Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 33

Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 33
Óþægindi í þvagfærum er eitthvaðsem margir þekkja en sýkingaf völdum þarmabaktería er lang algengasta orsök blöðrubólgu og þá sérstaklega hjá konum. Af hverju fáum við blöðrubólgu? Í daglegu tali er oftast talað um þvagfærasýkingar sem blöðrubólgu en ástæða þessara sýkinga er að bakteríur, sem oftast eru E. Coli bakteríur, komast í þvagið gegnum þvagrásarop og fara að fjölga sér í þvagblöðrunni. Þrátt fyrir að líkaminn sé þannig hannaður að hann ver okkur gegn flestum bakteríum, þá geta þessar varnir brugðist. Algengast er að við fáum sýkingu í neðri hluta þvagfæranna, þ.e.a.s. í þvagrás og blöðru en svo geta þær náð lengra upp og alveg upp í nýrun sem er orðið mun alvarlegra. Brunatilfinning og tíð þvaglát Þvagfærasýkingar geta verið einkennalausar en þegar svo er ekki geta einkennin verið:  Tíð þvaglátaþörf  Brunatilfinning við þvaglát  Erfitt að losa þvag, kemur í litlum bunum  Þvagið virðist skýjað/gruggugt  Litað þvag  Sterk lykt af þvagi  Verkir geta verið fyrir ofan lífbein Elísabet Jónsdóttir þekkir vel einkennin og hefur þessa sögu að segja af Bio Kult Pro Cyan. „Ég á mér langa sögu um óþægindi á blöðrusvæði. Ég hef marg oft fengið blöðru- bólgu og þvagfærasýkingu og oft þurft að taka inn sýklalyf. Ég fékk tvívegis sýkingu núna undir lok ársins 2019 og tók sýklalyf í bæði skiptin. Ég var þrátt fyrir það alltaf með óþægindi á blöðrusvæðinu, tilfinningu eins og ég væri alveg að fá aftur sýkingu og var eiginlega að bíða eftir að sýkingin kæmi aftur, því ég var svo aum í blöðrunni sjálfri og með verki á því svæði. Síðan ég fór að taka Bio-Kult Pro-Cyan og hef ég ekki fundið fyrir óþægindum síðan. Allt eðlilegt.“ Konur frekar en karlmenn Helstu ástæður þess að konur eru mun útsettari fyrir þvagfærasýkingum en karlar eru m.a.: Lífræðilegar: Styttri þvagrás en hjá karlmönnum og því styttra fyrir bakteríur að komast uppí þvagblöðruna og þvagrásarop þeirra liggur nálægt endaþarmsopinu. Kynhegðun: Konur sem eru kynferðislega virkar hafa meiri tilhneigingu en aðrar til að fá sýkingar. Nýjir bólfélagar geta líka aukið hættuna. Ákveðnar tegundir getnaðarvarna: Konur sem nota hettuna eru líklegri til að fá þvagfærasýkingu sem og konur sem nota sæðisdrepandi krem. Breytingaskeið: Eftir breytingarskeiðið dregur úr estrogenframleiðslu sem veldur breytingu á þvagfærum og gerir þau útsettari fyrir sýkingum. Forvarnir og meðhöndlun Þegar vægari þvagfærasýkingar (í neðri hluta þvagfæra) eru meðhöndlaðar í tíma, eru fylgikvillar litlir sem engir. Ýmislegt er hægt að gera til að minnka líkurnar á því að fá sýkingu í þvagfærin og koma hér nokkur ráð:  Drekka nægan vökva, helst vatn. Þannig verður þvaglosun tíðari sem veldur því að bakteríur skolast út áður en þær nálgast blöðruna.  Drekka trönuberjasafa. Þrátt fyrir að ekki séu til rannsóknir sem sýna að hann sé fyrirbyggjandi, getur hann ekki skaðað.  Kvenfólk ætti að þurrka sig í áttina frá þvagrásaropinu og aftur að endaþarmsopinu til að forðast að bakteríur frá endaþarminum fari í þvagrásina.  Hafa þvaglát strax eftir samfarir.  Forðast vörur sem hugsaðar eru fyrir kynfærin á kvenfólki t.d. svitalyktarsprey og mögulega sápur og önnur efni sem geta valdið ertingi.  Velja getnaðarvarnir af kostgæfni. Einkaleyfisvarið innihaldsefni í Bio-Kult Pro-Cyan Í Pro-Cyan eru 2 örverustofnar: L. acidophilus PXN 35 & L. plantarum PXN 47 og hefur reynslan sýnt að þeir séu verulega bakteríudrepandi og geti hamlað vöxt E. Coli og Enterococcus faecalis sem eru algengasta orsök þvagfærasýkinga. Cranmax® er einkaleyfisvarin vinnsluaðferð á trönuberjum þar sem tryggt er að öll virk efni trönuberjanna séu til staðar og einnig að þau lifi af ferðalagið gegnum meltingarveginn til að tryggja hámarks upptöku. Virka inni- haldsefnið PAC-A sem finnst eingöngu í trönuberjum hefur verið rannsakað frekar og benda niðurstöður til þess að inntaka á 36mg daglega geti dregið töluvert úr líkum á endurteknum sýkingum. Það er einnig góð vísbending um að stærri og frekari rannsókna sé þörf. Í Pro-Cyan erum 500 mg af Cranmax® sem inniheldur 36mg af PAC-A. A-vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfisins og viðhaldi eðlilegrar slímhúðar en heilbrigð slímhúð veitir vernd gegn utanaðkomandi bakteríum. Þessi þrí- virka blanda örverustofna, A-vítamíns og trönuberjaþykknis hefur reynst mörgum vel. Hvort sem um er að ræða sem fyrirbyggjandi meðferð eða gegn vægum sýkingum sem eru á byrjunarstigi. Pro-Cyan hentar sérstaklega vel fyrir ófrískar konur og mega börn einnig taka það en þá er mælt með hálfum skammti. Sölustaðir: Heilsuhillur verslana, apótek og heilsubúðir. Minni líkur á endurteknum sýkingum „Síðan ég fór að taka Bio Kult Pro Cyan hef ég ekki fundið óþægindum“ Elísabet Jónsdóttir, 51 ára. Beta Glucans IMMUNE SUPPORT+ FYRIR ÓNÆMISKERFIÐ Öflug blanda af vítamínum, jurtum og steinefnum sem styrkja og styðja við ónæmiskerfi líkamans Fæst í apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum verslana. Elísabet er himinlifandi með árangurinn sem hún hefur náðmeð inntöku á Bio- Kult Pro-Cyan.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.