Morgunblaðið - 06.08.2020, Side 56
MÁNUDAGINN
10. ÁGÚST
ALLT AÐ
50%
AF VÖLDUM
VÖRUM
Útsölulok
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
Fernir hádegistónleikar verða haldnir í Fríkirkjunni í
Reykjavík nú í ágústmánuði á fimmtudögum. Upp-
haflega stóð til að halda þá í vor en þeim var frestað
vegna kófsins. Þótt fjöldatakmarkanir hafi aftur verið
hertar verða tónleikarnir haldnir og þess gætt að
tveggja metra bil sé á milli gesta og hægt verður að
spritta hendur við innganginn. Auður Gunnarsdóttir
sópran og Lilja Eggertsdóttir píanóleikari ríða á vaðið í
dag og flytja lög úr leikhúsi. Tónleikarnir hefjast kl. 12
og verða um 30 mínútur að lengd. Aðgangseyrir er
1.500 kr. og er ekki tekið við greiðslukortum.
Auður og Lilja flytja lög úr leikhúsi
FIMMTUDAGUR 6. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Tímamót verða hjá Mosfellingum í dag en þeir eru nú í
fyrsta skipti gestgjafar Íslandsmótsins í golfi. Fyrsti
keppnisdagur af fjórum á Hlíðarvelli er í dag. Mótið er
vel mannað og meðalforgjöf keppenda er 0,4 sem gefur
vissa mynd af getu kylfinganna. Vegna vinsælda íþrótt-
arinnar á þessari öld er orðinn viss áfangi hjá meist-
araflokkskylfingum að komast inn í Íslandsmótið. Ís-
landsmeistarinn Guðrún Brá er líkleg til að berjast um
sigur við Ólafíu Þórunni. Íslandsmeistarinn í karla-
flokki, Guðmundur Ágúst, er hins vegar ekki með. »47
Tímamót hjá Mosfellingum
sem eru gestgjafar Íslandsmótsins
ÍÞRÓTTIR MENNING
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Við erum vonsviknir yfir því að geta ekki mætt, ekki
síst vegna þess að Ísland er sú eyja sem er í næstmestu
uppáhaldi hjá okkur,“ sögðu bresku myndlistarmenn-
irnir kunnu Gilbert & George þegar blaðamaður heim-
sótti þá í London í vikunni. Sú eyja sem er í mestu
uppáhaldi hjá þeim er heimalandið, Bretland, en þeir
höfðu lagt mikla alúð í að hanna módelið að sýningunni
í Hafnarhúsinu sem þeir sitja hér við en sýningin er í
mörgum sölum og á henni fjölmörg og gríðarstór verk.
Veirufaraldurinn veldur því að Gilbert & George
verða að sitja heima og ná ekki að hitta gesti í Hafnar-
húsinu. Í rúma hálfa öld hafa þeir verið meðal kunn-
ustu og umtöluðustu listamanna Breta, yfirlýstir
íhaldsmenn og guðleysingjar, en við upphaf ferilsins
breyttu þeir lífi sínu í samfelldan gjörning.
Þrátt fyrir að þurfa nú í fyrsta skipti síðan þeir
kynntust að borða heima hjá sér og margt hafi breyst
hafa þeir ekki setið auðum höndum í einangrun.
„Ástandið hefur ekki breytt því hvernig við
vinnum, við höfum skapað 85 ný verk,“ sögðu þeir
spenntir. „Við höfðum lokið við að hanna verkin þegar
veiran skall á, gáfum myndröðinni heiti strax í janúar
og köllum The New Normal Pictures. Og þremur vik-
um síðar fengu verkin – og heitið – alveg nýja merk-
ingu með veirunni.
Við vorum fyrstir með þetta! Myndirnar eru allar
um veiruna en urðu til á undan henni.“ »48
Myndirnar allar um veiruna
en urðu til á undan henni
Morgunblaðið/Einar Falur
Sýning á verkum Gilberts & George opnuð í Listasafni Reykjavíkur í dag