Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 26
Fjöldi daglegra kórónuveirusmita frá 1. mars til 11. ágúst Ísland 364 þúsund íbúar 100 80 60 40 20 0 1.972 smit alls 10 dauðsföll alls 1.972 smit alls 10 dauðsföll alls Svíþjóð 10,3 milljónir íbúa 2.800 2.240 1.680 1.120 560 0 M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í ÁGÚST M A R S A P R Í L M A Í J Ú N Í J Ú L Í ÁGÚST Heimild: Johns Hopkins CSSE 83.455 smit alls 5.774 dauðsföll alls BAKSVIÐ Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir liljahrund@mbl.is Viðbrögð Svía við heimsfar-aldri kórónuveirunnar hafasætt mikilli gagnrýni víðaum heim. Dánartíðni í Sví- þjóð er ein sú hæsta í Evrópu miðað við höfðatölu, en yfir 5.500 hafa látist af völdum veirunnar frá upphafi far- aldursins. Anders Tegnell, sóttvarnalæknir Svíþjóðar, hefur viðurkennt að of margir hafi látist af völdum veir- unnar í landinu, en segir þó, að ekk- ert bendi til þess að útgöngubann hefði skilað annarri útkomu. Aðgerðir yfirvalda í Svíþjóð hafa að mestu leyti miðað að því að hvetja íbúa til að gæta að einstaklingsbundnum smit- vörnum, ásamt því að samkomutak- mörk hafa verið við 50 manns. Yfir- völd í Svíþjóð hafa margsinnis talað um baráttuna við veiruna sem mara- þon en ekki spretthlaup og því hafi verið gripið til aðgerða sem raunhæft er að viðhalda til lengri tíma. Segir faraldrinum lokið Sænski læknirinn Sebastian Rushworth ritaði nýverið pistil sem birtist á vefsíðu breska miðilsins Spectator. Þar greinir Rushworth frá því að hann hafi ekki sinnt sjúklingi með COVID-19-öndunarfæra- sjúkdóminn í meira en mánuð og að faraldrinum sé svo gott sem lokið í Svíþjóð. „Fjölmiðlar hafa haldið því fram að aðeins lítil prósenta þjóðar- innar sé með mótefni og þar með sé það ómögulegt að hjarðónæmi mynd- ist. Ef hjarðónæmi hefur ekki mynd- ast, hvar er allt veika fólkið? Af hverju hefur tíðni smita lækkað svona?“ spyr Rushworth. 90% næm fyrir veirunni Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítalans, segir ummæli Rushworth „óvarleg og gáleysisleg“. „Á Stokkhólmssvæðinu til dæmis, þar sem aðgerðir hafa verið frekar afslappaðar, hafa í mesta lagi 10% fengið veiruna, sem þýðir að um 90% eru enn næm fyrir veirunni. Jafnvel þó að veiran hafi tímabundið dottið niður í Stokkhólmi, þýðir það ekki að íbúar þar séu sloppnir fyrir horn. Á meðan þorri þjóðarinnar er næmur fyrir veirunni, þá getur smit breiðst út, nema þú gerir ráðstafanir í samfélaginu eins og við höfum gert hér á landi,“ segir Már. Mikið hefur verið talað um það hér á landi að samfélagið þurfi að læra að lifa með veirunni. Spurður hvort það geti þýtt svipaðar ráðstaf- anir og gerðar voru í Svíþjóð segir Már: „Það er ekki víst að þótt við myndum grípa til sömu aðgerða og í Svíþjóð væri atburðarásin sú sama. Hún gæti verið það, hún gæti verið verri eða hagfelldari. Ef þorri þjóðar- innar er næmur og smitefni kemst inn, þá er voðinn vís. Ég hugsa að það sé viðbúið að það verði staðan þar til tekst að þróa bóluefni. Við sem sam- félag á Íslandi verðum bara að sam- mælast um hvað hentar best til að reyna að takmarka það,“ segir Már. Skiptar skoðanir um sænskar veiruvarnir 26 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ FlugfélagiðIcelandairGroup er búið að fara í gegnum miklar hremmingar á þessu ári, jafnvel meiri hremmingar en flest önnur fyrirtæki og er þó enginn skortur á áföllum í atvinnulífinu, hvorki hér- lendis né erlendis. Flugfélög hafa farið afar illa út úr hinni skæðu kórónuveiru sem tók sig upp í Kína seint á liðnu ári og hefur síðan herjað á heims- byggðina. Tekjufallið var um tíma nær algert enda ekkert flogið. Það ástand verður eft- irminnilegt en fjarri því ánægjulegt og á vonandi ekki eftir að endurtaka sig. Þessu tekjuhruni