Morgunblaðið - 12.08.2020, Side 6

Morgunblaðið - 12.08.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 ÞÚ ÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA www.alver.is S: 896 4040 LauraStar á Íslandi LauraStar Lift Létt og meðfærilegt Straujar – gufar – hreinsar Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Auðvitað litast framhaldið af óvissu. Við erum enn að bíða eftir upplýsing- um um það hvernig kennslu og námi verður háttað í vetur,“ segir Isabel Alejandra Diaz, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Þótt mikil fjölgun umsókna hafi ver- ið um nám í háskólum hér á landi bíða margir í óvissu um það hvað veturinn ber í skauti sér. Enn liggur ekki fyrir hvort hægt verður að halda úti hefð- bundinni kennslu eða hvort notast þarf við rafrænar lausnir eins og gert var í vor. „Öll þessi óvissa er kvíðavaldandi fyrir suma. Það voru margir í sumar sem sáu ekki fyrir sér að fara aftur í nám, til að mynda fjölskyldufólk. Nú er fólk þreytt eftir sumarið og það get- ur verið erfitt fyrir einhverja að kom- ast aftur af stað í námi,“ segir Isabel. Hún segir að þegar fyrirkomulag kennslu liggi fyrir væri ráð að kanna hug stúdenta. Það var gert í vor, bæði hjá HÍ og eins meðal allra háskóla- nema í samvinnu við Landssamtök ís- lenskra stúdenta og mennta- og menn- ingarmálaráðuneytið. „Núna vitum við ekki stöðuna á fólki. Það eru að klárast þessi sumarstörf sem buðust og eftir það þarf að meta stöðuna upp á nýtt. Við höfum verið að fá margar fyrir- spurnir, til að mynda um Menntasjóð námsmanna. Það eru ótrúlega margir stúdentar sem vinna með námi og fólk er mikið að spyrja og velta þessu fyrir sér.“ Isabel situr í neyðarstjórn Háskóla Íslands vegna kórónuveirufaraldurs- ins og hún segir það verðmætt fyrir stúdenta að hafa aðkomu að skipulagi þeirra mála. „Stúdentar hafa verið fremur sáttir við viðbrögð Háskólans í gegnum allt þetta ástand, til að mynda það að fresta skrásetningargjaldinu.“ Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna, áður LÍN, segir að þessa dagana sé tekið á móti umsóknum um námslán fyrir haustönn. Umsóknar- frestur rennur út um næstu mánaða- mót. „Við erum því ekki komin með endanlegar tölur um fjölda umsókna en við búumst við fjölgun frá því í fyrra. Bæði er það vegna fjölgunar í háskólum en einnig vegna þess að námsmenn hafa minna aðgengi að vinnu með skóla nú en áður.“ Fyrirkomulag námslána er breytt frá fyrri tíð og nú geta námsmenn fengið lánin greidd út mánaðarlega í stað þess að allt sé greitt í lok annar. Fyrsta greiðsla verður 1. október og af þeim sökum var umsóknarfresti flýtt. Hrafnhildur segir að námsmenn hafi tekið seinna við sér en búist hafi verið við. „Það helst í hendur við ástandið og óvissuna. Fólk er kannski ekki búið að átta sig á þessu nýja fyrirkomulagi. Við sjáum hvernig þetta gengur.“ Hún bendir á að mikil óvissa sé um hvernig kennslu verði háttað og það bætist ofan á álag sem hljóti að skap- ast við þá gríðarlegu fjölgun umsókna um skólavist í vetur. „Ég veit ekki hvort háskólarnir hafa þurft að vísa fólki frá eða hvernig þeir tóku á þessu.“ Um 1.500 Íslendingar stunda að jafnaði nám erlendis og ljóst er að ein- hverjir munu heltast úr lestinni næsta vetur vegna veirufaraldursins. „Við greinum töluverða fækkun um náms- lán vegna náms erlendis,“ segir Hrafnhildur. Óvissan leggst þungt á námsmenn  Óljóst hvernig kennslu í háskólum verður háttað  Breytt fyrirkomulag námslána  Færri út í nám Hrafnhildur Ásta Þorvaldsdóttir Isabel Alejandra Diaz Karlmaður á sjötugsaldri sem setið hefur í gæsluvarðhaldi vegna brun- ans á Bræðraborgarstíg í júlí, þar sem þrír létust, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna eða til 8. september næstkomandi. Gæsluvarðhaldsins var óskað á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Varðhald vegna bruna framlengt Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Bruni Fjöldi fólks missti heimili sín í brun- anum á Bræðraborgarstíg í júlímánuði. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Útgerðarfélagið Samherji birti í gærmorgun heimildarþátt um Seðla- bankamálið svokallaða. Nær umrætt mál til ásakana sem fram komu í þætti Kastljóss á RÚV árið 2012. Voru stjórnendur Samherja þar sak- aðir um að hafa selt karfa á undir- verði til eigin dótturfélags erlendis og þannig brjóta þágildandi gjaldeyr- islög. Málinu lauk í lok árs 2018 með niðurfellingu 15 milljóna kr. sektar, sem Seðlabankinn hafði áður lagt á. Sagður hafa átt við gögn Í þætti Samherja er farið ítarlega ofan í saumana á málinu og er ljósi varpað á þátttöku fjölmiðlamannsins Helga Seljan í málinu. Í þættinum kemur fram að rannsókn Seðlabank- ans hafi verið framkvæmd eftir að Helgi veitti bankanum aðgang