Morgunblaðið - 12.08.2020, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 2. Á G Ú S T 2 0 2 0
Stofnað 1913 188. tölublað 108. árgangur
HÆKKUN GULL-
VERÐS FARIN
AÐ BIRTAST SÆÞOTUR VINSÆLAR
Á́HRIFARÍK OG
GRÍPANDI SAGA
COETZEE
ALDREI JAFN MIKIÐ AÐ GERA 10 NÓBELSHÖFUNDUR 28VIÐSKIPTAMOGGINN
Vefverslunin Heimkaup.is átti fullt í fangi með að
anna eftirspurn þegar samkomubann tók gildi í far-
aldrinum í mars. Salan jókst aftur þegar veiran fór af
stað á ný.
Heimkaup hafa jafnt og þétt aukið framboðið af
matvöru. Nú síðast með sölu á tilbúnum réttum frá
PreppUp.is. Guðmundur Magnason, framkvæmdastjóri
Heimkaupa, segir í ítarlegu viðtali við ViðskiptaMogg-
ann að afhendingarstöðum verði fjölgað í haust í sam-
starfi við Orkuna og Póstinn. Það skapi Heimkaupum
sérstöðu að geta viðhaft strangari sóttvarnir en hefð-
bundnar búðir.
Heimkaup sækja fram í matvörunni
Guðmundur
Magnason
Fulltrúar verkefnisins Stafrænt Ísland áætla að inn-
leiðing stafrænnar tækni við þinglýsingar muni spara
1,2-1,7 milljarða á hverju ári. Við það bætist sparnaður
vegna minni vaxtamunar, ferðalaga og fleiri þátta.
Fram kom í Morgunblaðinu í síðustu viku að það væri
að jafnaði þriggja vikna bið eftir þinglýsingu lána hjá
sýslumanni. Getur endurfjármögnun tekið allt að 8 vik-
ur.
Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá
Stafrænu Íslandi, segir í samtali við ViðskiptaMoggann
áformað að hægt verði að þinglýsa nýjum íbúðalánum
stafrænt fyrir árslok.
Stafræn þinglýsing sparar milljarða
Andri Heiðar
Kristinsson
Íbúar á Suður- og Vesturlandi hafa upplifað
mikla vætutíð í upphafi ágústmánaðar og hafa
sólskinsstundir í Reykjavík fyrstu tíu daga
ágústmánaðar ekki verið færri í 104 ár. Sólskins-
stundirnar voru aðeins 12,1 talsins í borginni
þetta árið. Þær hafa einungis einu sinni verið
færri fyrstu tíu daga ágústmánaðar en það var
árið 1916. Spár gera ráð fyrir að borgarbúar
verði áfram að sætta sig við rigninguna. » 12
Morgunblaðið/Eggert
Sólskinsstundir hafa ekki verið færri síðan 1916
Það hugnast Þórólfi Guðnasyni sótt-
varnalækni best að allir sem hingað
til lands komi fari í skimun á landa-
mærunum, 4-6 daga sóttkví og síðar
aðra skimun. Hann telur að ekki sé
ástæða til að herða á sóttvarna-
aðgerðum innanlands eins og er.
Þetta kom fram á upplýsingafundi
almannavarna í gær.
Þórólfur sagði þó að það væri dýrt
að láta alla fara í tvær sýnatökur en
Íslendingar sem koma frá áhættu-
svæðum hafa þurft að fara í tvær
sýnatökur og 4-6 daga sóttkví þeirra
á milli síðan í síðasta mánuði.
Þórólfur skilaði minnisblaði til
Svandísar Svavarsdóttur heilbrigð-
isráðherra í gær þar sem hann lagði
fram nokkrar tillögur um það hvern-
ig sóttvarnareglum geti verið háttað
næstu vikur og mánuði. Þær reglur
sem nú eru í gildi renna út á morg-
un, 13. ágúst. »4
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veira Þórólfur vill fleiri skimanir.
