Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020 LÍFSSTÍLL Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 www.husgagnahollin.is 558 1100 Verð og vöruupplýsingar í auglýsingunni eru birtar með fyrirvara um prentvillur. Yfirstrikað verð sýnir fullt verð vöru. Afsláttarverð gilda til 12. júlí eða á meðan birgðir endast 12 – 18 virka daga 12 – 17 laugardaga 13 – 17 sunnudaga 12 – 18 virka daga 12 – 16 laugardaga Ísafjörður Skeiði 1 FLORIDA Glæsilegur og þægilegur hornsófi. Áferðarfallegt, ekta leður allan hringinn, leðrið fæst dökkbrúnt, dökkgrátt eða svart. Þétt, mjúk sæti og bak með fallegum þversaumi. Sófinn fæst með vinstra eða hægra horni (það er ekki færanlegt). Stærð: 260 x 218 x 95 cm 303.992 kr. 379.990 kr. AFSLÁTTUR 20% Börnin njóta listaverka líkt og fullorðna fólkið. Býr í náttúru- paradís í Noregi Björg Bjarnadóttir viðskiptafræðingur var tólf ára þegar hún flutti til Noregs með fjölskyldunni. Hún á fallegt heimili í Noregi og er sífellt að gera eitthvað til að bæta það. Elínrós Líndal elinros@mbl.is B jörg Bjarnadóttir viðskiptafræðingur er fyrrverandi knatt- spyrnukona sem spilaði í sex ár í efstu deild í Noregi. Í dag starfar hún fyrir olíufyrirtæki og býr í fallegu um- hverfi í faðmi fjölskyldunnar, með eiginmanni sínum Jørn Vølstad og þremur börnum. „Ég bý í Sviland sem er bæjarhluti i útjaðri Sandnes í Noregi. Mað- urinn minn er frá þessum bæjarhluta og við keyptum okkur hús hér fyrir nokkrum árum. Við búum hér í sterkum tengslum við náttúruna, þar sem er stutt í fallegar gönguleiðir, í fjallgöngur og lystigarða. Hér er einstaklega fallegt útsýni, sem ekki er sjálfgefið ef maður byggi í meira þéttbýli. Að líta út um gluggann er eins og að horfa á málverk. Í dag starfa ég fyrir stórt amerískt olíufyrirtæki í Stav- anger.“ Hrifin af efnum úr náttúrunni Hvernig lýsirðu þínum persónulega stíl heima? „Minn persónulegi stíll er fyrst og fremst minimalískur, með inn- blæstri frá bóhemískum og suðrænum stíl. Ég er hrifin af efnum úr náttúrunni eins og tré og leir. Smekkurinn minn er alltaf að þróast og er lifandi og hefur breyst með tímanum. Ég fæ innblástur á ferðalög- um, úr tímaritum og frá samfélagsmiðlum. Ég skoða mikið af fallegum heimilum og heillast af öllu mögulegu úr mismunandi stílum. Ég er ekki hrædd við að blanda stílum og hugsanlega yrði næsta heimili allt öðruvísi en núverandi heimili.“ Hvað getur þú sagt mér um litavalið á veggjunum heima? „Þegar við fengum húsið afhent voru allir veggir hvítir, en við fund- um fljótt að það hentaði okkur ekki nógu vel. Ég vildi daufa litapallí- ettu sem gefur húsinu líf. Flestöll herbergi og alrými eru máluð í ólík- um gráum tónum, sem gefa mismunandi stemningu. Mér líður best í björtu og rólegu umhverfi og finnst mikilvægt að geta komið heim úr vinnu og geta notið kaffibollans í rólegheitum. Litirnir og hlutirnir í kringum mig hafa áhrif á mína vellíðan og það er mér mikilvægt.“ Gerðir þú húsnæðið upp sjálf? „Við keyptum húsið nýtt, en við fengum að raða vissum hlutum sjálf og breyttum heilmiklu. Við teiknuðum eldhús- og baðherbergisinn- réttingarnar og breyttum ýmsu í sambandi við rafmagn og lýsingu. Þegar þriðja barnið bættist í hópinn, gerðum við breytingar og bætt- um við auka svefnherbergi í húsið. Við byggðum okkur einnig bílskúr, sem ekki var gert ráð fyrir upphaflega.