Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
✝ Júlíus PetersenGuðjónsson
fæddist í Keflavík 6.
janúar 1934. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 11. mars
2020. Foreldrar
hans voru hjónin
Guðjón M. Guð-
jónsson rak-
arameistari, f. 31.
desember 1907, d.
24. júní 1956, og Katrín Hulda
Júlíusdóttir Petersen húsmóðir,
f. 22. ágúst 1911, d. 12. nóvember
1980. Seinni eiginmaður Katr-
ínar Huldu var Norðmaðurinn
Trygve Forberg, f. 1901, d. 1979,
rafmagnsverkfræðingur. Systk-
ini Júlíusar eru Þórhildur Guð-
ríður Ingibjörg Guðjónsdóttir, f.
1935; Björg Hulda Guðjónsdóttir
eru Júlíus, Nanna og Björn Ólaf-
ur. Ragna, f. 1972, maður hennar
er Ólafur Már Jóhannesson.
Börn þeirra eru Óskar Þór, Júlía
Hrönn, Snorri Þór, Ragnar Óli,
Aldís Björg, Gunnar Elís, Aron
Már, Birta Líf og Ívan Máni.
Árið 2011 hóf Júlíus að búa á
Hvolsvelli með Ásu Guðmunds-
dóttur, f. 1934, d. 2016, frá
Rangá í Djúpárhreppi.
Júlíus ólst upp í Keflavík og
Arlington, í Virginíuríki í Banda-
ríkjunum. Hann gekk í barna-
skóla í Keflavík, Skógaskóla og
Washington Lee High School.
Júlíus var í Bandaríkjaher frá
janúar 1957 til desember 1958,
fyrst í Fort Belwoir í Virginíu, en
síðan á Keflavíkurflugvelli.
Júlíus rak verslun og heildsölu
um árabil. Hann var stofnfélagi í
Lionsklúbbnum Nirði og tók
virkan þátt í félagsstarfinu allt
til dánardags. Júlíus verður jarð-
sunginn frá Fella-og Hólakirkju í
dag, 13. ágúst 2020, klukkan 15.
Vegna aðstæðna í samfélaginu
er athöfnin í kirkjunni aðeins
fyrir boðsgesti.
Matthews, f. 1937;
og Gunnar Guð-
jónsson, f. 1942, d.
2014.
Júlíus kvæntist El-
ísabetu Gunn-
arsdóttur 5. apríl
1958. Elísabet fædd-
ist 30. desember
1934 í Reykjavík.
Hún lést 11. maí
2000. Foreldrar
hennar voru Gunnar
Ólafsson næturlæknabílstjóri og
Ragnheiður Bogadóttir frá Búð-
ardal.
Börn Júlíusar og Elísabetar
eru þrjú: Gunnar, f. 1958, kona
hans er Sólrún Alda Sigurð-
ardóttir. Börn þeirra eru Jón Óm-
ar, Elísabet og Gunnar. Katrín
Hulda, f. 1959, maður hennar er
Árni Emil Bjarnason. Börn þeirra
Það var ekki fyrir svo löngu
síðan að við pabbi fórum í bíltúr
austur. Á leið niður Kambana
spurði ég hann hvernig mann-
eskja afi Guðjón hefði verið, það
kom glampi í augu hans og um
andlitið lék bros og ekki stóð á
svarinu. Hann lýsti pabba sínum
sem hann missti rétt um tvítugt á
svo hlýjan og fallegan hátt. Pabbi
var alltaf í góðu skapi sagði hann,
hann var mikill mannvinur, gat
talað við alla og allir voru jafnir.
Hann elskaði börn og var sérlega
barngóður og þolinmóður. Hann
var söngelskur og hrókur alls
fagnaðar á mannamótum og á
þessum nótum lýsti hann pabba
sínum alla leið á Selfoss. Mér
fannst ég þekkja þennan mann,
þennan afa minn sem lést svo
löngu áður en ég fæddist og í
raun gerði ég það allt mitt líf því
pabbi var að lýsa sjálfum sér, svo
líkir hafa þeir feðgar verið.