Ástæðulaust
að herða
25 fjölmiðlaveitur sóttu um sér-
stakan rekstrarstuðning vegna
kórónuveirufaraldursins til fjöl-
miðlanefndar en umsóknarfrestur
rann út sl. föstudag. 400 milljónir
verða til úthlutunar en á þessari
stundu er ekki hægt að gefa upp-
lýsingar um þær upphæðir sem sótt
er um, að sögn Elfu Ýrar Gylfadótt-
ur, framkvæmdastjóra fjölmiðla-
nefndar, sem segir að nefndin sé nú
að fara yfir umsóknirnar. »10
25 miðlar vilja styrki
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Icelandair Group hefur undirritað
samninga við alla kröfuhafa sína og
um leið náð samkomulagi við banda-
ríska flugvélaframleiðandann Boeing
um bætur vegna langvarandi kyrr-
setningar Boeing 737-MAX-véla fé-
lagsins. Þetta tilkynnti félagið í
gegnum Kauphöll Íslands á ellefta
tímanum í gærkvöldi. Sleitulaus
vinna starfsfólks félagsins hefur því
fært félagið nær hlutafjárútboði sem
ætlunin er að ráðast í á næstu dög-
um. Það mun ráða örlögum félagsins
sem mun þurfa að afla um 30 millj-
arða króna í formi nýs hlutafjár.
Stærstu kröfuhafar Icelandair eru
íslensku viðskiptabankarnir Lands-
bankinn og Íslandsbanki ásamt CIT-
bankanum bandaríska. Samkvæmt
tilkynningu Icelandair mun sam-
komulagið við kröfuhafana fela í sér
skilmálabreytingar sem taki mið af
breyttum forsendum varðandi af-
borganir lána og væntu sjóðstreymi
frá rekstri.
Samkomulagið við Boeing mun
fela í sér að flugvélaframleiðandinn
greiði Icelandair frekari bætur fyrir
„stóran hluta þess tjóns sem félagið
hefur orðið fyrir vegna kyrrsetning-
ar MAX-vélanna“ eins og það er orð-
að. Tilgreint er að þær verði greiddar
út að mestu fyrir lok júnímánaðar á
næsta ári. Ekki er gefið upp hver
bótafjárhæðin er en að teknu tilliti til
þeirra bóta sem Boeing hafði þá þeg-
ar fallist á að greiða félaginu mat fé-
lagið tjón sitt að minnsta kosti 135
milljónir dollara í september í fyrra,
jafnvirði 18,5 milljarða króna á nú-
verandi gengi. Auk bótagreiðslunnar
losnar Icelandair undan skyldu til að
kaupa fjórar af þeim sextán MAX-
vélum sem samið var um kaup á fyrir
sex árum. Þá er einnig gert ráð fyrir
að þær sex vélar sem félagið á enn
eftir að fá afhentar muni komast í
hendur félagsins á öðrum fjórðungi
næsta árs og fram á fyrsta ársfjórð-
ung 2022.
Í enskri tilkynningu Icelandair
Group í tilefni samkomulagsins segir
að MAX-vélarnar verði áfram mik-
ilvægur hluti af flota Icelandair. Þess
er ekki getið í íslensku tilkynning-
unni en þar er hins vegar tilgreint að
samkomulagið við Boeing styrki
lausafjárstöðu Icelandair og auki
sveigjanleika þess þegar kemur að
skipulagi flotamála á næstu árum.
Bogi Nils Bogason segir að starfsfólk
Icelandair hafi unnið þrekvirki með
þeim samningum sem nú hafi náðst
og að „mikill áfangasigur hafi náðst“
og skili því að félagið sé nú á lokastigi
endurskipulagningar sinnar.
„Þessi vinna mun án efa styrkja
það fjárfestingartækifæri sem við
munum bjóða í komandi hlutafjárút-
boði sem og rekstrargrundvöll fé-
lagsins til framtíðar,“ segir Bogi Nils
í tilkynningu til Kauphallarinnar.
Samningar við kröfuhafa Ice-
landair eru eftir sem áður bundnir
skilyrði um að hlutafjárútboðið skili
tilætluðum árangri. Þá mun Ice-
landair ekki hefja útboðsferlið fyrr
en búið verður að tryggja lánalínu frá
ríkissjóði í samstarfi við Íslands-
banka og Landsbankann. Segir fé-
lagið að þær viðræður séu á lokastigi.
Í ViðskiptaMogganum í dag er
fjallað um þær viðræður en heimildir
blaðsins herma að þreifingar séu
uppi um að slík ríkisábyrgð muni ná
til allt að 20 milljarða lánalínu til
handa félaginu.
Icelandair og Boeing semja
Flugfélagið nær samkomulagi við alla kröfuhafa sína Færist nær hlutafjárútboði sem ýtt verður úr
vör á næstu dögum Losnar undan kaupum á fjórum MAX-vélum Leitar eftir ríkisábyrgð á risaláni