Morgunblaðið - Sunnudagur - 12.07.2020, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12.7. 2020
LESBÓK
á heimasíðu Hreyfils:
hreyfill.is
eða í App Store
og Google Play
SÆKTU APPIÐ
Sæktu appið frítt á AppStore
eða Google Play
Hreyfils appið
Pantaðu leigubíl á einfaldan
og þægilegan hátt
Þú pantar bíl1
3 og færð SMS skilaboðað bíllinn sé kominn.
2 fylgist með bílnum í appinu
TÚR Phil Collen, gítarleikari Def Leppard, segir helm-
ingslíkur á því að risatúr bandsins um Bandaríkin með
glyströllunum í Poison og Mötley Crüe og Joan Jett &
the Blackhearts verði að veruleika sumarið 2021 en
túrnum var frestað í sumar vegna kórónuveirufarald-
ursins. „Vonandi – það er planið,“ sagði hann í samtali
við bandarísku útvarpsstöðina SeriusXM. „Það veltur þó
ekki alfarið á okkur. Þetta er eins og að fara út að aka.
Það er ekki nóg að hugsa um sjálfan sig; maður verður
að hafa augun á öllum fábjánunum á veginum líka.
Þannig er staðan í augnablikinu. En við erum klárir í
slaginn.“ Fram hefur komið að Vince Neil, söngvari
Crüe, réð sér einkaþjálfara til að skafa af sér uppsöfnuð
aukakíló í vetur. Sá ætti að verða í vargaformi að ári.
Helmingslíkur á túr
Phil Collen
er í toppformi.
AFP
FRAMI Breski leikstjórinn Amma Asante
hefur verið iðin við kolann undanfarin ár og
leikstýrt bæði kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum við góðar undirtektir. Má þar nefna
myndirnar A United Kingdom og Where
Hands Touch og þætti í sjónvarpsseríunum
The Handmaid’s Tale og Mrs. America. Í
samtali við breska dagblaðið The Guardian
kveðst hún á hinn bóginn eiga erfitt með að
átta sig á því hvar hún standi enda séu fyrir-
myndirnar ekki á hverju strái. „Ég hef ekki
haft neinn þeldökkan breskan kvenkyns leik-
stjóra að miða feril minn við. Það hefur hald-
ið væntingum mínum niðri.“
Amma kallar ekki allt ömmu sína
Leikstjórinn Amma Asante ryður brautina.
AFP
Paul Stanley sem Stjarnunginn.
Notum grímur!
GRÍMUR Paul Stanley, söngvari og
gítarleikari glysgoðanna í Kiss,
blandaði sér í umræðuna um grímu-
burð Bandaríkjamanna í vikunni og
engum þarf að koma á óvart að
hann hvetji fólk til að bera grímur.
Sjálfur hefur hann þénað milljarða
króna á slíku athæfi gegnum tíðina
enda þótt gríma Stjarnungans (e.
Starchild), sem hann notar á sviði,
dugi nú líklega skammt gegn kór-
ónuveirunni enda hylur hún ekki
vit kappans. „Sumum finnst grím-
urnar skerða frelsi þeirra,“ tísti
Stanley, „en ef við berum þær þá
höfum við MEIRA frelsi til að fara
úr húsi. Ef við notum grímur dreifir
veiran sér hægar og fleiri staðir
verða opnaðir og fyrr en ella.“
Það er ekki tónlistin sem sætirtíðindum í dægurtónlistar-þættinum Poppkorni frá
árinu 1986, það eru bara dæmigerðir
smellir og lummur frá eitís-tímanum
eða áttunni, eins og menn eru farnir
að kalla þann ágæta áratug, heldur
tilburðir umsjónarmannanna, Gísla
Snæs Erlingssonar og Ævars Arnar
Jósepssonar. Í stað þess að kynna
bara lögin, eins og Þorgeir Ástvalds-
son og Edda Andrésdóttir gerðu svo
ljómandi vel í Skonrok(k)i á undan
þeim, brugðu þeir félagar gjarnan á
leik. Hentu í hvern sketsinn af
öðrum, oftar en ekki án nokkurs
samhengis við tónlistina sem á eftir
kom.
Og? spyrja nú sjálfsagt einhverjir.
Jú, við erum að tala um árið 1986 og
sketsagerð af afar skornum skammti
í íslensku sjónvarpi. Höfum í huga
að þetta var áður en Spaugstofan lét
til sín taka og löngu áður en Radíus-
bræður, Tvíhöfði og þeir æringjar
allir komu fram á sjónarsviðið. Einu
sketsana í íslensku sjónvarpi fyrir
Poppkorn hefur líkast til verið að
finna í sjálfu Áramótaskaupinu.
Sketsar þeirra Gísla Snæs og Æv-
Ævar Örn Jósepsson og Gísli Snær Erlingsson
virðast hafa verið með einhvers konar Bjarna
Fel-blæti. Hér eru þeir með frummyndinni. Að
vísu í Áramótaskaupi en ekki Poppkorni.
Poppkorn sem
bragð er af
Öllum á óvörum hefur 34 ára gamalt efni borið af
í íslensku sjónvarpi í sumar. Við erum að sjálf-
sögðu að tala um dægurtónlistarþáttinn Popp-
korn, sem dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins hafði
hyggju til að endursýna um miðjan dag utan
helsta annatíma. Hafi hann þökk fyrir.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Madonna var ein skærasta poppstjarnan árið 1986 og fastagestur í Poppkorni.
Reuters
Eins og ég segi var tónlistin í aukahlutverki í Poppkorni árið 1986.
Þó hefur verið gaman að rifja upp hvað bar hæst um þær mundir.
Sumt af því sem tröllreið öllu er enn vinsælt og í tísku, svo sem Ma-
donna og U2, auk þess sem The Rolling Stones virðast hafa verið á
góðri siglingu 1986. Þarna koma líka við sögu sveitir sem runnu í
stein á eitís-tímanum, svo sem Cutting Crew,
Five Star og Fine Young Cannibals, sem
stungu raunar við stafni í Reykjavík þetta
sama ár. Svo eru þarna ýmsir sem mað-
ur var annaðhvort löngu búinn að
gleyma eða hafði ekki hugmynd um að
væru eða hefðu verið til. Tilvist aust-
urríska söngvarans Falcos rifjaðist til
dæmis upp fyrir mér, en hann gerði
garðinn frægan á þessum árum með lög-
um á borð við Rock Me Amadeus og Der
Kommissar. Fletti Falco upp og komst að
því að hann er látinn; dó í bílslysi
1998. Alveg fór það framhjá mér.
Látinn fyrir 22 árum
Falco
var vinsæll
1986.