Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 46
46 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
Meistaradeild Evrópu
8-liða úrslit:
Atalanta – París Saint-Germain ............. 1:2
París SG í undanúrslit og mætir annað-
hvort Atletico Madríd eða RB Leipzig.
Slóvakía
Sered – Senica.......................................... 4:0
Nói Snæhólm Ólafsson lék allan leikinn
með Senica.
Svíþjóð
A-deild kvenna:
Rosengård – Linköping .......................... 7:1
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Kristianstad – Växjö ............................... 2:0
Svava Rós Guðmundsdóttir lék allan
leikinn með Kristianstad. Sif Atladóttir er
með barni og lék ekki. Elísabet Gunnars-
dóttir þjálfar liðið.
Piteå – Djurgården ................................. 1:1
Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården. Guðbjörg Gunnarsdóttir
er í barnsburðarleyfi.
Örebro – Uppsala .................................... 2:1
Anna Rakel Pétursdóttir lék allan leik-
inn með Uppsala og lagði upp mark.
Staðan:
Gautaborg 10 8 2 0 25:4 26
Rosengård 10 8 1 1 34:6 25
Kristianstad 10 5 3 2 21:17 18
Linköping 10 5 1 4 13:18 16
Örebro 10 4 2 4 11:15 14
Umeå 10 3 3 4 13:17 12
Piteå 10 3 3 4 12:17 12
Eskilstuna 10 3 2 5 16:16 11
Uppsala 10 3 1 6 15:24 10
Djurgården 10 2 3 5 11:15 9
Växjö 10 2 2 6 5:19 8
Vittsjö 10 2 1 7 12:20 7
B-deild:
Lidköping – Mallbacken ..........................0:3
Kristrún Rut Antonsdóttir lék fyrstu 62
mínúturnar hjá Mallbacken.
B-deild:
Brage – Norrby........................................ 1:1
Bjarni Mark Antonsson lék fyrstu 67
mínúturnar með Brage.
Noregur
Röa – Vålerenga ...................................... 1:2
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga og skoraði sigurmarkið.
NBA-deildin
Philadelphia – Phoenix .................... 117:130
Memphis – Boston ........................... 107:122
Dallas – Portland.............................. 131:134
Sacramento – New Orleans..............112:106
Washington – Milwaukee .................113:126
Knattspyrnumað-
urinn Ólafur Karl
Finsen er kominn
til FH að láni frá
Val. Gildir láns-
samningurinn út
tímabilið sam-
kvæmt tilkynn-
ingu frá FH í gær.
Hafði Valur áður
hafnað tilboði FH
í leikmanninn, en félögin hafa gert
með sér samkomulag um lánssamn-
ing. Hefur Ólafur lítið sem ekkert
fengið að spila með Val í sumar, en
hann kom til félagsins fyrir þremur
árum. Ólafur hefur leikið 132 leiki í
efstu deild með Stjörnunni, Val og
Selfossi og skorað í þeim 32 mörk. Þá
á hann að baki tvo A-landsleiki.
Lánaður frá
Val til FH
Ólafur Karl
Finsen
SVÍÞJÓÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Ég er nokkuð ánægður með
frammistöðuna og spilamennskuna
en maður vill alltaf gera betur. Ég er
þannig karakter að ég vil alltaf gera
betur,“ sagði ákveðinn Ísak Berg-
mann Jóhannesson, 17 ára knatt-
spyrnumaður frá Akranesi, í samtali
við Morgunblaðið. Ísak hefur síð-
ustu vikur og mánuði vakið athygli
fyrir góða frammistöðu með Norr-
köping í Svíþjóð, en hann er fasta-
maður í liðinu þrátt fyrir ungan ald-
ur. Ísak kom til Norrköping árið
2018, en kom aðeins einu sinni inn á
sem varamaður á síðustu leiktíð.
Ísak hefur hins vegar spilað 13 af 14
leikjum Norrköping í sænsku úr-
valsdeildinni á þessari leiktíð, 11 frá
byrjun, og skorað í þeim tvö mörk.
Ísak skoraði annað mark Norrköp-
ing í 2:3-tap fyrir Helsingborg í síð-
ustu umferð með glæsilegu skoti.