Pabbi var mjög félagslyndur
og var einn af stofnendum Lions-
klúbbsins Njarðar og var virkur í
þeim félagsskap allt sitt líf. Hann
sinnti ýmsum verkefnum fyrir
klúbbinn og var stoltur félagi
þessara mannúðarsamtaka og
bar merki þeirra hvert sem hann
fór.
Eitt helsta áhuga mál pabba
voru myndavélar og ljósmyndun
og sást hann sjaldan án vélar.
Hann myndaði allt sitt líf, bæði
ljósmyndir og kvikmyndir. Fjár-
sjóðurinn sem liggur í þessum
myndum er ómetanlegur fyrir
okkur sem eftir erum, minningar
í þúsundavís. Hann eyddi miklum
tíma þegar hann var hættur að
vinna í að færa slides-myndir yfir
á tölvutækt form sem hefði sjálf-
sagt annars glatast því vinnan
var gífurleg.
Pabbi sat aldrei auðum hönd-
um, hann var þekktur fyrir eitt,
hvar sem hann kom gat hann
tyllt sér niður og sofnað, orku-
blundur sem hlóð batteríið á met-
tíma og svo hélt hann áfram í
sínu daglega stússi, blístrandi og
glaður.
Hann átti mörg áhugamál, á
sumrin átti veiði hug hans allan
og sjálfsagt ekki margar ár sem
hann hefur ekki rennt fyrir lax í.
Honum þótti samt alltaf jafn
gaman að standa úti í ánni eins
og honum þótti gaman að standa
yfir kjötsúpupottinum í góðum
félagsskap í veiðikofanum eða
tjaldinu.
Síðustu ár var pabbi virkur fé-
lagsmaður eldri borgara, hann
barðist fyrir rétti þeirra, keppti í
pútti og boccia, spilaði og synti.
Hann kunni ekki að láta sér leið-
ast, hafði alltaf eitthvað fyrir
stafni.
Pabbi var yndislegur afi og tók
virkan þátt í lífi barnabarna
sinna, eftir að mamma dó var
hann mikið hjá mér og bjuggum
við saman í dágóðan tíma bæði í
Danmörku og svo eftir að við
fluttum heim. Hann skipar stór-
an sess í lífi barna minna, miss-
irinn er mikill en ríkidæmi minn-
inganna endalaust.
Hvíldu í friði, elsku pabbi
minn.
Þín
Ragna.
Í dag kveð ég afa minn í hinsta
sinn og þótt hann hafi notið
þeirrar gæfu, sem ekki allir öðl-
ast, að verða 86 ára, er alltaf sárt
að kveðja þau sem hafa markað
djúp spor í sálum okkar. Frá því
ég man eftir mér hefur afi Bússi
verið órjúfanlegur hluti af lífi
mínu og mikill áhrifavaldur. Á
öllum stóru stundum lífsins var
afi Bússi mættur með myndavél-
ina á lofti að smala okkur, fólkinu
sínu, saman í hópmynd.
Afi var margbrotinn persónu-
leiki, hann var ekki fullkominn
frekar en annað fólk, en hann bjó
yfir mörgum dýrmætum mann-
kostum sem mig langar gjarnan
að taka í arf. Afi minn megnaði
ávallt að sjá lífið í jákvæðu ljósi,
jafnt í meðbyr sem mótbyr. Afi
hafði sjaldan áhyggjur af morg-
undeginum þótt aðrir hefðu þær
og hann kunni að lifa í núinu.
Hann átti gott með að kynnast
fólki og í gegnum áratugina
tengdist hann mörgu samferða-
fólki sínu sterkum vinaböndum.
Hann var glaðlyndur og fram úr
hófi gjafmildur.
Fyrir mér var það þó ávallt
glaðlyndi hans og væntumþykja
sem skein í gegn. Hann tók alltaf
vel á móti okkur barnabörnunum
með útréttan faðminn. Ein dýr-
mæt minning úr barnæsku er
heimkoman 1990, en þá ferðaðist
ég einsamall átta ára gamall til
Íslands frá Bandaríkjunum. Afi
tók á móti mér á flugstöðinni í
bláum „Members only“-jakka og
þegar ég nálgaðist beygði hann
sig niður til mín og tók þéttings-
fast utan um mig og sagði „vel-
kominn heim elskulegur“.
