Morgunblaðið - 06.08.2020, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Í rúm 50 ár hefur
álverið í Straumsvík
verið afar mikilvægt
okkur Hafnfirð-
ingum, atvinnulega
og tekjulega fyrir
fjölskyldur, fyrirtæki
og Hafnarfjarðarbæ,
á sama hátt hefur
þjóðarbúið hagnast
verulega af raf-
magnssölu til álvers-
ins og útflutningsverðmæti úr
Straumsvík á þessu tímabili eru
gríðarleg.
Deilt um raforkuverð
Samkeppnisstaða álvera hefur
verið í umræðunni, lágt álverð
og hátt raforkuverð eru helst
nefnd sem aðalástæða fyrir
slæmri stöðu áliðnaðarins á Ís-
landi. Án þess að taka afstöðu til
þess hvort raforkuverð til stór-
iðju sé sanngjarnt eða ósann-
gjarnt má nefna að 85% raf-
orkusölu Landsvirkjunar er til
stóriðju, að hagnaður Lands-
virkjunar hefur verið gríðarlegur
síðustu árin, skuldir hafa lækkað
verulega og fyrirtækið áætlar að
greiða tugi milljarða í arð til eig-
anda síns næstu árin. Í þessu
samhengi má nefna að forstjóri
Landsvirkjunar lýsti því yfir í
október 2010 að færi fyrirtækið
ekki í neinar framkvæmdir gæti
það greitt niður allar skuldir sín-
ar á næstu 10-12 árum. Í um-
ræðunni hafa bæði ráðherra
málaflokksins og forstjóri
Landsvirkjunar lýst því yfir að
ekki komi til greina að niður-
greiða raforkuna eða setja sam-
eiginlegar orkuauðlindir á út-
sölu, þessu er ég sammála en
spyr hvar liggja hagnaðarmörk
Landsvirkjunar og hvað er að
frétta af kortlagningu á sam-
keppnisstöðu stóriðju með
áherslu á orkuverð
sem ferðamála-, iðn-
aðar- og nýsköp-
unarráðherra boðaði
að skilað yrði á vor-
mánuðum 2020?
Blikur á lofti
Fréttir um hugs-
anlega lokun álvers-
ins í Straumsvík ber
að taka alvarlega.
Hjá fyrirtækinu
starfa um 500 manns
auk fjölda starfa tengdra ál-
verinu, ætla má að um helmingur
starfsmanna álversins komi frá
Hafnarfirði. Viðskipti álversins
við fyrirtæki í Hafnarfirði voru
um 2 milljarðir á síðasta ári og
tekjur bæjarins vegna álversins
voru um 500 milljónir, þá eru
ekki taldar með útsvarstekjur
starfsmanna álversins eða starfs-
manna fyrirtækja tengdum ál-
verinu. Ekki þarf að fjölyrða um
áhrif lokunar álversins á alla þá
starfsmenn og fjölskyldur þeirra
sem reiða sig á öruggar tekjur
frá álverinu, á öll þau fyrirtæki
sem selja vörur og þjónustu til
álversins og á Hafnarfjarðarbæ
sem yrði af verulegum tekju-
missi. Ofan á þetta allt saman er-
um við í „fordæmalausum“ að-
stæðum vegna Covid-19. Ég geri
þá kröfu að ráðherrar og Lands-
virkjun finni ásættanlega lausn
með eigendum ÍSAL, Rio Tinto,
annað er ekki í boði.
Mikilvægi álversins
í Straumsvík
Eftir Ólaf Inga
Tómasson
»Ég geri þá kröfu að
ráðherrar og Lands-
virkjun finni ásættan-
lega lausn með eig-
endum ÍSAL, Rio Tinto,
annað er ekki í boði.
Ólafur Ingi Tómasson
Höfundur er bæjarfulltrúi (D)
í Hafnarfirði.
Fleiri og fleiri
velja bálför við and-
lát, fyrir því geta
verið nokkrar ástæð-
ur en hár kostnaður
hefur verið nefndur í
því sambandi. Á vef-
síðu Útfararstofu
kirkjugarðanna má
sjá dæmi um kostnað
við útfarir. Ef valin
er látlaus útför eða
bálför er kostnaðurinn um 292
þúsund krónur, bálför án athafnar
kostar um 181 þúsund krónur og
að endingu er tekið til dæmi um
hefðbundna útför og þá er kostn-
aðurinn við hana metinn um 595
þúsund krónur. Margir kjósa einn-
ig bálför vegna umhverfissjónar-
miða og að fólk vilji athöfnina lát-
lausa og bálför sé þá liður í þeirri
nálgun. Nú eru um 40% sem kjósa
bálfarir og hefur þeim fjölgað um-
talsvert á liðnum árum sem það
gera. Í umfjöllun Morgunblaðsins
frá 19. janúar 2019 má sjá að árið
2018 voru bálfarir 813 eða um
37,5% af tölu látinna það sama ár
og líkur leiddar að því að árið
2050 verði hlutfall bálfara orðið
um 70%. Bálstofan í
Fossvogi er eina bál-
stofan í landinu, starf-
semin í Fossvogi er
rekin á undanþágu,
bæði frá Vinnueftirlit-
inu og Heilbrigðiseft-
irlitinu. Sagt var frá
því í fjölmiðlum seint
á síðasta ári að hætta
væri á því að
brennsluofnarnir gætu
fallið saman enda eru
þeir rúmlega 70 ára
og brýn þörf á að end-
urnýja þá ef ekki á að
fara illa. Bent hefur verið á að það
stefni í algert óefni, viðvaranir
hafa verið gefnar en enn þá hefur
ekki verið brugðist við eða með
öðrum orðum: reynt hefur verið
að vekja athygli á alvarlegri stöðu
án árangurs. Getur verið að end-
irinn verði að aðstandendur verði
að flytja látinn ástvin til útlanda
til þess að uppfylla hinstu ósk við-
komandi?
