Morgunblaðið - 30.07.2020, Page 49

Morgunblaðið - 30.07.2020, Page 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS Sýnd með íslensku tali HEIMSFRUMSÝNING! Magnaður nýr spennuþriller með Russell Crowe in aðalhlutverki. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ein af mörgum forvitnilegum heimildarmyndum sem frumsýndar verða á Skjaldborgarhátíðinni er Hálfur álfur eftir Jón Bjarka Magnússon. Myndin er 64 mínútur að lengd og segir af vitaverðinum Trausta sem er 99 ára og tengist sínum innri álfi á meðan hann und- irbýr hundrað ára afmælið eða eig- in jarðarför. Á sama tíma hörfar Hulda, eiginkona hans, inn í heim horfinna ljóða með aðstoð stækk- unarglersins síns, eins og því er lýst á vef Skjaldborgar og þegar Trausti brestur í söng skipar hún honum að hætta þessum öskrum. Jón Bjarki tók myndina og framleiddi með Hlín Ólafsdóttur sem hann segir hafa verið sér mikla stoð og styttu í gegnum allt framleiðsluferlið en hún á líka heiðurinn að frumsaminni harm- onikkutónlist sem heyrist í mynd- inni. Auk þess útsettu þeir Teitur Magnússon og Sindri Freyr Steinsson tvö lög fyrir myndina. Vildi heita Álfur Blaðamaður hitti Jón Bjarka á sólríkum sumardegi og komst að því að í myndinni er hann að fjalla um ömmu sína og afa sem nú eru látin. Hann er beðinn að útskýra frekar af hverju hann valdi mynd- inni þennan titil. „Inni í ferlinu miðju finn ég þennan titil og eig- inlega þetta þema. Ég lagði ekki upp með að gera einhverja álfa- mynd, per se. Ég er að fjalla þarna um afa minn og ömmu, þau Trausta Breiðfjörð Magnússon og Huldu Jónsdóttur heitin. Þau voru 99 og 96 ára þegar myndatökur hefjast og afi minn verður svolítið uppteknari af álfum og líka því að hann langar að breyta nafninu sínu í Álfur,“ útskýrir Jón Bjarki og segist hafa fengið á tilfinning- una, eftir því sem á leið, að afi hans væri mögulega hálfur álfur. Jón Bjarki hlær innilega að þessu. En hvers vegna hafði afi hans þennan áhuga á álfum? Jón Bjarki segir ömmu hans og afa bæði hafa verið frá Ströndum og afi hans hafi alist upp við þá trú að álfar byggju þar. „Ég upplifði það að þetta væri kannski einhver teng- ing aftur til æskunnar og aftur í þessa veröld og líka þetta, eins og kemur fram í myndinni, að hann dreymdi álf þegar hann var tíu ára sem sagði við hann að hann myndi ekki drukkna á sjó. Hann var því verndaður og vildi sem sagt breyta nafninu sínu. Þetta er svona gegn- umgangandi þema í myndinni og verður kannski líka eins konar metafóra fyrir kveðjuna og ferða- lagið yfir í handanheiminn,“ segir Jón Bjarki. Afmæli og jarðarför Jón Bjarki segir afa sinn hafa verið mjög upptekinn af því að undirbúa jarðarför sína sem og 100 ára afmælið sem hann átti sumarið 2018. Hann hafi verið bú- inn að kaupa líkkistuna, eins og sést í stiklu myndarinnar. „Ömmu þótti þetta nú allt of mikið, að þurfa að stýra öllu út yfir gröf og dauða!“ segir Jón Bjarki og hlær að minningunni. Afi hans féll frá í mars í fyrra, á 101. aldursári og amma hans lést í maí á þessu ári. Afi hans náði því að halda upp á 100 ára afmælið en amma hans varð 99 ára. Jón Bjarki segir að hann hafi verið boðinn velkominn inn á heimili ömmu sinnar og afa með myndavélina og fengið að vera þar fluga á vegg og fylgjast með hjón- unum. Afi hans hafi verið til í athyglina og beinlínis sóst eftir henni öfugt við ömmu hans sem var öllu hlédrægari. „Hennar ele- ment verður svolítið ljóðlistin, hún var að flytja ljóð og annað og hún las alltaf mikið,“ segir Jón Bjarki. Afi hans var vitavörður í Sauða- nesvita við Siglufjörð og þar bjuggu hjónin í 39 ár, til ársins 1998. Jón Bjarki er alinn upp á Siglufirði og segir hann vitann og sveitina hjá ömmu og afa hafa ver- ið honum annað heimili. „Vitinn spilar svolítið hlutverk í myndinni líka og er svona gegnumgangandi merki líka sem kemur inn og út,“ útskýrir hann. Lokaverkefni í meistaranámi Jón Bjarki segir myndina upp- haflega hafa verið lokaverkefni í meistaranámi í sjónrænni mann- fræði við Frei Universität í Berlín sem hann og lauk fyrir tveimur ár- um. Hann hafi svo unnið myndina áfram að loknu námi. Jón Bjarki er spurður út í aðferðina sem hann beitir í mynd- inni og segist hann hafa lagt upp með að vera fluga á vegg, sem fyrr segir, og fylgjast með daglegu lífi afa hans og ömmu. Hann hafi líka tekið fjölda viðtala og bútar úr þeim hafi síðar ratað með einum eða öðrum hætti inn í myndina, sem sé þó langt í frá klassísk við- talsmynd. Þá kemur fyrir að kvik- myndagerðarmaðurinn sjálfur birt- ist áhorfendum sem barnabarnið á bak við myndavélina eða á augna- blikum þar sem þau tengsl opin- beruðust náttúrulega og bættu þannig einhverju við. Það samband er þó engan veginn fókus mynd- arinnar, að sögn leikstjórans. Um Skjaldborgarhátíðina segir Jón Bjarki að hún sé æðisleg og virkilega gaman að sækja hana á Patreksfirði. Bíóið sé líka fallegt og kærkomið að geta frumsýnt í kvikmyndahúsi nú á tímum kófsins þegar flestar kvikmyndahátíðir fara fram á netinu. Frekari upplýsingar um Hálfan álf má finna á skakbiofilm.com og um Skjaldborgarhátíðina á skjald- borg.is. Viðtalið við Jón Bjarka má hlusta á í heild sinni í nýjasta kvikmyndahlaðvarpi mbl.is, BÍÓ, sem finna má á vefslóðinni www.mbl.is/frettir/malefnibio_kvik- myndahladvarp/. Hvíld Trausti hvílir lúin bein með kött sér við hlið í heimildarmyndinni Hálfur álfur sem sýnd verður á Skjaldborg. Ljósmynd/Sjöfn Ólafsdóttir Leikstjóri Jón Bjarki Magnússon. Myndlíking fyrir hinsta ferðalagið  Jón Bjarki Magnússon fjallar um afa sinn og ömmu í Hálfum álfi  Fylgdist með afa sínum und- irbúa hundrað ára afmæli og eigin jarðarför  Afinn til í athyglina en amman öllu hlédrægari

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.