Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 12

Morgunblaðið - 12.08.2020, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Forsetakosn-ingar fórufram í Hvíta-Rússlandi á sunnudaginn, en þar hefur Aleks- ander Lúkasjenkó farið með völd frá árinu 1994 og stýrt landinu með harðri hendi. Hefur Lúkasjenkó raunar verið kallaður „síðasti harðstjórinn í Evrópu“ fyrir fantatök sín á Hvíta-Rúss- landi, og það kom því fáum á óvart, þegar opinberar tölur kjörstjórnar í Hvíta-Rúss- landi sögðu að hann hefði hlotið um 80% gildra at- kvæða, en helsti andstæð- ingur hans, andófskonan Svi- atlana Tsikhanouskaya, einungis innan við 10%. Lúkasjenkó er raunar van- ur því að vinna stóra „kosn- ingasigra“, því að hann hefur aldrei fengið undir 75% þeirra atkvæða sem talin hafa verið. Þar hefur hjálpað til að Lúkasjenkó sér alfarið um að útvega þá sem telja at- kvæðin, auk þess sem öllu valdi ríkisins er beitt til þess að tryggja að þeir sem yfir- höfuð fari á kjörstað kjósi „rétt“. Þá hefur yfirkjör- stjórn landsins afþakkað allt erlent eftirlit með kosningum í landinu, enda þykir það nánast vera tillitsleysi við eftirlitsmennina að kalla þá til þegar niðurstaðan liggur ljós fyrir jafnvel áður en kjörstaðir eru opnaðir. Að þessu sinni virðist þó sem Lúkasjenkó hafi gengið fulllangt í þeirri viðleitni sinni að halda völdum, þar sem ekki leið langur tími frá fyrstu tölum þar til óánægðir kjósendur, sem töldu sig greinilega hafa kosið eitthvað annað, þustu út á götur höfuðborgarinnar Minsk til þess að mótmæla niðurstöð- unni. Mótmælendur byggja vita- skuld á því að forsetinn hafi alls ekki þann stuðning sem yfirkjörstjórn segir. Því er haldið fram að þar sem hægt hafi verið að kanna raunveru- leg úrslit út frá gögnum frá um eitt hundrað kjörstöðum, og að auki út frá útgöngu- könnunum, hafi komið í ljós að helsti keppinautur forset- ans hafi fengið mun meira en opinberar tölur gefi til kynna og meira að segja haft betur á fjölda kjörstaða. Um þetta verður aldrei hægt að fullyrða með neinni vissu, en slíkar vísbendingar, ásamt ýmsu öðru í fram- göngu forsetans, til dæmis þeirri staðreynd að mótframbjóð- endur hans lenda gjarnan illa í því og enda meðal annars í fangelsi, eru til þess falln- ar að valda ólgu meðal al- mennings og vekja efasemdir jafnt innanlands sem utan. Og sú staðreynd að helsti mótframbjóðandinn að þessu sinni hefur nú flúið land eftir að hafa lesið upp hvatningu til mótmælenda um að láta af mótmælunum, sem náinn samstarfsmaður hennar seg- ir að hafi verið tekið upp und- ir þrýstingi frá yfirvöldum, er ekki til þess fallin að auka traust á forsetanum. Mótmælin sem nú standa yfir eru kennd við inniskó, þar sem andstæðingar Lúk- asjenkós hafa gefið honum viðurnefnið „kakkalakkinn“, og hafa þau þegar verið borin saman við „litabyltingar“ sem orðið hafa í öðrum fyrr- verandi Sovétlýðveldum. Eru það þó einkum vestrænir stjórnmálaskýrendur sem gera þann samanburð, en óvíst er að Lúkasjenkó, sem hefur sýnt að hann er ekki feiminn við að láta hart mæta hörðu neyðist hann til þess, láti beygja sig með götumót- mælum. Engu að síður þykj- ast menn sjá, að í þetta sinn gætu dagar Lúkasjenkós á valdastóli verið taldir, slík er ólgan. Vandinn við þá framtíð- arspá er hins vegar meðal annars sá, að rússnesk stjórnvöld hafa eðlilega mik- inn áhuga á því hvernig mál- um vindur fram í Hvíta- Rússlandi. Á síðustu árum hefur Vladimír Pútín Rúss- landsforseti ýtt