Morgunblaðið - 06.08.2020, Síða 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 2020
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti.
Nánar á dyrabaer.is
HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ
50 ára Ólafía ólst upp í
Mosfellsbæ en býr í
Hafnarfirði. Hún er
hjúkrunarfræðingur í
Læknahúsinu. Ólafía er
heimsmeistari í sínum
aldursflokki í Spartan
Race, sem er utan-
vegahindrunarhlaup.
Maki: Friðleifur Friðleifsson, f. 1970, yfir-
maður sölu frystra afurða hjá hjá Iceland
Seafood.
Synir: Bjarki Þór, f. 1994, Fannar Óli, f.
1998, og Friðleifur Kristinn, f. 2001.
Foreldrar: Gunnar Kvaran, f. 1946,
harmonikkukennari og fv. sölumaður, og
Sigríður Þorvaldsdóttir Kvaran, f. 1946,
fv. skrifstofukona. Þau eru búsett í
Reykjavík.
Ólafía
Kvaran
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þetta er góður dagur til að ræða
málin í einlægni við vin. Einhver ný mann-
eskja kemur inn í líf þitt með mikinn lær-
dóm.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu sanngjarnari við sjálfan þig, en
þú ert. Gamlar deilur geta komið upp að
nýju á milli þín og maka þíns eða fyrrum
maki þinn skotið upp kollinum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Reyndu að nálgast verkefni þín í
vinnunni með skipulögðum hætti. Gagn-
legar umræður gera alla hluti framkvæm-
anlegri.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Til þín verður leitað með sérstök
verkefni og þú ættir að hafa svigrúm til
þess að taka þau að þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Dagurinn í dag er kjörinn til að takast
á við gamalt vandamál sem þér hefur ekki
tekist að leysa. Hins vegar á nú betur við
að hafa smá aga með öllu stuðinu.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þótt átök og óreiða sé allt í kring-
um þig máttu ekki láta neitt trufla áform
þín. Finndu út úr því hverju eða hverjum er
um að kenna.
23. sept. - 22. okt.
Vog Reynið ekki að breyta öðrum eða
segja þeim fyrir verkum. Hóaðu eftir liðs-
auka og gefðu skýr fyrirmæli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú freistast til þess að
skipta þér af annarra málefnum skaltu
ekki búast við því að geta sinnt eigin
skyldum á meðan.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vegna þess hve auðveldlega
þú heillar aðra skaltu ekki hika við að biðja
um greiða. Hlutirnir ganga vel og fólk
hugsar jákvætt um þig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Af litlum neista verður oft mikið
bál. Varaðu þig á að sýna yfirlæti, annað
fólk hefur líka lært ýmislegt.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Annað hvort þú eða vinur þinn
verður gagntekin af ákveðinni hugmynd.
Horfðu á hana úr fjarlægð svo þú eigir
betra með að átta þig á næstu skrefum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það getur haft örlagaríkar afleið-
ingar að skipta sér af málum sem ekki eru
á manns færi. Sambönd og leynileg ástar-
sambönd sem þróast nú verða minnis-
stæð og eiga eftir að hafa mikil áhrif.
nokkuð virk þar, ég gerðist Zonta-
kona eftir að ég flutti í borgina og
hef séð um æskulýðsstarf Rótarý-
hreyfingarinnar á Íslandi í mörg ár.
Enn fremur hef ég tekið þátt í stjórn
Vöruhúss tækifæranna, sem er eitt
af verkefnum U3A, en það er háskóli
þriðja aldursskeiðsins.
Nú er ég svo lánsöm að vera kom-
hverju sinni. Ég var með í að reka
Jónshús í Kaupmannahöfn eitt árið
og var í stjórn þess húss um tíma.
Ég var með í Emblum og Lions í
Stykkishólmi, gekk í Rótarýhreyf-
inguna 1995 á meðan ég bjó í Vest-
mannaeyjum og er ennþá virk þar.
Ég tók þátt í Félagi kvenna í at-
vinnulífinu frá upphafi og er enn
H
anna María Siggeirs-
dóttir er fædd 6. ágúst
1950 á Sólvallagötunni
í Reykjavík og ólst
þar upp til átta ára
aldurs.
