Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020 VIÐTAL Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Mikið vildi ég að við gætum verið við opnun sýningarinnar okkar í Reykjavík. Það er sorglegt að geta það ekki. Við heimsóttum landið og Listasafn Reykjavíkur í fyrra, til að skoða aðstæður, og það var alveg frábært,“ segir George. „En staðan er erfið vegna far- sóttarinnar því við erum báðir á áttræðisaldri,“ bætir Gilbert við. „Við erum því í svokölluðum áhættu- hópi, til að mynda í flugvélum og þar sem fólk kemur saman. Meira að segja á gönguferðum er viss hætta, er okkur sagt. Við förum samt dag- lega í þrjár göngur utandyra og svo þrjár hér innandyra – við göngum hringinn í kringum borðin hérna,“ segir hann og bendir á löng borðin í vinnustofunni. Ég er kominn í heimsókn til Gil- berts Proesch, sem er fæddur á Norður-Ítalíu, og George Passmore í húsið þeirra við Fournier-stræti á East End í London, þar sem þeir hafa búið og starfað í meira en hálfa öld. Hús sem hefur með tímanum orðið nánast goðsagnakennd mið- stöð sköpunar listamannanna tveggja sem slógu í gegn upp úr 1970 sem einn listamaður sem kallar sig Gilbert & George og hafa þeir lengi verið í hópi kunnustu og umtöl- uðustu samtímalistamanna Bret- lands. Þeir eru nú 76 og 78 ára. Afar umfangsmikil sýning á mörg- um af þekktustu verkum Gilberts & George verður opin gestum í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur frá og með deginum í dag, sett upp í flestum sölum safnsins, og er á dag- skrá Listahátíðar í Reykjavík. The Great Exhibition er heiti sýningar- innar og gefur mjög gott yfirlit yfir myndheim og viðfangsefni tvímenn- inganna síðustu fimm áratugi. Sýn- ingin var fyrst sett upp í Arles í Frakklandi fyrir tveimur árum og hefur síðan haft viðkomu í Stokk- hólmi og Ósló. Sýningarstjórarnir eru víðkunnir, Hans Ulrich Obrist, stjórnandi Serpentine Gallery í London, og Daniel Birnbaum, stjórnandi Acute Art. Samhliða opn- un sýningarinnar hefur verið gefin út afar vegleg sýningarskrá sem þýdd hefur verið á íslensku, um 460 blaðsíður og hönnuð af listamönn- unum sjálfum. Í henni er meðal ann- ars að finna ítarlegt og skemmtilegt samtal listamannanna og sýning- arstjóranna um feril þeirra og verk, auk mynda af sýningum á verkum þeirra. Breyttu lífi sínu í skúlptúr Gilbert & George hafa verið áber- andi í menningar- og mannlífi Lundúnaborgar síðustu hálfa öld. Þeir kynntust í St. Martin’s- listaskólanum í London árið 1967 og byrjuðu fljótlega að búa og starfa saman. Báðir lögðu stund á skúlp- túr í skóla en á frægri sýningu þeirra um það leyti er námi lauk birtust þeir sem „lifandi skúlptúr“ á sviði í vel sniðnum borgaralegum jakkafötum. Þeir fylgdu því eftir með fleiri „lifandi skúlptúrum“, meðal annars þar sem þeir sungu sama lagið klukkustundum saman, svo minnir á úthaldsgjörninga ým- issa yngri listamanna, og kalla þeir slík verk „syngjandi skúlptúra“. Þeir hafa í raun gert líf sitt að ein- um samfelldum gjörningi, þar sem þeir ganga snyrtilegir og kurteisir gegnum lífið, yfirlýstir íhaldsmenn og konungssinnar. Auk skúlptúr- anna, eða gjörninganna, þróuðust verk þeirra frá því að vera nokkrar ljósmyndir settar upp saman sem sýndu gjörninga þeirra, til að mynda hvar þeir sitja að drykkju, yfir í samsett verk í mörgum sam- felldum römmum sem byggð eru að mestu á ljósmyndasamklippum, þar sem myndir af þeim Gilbert & George sjálfum í ýmiss konar að- stæðum og stellingum eru áberandi, auk fólks, hluta og staða sem þeir mynda í hverfinu sínu á East End í London. Og viðfangsefnin eru ein- föld en mikilvæg, eins og líf, dauði, trúarbrögð, kynlíf, stjórnmál. Textar eru áberandi í mörgum verkanna, til að mynda sóttir í aug- lýsingaplaköt götublaða, og þá hafa vísanir þeirra í kynlíf samkyn- hneigðra og birting líkamsvessa í verkum á stundum ögrað og vakið umtal. Þetta er heimurinn okkar Þeir Gilbert og George fagna gestinum sem er með grímu fyrir vitum eins og þeir, og þeir leiða mig síðan gegnum húsið sitt gamla frá 18. öld, þar sem þeir byrjuðu á að leigja sér herbergi að búa og vinna í í upphafi ferilsins en gátu keypt nokkrum árum seinna þegar verk þeirra fóru að seljast fyrir háar upp- hæðir. Við förum gegnum húsið og inn í eina vinnustofuna fyrir aftan en þá skála gátu þeir keypt nokkrum árum eftir að þeir eignuðust íbúðar- húsið. Í einum skálanum er ljós- myndastúdíó og raðir af prenturum og tölvum, en við setjumst niður við langt borð í öðrum skála, þeir and- spænis mér og á milli okkar er mód- elið sem þeir gerðu af sýningarsöl- unum í Hafnarhúsinu þegar þeir voru að ákveða hvaða verk ættu að fara þar upp. Þeir félagar taka niður grímurnar en ég hef mína áfram fyrir vitum. Þeir tala áfram um að þeir harmi að ná ekki að vera við opnun sýningarinnar í dag. George: „Við njótum þess alltaf að vera við opnanirnar okkar. Við dáum að hitta fólkið.