flugfélaga um allan heim fylgdi skyndi- legur og gríðarlegur fjárhags- vandi þeirra sem kallað hefur á umfangsmiklar aðgerðir. Í Morgunblaðinu í fyrradag var sagt frá hremmingum sænsk- danska flugfélagsins SAS, sem virðist um þessar mundir vera að hnýta síðustu enda í samkomulagi við lánardrottna og sænska og danska ríkið, sem eiga samanlagt 28% hlut í félaginu. Ætlunin er að ríkis- sjóðir þessara landa kaupi nýtt hlutafé í SAS fyrir meira en 30 milljarða króna og komi með margfalda þá fjárhæð inn í félagið í formi lána. Önnur rótgróin meginflug- félög í Evrópu hafa einnig notið ríkulegs stuðnings og má þar nefna Lufthansa, þar sem þýska ríkið er að koma inn með gríðarlegar fjárhæðir og fær fimmtungs hlut í félag- inu og Air France-KLM, sem fær mikinn stuðning frá þeim ríkjum sem teljast heimahafn- ir þess í formi ríkisábyrgðar og lánveitinga. Stærðargráða þess ríkisstuðnings sem flug- félög í Evrópu fá um þessar mundir hleypur á tugum millj- arða evra og hið sama má segja um stöðuna handan Atl- antsála þar sem stjórnvöld hafa komið flugfélögum til að- stoðar með stuðningi sem hleypur á tugum milljarða Bandaríkjadala. Augljóst er að ríkisstjórnir í þeim löndum sem við horfum helst til líta á það sem skyldu sína að tryggja með þessum hætti samgöngur í lofti og þarf það ekki að koma á óvart. Fyrir eyríki er slík afstaða enn skiljanlegri og þess vegna var fagnaðarefni þegar ríkis- stjórnin kynnti þá afstöðu sína í lok apríl að hún væri reiðubúin að koma að veitingu lánalínu eða ábyrgð á lánum til félagsins. Þessari þýðingarmiklu yfirlýsingu fylgdi að fullnægjandi árangur þyrfti að nást í endur- skipulagningu félagsins og hefur vinna við þá endur- skipulagningu staðið yfir allt frá þeim tíma, og raunar gott betur. Morgunblaðið greindi frá því fyrir tæpum tveimur vik- um að Icelandair væri nærri því að klára samninga við kröfuhafa sína og að útlit væri fyrir að þeir yrðu undirritaðir á næstunni. Í gær gat Morg- unblaðið svo greint frá því að Icelandair væri búið að undir- rita samninga við alla kröfu- hafa sína og ná um leið samn- ingum við flugvélafram- leiðandann Boeing um bætur fyrir stóran hluta þess tjóns sem félagið hefur orðið fyrir vegna langvarandi kyrrsetn- ingar MAX-vélanna og að fé- lagið þyrfti ekki að taka við öllum þeim vélum sem samið hefði verið um, enda for- sendur gjörbreyttar frá því að samið var um kaupin, eins og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur bent á. Nú er verið að ljúka út- færslu á þeirri lánalínu eða ríkisábyrgð sem rætt hefur verið um að Icelandair fái og er ætlunin að sú lánafyrir- greiðsla verði í samvinnu við Íslandsbanka og Landsbanka. Rætt hefur verið um að þessi aðstoð geti verið á bilinu tíu til tuttugu milljarðar króna, sem er eðlilegt miðað við umfang málsins og þýðingu flug- félagsins fyrir íslenskt þjóð- félag. Lokaskrefið í fjárhagslegri endurskipulagningu er svo hlutafjárútboð sem vonandi verður farsælt og til þess fall- ið að tryggja framtíð Ice- landair á þessum erfiðu tím- um. Saga Icelandair með ís- lensku þjóðinni er orðin býsna löng, nær aftur meira en átta tugi ára. Drýgstan hluta þessa tímabils hefur Ice- landair, og áður forverar þess, tryggt flugsamgöngur til og frá landinu. Leitun er að þeim Íslendingi sem ekki hefur flogið utan með félaginu og eru rætur þess djúpar í ís- lensku þjóðfélagi í samræmi við þessa merku sögu. Með farsælli fjárhagslegri endur- skipulagningu tekst vonandi að tryggja að framhald verði á um langa framtíð. Vonir standa til að Icelandair takist vel upp við að ljúka fjárhagslegri endur- skipulagningu} Mikilvægt flugfélag með merka sögu Þ að voru samþykkt lög frá Alþingi í vor um að þeir sem urðu fyrir bú- setuskerðingum í almannatrygg- ingakerfinu fengju bara 90% af