Það var alltaf leikur í afa. Ég á
ótal minningar úr æsku af afa
mínum að ærslast með okkur
barnabörnunum í Kvistalandinu,
stundum svo mikið að okkur
héldu engin bönd og foreldrum
okkar þótti nóg um. Afi lagði sig
fram við að skemmta okkur
barnabörnunum. Hann setti upp
kvikmynda- og „slides-mynda“-
sýningar í bílskúrnum, fór með
okkur í veiðiferðir, kenndi okkur
að taka ljósmyndir og bauð okkur
að fylgja sér í hin ýmsu verkefni
sem fylgdu vinnu hans og áhuga-
málunum, ljósmyndun og stang-
veiði. Það var alltaf rými fyrir
okkur barnabörnin í lífi afa og
honum var umhugað um að vera
okkur góður afi.
Sá vilji hans dvínaði aldrei og
þegar ég fullorðnaðist var alltaf
gaman að ræða við afa um pólitík,
rauðu hættuna úr austri, frelsið
og velferðina. Hann fylgdist allt-
af vel með þjóðmálum og heims-
málunum og þó að við í seinni tíð
værum ekki alltaf sammála í
þeim efnum var alltaf lærdóms-
ríkt að spjalla um þau mál við afa.
Afi átti líka gott með að segja
sögur og miðla af lífsreynslu
sinni á skemmtilegan hátt. Sög-
urnar sem hann sagði af árunum
sínum í Landbrotinu og í banda-
ríska hernum voru þær allra
skemmtilegustu fyrir ungan
dreng.
Þegar litið er til baka yfir ár og
áratugi er mér þakklæti efst í
huga. Afi minn var góður maður
og hjartahlýr. Ég mun sakna
hans.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn)
Jón Ómar Gunnarsson.
Ég hitti Júlíus í fyrsta sinn á
Indlandi sumarið 1992. Hann var
hluti af íslensku fylgdarsveitinni
sem tók þátt í monsúnbrúðkaupi
okkar Gunnars. Gunnar hafði
sagt mér frá Júlíusi, en engin
mannlýsing hefði nokkurn tím-
ann náð að fanga persónu manns-
ins sem ég kynntist. Júlíus gekk
með opnum hug á framandi slóð-
ir. Hann skildi fólk, sama hvaðan
það kom og Indverjar voru engin
undantekning. Júlíus hóf strax að
segja mér sögur af ferðalögum
sínum og tengdi þær þá þegar við
upplifanir aðeins nokkurra
klukkustunda á Indlandi. Júlíus
varð hugfanginn af Indlandi.
Hann hreifst af landslaginu, lit-
unum, hefðunum, fatnaðinum og
matnum, sem umkringdu hann
hverja vökustund ferðarinnar.
Júlíus var hvers manns hugljúfi
og á þessum tveimur vikum heill-
aði hann alla sem urðu á vegi
hans með kærleika, forvitni og
áhugasamri þátttöku í
brúðkaupsathöfnunum. Júlíus
hafði ástríðu fyrir ljósmyndun og
myndirnar hans úr ferðinni til
Indlands varðveittu hamingju-
ríkar minningar sem rifjuðust
upp þegar við hittumst síðar.
Hjónabönd á Indlandi eru ekki
aðeins á milli einstaklinga heldur
einnig táknræn sameining fjöl-
skyldna. Júlíus og hans ástkæra
Beta skildu þennan sið úr hindú-
atrú og buðu mig velkomna í sína
fjölskyldu og á sitt heimili.
Fyrstu kynni mín af Íslandi –
menningu þess, mataræði og veð-
urfari – voru betri en þau hefðu
ella orðið, þökk sé þeirra skiln-
ingsríku leiðsögn. Þau voru ást-
rík í minn garð, örlát og hjartahlý
og ég mun ævinlega vera þakklát
þeim fyrir að vera börnum mín-
um amma Beta og afi Bússi.
Leiðir Betu, Gunnars og Júl-
íusar liggja nú saman á ný í
himnaríki. Ég veit að þar fagna
þau lífinu, ástinni, öllum ævintýr-
unum og minningunum sem þau
sköpuðu. Hér á jörðu stend ég í
þakkarskuld við þau, fyrir alla
þeirra ást og fyrir að hafa skapað
mér nýtt heimili á Íslandi. Þeirra
verður ávallt saknað.
