Morgunblaðið - 30.07.2020, Blaðsíða 56
Útsala
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
2. júlí - 10. ágúst
CHRYSTAL. Legubekkur/svefnsófi. Dökkgrátt áklæði.
L200xB100xH77 cm. 129.900 kr.NÚ 77.900 kr. SPARAÐU 52.000 kr.
PAZ. Hægindastóll svart leður og járngrind. 64.900
kr.NÚ 38.940 kr. SPARAÐU 25.960 kr.
LUNA. Sængurver 140x200/60x63 cm. 6.995 kr.
NÚ 5.246 kr. SPARAÐU 1.749 kr.
GOPLE SKEMILL. Blátt áklæði. H38 cm.
39.900 kr. NÚ 15.900 kr. SPARAÐU
24.000 kr.
BAILEY STÓLL. Leðurlíki, eikarfætur.
19.900 kr.NÚ 9.950 kr.
SPARAÐU 9.950 kr.
50%
60%
40%
25%
40%
Markús Þór Andrésson, sýningarstjóri og deildarstjóri
sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur, leiðir
göngu í Viðey í kvöld í tilefni þess að 30 ár eru liðin frá
uppsetningu verksins „Áfangar“ eftir bandaríska lista-
manninn Richard Serra. Siglt verður frá Skarfabakka
kl. 19.15 og er leiðsögnin ókeypis en greiða þarf fyrir
siglingu fram og til baka. Börn sex ára og yngri sigla
frítt. Leiðsögnin fer fram á íslensku og er fjöldi gesta
takmarkaður en til að tryggja sér pláss fer skráning
fram á vefslóðinni elding.is/is/afangar-i-videy.
Kvöldganga með Markúsi Þór um
Áfanga Richards Serra í Viðey
FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Þessi svokallaða kúla er á 220 ekra svæði með tólf
æfingavöllum og þremur keppnisvöllum til leikja svo
hægt sé að hafa þrjá leiki í einu í sjónvarpinu. Leik-
menn verða einangraðir fyrstu sjö vikurnar þar til önn-
ur umferð úrslitakeppninar hefst, en þá verður fjöl-
skyldum leyft að heimsækja þá. Þá verða aðeins átta
lið eftir í kúlunni og það er talið gera hættuna á smiti
viðráðanlegri,“ segir Gunnar Valgeirsson meðal annars
um aðstæður í Orlando í pistli sínum frá Bandaríkj-
unum um NBA-deildina sem nú fer aftur af stað. »47
NBA-stjörnurnar verða einangraðar
fyrstu sjö vikurnar í Orlando
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Þrettán kátir krakkar á aldrinum sex
til 13 ára voru meðal þeirra sem
gengu Laugaveginn undir merkjum
Ferðafélags barnanna úr Land-
mannalaugum suður í Þórsmörk í síð-
ustu viku. Alls voru 25 manns í hópn-
um en hinir fullorðnu voru foreldrar
sem þarna buðu börnunum sínum í
lærdómsríkt og skemmtilegt ferðalag
um stórbrotna náttúru.
„Ferðin var góð samvera fjölskyld-
unnar og frí þar sem við bjuggum til
margar góðar minningar,“ segir
Hrönn Vilhjálmsdóttir úr Reykjavík.
Þau Hrönn og Hörður Harðarson,
eiginmaður hennar, eiga börnin Sig-
nýju, sem er tæplega 13 ára, og Sölva,
sex ára, og var fjölskyldan saman í
ferðinni. Sölvi var yngstur þátttak-
enda og reyndist leiðangurinn leik-
andi léttur.
Fjögurra daga ferð
Laugavegurinn er 55 kílómetrar og
er fjögurra daga ferð. Fyrsti legg-
urinn er frá Laugum í Hrafntinnusker
og er erfiðasta dagleiðin, enda mikil
hækkun þar sem stóran hluta er geng-
ið á snjó. Yfirleitt eru dagleiðir á
Laugavegi um 15 kílómetrar og er
gist í skálum FÍ.
Lagt var upp á miðvikudegi og
komið á laugardegi á áfangastað,
Skagfjörðsskála í Langadal í Þórs-
mörk. „Svona gönguferðir eru frábær-
ar fyrir líkama og þroska barnanna.
Það er engin leið að snúa við. Þetta er
þjálfun í þrautseigju,“ segir Hrönn.
Sölvi sprettur
„Við foreldrarnir gerðum varaáætl-
un um að ef krakkarnir gæfust upp
kæmu ömmurnar og sæktu þau, til
dæmis í skálana við Álftavatn eða á
Emstrum. Á slíkt reyndi aldrei.
Krakkarnir fóru létt með þetta og
þegar við nálguðumst Þórsmörk
hlupu þau eins og fætur toguðu síð-
ustu tvo kílómetrana. Strákurinn okk-
ar var meira að segja kallaður Sölvi
sprettur,“ segir Hrönn og bætir við að
fjallapríl sé fjölskyldusportið. Fyrir
Laugavegsgönguna hafi þau saman
gengið á Esjuna, Úlfarsfell, Þyril og
Helgafell við Hafnarfjörð og nú sé
engin leið að hætta.
Þjálfun í þrautseigju
Laugavegsgöngur eru fyrir alla 25 fóru með Ferða-
félagi barnanna Þroskandi og góð samvera fyrir alla
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Fjölskylda Hrönn Vilhjálmsdóttir og Hörður Harðarson og börnin tvö;
Signý og Sölvi, sem fannst löng Laugavegsferð í raun leikur einn.
Snjóbrú Víða á Laugaveginum þarf lagni til þess að komast um torfærur og
dali, eins og hér sést. Snjóbrúin í gilinu var traust þótt komið sé fram í júlílok.