Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 14

Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl.10-14 NÝTT FRÁ Einstaklega mjúkir viscose bolir með topp undir sem halda brjóstunummjög vel. Stærðir S-XL Verð 13.990,- Ekki er óalgengt að til heilsu-gæslunnar leiti fólk semhefur lent í nýlegum minni háttar árekstri. Flest umferðarslys eru sem betur fer pústrar þegar bílarnir rekast saman á litlum hraða. Líkaminn býr sig í skyndingu undir það versta en þeg- ar sjálfur áreksturinn er genginn yfir stígur ökumaður út úr bílnum og prísar sig sælan fyrir að hann hafi sloppið að mestu. Hann gerir sér grein fyrir að hann hefur slengst til í sætinu, sem betur fer í belti. Hann þreifar sig allan, engin sár, engin sjáanleg meiðsli - sem betur fer! Þrálát einkenni sem trufla daglegt líf Algengast er að höfuðið slengist fram á við eða til hliðar, hálsinn hafi tognað og hryggurinn einnig fengið slink. Nokkrum klukkustundum síð- ar fara vöðvarnir að stífna og fram koma stirðleiki og verkir við hreyf- ingu. Sjúklingurinn veit eflaust að þetta getur ekki verið alvarlegt úr því það kom ekki fram strax. Engu að síður ónáðar þetta og oft koma fram þrálát einkenni sem trufla svefn og daglegt líf. Á þessu stigi er oft leitað til læknis sem fer í gegnum söguna og skoðar sjúkling. Það er sjaldnast al- varleg einkenni að finna, einungis merki um tognun og lítið annað. Röntgenmyndir eru eðlilegar, engin brot greinast. Þegar þessir sjúklingar eru skoð- aðir fer vel á því að gera grein fyrir því hvað veldur verknum og af hverju hann er þrálátur. Nátt- úrulegt er að sjúklingur búist við því að hann skáni þegar hann hvíl- ist, en í þessu tilfelli gerist það alls ekki. Þvert á móti, hann er verstur þegar hann rís upp á morgnana eft- ir svefn því þá eru vöðvarnir stífir, stundum hreinlega erfitt að komast fram úr rúminu. Hvað er til ráða? Ekki er úr vegi að útskýra fyrir sjúklingi hvernig á verkjunum standi því stutt er í það að hann fyllist leiða og örvæntingu ef hann er með óþægindi og verki ef til vill svo vikum og mánuðum skipti. Viðbragð veldur verk Hvað hefur gerst? Í stuttu máli þegar tognar á vöðva myndast eftir nokkurra klukkutíma bólgusvörun og þetta viðbragð veldur verk. Verkurinn á hinn bóginn veldur því að vöðvinn dregst saman og þessi samdráttur veldur verk. Það mynd- ast þrálátur vítahringur sem ekki gefur sig svo auðveldlega heima í sófanum án þess að nokkuð sé gert. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir sjúklinginn að fá útskýringar á því hvað veldur verknum – að það sé ekki stór skaði heldur seigt við- bragð sem er náttúrlegt og að það muni hverfa með réttum aðgerðum. Það tekur tíma en allt mun ganga vel. Sund er gott ráð Hvað er þá best að gera? Það þarf að gera tvennt:  Að minnka verkinn með mildum, ekki ávanabindandi, lyfjum sem tekin eru reglubundið í nokkrar vikur, hæst nokkra mánuði og sætta sig í byrjun við að verk- urinn minnki um 50%, en hverfi ekki alveg. Þolinmæði!  Að hreyfa sig. Sjúkraþjálfarar gefa góð ráð um æfingar en jafn- framt er gott að synda reglu- bundið og af þessu tilefni búa til nýjar venjur. Formúlan er þessi: Að synda í 5 mínútur á dag, 5 daga vikunnar í 5-10 vikur. Leitaðu til heilsugæslunnar og fagfólks þar til að fá aðstoð vegna þrálátra verkja. Einnig eru upplýs- ingar á heilsuvera.is. Góð ráð við vægum háls- áverkum í umferðinni Sund Góð heilsubót við svo mörgu, svo sem þegar sárir og óþægilegir verk- ir fara að plaga líkamann. Lyf leysa ekki öll vandamál þó góð geti verið. Unnið í samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Árekstur Afleiðingar fyrir farþega og ökumenn oft langvarandi. Heilsuráð Guðmundur Pálsson sérfræðingur í heimilis- lækningum, Heilsugæslunni Grafarvogi. Birgir Sævar Víðisson á Húsavík hefur að undanförnu verið til sjós með afa sínum Guðmundi A. Jónssyni sem ger- ir út strandveiðibátinn Jón Jak ÞH 8. „Við höfum fiskað ágætlega. Oft kom- ið