mjög á nán- ara samstarf ríkjanna, en þau eiga í orði kveðnu nú þegar að vera hluti af ríkja- samsteypu. Lúkasjenkó hef- ur hins vegar reynst bæði fremur tregur í taumi og um leið óútreiknanlegur fyrir Rússa hin síðari árin. Það eitt og sér gæti leitt til þess að Pútín myndi setja kíkinn fyrir blinda augað meðan Lúkasjenkó yrði steypt af stóli. Enginn skyldi þó ímynda sér að Rússar muni sitja hjá og leyfa öflum sem þeir telja sér óvinveitt að ná völdum í Hvíta- Rússlandi, ekki frekar en í Úkraínu. Allar vonir um að mótmælin nú geti haft í för með sér einhvers konar um- bætur í lýðræðisátt eru því líklega reistar á sandi. Mótmæli síðustu daga vekja vonir, sem gætu brostið auðveldlega} Fall „síðasta harð- stjórans í Evrópu“? M örgum er mikið niðri fyrir vegna myndbands Samherja hf. þar sem aðför Seðlabankans og mögulega Ríkisútvarpsins er sett í nýtt ljós. Þegar meintar mútugreiðslur fyrirtækisins í Namibíu komust í hámæli sagði ég að ég ætlaði ekki að fella dóma fyrr en málið væri rannsakað, mögulega ákært og dæmt í því. Sama ætla ég að gera varðandi Ríkisútvarpið og þátt fréttamanns þess í aðför Seðlabankans að fyrirtækinu sem bankinn varð á endanum að athlægi fyrir. Ég ætla ekki að dæma umræddan fréttamann fyrr en allt er komið fram. Ég leyfi mér hins vegar að glotta smá vegna kvörtunar hans yfir því að upptakan með honum sé „sundurklippt“. Góður vinur minn sem unnið hefur á fjöl- miðlum lengi sagði eitt sinn að blaðamenn (fréttamenn) ættu ekki að búa til fréttir heldur segja frétt- ir. Nú hef ég ekki hugmynd um hvort starfsmaður Ríkis- útvarpsins var að búa til frétt eða ekki, það mun koma í ljós en það hefur vitanlega gerst að blaðamenn hafi búið til fréttir. Þegar mótmælin stóðu sem hæst í hruninu bað fréttamaður Ríkisútvarpsins mótmælendur að endurtaka ákveðinn gjörning svo hann næðist í mynd. Blaðamaður Fréttablaðsins skrifaði eitt sinn langa „frétt“ um Alþingi sem reyndist svo allt saman „hennar tilfinning“. Fleira mætti nefna.    Ekki erum við laus við kórónuveiruna og virðist mér margir tala um að hún sé komin til að vera. Það þýðir væntanlega að þar til bóluefni verður í boði má búast við að veiran taki sig upp aftur og aftur. Fyrir íslensk heimili og atvinnulíf er afar erfitt að búa við þá óvissu sem fylgir veirunni, þ.e. hvort boð og bönn verða hert þessa vikuna eða losað um þau. Óljóst er því hvernig fyrirtækin og heimilin eiga að haga sínum rekstri og ómögulegt að gera áætlanir til framtíðar. Ríkisstjórnin hefur ekki haft samráð við stjórnarandstöðuna um viðbrögð eða leitað til- lagna hjá henni um aðgerðir þrátt fyrir að t.d. Miðflokkurinn hafi komið fram með fjölmarg- ar tillögur. Boltinn er hjá stjórnmálamönnun- um (ríkisstjórninni) segja sérfræðingarnir, þann bolta verður ríkisstjórnin að taka í fangið og spila honum rétt. Nú þarf að skapa svigrúm og öryggi og til þess þarf stórar aðgerðir líkt og Miðflokkurinn benti á í upphafi og finna má á vefsíðu flokksins. Gera þarf áætlun um að halda verðmætum atvinnulífs og heimila óbreyttum a.m.k. fram á mitt næsta ár og nýta tímann til að móta djarfa áætlun um framtíðina sem nær til helstu atvinnugreina landsins og hún þarf að vera stærri og betri en þær sem samkeppnislönd okkar koma fram með. Tvinna þarf saman hagsmuni helstu atvinnugreina og laða til landsins fjárfesta og ferðamenn og selja sem aldrei fyrr íslenska hreinleikann, án upprunavottorða orku- framleiðenda sem draga úr