Chandrika Gunnarsson.
„Sæll Gunni minn! Ég þarf að
biðja þig að gera mér greiða.“
Þannig hófust mörg símtöl okkar
Júlíusar. Hann var sjálfur liðleg-
ur og þar eftir ófeiminn að fara
bónarveg að öðrum; átti til góðra
að telja; föðurafi hans, Guðjón
Júlíus Guðjónsson, var fyrsti lög-
reglumaðurinn í Vestmanna-
eyjum og starf hans næturvarsla.
Kona Guðjóns var Guðbjörg
Jónsdóttir; dó úr spönsku veik-
inni 1918 og ólst Guðjón upp hjá
föðurömmu sinni, Guðbjörgu
Bjarnadóttur, sem Vestmanna-
eyingar kölluðu Guddu í Sjólyst.
Móðurafi Júlíusar var Júlíus Pet-
ersen, sonur hjónanna Katrínar
Illugadóttur, verslunarmanns í
Reykjavík Einarssonar, og Pét-
urs Jakobs Jóhannssonar Peter-
sen, bókhaldara og verslunar-
stjóra í Keflavík, gullsmiðs í
Reykjavík Péturssonar; þau voru
Reykvíkingar, bjuggu langa ævi í
Petersenshúsi, er stóð við Hafn-
argötu í Keflavík. Pétur Jakob
kom ungur til Keflavíkur og
gerðist verslunarþjónn við
Siemsensverslun, brátt bókari,
orðlagður fyrir nákvæmni, fálát-
ur og ekki við alþýðuskap, alvar-
legur, fínn í tauinu og stundvís.
Löng sjúkdómsár dvaldist hann í
sínu gamla húsi heima hjá Júl-
íusi, syni sínum, og Guðfinnu
Andrésdóttur, sem hjúkraði vel
tengdaföður sínum, þótt ekki
gengi heil til skógar sjálf. Katrín,
eiginkona Péturs Jakobs, var
alltaf kölluð Madame Petersen,
lítil vexti, bar svip hefðarkonu;
blandaði ekki geði fremur en
maður hennar, en barngóð og
bóngreið og reyndi löngum á
þann eiginleika, því að hún átti í
eigu sinni grip, sem flestar hús-
mæður í Keflavík þurftu sárlega
á að halda, en það var taurulla.
Þegar þvotturinn á snúrum Kefl-
víkinga var orðinn þurr, var hald-
ið heim í Petersenshús að fá lán-
aða rulluna. Júlíus Petersen var
hestamaður og eftir gamalli ljós-
mynd málaði Halldór Pétursson
seinna af honum mynd; hann sit-
ur þunnhærður öldungur með
gleraugu og hvítt yfirvaraskegg
á baki rauðum hesti, með breiða
hvíta blesu. Á þorranum 1926
fæddist í Keflavík ósköp pastur-
slítill drengur, sem snemma um
vorið fékk einhvern afbrugðning
af taugaveiki, lífshættulegri. Þor-
grímur héraðslæknir ráðlagði
kaplamjólk og vildi svo vel til, að
hryssan Skjóna Júlíusar kastaði
og fékk drengurinn mjólkina og
lifði: Gunnar Eyjólfsson leikari.
Það var eins og glampandi sólin
brytist fram úr skýjaþykkni,
þegar Júlíus P. Guðjónsson bast
okkar sumpart fálátu fjölskyldu.
Við höfðum löngum setið
þungbúin í samkvæmum; svo
kom þessi málgefni, brosmildi
maður, blístrandi með myndavél
um hálsinn og súkkulaði og
tyggigúmmí í vösunum og gjör-
breytti andrúmsloftinu til hins
betra. Hann var ákaflega fé-
lagslyndur, missti aldrei sam-
bandið við neinn, mundi öll heim-
ilisföng og símanúmer, var ólatur
að líta til fólks. Þótt hann væri fé-
sýslumaður að hófi var hann
fæddur sölumaður; menn heilluð-
ust óðara af þessum töluga, spur-
ula og glaðbeitta manni, og
keyptu orðalaust það, sem hann
falbauð. Allt varð hljóðara við
helfregn hans og veröld okkar er
snauðari eftir. Láti Guð honum
nú raun lofi betri. Hann blessi
minningu drengsins góða, Júl-
íusar P. Guðjónssonar.