lág- markslífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Bara 90% af lífeyri sem er undir fátækt- armörkum og ef þeir fengju krónu meira annars staðar frá þá yrði þeim refsað „krónu á móti krónu“. Já, það er verið að taka aftur upp hina fárán- legustu af öllum skerðingum á Íslandi, krónu á móti krónu skerðingu, sem er ekkert annað en gróft fjárhagslegt ofbeldi. En það kostar ríkið tugmilljónum króna meira í útgjöldum að skerða um þessi 10%. Já, ríkið myndi spara milljónir króna á því að borga 100% í stað 90% og spurningin er hvers vegna í ósköpunum er verið að gera þetta svona? Hvað er að hjá ríkisstjórn sem sparar eyrinn og hend- ir krónunni og það til að festa fólki í sárri fátækt? Ef eldri borgari á ekki fyrir húsnæði eða mat á lágmarks- framfærslu í almannatryggingakerfinu í dag, hvernig í ósköpunum á hann að fara að því að lifa á 90% af þeirri framfærslu? Þessari spurningu verða þeir að svara sem komu þessu mannvonskukerfi á. Ríkisstjórnin talar nú í seinni bylgju af Covid-19 faraldr- inum um að viðhalda núverandi stöðu og verja hana. Fjár- málaráðherra talar um að verja kaupmáttinn og er ánægð- ur með launaþróunina frá 2016-2020, þar sem launavísitalan hækkaði um 24%, en vísitala neysluverðs hækkaði um 10%. Þetta þýðir að þá sem reyna að lifa á lægstu lífeyris- launum frá Tryggingastofnun ríkisins vantar 14% hækkun á sinn lífeyri fyrir sama tímabil og hafa ekki fengið krónu í aukinn kaupmátt, held- ur orðið að stórherða sultarólina. Þegar þeir sem eru á lífeyrislaunum fá bara ólöglega hækkun um hver áramót samkvæmt vísitölu neysluverðs, en ekki samkvæmt launa- vísitölu eins og lögbundið er, þá nær ríkið stórum hluta af þeirri smánarhækkun aftur með auknum skerðingum. Skerðingum í al- mannatryggingakerfinu sem eru komnar yfir 60 milljarða króna á ári og fara hækkandi. Þá verða þessir lífeyrislaunþegar, sem eru verst setta fólk á Íslandi í dag, að herða sultar- ólina enn frekar, þar sem verðlag matvæla hef- ur stórhækkað vegna gengis íslensku krón- unnar. Þá er ótalinn kostnaður vegna grímukaupa og fleira, sem hefur hækkað upp úr öllu valdi. Nei, fyrir veikt fólk og þá eldri borgara sem verst hafa það skal allt vera óbreytt næsta árið og þegar kosningar verða næsta haust getur ríkisstjórnin stolt dregið fram gömlu kosningaloforðin aftur og lofað þeim betri tíð með blóm í haga. En Flokkur fólksins mun halda áfram að berjast með öll- um ráðum gegn öllum áformum ríkisstjórnarinnar á þingi um að viðhalda sárri fátækt í íslensku þjóðfélagi, sem er henni til háborinnar skammar, um það þarf enginn að efast. Guðmundur Ingi Krist- insson Pistill Á að verja óbreytt ástand? Þingflokksformaður Flokks fólksins. Gudmundurk@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Þrátt fyrir að Svíar hafi gripið til vægari sóttvarnaaðgerða en hin norrænu ríkin, virðist það ekki hafa skilað neinum eftirtekt- arverðum árangri þegar kemur að því að takmarka afleiðingar faraldursins fyrir hagkerfi Sví- þjóðar. Aðgerðir í Svíþjóð miðuðu ekki sérstaklega að því að tak- marka efnahagslegt tjón en yfirvöld hafa þó sagt að þær að- gerðir sem gripið hefur verið til væru til þess fallnar að stemma stigu við atvinnuleysi og milda áhrif faraldursins á rekstur fyr- irtækja. Að sögn breska ríkisútvarps- ins BBC mun hagkerfi landsins dragast saman um 5% vegna faraldursins, sem er svipað og gert er ráð fyrir annars staðar á Norðurlöndunum, þrátt fyrir að könnun skandinavíska bankans SEB bendi til þess að Svíar hafi eytt að meðaltali meira fé til al- mennrar neyslu síðustu mánuði en íbúar annarra Norðurlanda. Þá er atvinnuleysi á Norð- urlöndunum mest í Svíþjóð, um 9%. Töluverður samdráttur EFNAHAGSLEGAR AFLEIÐ- INGAR FARALDURSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.