“ Gilbert: „Því við höldum upp á al- menning!“ George: „Við erum vonsviknir yfir því að geta ekki mætt, ekki síst vegna þess að Ísland er sú eyja sem er í næstmestu uppáhaldi hjá okk- ur.“ Þeir hlæja og bæta við að þeir setji hana á listann næst Bretlandi. Gilbert: „Við gerðum þetta módel af sýningunni í Reykjavík fyrir all- nokkru síðan og erum mjög ánægðir með uppröðun verkanna. Þessi sýn- ing hefur komið mjög vel út í öllum söfnunum.“ – Viðtalið við ykkur í þessari miklu sýningarskrá, segi ég og fletti bókinni, er einstaklega upplýsandi. „Ætli það megi ekki kalla þessa skrá eins konar legstein yfir okkur,“ svarar Gilbert og glottir. „Hún er mjög myndarleg, við hönnuðum hana frá grunni. Það var gott að koma að mörgum myndum frá ólíkum sýning- arstöðum, þá má sjá hvernig verkin taka sig út í ólíkum rýmum. Það er mjög mikilvægt fyrir þetta sjónræna tungumál okkar að verkin fari inn í ýmis söfn, þar sem þau hafa lagt undir sig salina með heimi Gilberts & George. Þetta er heimurinn okkar.“ Fyrstir með verk um veiruna Kórónuveirufaraldurinn hefur vitaskuld haft mikil áhrif á líf tví- menninganna, eins og annarra. George: „Þetta eru miklar breyt- ingar, og hræðilegar. Allan þann tíma sem við höfum starfað saman höfum við bara borðað á veit- ingastöðum, við höfum aldrei nokk- urn tíma borðað hér í húsinu. En núna erum við bara í fjandans hús- inu.“ Áhugafólk um myndlist gat á dög- unum fylgst með röð stuttra mynd- banda sem voru birt á Instagram- síðu gallerís þeirra, White Cube, og sýndu tvímenningana borða, ganga og dunda sér innan dyra hússins, við þessar furðuaðstæður. Þeir segjast sakna mikið veitingastaðarins sem þeir hafa nú borðað á undanfarinn aldarfjórðung. Gilbert: „Og við söknum þjónanna mest!“ George: Við hittum þá oftar en nokkurn annan - sjö daga vikunnar.“ Gilbert: „Við erum með einn að- stoðarmann sem býr ekki langt héð- an og hann kemur nú á morgnana með dagblöðin og mat, sem hann set- ur í þennan litla ísskáp þarna, eina ísskápinn í húsinu. Hann kemur með ost, skinku, salami…“ George: „Við keyptum ísskápinn fyrir nokkrum árum, bara til að kæla kampavín sem var alltaf verið að gefa okkur. Við vorum aldrei með mat áður í húsinu en nú urðum við að taka kampavínið út, vín sem við ann- ars drekkum aldrei, og koma matn- um þar fyrir.“ Gilbert: „En ástandið hefur ekki breytt því hvernig við vinnum, við höfum haft mikið að gera, höfum skapað 85 ný verk,“ segir hann spenntur. George: „Við höfðum lokið við að hanna þau þegar veiran skall á.“ Gilbert: „Við gáfum myndröðinni heiti strax í janúar og köllum …“ George: „…The New Normal Pict- ures. Og þremur vikum síðar fengu verkin, og heitið, alveg nýja merk- ingu með veirunni.“ Gilbert: „Við tölum um farald- urinn sem „hið nýja norm“.“ George: „Við vorum fyrstir með þetta! Myndirnar eru allar um veir- una en urðu til á undan veirunni.“ Gilbert: „Titillinn kom til af því að við vildum þýða hugmyndina að baki franska orðinu existensíalismi. Við ákváðum að það þýddi eitthvað normal. Og hver mynd í röðinni er kölluð hið nýja normal ástand. Við erum mjög spenntir fyrir þessum myndum en vandamálið er að við vit- um ekkert hvenær galleríin geta sýnt þær.“ George: „Kannski verður það ekki fyrr en eftir að við erum allir.“ Gilbert: „En við höfðum þegar hannað verkin þegar faraldurinn brast á. Við hönnum verkin alltaf í hlutfallinu einum tíunda af endan- legri stærð. Þá tekur við að stækka verkin upp og nú erum við, eins og þú sérð á veggnum bak við þig, að prufa hina ýmsu þætti verkanna. Þegar við erum orðnir ánægðir með samsetninguna þá ljúkum við við verkin og prentum þau út. Þessi nýju verk eru einstaklega fjölbreytileg og við höfum unnið af kappi að þeim í þessari innilokun, alla daga.“ Dauði, von, líf, kynlíf… – Hvað munu gestir sem koma á sýninguna í Reykjavík upplifa? Morgunblaðið/Einar Falur Listamennirnir „Fyrir okkur er allt það besta í lífinu skipulagt eða mótað af íhaldssömu viðmóti,“ segja Gilbert og George. Listamennirnir kunnu eru hér við heimili sitt og vinnustað síðustu hálfa öldina, á East End í London. Life Hluti gríðarstórs þrískipts verks sem er í allt meira en 19 metra breitt, Death Hope Fear Life (1984), er birt á forsíðu veglegrar sýningarskrár. Urðum að verkunum og erum þau enn  The Great Exhibition, umfangsmikil sýning á verkum Gilberts & George verður opin í Listasafni Reykjavíkur frá deginum í dag  Harma að komast ekki á sýninguna og borða í fyrsta skipti heima
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.