“ Barnaherbergin hrein og notaleg Áttu góð ráð þegar kemur að því að raða? „Ég vel mér hluti sem mér þykir fallegir og ég finn að hafa góð áhrif á mig. Mér finnst gaman að breyta staðsetningu á hlutunum af og til og sjá hvernig þeir koma út annars staðar í húsinu. Hlutirnir hjá mér eru mikið á flakki á milli staða. Það getur oft verið fallegt að raða nokkrum hlutum saman, en svo mega líka stórir og sérstakir hlutir standa einir. Þeir fá þá að njóta sín án of mikillar samkeppni við ann- að. Ég er mikið fyrir plöntur og blóm sem er að finna út um allt húsið. Það gefur lit og líf og skapar góða stemningu.“ Hvernig heldur maður barnaherberginu hreinu og fallegu? „Ég get alls ekki sagt að barnaherbergin séu alltaf í tipp topp standi. Börnin mín eru eins og öll önnur börn og mega nota herbergið sitt eins og þau vilja. En mér finnst samt mikilvægt þegar degi lýkur að barnaherbergin séu hrein og notaleg og að börnunum líði vel í sín- um heimi og þá sérstaklega á kvöldin þegar þau fara að sofa. Leikföng eru flokkuð og sett í ýmsar fallegar hirslur inn í herbergi. Þannig taka hirslurnar þátt í því að setja svip á herbergið og gefa því hlýleika. Þá er líka stutt í dótið og léttara að ganga frá því. Við notum falleg leikföng, bækur, skírnargjafir og fleira til að gera herbergin persónulegri.“ Grænar plöntur gera heimilið líflegra Hvað keyptir þú þér síðast inn á heimilið? „Þegar byrjaði að vora ákváðum við að bæta upp á garðinn og úti- svæðið. Við keyptum okkur ný garðhúsgögn, fallegar plöntur og potta sem lífga upp á útisvæðið. Það sem mér þykir samt vænst um eru blómakassarnir sem ég bað manninn minn um að smíða. Þeir setja einstaklega góðan svip á heildina og eru punkturinn yfir i-ið.“ Hverju langar þig að deila með lesendum þegar kemur að því að gera fallegt heimili? „Fyrst og fremst að fara eftir eigin smekk, hvernig sem hann er. Það er mikilvægt að nýta rýmið og velja húsgögn sem fara rýminu vel. Grænar plöntur gefa líf í húsið og litir á veggjum gefa persónuleika og hlýju. Ég mæli líka með að skoða tímarit og sem dæmi Instagram fyr- ir innblástur.“ Með blóm og ávexti í eldhúsinu Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn heima? „Ég er uppalin á Akureyri og fer alltaf norður þegar ég fer heim til Íslands, en uppáhaldsstaðurinn minn á Íslandi er Öxnafjörður. Ég eyddi hverju sumri þar hjá ömmu og afa sem lítil stelpa. Afi var skóla- stjóri og amma kennari við Lundarskóla og þau voru með hesta og bú- skap. Þaðan eru mínar bestu æskuminningar.“ Hvað langar þig að gera næst á heimilinu? „Næst á dagskrá er að mála alla veggi í stofunni og eldhúsinu og breyta aðeins til í forstofunni. Þar þurfum við meira skápapláss sem hentar fimm manna fjölskyldu. Svo á auðvitað að mála í einhverjum fallegum lit. Þar finnst mér mikilvægast að vera með praktískar lausnir, að rýmið sé notfært og að það sé fallegt og notalegt að koma inn fyrir dyrnar. Forstofan er það fyrsta sem mætir fólki þegar það kemur inn og því finnst mér vera mikilvægt að kynna heimilið vel við anddyrið.“ Ertu mikið fyrir að elda? „Já ég er mikið fyrir að elda góðan mat og finnst kvöldmatur vera mikilvægasti hluti dagsins fyrir okkur fjölskylduna. Þá setjumst við niður við borð og spjöllum saman eftir vinnu og skóla. Mér finnst líka skemmtilegt að baka og er bæði í gerbakstri og tertum.“ Hvað er ómissandi í eldhúsið? „Kaffivél, ólífuolíur og ávextir. Ég læt olíur, te og bretti standa frammi og er alltaf með ferska ávexti í skál á eldhúsborðinu. Blóm eru einnig ómissandi, í fallegum vasa á borðinu.“ Heimilið er einstaklega stílhreint og fallegt. Stílhreint eldhús sem gaman er að vinna í.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.