Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 16
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fimmtíu ár eru um þessar mundir síðan Viðey á Kollafirði var opnuð al- menningi til frjálsra ferða. Eyjan var lengi lokað land, en er í dag úti- vistarsvæði á sögustað, þar sem margt skemmtilegt má sjá og upplifa. Hafsteinn Sveins- son hóf skipu- lagðar ferðir út í Viðey í júlí 1970, en upphafið má rekja til ársins 1962. Vildi þá til að Hafsteini var boðið með góðum vinum í siglingu út á Kollafjörð með viðkomu í eyjunni, sem þá var í niðurníðslu og raunar var landeigandinn á móti manna- ferðum. Hafsteinn, sem var byrjaður í sigl- ingasporti þegar hér var komið sögu, segir að eyjan hafi strax heill- að sig. Með sér hafi vaknað sú hug- mynd að hefja skipulagðar ferðir þangað. Það var þó ekki fyrr en árið 1966 að Hafsteinn kannaði hvort slíkt væri heimilt. Svar landeigand- ans, Stephans Stephensen kaup- manns í Reykjavík, var skýrt nei. Þurfti leyfi forsætisráðherra Sumt er skrifað í skýin og á að verða, þótt hægt miði stundum. Vor- ið 1970 eignaðist Hafsteinn nýjan 20 feta hraðbát sem hann sigldi á frá Danmörku heim til Íslands. Moby Dick hét báturinn og tók siglingin tæpar þrjár vikur. „Oft var ég í kröppum sjó, en heim komst ég heill á húfi,“ segir Hafsteinn þegar hann rifjar upp sögu sína. Ítarlega var sagt frá sögulegri siglingu hans í fjölmiðlum á sínum tíma en með því skóp Hafsteinn sér nafn. Það fór líka svo að þegar hann, fáum dögum eftir heimkomuna, gekk á fund Stephans Stephensen og óskaði í annað sinn eftir að mega hefja Viðeyjarsiglingar, þá var kom- Siglingar til sólareyju í hálfa öld  Viðey heillaði Hafstein  Stephan sagði já að lokum  Leyfi til eyjarferða síðasta embættisverk Bjarna Benediktssonar  Var með ferðirnar í alls 23 ár  Moby Dick, Skúlaskeið og Maríusúð Morgunblaðið/Sigurður Bogi Eyland Viðey er 1,7 km² að flatarmáli og rís hæst 32 metra yfir sjávarmáli. ið annað hljóð í strokkinn. Stefán veitti leyfi fyrir eitt orð og allt í þessu fína. Málum var hins vegar svo háttað að Viðeyjarstofa, kirkjan í eynni og landspilda þar í kring voru í eigu rík- isins og á forræði forsætisráðuneyt- isins. Hafsteinn leitaði því í stjórn- arráðið eftir samþykki og sagðist Guðmundur Benediktsson ráðuneyt- isstjóri myndu bera málið undir for- sætisráðherra. „Nokkrum dögum síðar hringdi Guðmundur í mig og sagðist hafa góðar fréttir að færa, Bjarni Bene- diktsson hefði samþykkt umsókn mína og hefði í lok vinnudags skrifað undir bréf sem heimilaði mér Við- eyjarferðir. Þetta var síðdegis 9. júlí 1970. Nóttina eftir fórust svo Bjarni, eiginkona hans og dóttursonur í eldsvoða á Þingvöllum. Samþykki á umsókn minni var því sennilega síð- asta embættisverk Bjarna.“ Flutti hundruð þúsunda farþega Fyrstu siglingarnar með farþega út í Viðey fór Hafsteinn 18. júlí 1970. Í frásögn í Morgunblaðinu þann dag segir frá „Sólareyju á sundunum“ og lýst er skemmtilegum möguleikum þar til útivistar, sögulegum minjum og fleiru áhugaverðu. Þetta mæltist líka vel fyrir; Viðeyjarferðir slógu í gegn og á góðum degi sumarið 1972 flutti Hafsteinn alls 800 manns út í eyju á Moby Dick sem þó tók mest 12 farþega í hverri ferð. Því bætti hann við sig árið 1973 Skúlaskeiði, bát sem tók 50 farþega. Maríusúð, sem tók 70 manns í sæti, fékk Haf- steinn árið 1986. „Á mínum 23 Viðeyjarárum flutti ég hundruð þúsunda farþega út í eyjuna sem var mitt annað heimili. Ég hætti árið 1993 en Viðey tók ból- festu í huga mínum. Enn í dag dreymir mig oft á nóttunni að ég sé á rölti úti í eyju, að sigla um sundin eða bjarga bátum í stormi, eins og ég átti margar andvökunætur við.