Gunnar Björnsson,
pastor emeritus.
Fyrir um 100 árum komu tveir
ungir menn hvor í sínu lagi til
Vestmannaeyja til að fara á ver-
tíð. Sjómennskan átti hins vegar
ekki fyrir þeim Páli og Guðjóni
að liggja, því þeir þjáðust af sjó-
veiki allan tímann í heilar tvær
vertíðir. Þá gáfust þeir upp og
fóru til Árna Böðvarssonar sem
átti rakarastofu í Eyjum og
lærðu til rakara.
Eftir það skildi leiðir, Páll fór
til Siglufjarðar en Guðjón til
Keflavíkur. Ekki leið þó á löngu
áður en uppgrip síldaráranna
kölluðu Guðjón norður með fjöl-
skylduna og vann hann þá hjá
Páli á rakarastofu hans á Siglu-
firði. Þannig hófst vinskapur
okkar sona þeirra, minn og Júl-
íusar sem alltaf var kallaður
Bússi. Sú vinátta stóð í 83 ár,
óslitið, því þótt fjölskylda Bússa
flytti til Ameríku þá hélst sam-
bandið og þegar ég fór í nám
þangað síðar þá heimsóttum við
hvor annan reglulega. Og á þessa
ævilöngu vináttu féll aldrei
skuggi.
Eftir að mínu námi í New York
lauk og þegar Bússi kom aftur til
Íslands rákum við saman fyrir-
tæki í nokkur ár með góðum ár-
angri. Meðal annars seldum við
bíla og ýmiss konar varning á
Keflavíkurflugvöll og fórum við
því ófáar ferðirnar þangað suður
á æskuslóðir Bússa. Ég held
reyndar að Bússi hafi aldrei kom-
ist suður í einni lotu, hann varð
alltaf að stoppa og sofna aðeins,
stundum bara í eina mínútu.
Hann gat sofnað hvar og hvenær
sem var, og oft við mjög fyndnar
aðstæður, til dæmis á veitinga-
húsi meðan beðið var eftir þjóni
eða reikningi. Við kölluðum hann
stundum Von Schlafen. Þar kom
að við ákváðum að slíta okkar fé-
lagi af persónulegum ástæðum,
en vinskapurinn stóð óhaggaður
og ég minnist þess raunar ekki að
okkur hafi nokkru sinni orðið
sundurorða. Alla tíð lágu gagn-
vegir á milli okkar. Svo mjög
reyndar að báðir vorum við
skornir hjartaskurði hvor sinn
daginn og lágum að því loknu
saman á stofu. Eftir því var tekið
að svo til allir gestir sem komu á
stofuna þekktu okkur báða.
Vinátta okkar Bússa var líka á
milli fjölskyldnanna sem fóru oft
saman í frí og höfðu margvíslegt
samneyti í áratugi. Bússi var allt-
af einn tryggasti vinur allra í
minni fjölskyldu, hjálpsamur og
skemmtilegur, með sína ljúfu og
léttu lund. Þegar Palli sonur
minn fótbrotnaði á unglingsárum
sendi Bússi, þá rekandi hljóm-
plötuverslun, Gunna son sinn til
hans með haug af hljómplötum til
að stytta honum stundir og
skemmta í einverunni heima.
Bússi kom iðulega við hjá okkur í
Álftamýrinni á helgarmorgnum,
sat þá lengi við eldhúsborðið og
spjallaði við alla fjölskyldumeð-
limi sem smám saman tíndust
niður í morgunkaffi, og söng þá
alltaf lagið góða um te og kaffi
með Sigga Val. Ég er reyndar
ekki frá því að sumir strákanna
hafi rifið sig fyrr upp þegar þeir
heyrðu að Bússi var mættur.
Að leiðarlokum þakka ég
Bússa vini mínum fyrir hans
tryggu, ævilöngu vináttu og öll
fjölskylda mín sömuleiðis og við
sendum ástvinum hans innilegar
samúðarkveðjur.
Valur Pálsson.
