Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
13. ágúst 2020
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 136.52
Sterlingspund 178.93
Kanadadalur 102.73
Dönsk króna 21.629
Norsk króna 15.234
Sænsk króna 15.669
Svissn. franki 149.74
Japanskt jen 1.2872
SDR 192.51
Evra 161.07
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.3766
Hrávöruverð
Gull 1996.6 ($/únsa)
Ál 1730.0 ($/tonn) LME
Hráolía 45.05 ($/fatið) Brent
greiða niður lánið í júlí með lausu fé
en í ljósi ástandsins var leitað er-
lendrar fjármögnunar. Um er að
ræða varúðarráðstöfun til að tryggja
sem besta sjóðsstöðu, ef þurfa þykir.
Jafnframt hefur verið brugðist við
mikilli óvissu með því að auka inn-
lenda sjóðsstöðu með útgáfu ríkis-
víxla. Ríkisvíxlar eru skráðir í kaup-
höll og ganga kaupum og sölum.
Útboðsfyrirkomulagið er með sama
hætti og í ríkisbréfum en aðalmiðl-
arar taka þátt í útboðunum. Víxlarn-
ir eru gefnir út til að hámarki eins
árs. Aukin sjóðsstaða skýrir hvers
vegna hrein skuld ríkissjóðs hefur
ekki aukist meira en raun ber vitni.
Aukin útgáfa ríkisvíxla
Óverðtryggðar skuldir ríkissjóðs
jukust úr 425 milljörðum í janúar í
607 milljarða í júlí.
Aukninguna má einkum rekja til
útgáfu ríkisvíxla, en við óvissuað-
stæður sem þessar getur slík fjár-
mögnun hentað betur en langtíma-
fjármögnun með útgáfu ríkisbréfa.
Jafnframt hefur útgáfa óverð-
tryggðra ríkisbréfa verið aukin en
umfangið er minna en í víxlunum.
Verðtryggðar skuldir ríkissjóðs
hafa hins vegar nær staðið í stað.
Þær voru um 270 milljarðar í janúar
en voru um 277 milljarðar í lok júlí.
Hefur ríkissjóður gefið út óverð-
tryggð ríkisbréf fyrir 60,7 milljarða í
ár að söluverði en verðtryggð ríkis-
bréf fyrir 4,4 milljarða. Til saman-
burðar hafa verið seldir ríkisvíxlar
fyrir 247 milljarða í ár og var staða
þeirra í lok júlí 155 milljarðar.
Fram undan er svo útgáfa óverð-
tryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa
sem liður í langtímafjármögnun
ríkissjóðs.
Samdráttur hefur áhrif
Á það ber að líta í þessu samhengi
að í Peningamálum Seðlabankans í
febrúar var gert ráð fyrir 0,8% hag-
vexti í ár. Horfurnar breyttust svo
mikið með faraldrinum að í Peninga-
málum Seðlabankans í maí var spáð
8% samdrætti í ár. Síðan hefur Ás-
geir Jónsson seðlabankastjóri sagt
við Morgunblaðið að mögulega verði
samdrátturinn minni en þá var spáð.
Þessi neikvæðu áhrif á landsfram-
leiðslu hafa í för með sér að skulda-
hlutföll á mælikvarða landsfram-
leiðslu hækka. Þessi samdráttur, ef
hann raungerist, skýrir þó ekki
nema hluta hinnar hlutfallslegu
skuldaaukningar.
Hreinar skuldir eru heildarskuldir
að frádregnum bankainnstæðum og
endurlánum, sem Seðlabankinn lán-
ar jafnan öðrum stofnunum.
Endurlán eru lán í erlendri mynt,
verðtryggð lán og óverðtryggð lán.
Ríkisskuldir hafa aukist
hratt vegna faraldursins
Þróun skulda ríkissjóðs 2009-2020
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019
Heildarskuldir ríkissjóðs
í janúar og júlí 2020
Janúar 2020 Júlí 2020
Óverðtryggðar skuldir 424.587 607.139
Verðtryggðar skuldir 269.947 276.645
Erlendar skuldir 187.186 252.105
Samtals 881.720 1.135.889
Hlutfall skulda af vergri
landsframleiðslu*
28,3% 39,9%
Hrein skuld ríkissjóðs 618.511 745.157
Hlutfall hreinna skulda af
vergri landsframleiðslu
19,9% 26,2%
*Miðað við spá Seðlabanka Íslands í nýjasta hefti Peningamála.
Heimild: Markaðsupplýsingar/Lánamál Seðlabanka Íslands.
Skuldaaukning eftir kórónuveirufaraldurinn
Nafnverð með áföllnum
verðbótum, ma.kr.
Heildarskuldir ríkissjóðs, ma.kr.
Hreinar skuldir ríkissjóðs (að frádregnum endurlánum og innstæðum hjá SÍ)
Heildarskuldir sem hlutfall af VLF Hreinar skuldir sem hlutfall af VLF
2020
Ríkissjóður sækir skammtímafjármögnun með víxlum vegna mótvægisaðgerða
Morgunblaðið/Ómar
Seðlabanki Íslands Umskipti hafa orðið í ríkisfjármálunum á þessu ári.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hlutfall skulda ríkissjóðs af vergri
landsframleiðslu mælist nú tæplega
40%. Það var til samanburðar rúm-
lega 28% í janúar.