trúverðugleikanum. gunnarbragi@althingi.is Gunnar Bragi Sveinsson Pistill Samherji og Ríkisútvarpið – Kórónuveiran og stjórnvöld Höfundur er þingmaður Suðvesturkjördæmis og varaformaður Miðflokksins STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen meðallag. Er þetta meiri úrkoma en mældist allan ágústmánuð 2019. Þá mældist úrkoma í Reykjavík 38,4 mm sem var 62% af meðalúrkomu áranna 1961 til 1990. Ekki er annað að sjá á veðurspám en að áfram rigni í höfuðborginni allra næstu daga. Á Akureyri mældist úrkoman fyrstu 10 daga ágúst 27,2 millimetr- ar, meir en tvöfalt meðallag. Allan ágúst 2019 mældist úrkoman þar 67,9 mm sem var um helmingi meira en að meðallagi í ágúst. Há vatnsstaða í ám og lækjum Mikið hefur rignt á Suður- og Vesturlandi undanfarna daga og sömuleiðis á hálendinu sunnanverðu. Há vatnsstaða er í ám og lækjum og hefur Veðurstofan hvatt ferðafólk til að sýna sérstaka aðgát. Meðalhiti í Reykjavík fyrstu tíu daga ágústmánaðar er 10,9 stig, -0,7 stigum neðan meðaltals sömu daga 1991 til 2020 og einnig neðan með- altals síðustu tíu ára og í 18. hlýjasta sæti (af 20) á öldinni. Það sem af er öldinni voru dagarnir tíu kaldastir árið 2013, meðalhiti þá 10,4 stig, en hlýjastir voru þeir árið 2003, meðal- hiti 13,5 stig. En ágúst hefur oftast verið hlýr á þessari öld, segir Trausti. Á langa listanum er hitinn nú í 84. sæti (af 146), á þeim lista eru sömu dagar 2003 líka hlýjastir (ásamt 1944), en kaldastir voru þeir 1912, meðalhiti aðeins 6,4 stig. Á Akureyri er meðalhiti dag- anna tíu 12,8 stig, +1,4 stigum ofan meðallags áranna 1991 til 2020, en +2,1 stigi ofan meðallags síðustu tíu ára. Hann hefur þó mjög oft verið hærri. Hitanum hefur verið nokkuð misskipt. Á Suðurlandi er hitinn nú í 17. hlýjasta sæti aldarinnar og 16. hlýjasta við Faxaflóa. Aftur á móti eru dagarnir tíu þeir fjórðu hlýjustu á Austurlandi að Glettingi. Sé litið til einstakra stöðva er jákvæða vikið miðað við síðustu tíu ár mest á Skjaldþingsstöðum, þar er hiti +3,6 stig ofan meðallags, en neikvæða vikið er mest -1,7 stig á Garð- skagavita. Loftþrýstingur hefur verið sér- lega lágur þessa tíu daga í ágúst, segir Trausti. Hann hefur aðeins einu sinni verið lægri síðustu 200 ár- in. Það var 1842, hann var jafnlágur 1876 – og ómarktækt hærri en nú 1867 og 1950. Sólskinsstundir ekki verið færri í 104 ár Morgunblaðið/Hari Rigningardagur Þurft hefur að bregða regnhlífum á loft flesta daga í ágúst. Engin breyting verður næstu daga.  Loftþrýstingur yfir landinu hefur verið fádæma lágur BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Fyrstu 10 daga ágústmán-aðar mældist aðeins 12,1sólarstund í Reykjavík.Þær hafa aðeins einu sinni verið færri fyrstu tíu daga ágúst. Það var árið 1916 eða fyrir meira en einni öld. Þá hefur loftþrýstingur yf- ir landinu verið fádæma lágur. Að- eins einu sinni hefur hann mælst lægri. Það var árið 1842, eða fyrir 178 árum. Þetta kemur fram í yfirliti sem Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur tekið saman og birt á bloggi sínu Hungurdiskum. Þetta er heldur betur breyting frá árinu 2019. Ágúst var mjög sól- ríkur suðvestanlands það ár. Sól- skinsstundir í Reykjavík mældust 220,6 í mánuðinum, sem var 65,8 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Fyrstu 10 dagar ágústmánaðar nú hafa að sama skapi verið úrkomu- samir. Úrkoma í Reykjavík hefur mælst 39,2 millimetrar, nærri tvöfalt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.