvelt heimafylki veirunnar hér vestra), ættu slík einangruð tilfelli ekki að hafa meiri háttar áhrif á keppnina. „Ég hef verið í daglegu sambandi við Chris Paul [formann stéttfélags leikmanna], auk hundraða manns sem vinna hjá okkur í NBA. Það hafa allir verið einhuga um að koma NBA- boltanum í gang aftur og ég held að þegar ég kem til Orlando að fylgjast með fyrstu leikjunum verði það hjart- næm reynsla fyrir mig. Okkur hefur hingað til tekist að fá einungis nei- kvæðar skimanir, en við munum ekk- ert gefa eftir í að vera á verði að allir fari eftir settum reglum til að halda þeirri stöðu áfram,“ sagði Silver við ESPN-sjónvarpsstöðina í síðustu viku. „Ég er viss um að gæði leikj- anna verði mikil þar sem leikmenn virðast í toppformi og þeir hafa fengið góða hvíld, bætti hann við. Kúlan er „öðruvísi“ Áhorfendur á leikjunum munu fljótt taka eftir mun á leikjunum í Or- lando í samanburði við leiki með áhorfendum í heimahöllum liðanna, rétt eins og sést hefur á knattspyrnu- leikjum í Evrópu. Það verða stórir myndaskjáir fyrir aftan báðar körfur og á hliðinni gegnt sjónvarpsmynda- vélunum, auk skilta með stuðningi tengdum kynferðisréttlæti hér í landi. Það er einnig stærra svæði út frá hliðar- og endalínum leikvall- arins, sem eykur öryggi leikmanna samanborið við við það svæði sem þeir eru vanir í íþróttahöllum lið- anna. Þessi uppsetning í kúlunni gerir það að verkum að þegar í úrslita- keppnina kemur missa liðin bónusinn við að hafa heimavallayfirburðina – það verða ekki 20.000 öskrandi heimaáhorfendur til að ýta leik- mönnum yfir hjallann í erfiðum leikj- um. „Leikmenn eiga eflaust eftir að sakna orku heimaáhorfenda í leikj- unum nú, en ég held að eftir nokkra leiki muni þeir venjast stöðunni og varamennirnir í áhorfendastúkunni munu þurfa að styðja vel við bakið á samherjum sínum til stuðnings,“ sagði Magic Johnson í viðtali við ESPN í vikunni. Dwane Casey, þjálfari Detroit Pistons, heldur að kúlan eigi eftir að jafna möguleika liða í leikjum. „Leik- menn eru nú í breyttu umhverfi sem mun hafa mismunandi áhrif á hvers- daglegar venjur þeirra og við eigum eftir að sjá hvernig það hefur áhrif á leik þeirra.“ Hvað mun gerast í keppninni sjálfri? Það einkennilega við endurkomu NBA-boltans í kúlunni er að í raun veit enginn neitt hvað varðar spá- dóma um gengi liðanna. Ættingjar mínir á Vestfjörðum sem aldrei hafa séð NBA-leiki gætu sjálfsagt spáð um úrslitin jafnvel og hver annar, vegna þeirrar ankannalegu stöðu sem upp er komin. Þetta er ein stór rann- sóknarstofa þar sem of margir þættir eru ókunnir. Leikmenn eru að koma úr sum- arfríi um mitt sumar og það mun taka lið mismunandi tíma að komast í toppform. Liðin með eldri liðs- mannahóp, eins og Los Angeles Lak- ers, munu hagnast á þessari bið þar sem þau myndu venjulega þurfa að eiga við meiri meiðsl og þreytu eldri leikmanna en nú. Í Austurdeildinni er erfitt að sjá annað lið en Milwaukee Bucks kom- ast í Lokaúrslitin, en Boston Celtics og Toronto Raptors eru talin geta veitt þeim harða keppni. Giannis Antetokounmpo verður enn allt í öllu hjá Bucks og ætti að vinna nafnbótina „mikilvægasti leikmaður deild- arinnar“ (MVP), en möguleiki er á að LeBron James vinni þá nafnbót í staðinn. Það verður gaman að fylgj- ast með hvað Toronto eða Boston gera gegn honum þegar í seinnihluta úrslitakeppninnar kemur. Í