Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Síða 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020
Nei, þetta er ekki listaverkeftir bandaríska listamann-inn Andres Serrano, sem
þekktur er fyrir notkun á líkams-
vessum í umdeildum verkum sínum,
hér að ofan, heldur smásjármynd af
kórónuveirunni alræmdu sem veldur
COVID-19-sjúkdómnum sem herjað
hefur á heimsbyggðina á árinu. Veir-
an (bláleitu kúlurnar) brýst hér út úr
frumum sjúklings sem ræktaðar
hafa verið á tilraunastofu í Banda-
ríkjunum.
Nýja lyfið, REGN-COV2, sem
bandaríska líftæknifyrirtækið Re-
generon er að þróa, er blanda
tveggja mótefna sem eiga að koma í
veg fyrir að broddprótein kórónu-
veirunnar ráðist inn í mennskar
frumur.
Erfitt er að mæla því í mót að kór-
ónuveirufaraldurinn sé stærsta frétt
aldarinnar, fram að þessu, enda hef-
ur hann með einum eða öðrum hætti
haft áhrif á þorra jarðarbúa. Og mun
gera áfram.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíð-
unni Worldometers.info eru kórónu-
veirutilfellin á heimsvísu að nálgast
hálfa þrettándu milljón; tæplega 560
þúsund eru látin og tæplega sjö
milljónir og þrjú hundruð þúsund
hafa náð bata. Virk smit eru um fjór-
ar og hálf milljón. Flestir jafna sig
að fullu en aðrir glíma við aukaverk-
anir til lengri eða skemmri tíma.
AFP
Veiran í
nærmynd
Bandaríska líftæknifyrirtækið Regeneron gerði
heyrinkunnugt í vikunni að það væri að komast á
lokastig í rannsóknum á mönnum í þeim tilgangi
að finna lyf sem yrði þess umkomið að með-
höndla og koma í veg fyrir COVID-19.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is