Ísak og félagar byrjuðu vel á
tímabilinu og voru í toppsætinu
framan af. Liðið hefur hins vegar
tapað tveimur í röð og ekki unnið í
síðustu fjórum. Ísak er ánægður
með að fá að spila mikið, en skilj-
anlega minna kátur með gengi liðs-
ins að undanförnu. „Ég setti mér
það markmið að komast inn í liðið
sem fyrst og það hefur gengið eftir,
en því miður hefur okkur ekki geng-
ið nægilega vel. Við viljum gera bet-
ur og fara að vinna leiki á ný. Við
höfum ekki verið nægilega góðir að
loka leikjunum sem við erum að
spila. Við erum með ungt lið og að
mínu mati erum við með besta fót-
boltaliðið í þessari deild, en þurfum
að kunna að stjórna leikjum betur.“
Verður margra milljarða virði
Ísak hefur vakið mikla athygli
sænskra fjölmiðla. Robert Laul hjá
Aftonbladet lýsti Ísaki m.a. sem
leikmanni sem fólk mun segja
barnabörnunum sínum frá og það
væru forréttindi að fá að fylgjast
með honum. „Það eru sennilega ekki
komin mörg hár á bringuna á hon-
um, en hann hefur nú þegar náð full-
komnum tökum á því að koma bolt-
anum í netið,“ skrifaði Laul um Ísak.
„Hann verður margra milljarða virði
og ég á ekki von á að hann verði
lengi hjá Norrköping,“ skrifaði Laul
enn fremur. Þá valdi Aftonbladet
Ísak efnilegasta leikmann Svíþjóðar
og var hann valinn leikmaður 6. um-
ferðar sænsku úrvalsdeildarinnar
hjá Studio Allsvenskan.
Pælir lítið í umfjölluninni
Leikmaðurinn ungi segist ekki
velta sér mikið upp úr athyglinni ut-
an frá. „Ég hef ekki tekið mikið eftir
en þó eitthvað. Það er gaman þegar
maður stendur sig vel, en ég pæli
annars lítið í þessari umfjöllun. Þeg-
ar það er umfjöllun í kringum mann
verður maður að einbeita sér að
sjálfum sér og að hjálpa liðinu eins
mikið og maður getur. Ég læt um-
fjöllunina ekki hafa áhrif á mig.“
Norrköping keypti Ísak af ÍA í
desember 2018. Hann kom aðeins
einu sinni inn á sem varamaður á
fyrsta tímabili í Svíþjóð, en hefur
látið mikið að sér kveða á þessari
leiktíð, eins og áður hefur komið
fram. Ísak segist ávallt hafa reiknað
með því að hann þyrfti að aðlagast,
áður en hann fengi stórt hlutverk í
liðinu, enda ungur að árum. „Ég
fékk einn leik á síðasta ári og það er
skiljanlegt. Það hefði verið óeðlilegt
að 16 ára strákur fengi að spila mik-
ið. Það var planið að fá eitt ár til að
aðlagast og það hefur gengið vel.
Satt best að segja átti ég ekki von á
svona miklum spiltíma, en hann
kemur með góðri frammistöðu. Lið-
inu gekk vel í byrjun tímabils og þótt
gengið sé ekki eins gott núna, þá
hefur mér gengið frekar vel á vell-
inum.“
„Ísak lítur kannski út eins og
barn, enda nýorðinn 17 ára, en hann
spilar fótbolta eins og fullorðinn,“
skrifaði títtnefndur Robert Laul um
íslenska leikmanninn. Þegar Ísak
lék sinn fyrsta og eina deildarleik
með ÍA gegn Þrótti Reykjavík 22.
september 2018 var hann aðeins 15
ára gamall og leit jafnvel út fyrir að
vera enn yngri. Ísak hefur lagt mikið
á sig til að styrkja sig síðustu mán-
uði með góðum árangri. „Ég hef lagt
mikið á mig til að styrkja mig. Ég
hef bætt á mig rúmum átta kílóum
síðan ég fór út fyrir tæpum tveimur
árum og ég hef unnið í því. Maður
þarf að hafa styrk til að spila at-
vinnufótbolta og ég vildi vera með
það í lagi. Það hefur gengið vel að
byggja upp líkamann minn, sem er
enn þá að þróast.“
Ofboðslega þakklátur
Ísak gerði nýjan samning við
Norrköping á dögunum og er hann
nú samningsbundinn félaginu til árs-
ins 2023. „Ég samdi út 2023, það var
gott bæði fyrir mig og félagið,“ sagði
Ísak og viðurkennir að ein ástæða
þess að hann samdi til þriggja ára
væri sú að Norrköping fengi meiri
pening, fari svo að sænska félagið
selji hann á komandi árum. „Við vor-
um akkúrat að pæla í því,“ sagði
Skagamaðurinn. Hann er mjög
ánægður með lífið og tilveruna hjá
Norrköping, enda ekki sjálfgefið að
vera lykilmaður í sænsku úrvals-
deildinni aðeins 17 ára. Þá kann Ísak
vel við sig í borginni, sem er 140.000
manna borg í Austur-Svíþjóð. „Ég
er mjög ánægður í borginni og hjá
liðinu. Ég er ótrúlega ánægður með
allt í kringum liðið og allt sem félag-
ið hefur gert fyrir mig. Ég er ofboðs-
lega þakklátur fyrir það. Það eru
ekki öll lið tilbúin til að taka við
svona ungum leikmanni og gefa hon-
um tækifæri eins og Norrköping
hefur gefið mér.“
Ísak getur lítið kvartað yfir byrj-
uninni á atvinnumannaferlinum og
hann setur stefnuna hátt. „Ég tel
mig geta náð eins langt og hægt er
að ná. Auðvitað getur ýmislegt kom-
ið upp á en ég stefni á að ná eins
langt og fótboltamaður getur mögu-
lega náð.“
Ekki eini Skagamaðurinn
Ísak var ekki eini Skagamaðurinn
sem Norrköping keypti því Oliver
Stefánsson kom til félagsins á sama
tíma. Fór Stefán Þórðarson, faðir
Olivers, með strákunum út og starf-
ar hann nú hjá félaginu. Stefán lék
sjálfur með Norrköping fyrst frá
2005 til 2007 og svo aftur 2009. „Það
var mjög gott að hafa þá til taks.