Júlíus Petersen
Guðjónsson
Elskulegur upp-
eldisbróðir og
frændi kvaddi okk-
ur um síðastliðna
hvítasunnu. Róbert var alinn
upp af móðursystur sinni Dóru
sem gekk honum í móðurstað
og ólst hann upp með okkur
systkinunum sem bróðir. Hann
var mörgum kostum búinn,
ljúfur, þolinmóður og barngóð-
ur. Hann hafði einstakt jafn-
aðargeð, kvartaði aldrei og tal-
aði aldrei illa um nokkurn
mann. Hann brá sér oft í hlut-
verk sáttasemjara þar sem
hann var friðelskandi og mikill
mannvinur. Hann hafði einnig
góða kímnigáfu, hann gat verið
stríðinn en þó aldrei rætinn.
Það var alltaf létt og skemmti-
legt andrúmsloft í kringum Ró-
bert jafnvel þótt hann hafi ekki
alltaf átt auðvelt líf. Hann
missti bæði eiginkonu og son
með stuttu millibili sem tók
mikið á hann en þrátt fyrir þá
erfiðu lífsreynslu sýndi hann
Róbert
Róbertsson
✝ Róbert Ró-bertsson fædd-
ist 27. maí 1943.
Hann lést 1. júní
2020.
Útför Róberts
fór fram í kyrrþey
hinn 16. júní 2020.
ávallt fjölskyldu
sinni hlýju og um-
hyggjusemi. Hann
sýndi alltaf svo
mikið þakklæti
þegar honum voru
færðar gjafir eða
smáræði, alltaf tók
hann upp símann
og þakkaði aftur
sérstaklega vel fyr-
ir sig. Honum var
umhugað um alla í
stórfjölskyldunni í hvert sinn
sem einhver var veikur eða var
að glíma við hverskyns raunir
þá var hann manna fyrstur til
að vitja um viðkomandi. Hann
hringdi alltaf reglulega í okkur
systkinin og mömmu þar sem
hann vildi fá fréttir af okkur
öllum sem honum þótti svo
vænt um og var það svo sann-
arlega gagnkvæmt.
Róbert bjó yfir miklum list-
rænum hæfileikum, var góður
teiknari og málari. Hann lærði
til smiðs og húsgagnasmíði, allt
lék í höndunum á honum. Þar
eru mörg sköpunarverkin og
völundarsmíðin sem hann skil-
ur eftir sig og var hann okkur
öllum oft innan handar ef ein-
hver stóð í framkvæmdum. Við
syskinin fengum að njóta þess
að alast upp með Róbert. Hann
var svo sannarlega góð fyrir-
mynd og stóri bróðir fyrir okk-
ur. Sérstaklega er okkur Lilju
og Önnu, eldri systrunum
minnisstætt þegar hann einu
sinni sem oftar var að passa
okkur og sagði okkur þá
skemmtilegar sögur. Frásagn-
argáfa hans og leikrænir til-
burðir voru framúrskarandi og
þessar stundir voru skemmti-
legri en sjónvarp og bíó. Hann
átti það líka til að setjast með
okkur og teikna og hjálpaði
okkur oft að skreyta minning-
arbækur í barnaskóla, listaverk
sem við varðveitum enn og eru
okkur dýrmæt.
Honum þótti mikið vænt um
Dóru mömmu og liðu aldrei
margir dagar án þess að þau
töluðu saman í síma eða hittust
í kaffi. Hann heimsótti mömmu
oft í Miðleytið og áttum við þar
margar ánægjulegar samveru-
stundir stórfjölskyldan. Þrátt
fyrir að heilsa hans hafi farið
versnandi síðustu misseri, taldi
hann það ekki eftir sér að
heimsækja mömmu á hjúkrun-
arheimilið sem gladdi hana allt-
af mikið því þar var svo sann-
arlega kært samband þeirra á
milli.
Við kveðjum elsku Róbert
okkar með sárum söknuði en
eigum ótal dýrmætar minning-
ar sem munu ylja okkur um
ókomin ár.
Elsku Hulda María, Erna
Bryndís og synir Sigurðar Arn-
ars, megi Guð gefa ykkur og
fjölskyldum ykkar styrk og ljós
á þessum erfiðu tímum.
Mamma Dóra og börn.