Þetta má lesa úr nýjum Markaðs-
upplýsingum Lánamála ríkisins í
Seðlabanka Íslands.
Heildarskuldir ríkissjóðs voru
tæplega 882 milljarðar í lok janúar
en var tæplega 1.136 milljarðar í lok
júlí. Þær hafa því hækkað um ríflega
250 milljarða á sex mánuðum, eða
um vel á annan milljarð á dag.
Hrein skuld hækkar minna
Hrein skuld ríkissjóðs hefur hins
vegar ekki hækkað jafn mikið. Hún
var tæpir 619 milljarðar í janúar en
var 745 milljarðar í lok júlí. Það er
hækkun um 126 milljarða. En hlut-
fall hreinna skulda ríkissjóðs sem
hlutfall af landsframleiðslu hækkaði
úr 19,9% í 26,2% á tímabilinu.
Ríkisskuldir voru mjög íþyngjandi
fyrir þjóðarbúið eftir efnahagshrun-
ið 2008 og voru afborganir lána stór
hluti af útgjöldum ríkissjóðs. Þær
lækkuðu mikið í kjölfar uppgjörs
fjármagnshafta og lækkuðu svo enn
frekar, sem hlutfall af landsfram-
leiðslu, í uppsveiflunni 2015-18. Síð-
an tók að hægja á lækkun ríkis-
skulda samhliða versnandi
efnahagshorfum. Með kórónuveiru-
faraldrinum hafa þær aukist á ný.
En ríkisstjórnin hefur boðað
margvíslegar aðgerðir í efnahags-
málum til að bregðast við niður-
sveiflunni.
Veiking krónu hefur lítil áhrif
Veiking krónunnar hefur lítil áhrif
á skuldahlutföllin. Erlendar eignir
námu 158 milljörðum í janúar en er-
lendar skuldir voru um 187 milljarð-
ar. Mismunurinn var 29 milljarðar.
Í lok júlí var erlenda sjóðsstaðan
222 milljarðar en erlendar skuldir
252 ma. Mismunurinn var því 30 ma.
eða álíka mikill og í ársbyrjun.
Ríkissjóður tók 500 milljóna evra
lán í júní en greiddi upp um 292
milljóna evru lán í júlí. Vegna þessa
jukust skuldir ríkissjóðs um rúmar
200 milljónir evra, eða sem svarar
um 32 milljörðum króna. Til stóð að
Skeljungur hagnaðist um 274 millj-
ónir króna á fyrri helmingi ársins.
Dróst hagnaðurinn saman um 61%
frá sama tímabili í fyrra þegar hann
nam 706 milljónum. Framlegð af
vörusölu jókst milli ára og nam 4.615
milljónum, samanborið við 4.226
milljónir á fyrri árshelmingi 2019.
Hins vegar jukust laun og launa-
tengd gjöld verulega og námu rúm-
um 2 milljörðum, samanborið við
rúma 1,3 milljarða á fyrra ári. Sölu-
og dreifingarkostnaður jókst um 137
milljónir og stóð í 1.162 milljónum.
Annar rekstrarkostnaður jókst
minna og nam 306 milljónum.
Eignir Skeljungs stóðu í 26,8
milljörðum í lok júní og höfðu þá
aukist um 2,3 milljarða frá áramót-
um. Skuldir höfðu að sama skapi
aukist og námu 17,2 milljörðum,
samanborið við 14,6 milljarða skuld-
ir um áramót. Eigið fé félagsins var
því 9,6 milljarðar í lok annars árs-
fjórðungs, samanborið við 9,8 millj-
arða um áramót.
Lægri spá
Félagið sendi frá sér nýja afkomu-
spá í tengslum við hálfsárs-
uppgjörið. Telja stjórnendur þess nú
að EBITDA ársins verði á bilinu
2.800 til 3.200 milljónir en fyrri spá
gerði ráð fyrir að hún yrði á bilinu
3.000 til 3.400 milljónir króna. Í
afkomuspánni er gert ráð fyrir stöð-
ugu gengi gjaldmiðla og stöðugu ol-
íuverði og að tekjur af erlendum
ferðamönnum verði óverulegar. Árni
Pétur Jónsson, forstjóri fyrir-
tækisins, segir fyrri helming ársins
hafa reynst því og starfsfólki krefj-
andi. Segir hann að vegna aðstæðna
í þjóðfélaginu hafi verið gripið til
ýmissa hagræðingaraðgerða til að
bæta afkomu og efnahag félagsins.
Hagnast
um 274
milljónir
Uppgjör Forstjóri Skeljungs segir
fyrri árshelming hafa verið krefjandi.
Tekjur Skeljungs
20,4 milljarðar á fyrri
helmingi ársins
Allt um sjávarútveg