„Ég byrjaði þess vegna í Melaskóla
einn vetur, en þá flutti fjölskyldan inn
á Austurbrún og ég fór í Langholts-
skóla til 14 ára aldurs.“ Þaðan fór
Hanna María í Vogaskóla í einn vetur
og tók landspróf. Hún fór síðan í
Menntaskólann við Hamrahlíð, var í
fyrsta árganginum sem fór í gegnum
þann skóla og var stúdent 1970. Hún
var síðan í lyfjafræði við Háskóla Ís-
lands í tvo vetur og fór þaðan áfram í
lyfjafræðinám við Danmarks farma-
ceutiske höjskole þaðan sem hún út-
skrifaðist sem kandidat í lyfjafræði.
„Í barnæsku minni vorum við öll
sumur frá því að skóla lauk á vorin
og þar til hann byrjaði aftur á
haustin í „Skála“, sumarbústað fjöl-
skyldunnar við Elliðavatn þangað
til ég fór að vinna 15 ára í mjólk-
urbúð við að pakka inn skyri og af-
greiða mjólk á brúsa. Síðan vann ég
í Útvegsbankanum nokkur sumur á
meðan ég var í menntaskóla og svo í
apótekum meðan ég var í lyfja-
fræðináminu hér heima, áður en ég
fór til Kaupmannahafnar í lyfja-
fræðinámið þar.“
Eftir að Hanna María kláraði
lyfjafræðinámið starfaði hún sem
lyfjafræðingur í Norðurbæjar-
apóteki í Hafnarfirði og Holts-
apóteki, ásamt því að kenna ýmis
lyfjafræðifög við Hjúkrunarskóla
Íslands, Lyfjatæknaskóla Íslands
og Háskóla Íslands þangað til hún
gerðist apótekari í Stykkishólms
Apóteki áramótin 1985/1986. Hún
var þar til áramóta 1994/1995 en
gerðist þá apótekari í Apóteki Vest-
mannaeyja til 2006 að fjölskyldan
flutti aftur til Reykjavíkur. Hanna
María var apótekari í Laugarnes
Apóteki, sem hún flutti svo í
Borgartún 28 og kallaði Lyfjaborg.
Hún hætti apóteksrekstri 2013 og
fór eftir það að sinna ýmsum tóm-
stunda og félagsstörfum.
„Ég hef alltaf verið mjög félags-
lynd og tekið mikinn þátt í félags-
lífinu á þeim stað sem ég hef búið
in í fullt starf að skemmta mér og
geri bara það sem mér finnst gaman
og er það ekki leiðinleg afþreying
fyrir félagslynda og ágætlega virka
konu. Ég hef alltaf haldið stórar
veislur á stórum afmælisdögum, en
það verður ekki í ár vegna covid og
verð ég að heiman með fjölskyldu
minni.“
Hanna María Siggeirsdóttir lyfjafræðingur – 70 ára
Hjónin Erlendur og Hanna María á ráðstefnu æskulýðsfulltrúa Rótarýhreyfingarinnar í Suður-Afríku 2010.
Í fullu starfi við að skemmta sér
Í Stykkishólms Apóteki Hanna María, sem er lengst til vinstri, ásamt
starfsfólki sínu á 150 ára afmæli apóteksins árið 1988.
Með barnabörnunum Á leiðinni í
Húsdýragarðinn
Í dag, þann 6. ágúst, eiga hjónin Bára
Böðvarsdóttir og Friðrik Hróbjarts-
son sextíu ára brúðkaupsafmæli.
Árnað heilla
Demantsbrúðkaup
40 ára Ívar er Reyk-
víkingur, ólst upp í
Vesturbænum og býr í
Grafarvogi. Hann er
kvikmyndagerðar-
maður og rekur fyrir-
tækið KÍKÍ. Ívar var að
klára að vinna sjón-
varpsþættina Vegferð sem eru í leik-
stjórn Baldvins Z með Ólafi Darra Ólafs-
syni og Víkingi Kristjánssyni í aðal-
hlutverkum.
Maki: Gerður Erla Tómasdóttir, f. 1988,
myndlistarmaður.
Sonur: Tristan Stígur, f. 2015.
Foreldrar: Ívar Guðmundsson, f. 1952,
endurskoðandi, og Kristín Kristjánsdóttir,
f. 1952, hárgreiðslumeistari. Þau eru bú-
sett í Reykjavík.
Ívar Kristján
Ívarsson
Til hamingju með daginn