að landi með um hálft tonn eftir daginn og tvisvar sinnum með fullan skammt sem eru 774 kíló,“ segir Birgir sem í gær fór í 15. róðurinn með afa sínum. Þeir hafa gjarnan verið á skaki við Flatey á Skjálfanda, þangað sem er um klukkustundarstím frá og til Húsa- víkur. „Sumarið hjá mér hefur verið óvenjulegt. Ég hef alltaf verið mikið í fótboltanum með og æfi og keppi með 3. og 4. flokki Völsungs. Var svo óheppinn að ristarbrotna í fyrsta leik sumarsins og eftir það þurfti ég að vera fimm vikur með fótinn í gifsi. Þegar gifsið var tekið fór ég á sjóinn með afa og er byrjaður aftur í boltanum. Þetta lofar góðu,“ segir Birgir Sævar sem er fjórtán ára, fæddur árið 2006. Fer því í 9. bekk í vetur og vetrarstarfið í Borgarholts- skóla á Húsavík byrjar eftir nokkra daga. Að baki er sumar með minn- ingum um fiskveiðar, fótbolta og fót í gifsi. Ungur sjómaður á Húsavík vekur eftirtekt Fótboltastrákur fór til sjós Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Sjómenn Birgir Sævar Víðisson og Guðmundur afi hans hér við bátinn vel hlað- inn fyrr í vikunni. Blóðrauður karfi var uppistaðan í aflanum. Útgáfan á Heima er bezt, einu elsta tímariti landsins, er nú til sölu. Guð- jón Baldvinsson ritstjóri og útgefandi hyggst nú snúa sér að öðrum við- fangsefnum og hefur látið boð út ganga um að reksturinn sé falur. Síð- asta blaðið frá hans hendi kom út fyr- ir þremur vikum. „Nokkrir hafa sýnt áhuga með kaup í huga en ekkert er frágengið enn þá. Að undanförnu hef ég fundið vel að margir hafa sterkar tilfinningar til blaðsins og telja mik- ilvægt að útgáfunni sé haldið áfram,“ segir Guðjón. Saga Heima er bezt nær allt aftur til ársins 1951. Fyrstu árin var blaðið gefið út af Norðra, forlagi Sambands íslenskra samvinnufélaga. Fáum ár- um síðar tók Bókaforlag Odds Björnssonar á Akureyri við útgáfunni og var með í áratugi. Eftir það bóka- útgáfan Skjaldborg, þá með Guðjón sem ritstjóra. Hann gerðist svo út- gefandi blaðsins fyrir 17 árum. „Efnið er fjölbreytt; fróðleikur úr ýmsum áttum og þá ekki síst þjóð- legt efni. Viðtöl, ferðagreinar, fram- haldssögur, frásagnir af merkum at- burðum og stöðum, efni sem fólki finnst vert að skrá og geyma öðrum til fróðleiks, og svona gæti ég haldið áfram. Heima er bezt er líklega eina ritið á þessu sviði um þessar mundir, sem kemur jafn oft og reglulega út, en frá upphafi hafa alltaf komið út 12 tölublöð á ári. Þegar litið er til baka þá er í Heima er best ómetanlegur fróðleikur um líf og störf þjóðarinnar á löngum tíma,“ segir Guðjón Bald- vinsson að síðustu. sbs@mbl.is Útgáfa á frægu tímariti er til sölu Heima er best í bráðum sjötíu ár Morgunblaðið/Sigurður Bogi Útgefandi Guðjón Baldvinsson hér með nýjustu tölublöð Heima er bezt. Stofnað hefur verið félagið Garðyrkjuskóli Íslands af starf- andi fagfólki í garðyrkju sem hefur verið eða er í forsvari fyrir hagsmunafélög í greininni. Tilgangurinn er að standa að fræðslustarfsemi á sviði garðyrkju og tengdra greina. Forsvarsfólk félagsins hefur óskað eftir viðræðum við menntamálaráðherra í því skyni að leita samninga um grunnnám í garðyrkju með svipuðum hætti og gert hefur verið varðandi nám á framhaldsskólastigi, svo sem í Kvik- myndaskóla Íslands, Ljósmyndaskóla Íslands, Fisktækni- skóla Íslands og Tækniskóla Íslands. Félagið leggur áherslu á að fræðsla og formleg menntun í garðyrkju verði framkvæmd í sem bestu samstarfi við at- vinnulífið og starfandi aðila á viðkomandi sviði. Markmiðið með fræðslu og menntun skal vera að búa nemendur sem best undir fjölbreytt störf á sviði garðyrkju og tengdra greina eða áframhaldandi nám. Jafnframt miðar starf- semi félagsins, fræðslan og námið að því að efla almennan áhuga, þekkingu og þátttöku í ræktun og skyldri starfsemi með víðtækum hætti. Garðyrkjuskóli Íslands stofnaður af fólki í græna geiranum Fagnám á framhaldsskólastig Blóm Vænt og fallega grænt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.