að skjölum frá Verðlagsstofu skipta- verðs sem bentu til þess að ásakanir á hendur Samherja væru réttar. Í kjölfarið var framkvæmd húsleit hjá Samherja. Í heimildarþættinum kemur þó fram að framangreind skýrsla hafi ekki verið gerð af Verð- lagsstofu skiptaverðs auk þess sem því er velt upp hvort Helgi hafi átt við gögn. Í þættinum er sömuleiðis birt leynileg upptaka þar sem Helgi við- urkennir að gögnin hafi verið þannig að „hann væri búinn að þurfa að eiga við skýrsluna“. Í svörum sem Sam- herja hafa borist frá Verðlagsstofu skiptaverðs kemur fram að stofnunin hafi aldrei gert skýrslu af því tagi sem Helgi er sagður vísa til. „Það er allt sem bendir til þess að Helgi hafi ekki haft nokkurn skap- aðan hlut í höndunum þegar hann hóf, má segja, málarekstur sinn gagnvart Samherja 2012,“ er haft eftir Jóni Óttari Ólafssyni, doktor í af- brotafræði og fyrrverandi rannsókn- arlögreglumanni, í þættinum. Í kjölfar birtingar þáttarins birti Jón Óttar grein þar sem hann út- skýrði málið frekar. „Því miður bend- ir margt til þess að fjölmiðlastjarna Helga Seljan hafi risið á grunni óheið- arlegra vinnubragða og jafnvel blekk- inga. Það er nauðsynlegt að almenn- ingur viti hvernig hann starfar.“ Í svipaðan streng tók Garðar Gísla- son, hæstaréttarlögmaður og fyrrver- andi varaskattrannsóknarstjóri, í heimildarþættinum. Sagði hann að aðferðir Helga kynnu að vera refsi- verðar. „Ef það reynist rétt að Helgi Seljan hafi átt við einhver gögn eða einhverjar skýrslur er það auðvitað grafalvarlegur hlutur. Ef hann er að fara með slíkt skjal á fund stjórnvalds sem hefur valdheimildir og er að bera aðila sökum að hafa framið refsiverð- an verknað, þá er hann sjálfur að fremja refsiverðan verknað,“ sagði Garðar. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, sagði í gær að vel kæmi til greina að kæra í málinu. Hafna ásökunum Samherja Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona og Helgi Seljan sendu frá sér sameig- inlega yfirlýsingu í gær. Þar stað- hæfa þau að ekkert sé hæft í ásök- unum Samherja. Þá sé fyrirtækið með framferði sínu að „sverta mann- orð öflugasta rannsóknarblaða- manns landsins“. Þannig sé Samherji jafnframt að reyna að bægja athygli frá því að forstjóri Samherja sé með stöðu grunaðs manns í sakamáli tengdu starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Þá hafnar Helgi ásökunum um að hafa átt við eða falsað gögn. Auk þess hafi orð hans í leynilegri upptöku verið tekin úr samhengi. „Sundur- klippt ummæli um að átt hafi verið við skjalið vísa eingöngu til þess að áður en það var birt voru persónu- greinanlegar upplýsingar, sem hefðu getað vísað á heimildarmann, afmáð- ar af því. Það að snúið sé út úr því með þeim hætti sem gert er, segir alla söguna um raunverulegan til- gang þessarar myndbandagerðar Þorsteins Más og félaga,“ segir í til- kynningunni. Ríkisútvarpið sendi sömuleiðis út stuðningsyfirlýsingu við Helga í gær. Var ásökunum Samherja þar hafnað. „Kerfisbundin atlaga gegn frétta- miðlum til að verjast gagnrýninni umfjöllun er ekki ný af nálinni en sú aðferð sem Samherji beitir nú geng- ur mun lengra en þekkst hefur hér á landi. Það er umhugsunarvert,“ er meðal þess sem þar kom fram. Gagnrýna umfjöllun Samherja Yfirlýsing Félags fréttamanna var á svipaða leið þar sem ásökunum Samherja var einnig hafnað. Þar sagði meðal annars: „Stjórn Félags fréttamanna gagnrýnir harðlega að stórfyrirtækið Samherji skuli veitast að persónu Helga Seljan frétta- manns með ómaklegum hætti. Myndband fyrirtækisins, sem birt var í dag, virðist hafa verið unnið til þess eins að vekja efasemdir um rétt- mæta umfjöllun fjölmiðla um málefni fyrirtækisins. Það er áhyggjuefni að forsvarsmenn stórfyrirtækja, sem fjölmiðlar fjalla eðlilega um, skuli velja að reyna að gera einstaka fjöl- miðlamenn tortryggilega í stað þess að svara efnislega þeim atriðum sem fram hafa komið í umfjöllun fjölmiðla um starfsemi fyrirtækisins.“ Þegar blaðamaður leitaði eftir frekari viðbrögðum frá Helga sagð- ist hann ekki vilja tjá sig. Hann ræddi málið þó í kvöldfrétt- um Stöðvar tvö í gær þar sem hann ítrekaði að gögn hafi ekki verið föls- uð heldur hafi verið átt við þau til að afmá persónugreinanlegar upplýs- ingar sem hefðu getað vísað á heim- ildamenn hans. Segja umfjöllun byggða á sandi  Helgi Seljan sakaður um að hafa birt umfjöllun án raunverulegra gagna  Samherji skoðar hvort kæra eigi  Segja Helga hafa átt við gögn  RÚV styður Helga  Ásökunum fyrirtækisins hafnað Morgunblaðið/Sigurður Bogi Samherji Fyrirtækið ber Helga þungum sökum í nýjum heimildarþætti. Þar er hann sakaður um að hafa birt umfjöllun án raunverulegra gagna. Helgi Seljan Jón Óttar Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.