Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Mörkin 6 - 108 Rvk.
s:781-5100
Opið: Mán-fös: 11-18
Lau: 11-15
www.spennandi-fashion.is
2020
HAUST
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
SKOÐIÐ
NETVER
SLUN
LAXDAL
.IS
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
50-60%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST
VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Nýjar haustvörur streyma inn
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Við erum á facebook
20% aukaafsláttur
af allri útsöluvöru
Str. 36-56
„Á Norðurlandi hefur ekki verið
mikið af matsveppum að hafa fyrr
en allra síðustu daga, þá hefur
lerkisveppurinnn verið að spretta
upp,“ segir Guðríður Gyða Eyj-
ólfsdóttir, sveppafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun, og bætir við
að kúalubbinn sé einnig kominn
upp.
Þeir sem hyggi á sveppatínslu
verði að fara rólega af stað,
þekkja matsveppina og borða ekki
of mikið af þeim til að byrja með.
„Sumir einstaklingar geta ekki
þolað góða matsveppi. Það geta
alltaf komið ofnæmisviðbrögð eða
óþol, þannig að fólk fær illt í mag-
ann eða útbrot,“ segir hún.
Til að forðast slíkt er hægt að
skera í burtu þroskaðri helming
sveppsins, þar sem óhreinindi og
vatn kann að safnast fyrir.
„Þegar blaut ferskvara stendur
í náttúrunni þá safnast í hana
bakteríur. Ef annar helmingurinn
er ungur og hress en hinn orðinn
þroskaðri og mýkri er hægt að
skera í burtu skemmdir,“ segir
hún.
Einnig verður að þekkja eitraða
sveppi í sundur frá matsveppum:
„Þeir eru í graslendi og eru litl-
ir og ræfilslegir. Ein af þum-
alputtareglunum í sambandi við þá
er að maður á ekki að vera að éta
sveppi nema maður viti hvað
sveppurinn heiti og það sé góður
matsveppur,“ segir hún.
Dæmi um vinsælan matsvepp er
furusveppur, sem hefur slímuga
hatthúð sem hægt er að rífa af áð-
ur en verkun hefst.
„Hann er í miklu magni norðan-
og austanlands þegar hann sprett-
ur upp á annað borð,“ segir Guð-
ríður.
Að auki er kóngsveppur vinsæll
matsveppur en hann sprettur upp
síðsumars.
Sveppir þrífast vel í vætuviðri
og verður því úrkoma að verða svo
að sveppir geti vaxið vel og vand-
lega, til þess að safna forða og
koma aldinum í jarðveginn.
„Sveppirnir eru bara einhvers
staðar að dunda sér og lifa sínu
lífi, ef það eru góðar aðstæður þá
senda þeir upp aldin og þau fyllast
og standa í nokkra daga,“ segir
hún.
Um leið og jarðvegurinn frýs
líður sveppatíðin undir lok en mis-
jafnt er hvenær það gerist:
„Það getur allt eins verið frost-
laust fram í september,“ segir
Guðríður og gætu því hátt í 2
mánuðir verið eftir af sveppa-
tímabilinu. veronika@mbl.is
Ljósmynd/Hjálmar S. Brynjólfsson
Matsveppur Lerkisveppur er farinn að skjóta upp kollinum á Norðurlandi.
Matsveppir farn-
ir að spretta upp
Nauðsynlegt að þekkja tegundirnar
Guðni Th. Jó-
hannesson, for-
seti Íslands,
sendi í gær sam-
úðarkveðju til
Michel Aoun,
forseta Líb-
anons, í kjölfar
sprenging-
arinnar sem
varð í Beirút,
höfuðborg lands-
ins, á þriðjudag. Segir forsetinn
að hugur landsmanna sé nú hjá
þeim sem eiga um sárt að binda.
Hann minnti á að íslensk stjórn-
völd væru boðin og búin til að-
stoðar. Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri sendi sömuleiðis sam-
úðarkveðjur til Beirút, höfuð-
borgar Líbanons, vegna spreng-
inganna. Í bréfi sínu til
borgarstjórans Jamal Itani vottar
Dagur íbúum borgarinnar djúpa
samúð vegna harmleiksins.
Sendu samúðar-
kveðjur til Líbanon
Guðni Th.
Jóhannesson