Vesturdeildinni eru Los Angeles- liðin talin sigurstranglegust. Lakers voru á toppnum í stöðunni þegar keppni var stöðvuð, en það skiptir nú mun minna máli en þá. Liðið er talið vera með samheldnasta leikmanna- hópinn og það hefur enn sýnt sig eftir að liðin komu til Orlando í æfingaleik- ina. LeBron James hefur lagt mikla áherslu á samheldni leikmannahóps- ins, enda líta allir samherjar upp til hans. Clippers hefur átt í erfiðleikum með meiðsl leikmanna og önnur vandamál tengd faraldrinum. Sú staða mun hins vegar breytast fljót- lega og þegar allir verða til staðar virðist liðið hafa besta leikmannahóp- inn og því sigurstranglegastir að vinna titilinn. Fyrirsögn undirritaðs á þessum síðum 23. október í fyrra þegar keppnistímabilið var að hefjast var: „Já, Clippers gæti unnið,“ þegar ég var að spá í hvaða lið myndi vinna meistaratitilinn í ár. Sú fyrirsögn er enn við hæfi, þótt ekki sé hægt að úti- loka að Lakers hafi það. Þetta virðast mjög jöfn lið. Það verður gaman að fylgjast með gangi mála í kúlunni næstu tíu vikur. gval@mbl.is Kúlan farin að rúlla  NBA-leikirnir hefjast að nýju í kvöld í Disneyheimi  LA-liðin líkleg til afreka AFP Reyndur Mikið mun mæða á LeBron James hjá Los Angeles Lakers. Þýska 2. deildar félagið Hannover hefur lagt fram tilboð upp á 500.000 evrur, um 80 milljónir ís- lenskra króna, í íslenska landsliðs- manninn Guðlaug Victor Pálsson, en Guðlaugur leikur nú með Darm- stadt í sömu deild. Guðlaugur Victor átti afar gott tímabil með Darmstadt á síðustu leiktíð og var valinn besti leik- maður tímabilsins hjá félaginu. Er hann samningsbundinn Darmstadt til ársins 2022. Guðlaugur kom til Darmstadt árið 2018 og hefur leikið 46 leiki með liðinu. Vilja kaupa Guðlaug Victor Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Landsliðsmaður Guðlaugur Victor stendur sig vel í Þýskalandi. Knattspyrnumaðurinn ungi Andri Lucas Guðjohnsen verður frá keppni í langan tíma eftir að hafa slitið krossband í hné á æfingu með unglingaliði Real Madrid. Fótbolti.- net greindi frá. Andri hefur leikið vel með liðinu síðustu mánuði og var hann á lista The Guardian yfir 60 efnilegustu leikmenn heims sem eru fæddir 2002 eða síðar. Andri Lucas hefur leikið með U16, U17, U18 og U19 ára lands- liðum Íslands og skorað tólf mörk í 28 leikjum. sport@mbl.is Leiðinlegar fréttir frá Madríd Ljósmynd/realmadrid.com Skakkaföll Andri Lucas Guðjohnsen verður á sjúkralistanum á næstunni. FIFA, Alþjóðaknattspyrnu- sambandið, mun styrkja aðildar- sambönd sín um 1,5 milljónir doll- ara, um 200 milljónir króna, vegna áhrifa kórónuveirunnar á fjárhag knattspyrnusambanda um heim all- an. FIFA greindi frá þessu í gær og mun KSÍ fá hluta af styrknum í þessum mánuði. Samtals mun FIFA styrkja aðildarsambönd sín um 1,5 milljarða dollara þar sem þriðjungur verður eyrnamerktur knattspyrnu í kvennaflokki. Þá mun FIFA gefa aðildar- samböndum sínum kost á að taka vaxtalaus lán frá sambandinu upp á allt að fimm milljónir dollara. FIFA greinir frá því á vefsíðu sinni að með styrkjunum vilji sam- bandið gera aðildarfélögum sínum kleift að hefja deildarkeppnir í sín- um löndum á ný og ráða starfsfólk til baka sem misst hefur vinnuna á und- anförnum mánuðum. johanningi@mbl.is FIFA dælir fé úr sjóðum sínum AFP FIFA Gianni Infantino, forseti FIFA.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.