Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 BROTINN SKJÁR? Við gerum v allar tegun síma, spjaldtö og t ið dir lva ölva Bolholti 4, 105 • Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Lítil heimasmíðuð flugvél skemmd- ist þegar flugmaður lenti henni á ísilögðu Þingvallavatni í mars sl. Flugmaðurinn reyndi ásamt öðrum að laga vélina og taka á loft á ný en vélinni hlekktist aftur á. Engan sakaði. Þetta kemur fram í bókun, sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur birt um atvikið. Flugmaður- inn fór ásamt farþega frá fisflug- vellinum á Hólmsheiði í Land- mannalaugar og var önnur flugvél í samfloti. Á bakaleiðinni ákvað flug- maðurinn að lenda á Þingvallavatni, sem var ísi lagt. Krapi var á yfirborði íssins og skemmdist nefhjólið í lendingunni. Flugmaður hinnar vél- arinnar hélt áfram leið sinni til Reykjavíkurflugvallar eftir að hafa fullvissað sig um í gegnum fjar- skipti að í lagi væri með þá sem voru í vélinni sem lenti. Hann hringdi í annan mann eftir aðstoð og kom sá á vettvang á vélsleða um þremur stundum síðar. Reyndu þeir að laga nefhjólslegginn og taka á loft af ísnum en leggurinn lagðist saman aftur og þá skemmdist skrúfan. Næst reyndu þeir að flytja vélina á brott með vélsleðanum en gáfust upp við það. Sjónarvottur, sem fylgdist með þessum aðgerðum gegnum sjónauka, lét þá lögreglu vita og kom hún á vettvang síðar um kvöldið. Ísinn var ekki talinn nógu öruggur til að senda björg- unarsveitir til að ná í flugvélina og var hún sótt með aðstoð þyrlu þremur dögum síðar. Rannsóknarnefndin segir í bók- uninni að það sé hennar mat að að- stæður á Þingvallavatni hafi ekki verið ákjósanlegar til lendingar. Beinir nefndin m.a. þeim tilmælum til flugmanna að huga að tilkynn- ingaskyldu sinni til rannsóknar- nefndarinnar í tilfelli alvarlegra flugatvika og flugslysa. Hlekktist á tvisvar á ísilögðu Þingvallavatni  Sjónarvottur hafði samband við lögreglu en engan sakaði „Tískugrímur“ skjóta nú uppi koll- inum í verslunum hér á landi, sem og erlendis. Þó er ekki alls kostar ljóst hvort í þeim felist næg vernd frá smiti, þar sem heilbrigðisyfir- völd gera ríkar kröfur um hönnun og gerð grímna, séu þær notaðar til að verjast smiti. Alma D. Möller landlæknir segir að grímurnar verði að hafa þrjú efnislög. „Miðlagið þarf að draga í sig raka og síðan er ekki sama hvaða efni eru notuð,“ segir Alma. Spurð hvort hún mæli gegn notk- un tískugrímna segir Alma að hún myndi sannfæra sig um að hönnun grímnanna sé samkvæmt öryggis- stöðlum, sem settir hafa verið fram af heilbrigðisyfirvöldum. „Það er ekkert gagn í því að taka bara eitthvert efni og sauma grímu í stíl við kjólinn,“ segir Alma. Margar verslanir hafa hafið sölu á grímum, þar á meðal netversl- unarrisinn Asos, sem nýtur nokk- urra vinsælda hér á landi. Við grímur sem þar eru til sölu er sett- ur fyrirvari fyrir neytendur sem hljóðar svo: „Þessi vara er ekki heilbrigðis- vara eða sóttvarnavara til einka- nota og kemur ekki í stað þess að fylgja samkomutakmörkunum[...].“ Þá nefndi Alma á almannavarna- fundi í gær að nauðsynlegt væri að þrífa fjölnota grímur og gæta þess að þær uppfylli öryggisstaðla. veronika@mbl.is Líta vel út en ekki alltaf öruggar  „Tískugrímur“ þurfa að uppfylla staðla til að veita vörn gegn veiru Morgunblaðið/Árni Sæberg Tíska Þessar stúlkur mátuðu grímur í versluninni Spútnik í gær. Ekki er víst að tískugrímur veiti nægar varnir. Fljótandi kútar njóta aukinna vinsælda á meðal sjósundfólks og veita þeir aukið ör- yggi, að sögn Hinriks Ólafssonar leikara og sjósundkappa. Í kútnum er hægt að hafa orkubita, drykki og síma en hann flýtur með þeim sem festir hann á sig og getur sá hinn sami gripið í kútinn og hald- ið sér þannig á floti ef eitthvað kemur upp á. Hinrik notar kútinn sjálfur þegar hann kemst í núvitundarástand í sjónum. „Þegar maður kemst einhvers staðar út í voginn þá gríp ég um kútinn og læt mig fljóta og sofna í svona 3 mínútur.“ Hinrik segir að stefnt sé að því að kútar sem þessir verði staðalbúnaður fyrir þau sem í sjónum synda. „Þetta er eins og með allar aðrar íþróttir, við verðum að nýta öll tæki til þess að gæta fyllsta öryggis og þetta er liður í því.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fljótandi kútar veita sjósundfólki aukið öryggi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.