Eins og staðan er núna stendur
bálför ekki öllum landsmönnum til
boða nema þá með ærnum flutn-
ingskostnaði og þess vegna kemur
það ekki á óvart að sjá í gögnum
að talsverður munur er á því eftir
búsetu hvort fólk velur hefð-
bundna útför eða bálför, fleiri bú-
settir á höfuðborgarsvæðinu kjósa
bálför. Það skal þó sagt að íbúar
landsbyggðar þurfa ekki að greiða
fyrir bálförina sjálfa en það breyt-
ir ekki því að eina bálstofa lands-
ins er í Reykjavík og það liggur
því töluverður aukakostnaður í því
að flytja kistu þangað annars stað-
ar frá af landinu. Það er í höndum
aðstandenda að flytja kistuna eða
fá annan aðila til þess. Ef kista fer
í flug frá Akureyri til Reykjavíkur
kostar það um 45 þúsund krónur
og svo bætist við kostnaður við
flutning frá flugvelli til líkhúss.
Stjórnvöld verða að hlusta á að-
varanir, setja verður upp við-
unandi og löglega aðstöðu til bálf-
ara á fleiri en einum stað á
landinu. Það þarf ekki allt suður.
Þarf allt suður?
Eftir Önnu
Kolbrúnu
Árnadóttur
Anna Kolbrún
Árnadóttir
» Getur verið að end-
irinn verði að að-
standendur verði að
flytja látinn ástvin til út-
landa til þess að upp-
fylla hinstu ósk viðkom-
andi?
Höfundur er þingmaður
Miðflokksins.
annakolbrun@althingi.is
VERTU NÁTTÚRULEGUR. VERTU ÞÚ SJÁLFUR.
LÁTTU KRAFTA CADE VERNDA HÚÐ ÞÍNA
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Í COVID-19-faraldrinum urðu
mörg hjúkrunarheimili landsins fyr-
ir verulegu tekjutapi. Mikil óvissa
ríkti í samfélaginu. Varúðarráðstaf-
anir við inntöku nýrra íbúa töfðu
inntökuferlið og margir þeir sem
gátu fengið pláss á hjúkrunarheimili
hinkruðu með að flytja inn vegna
óvissuástandsins. Sum hjúkrunar-
heimili tóku ekki inn
nýja heimilismenn til
að geta verið með til
staðar sérstaka ein-
ingu innan heimilisins
kæmi til smits meðal
heimilismanna og átti
þetta sérstaklega við
um þau heimili þar sem
hver heimilismaður
hefur ekki sína eigin
snyrtingu og/eða um
fjölbýli er að ræða á
heimilinu. Þessar ráð-
stafanir skiluðu
árangri á heims-
mælikvarða og ein-
göngu eitt hjúkrunar-
heimili af 42 hefur til
þessa fengið smit á
meðal heimilismanna.
Framangreint eins
og áður segir leiddi til
tekjulækkunar vegna
vannýtingar hjúkr-
unarrýma. Í fjárlögum
ársins hafði þó verið
gert ráð fyrir nýtingu
rýmanna og greiðslum frá Sjúkra-
tryggingum Íslands (SÍ) vegna
þeirra. Samtök fyrirtækja í velferð-
arþjónustu (SFV) hafa síðan í mars
sl. bent á þetta og farið þess á leit við
ráðamenn landsins að hjúkrunar-
heimilin fái greiddar þessar töpuðu
tekjur og komið verði þannig til
móts við rekstrarvanda heimilanna
sem var til kominn vegna þessarar
óvæntu veiru. Ekkert okkar sem
rekum þessi heimili gerði ráð fyrir
slíku tekjutapi af völdum veiru árið
2020. Lítil viðbrögð
bárust við þessari
beiðni okkar en SÍ
sendu svo loksins
tölvupóst hinn 15. júní
sl. og báðu um upp-
ýsingar um „meint
tekjutap hjúkrunar-
heimila af völdum CO-
VID-19“, svona eins og
við sem rekum þessi
heimili værum að
skálda þetta upp. Ekki
viðeigandi. Heimilin
voru beðin að senda
upplýsingarnar fyrir
23. júní, eða innan viku,
þannig að hægt væri að
„vinna málið hratt“
eins og kemur fram í
umræddum tölvupósti.
Síðan þá hefur ekkert
gerst í málinu. SÍ
greiða ekki út þessar
fjárhæðir þó að heimild
liggi fyrir í fjárlögum
þess efnis. Líklega þarf
þó heilbrigðisráðherra
að veita SÍ vilyrði fyrir slíkri út-
greiðslu og kannski liggur vandinn í
því. Í það minnsta blæða hjúkrunar-
heimilin fyrir slóðaskapinn eða er
það ef til vill ætlun yfirvalda að
koma þessum heimilum í enn frekari
fjárhagsleg vandræði en nú er og
reyna þannig að koma þeim undir
ríkisbáknið? Maður spyr sig?
COVID-19 íþyngir
hjúkrunarheimilum
Eftir Gísla Pál Pálsson
» Líklega þarf
þó heil-
brigðisráðherra
að veita SÍ vil-
yrði fyrir slíkri
útgreiðslu og
kannski liggur
vandinn í því.
Gísli Páll Pálsson
Höfundur er formaður Samtaka
fyrirtækja í velferðarþjónustu.
gisli@grund.is
Vantar þig
pípara?
FINNA.is