Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Síða 2
Hvað þýðir að vera staðartónskáld Sumartónleika
Skálholts?
Þetta er alveg gríðarlega gott tækifæri til þess að vinna náið með
fólki sem maður hefur ekki áður fengið tækifæri til að vinna með og
prófa nýja hluti. Ég vinn með tríóinu KIMI sem er samsett af harm-
onikkuleikara, söngkonu og slagverki. Ég hef ekki samið fyrir svona
samsetningu áður. Þetta var spennandi og mjög krefjandi. Svo er
magnað að fá að vera hérna í Skálholti og vinna.
Hvernig myndirðu lýsa verkinu þínu?
Hugmyndin mín byggir á minningu frá því að ég dvaldi hérna í ferm-
ingarfræðslu. Það fjallar um vináttusamband, trúnað og traust. Svo fer
þetta út í gríska goðafræði með tilvísun í Sjöstirnið. Ég er að leika mér
með rýmið í kirkjunni og leiði fólk svolítið öðruvísi í inn í verkið.
Er mikill undirbúningur að baki?
Já, algjörlega. Maður þarf að kynna sér hljóðfærin sem maður notast
við og kynnast hljóðheimi þessa tríós. Svo tekur auðvitað tíma frá því
að hugmynd fæðist þar til það kemst á form. Þannig að ég hef unnið
mikið að þessu síðustu tvo mánuði.
Hvernig myndir þú lýsa tónlist þinni?
Hún byggir mikið á rafhljóðfærum og uppteknum hljóðum. Það er
mikil úrvinnsla með upptekin hljóð. Það verður yfirleitt að einhvers
konar rafvefnaði, getum við sagt. Ég hef líka notast við ýmiss konar
hljóðfæri og það er þá upptekið. En svo hefur maður spreytt sig á
akústískum pælingum með hljóðfæri.
Fyrir hverja eru tónleikarnir?
Ég held að verkið mitt höfði til allra. Ég nota í verkinu upptökur
tveggja unglingsstúlkna sem ljá mér raddir sínar. Þá er ég aftur að
tengjast þessu óheflaða sem býr í unglingnum á þessum mótunar-
árum. Ég notaði það til að móta verkið á ákveðnum kafla.
ÞÓRANNA BJÖRNSDÓTTIR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Trúnaður og
traust
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020
Veislan
á heima
í Hörpu
Rými sem henta fyrir hverskyns tilefni
Nánar á harpa.is/veislur Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Stórfrétt vikunnar er vitaskuld sú að Kári Stefánsson sé hættur aðskima fyrir kórónuveirunni eftir að ríkisstjórn Íslands móðgaði hannöðru sinni á örfáum vikum. Sérstaklega virðast það vera forsætis- og
heilbrigðisráðherra sem eiga erfitt með að umgangast kappann eins og þá
viðkvæmu sál sem hann er; að þakka honum fyrir og sýna honum tilhlýðilega
virðingu vegna þess óeigingjarna starfs sem hann og Íslensk erfðagreining
hafa svo sannarlega unnið á umliðnum mánuðum í baráttunni gegn hinum
hvimleiða vágesti. Frá bæjardyrum Kára er sú ákvörðun að taka hatt sinn
og sýnatökupinna vel skiljanleg;
fyrirtæki úti í bæ ber engin skylda
til að hlaupa undir bagga með ríkinu
á tímum sem þessum og láta dag-
vinnuna sitja á hakanum; allra síst
eftir að veiruneyðin minnkaði.
Annar ástsæll Kári, Árnason,
landsliðsmiðvörðurinn úr Víkingi,
var líka í jötunmóð eftir að honum
var vikið af velli í kappleik á Meist-
aravöllum fyrir að strjúka kviðinn á
Kristjáni Flóka Finnbogasyni, mið-
herja KR. Fannst hann órétti beitt-
ur og sjálfur virtist Kristján Flóki
hafa afflækt málið með því að viður-
kenna í viðtali eftir leikinn að hann hefði farið auðveldlega niður eftir þær
kviðgælur. Eigi að síður þurfti Kári að afplána leikbann og aðrir dómarar
hafa varið ákvörðun kollega síns. Er nema von að Kára sé spurn?
Er það bara ég eða mynduð þið ekki gefa aðra höndina fyrir að sjá Kára
Stefánsson dæma knattspyrnuleik? Það yrði ekkert hálfkák og elsku
mamma. Alltént ímynda ég mér að Kári hefði hvorki skilning né samúð með
leikaraskap á velli. „Drattastu á fætur fábjáninn þinn og hættu þessu hel-
vítis væli og aumingjaskap!“ gæti hann hæglega þrumað yfir hinum seka.
„Þú ert eins og lítil tíu ára stelpa!“ Sé Einar Þorsteinsson í Kastljósinu fyrir
mér fylgjast með þessu úr stúkunni – sposkan á svip, með hönd á kinn.
Ég get mér þess til að grasdýfur og almennur ódrengskapur yrðu upp-
rætt á einni til tveimur vikum yrði Kári flautuvæddur. Ef allt um þryti
myndi hann bara beita sér fyrir því að bóluefni yrði fundið gegn óheil-
indaplágunni.
Það eina sem vantar inn í þessa sviðsmynd er sjónarmið þriðja Kárans
sem þjóðin hefur hleypt inn að sínum innstu hjartarótum, Kára Kristjáns
Kristjánssonar, handboltamanns og Ungfrú Snæfells- og Hnappadalssýslu.
Í hvert sinn sem sá ágæti maður opnar munninn liggja gullkorn á víð og
dreif. Hvað ætli Kára finnist um nýjustu gjörðir Kára og Kára?
Afkáralegir ráð-
herrar og miðherjar
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’Drattastu á fætur fá-bjáninn þinn og hættuþessu helvítis væli ogaumingjaskap! Þú ert
eins og lítil tíu ára stelpa!
Magnús Jón Smith
Bara það sem er hendi næst.
Ætli það sé ekki bara naut.
SPURNING
DAGSINS
Hvað er
best á
grillið?
Bryndís Berghreinsdóttir
Það er sjávarfang, grænmeti og
kjöt.
Helgi Guðbjartsson
Ég grilla ekki.
Ólöf Inga Heiðarsdóttir
Ekki svínakjöt. Bara naut held ég.
Hamborgarar.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Arnþór Birkisson
Þóranna er annað staðarskálda Sumartónleika í Skálholti ásamt
Gunnari Karel Mássyni. Á lokatónleikunum, sem fara fram kl. 17 í dag,
sunnudag, verða verk þeirra leikin af tríóinu KIMI. Aðgangur er ókeypis.