“ Ljósmynd/Úr einkasafni Skúlaskeið Happafley Hafsteins. Hafsteinn Sveinsson Ríkið gaf Reykjavíkurborg Viðey árið 1986 í tilefni af 200 ára af- mæli borgarinnar. Þá lá fyrir að áhugi væri hjá borginni á að gera upp húsin í eynni og gera staðinn að útivistarsvæði. End- urgerðar byggingar, það er Við- eyjarstofa og kirkjan sem stend- ur við hlið hennar, voru opnaðar almenningi á afmælisdegi Reykjavíkurborgar, 18. ágúst 1988. Búseta hófst í Viðey fljótlega eftir landnám og hélst um aldir. Þar var lengi klaustur, prent- smiðja og fleira merkilegt. Við- eyjarstofa, sem var reist á ár- unum 1752-1755, var bústaður Skúla Magnússonar landfógeta. Eftir daga Skúla í embætti tók fólk af Stephensen-ættinni við eynni, sat þar lengi og átti stað- inn fram á 20. öld. Á löngum tímum eru þó eyður í sögu Viðeyjarsögu en minnast má að 1907-1914 var Milljóna- félagið svonefnda með útgerð og Stephensenar og Bítlafrú SÖGULEGUR STAÐUR MARGRA ALDA ýmsa aðra starfsemi í eynni þar sem gera átti umskipunarhöfn. Myndaðist þá á austurhluta eyj- unnar 100 manna þorp sem fór í eyði árið 1943. Lengi eftir það var Viðey eyði- staður í niðurníðslu, sem mörg- um rann til rifja. En svo fór að eyjan var reist úr öskustó, eins og að framan er lýst. Fimmtán geislar Á haustdögum ár hvert skín Frið- arsúlan í Viðey skært og er leið- arljós til friðar. Verkið er hugar- fóstur Yoko Ono, ekkju Bítilsins John Lennons. Úr óskabrunni sem svo er nefndur koma fimm- tán geislar sem sameinast í einu sterku ljósi, sem fólk á höf- uðborgarsvæðinu þekkir vel. Þá er stundum efnt til þýðingarmik- illa atburða í Viðey, sbr. að síð- asta haust var þar haldinn árleg- ur sumarfundur forsætisráðherra Norðurlandanna og Angelu Mer- kel, kanslara Þýskalands. Morgunblaðið/Eggert Forystukonur Angela Merkel og Katrín Jakobsdóttir í Viðey á síðastliðnu ári. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 ALVÖRU VERKFÆRI 145 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þegar frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á ýmsum lögum á sviði sjávarútvegs, fiskeldis, lax- og sil- ungsveiði vegna einföldunar reglu- verks og stjórnsýslu var samþykkt á Alþingi 29. júní færðist ákvarðana- taka um skyndilokanir til Fiskistofu. Þar með var fjögurra áratuga sögu skyndilokana Hafrannsóknastofnun- ar lokið og var það Ásgeir Gunnars- son fiskifræðingur sem stóð síðustu vaktina. Tilgangur skyndilokana svæða er að vernda smáfisk með það fyrir aug- um að draga úr smáfiskadrápi og lík- legu brottkasti, að því er segir á vef Hafrannsóknastofnunar. Þar segir jafnframt að núverandi kerfi skyndi- lokana á Íslandsmiðum megi rekja allt aftur til ársins 1976 og hafa fiski- fræðingar á stofnunarinnar sett á skyndilokanir á grundvelli mælinga Fiskistofu og Landhelgisgæslu. Fram kemur að frá upphafi hefur Hafrannsóknastofnun sett á um 3.900 skyndilokanir, meirihlutann til verndunar smáþorsks og flestar á línuveiðar. En talsverðar sveiflur hafa verið í fjölda lokana milli ára og voru þær flestar árið 2012 þegar þær voru 188 talsins. Þeim fækkaði mikið á síðasta ári og það sem af er þessa árs vegna breytinga á viðmiðunar- mörkum sem gerð var 2019. Endurskoðað Á heimasíðu Hafrannsóknastofn- unar segir, að þórr skyndilokanir hafi verið veigamikill þáttur í stjórnkerfi fiskveiða á Íslandsmiðum í áratugi, sé fremur lítið um rannsóknir á áhrifum þeirra aðgerða. Nýverið hafi þó kom- ið út ritrýnd grein um áhrif skyndi- lokanna við að hindra veiðar á smá- fiski. Hesta niðurstaða greinarinnar sé, að skyndilokanir séu gagnlegar til verndar smáfiski þegar veiðihlutfall er hátt. Hins vegar þegar veiðihlut- fall er hóflegt hafa skyndilokanir tak- markað gildi. „Meðal annars í því ljósi lagði Haf- rannsóknastofnun til hækkun á við- miðunarmörkum árið 2017 í tillögu til starfshóps um faglega heildarendur- skoðun á regluverki varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæði og verndunar- svæði á Íslandsmiðum um breytingu á viðmiðunarmörkum. Stofnunin tel- ur hins vegar að skyndilokanir geti verið nauðsynlegar í vissum tilfellum og því ekki ráðlegt að fella öll mörk niður og hverfa frá lokunum svæða ef smár fiskur veiðist.“ Skyndilokanir nú á herðum Fiskistofu  Hafa sett á 3.900 lokanir frá upphafi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.