Stefán er byrjaður að vinna með
sjúkrateyminu, hann nuddar leik-
menn og hjálpar þeim að jafna sig.
Það er mjög fínt að hafa Stebba og
svo er Oliver að vinna í sínum málum
með meiðsli. Hann kemur sterkur
inn þegar hann er búinn að jafna
sig,“ sagði Ísak Bergmann.
Ísak er sjálfur af miklum knatt-
spyrnuættum. Er hann sonur Jó-
hannesar Karls Guðjónssonar, fyrr-
verandi landsliðs- og atvinnumanns
og núverandi þjálfara ÍA. Afi hans
er Guðjón Þórðarson, fyrrverandi
landsliðsþjálfari, og þá eru föður-
bræður hans Þórður og Bjarni Guð-
jónssynir einnig fyrrverandi at-
vinnu- og landsliðsmenn.
Stefni á að ná eins
langt og hægt er að ná
Hinn 17 ára Ísak Bergmann orðinn lykilmaður hjá Norrköping í Svíþjóð
Ljósmynd/Norrköping
Skagamaður Ísak Bergmann Jóhannesson hefur leikið afar vel með Norrköping á tímabilinu.
Franska stórliðið París Saint-
Germain er komið í undanúrslit
Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu og mætir þar annaðhvort
Atletico Madríd eða RB Leipzig.
Franska liðið vann Atalanta 2:1 í 8-
liða úrslitunum í Lissabon í gær-
kvöldi en tæpt var það því Mario
Pasalic kom Atalanta 1:0 yfir. Mar-
quinhos jafnaði á 90. mínútu og Er-
ic Choupo-Moting skoraði sigur-
mark Parísar í uppbótartíma. Er
liðið í undanúrslitum keppninnar í
fyrsta skipti síðan 1995 eða fyrir
aldarfjórðungi.
Stórliðið komst
naumlega áfram
AFP
Vígalegur Marquinhos fagnar jöfn-
unarmarkinu í Portúgal í gær.
Rosengård er í 2. sæti sænsku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu. Lið-
ið burstaði Linköping 7:1 í gær en
Glódís Perla Viggósdóttir var á sín-
um stað í vörninni. Mimmi Larsson
skoraði fimm mörk í leiknum.
Svava Rós Guðmundsdóttir lék
með Kristianstad sem vann Växjö
2:0 en Elísabet Gunnarsdóttir þjálf-
ar Kristianstad. Anna Rakel Pét-
ursdóttir lagði upp mark Uppsala í
2:1 tapi gegn Örebro. Þá skildu
Djurgården og Piteå jöfn, 1:1, í
Piteå. Guðrún Arnardóttir lék allan
leikinn með Djurgården.
Anna Rakel lagði
upp mark
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Svíþjóð Anna Rakel Pétursdóttir lét
að sér kveða en það dugði ekki til.
Knattspyrnumaðurinn Michael Ked-
man hefur fengið leikheimild með
Fylki en hann er 23 ára vinstri bak-
vörður sem spilaði síðast á Spáni.
Kedman var á mála hjá Tres Cantos í
spænsku D-deildinni árið 2018 en
hefur verið án félags síðan. Hann var
á mála hjá unglingaliðum West Ham
og Chelsea á Englandi á yngri árum.
Fylkismenn mæta ÍA á Akranesi í
næsta leik á Íslandsmótinu á laugar-
daginn, gangi það eftir að Íslands-
mótið geti hafið göngu sína á ný á
morgun. Árbæingar eru í 3. sæti úr-
valsdeildarinnar eftir níu leiki og
hafa komið mörgum á óvart með
frammistöðu sinni. Liðið er fjórum
stigum frá efsta sæti.
Bæta við sig
bakverði