Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 24
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is SANGSIN gæðavara frá Kóreu BREMSU VÖRUR í flestar gerðir bíla 2012 2019 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Faxaflóahafnir ætla á næstunni að ráðast í dýpkunarframkvæmdir á Viðeyjarsundi, utan Vatnagarða og nýs Sundabakka. Skip Eimskips leggjast að þessum bakka og þar sem félagið er að taka í notkun ný og stór flutningaskip er talið nauðsynlegt að tryggja 10,7 metra dýpi á snúnings- svæði fyrir skipin fyrir utan bakk- ann. Sem kunnugt er af fréttum er það fyrra af tveimur stórum gámaskipum Eimskips, Dettifoss, komið í þjón- ustu félagsins. Seinna skipið, Brúar- foss, er væntanlegt til landsins síðar á árinu. Þetta eru stærstu skip ís- lenska kaupskipaflotans, 180 metra löng og 31 metri á breidd. Þau mæl- ast 26.169 brúttótonn og rista full- hlaðin rétt rúmlega 10 metra. Þær upplýsingar fengust hjá Faxaflóahöfnum að stefnt væri að því að auglýsa útboð í september nk. og verkið yrði svo unnið næsta vetur. Fjarlægja laust efni Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að fyrirhuguð dýpkun skuli ekki háð mati á umhverfisáhrif- um. Fram kemur að framkvæmdin felist að langmestu leyti í því að fjar- lægja laust efni en búast megi við klöpp á afmörkuðu svæði í jaðri dýpkunarsvæðisins. Að öllum lík- indum verður notuð grafa á pramma til dýpkunar en þó gæti verið að dæluskip yrði notað sem losar efni í einum klumpi eins og um pramma væri að ræða, en það veldur minni gruggmyndun en þegar efni er dælt úr skipi. Klöppin verður fleyguð eða sprengd. Dýpkunarefnið verður losað í af- lagða efnisnámu á hafsbotni suð- austur af Engey en þar hefur verið losað efni síðan árið 2005. Alls hafa þegar verið haugsettir rúmlega 1.000.000 rúmmetrar af dýpkunar- efni í þessa námu sem hætt var að nýta til efnistöku fyrir meira en 20 árum. Í framlögðum gögnum Faxaflóa- hafna kemur fram að botn á fyr- irhuguðu dýpkunarsvæði sé að mestu leyti myndaður úr setlögum. Áður hefur verið dýpkað á stærstum hluta svæðisins og hefur botni því þegar verið raskað. Árið 2016 voru tekin sýni úr botni á svæðinu og styrkur mengunarefna greindur í samræmi við áætlun sem Umhverf- isstofnun samþykkti. Teknir voru borkjarnar og efni greint af mismun- andi dýpi. Samkvæmt niðurstöðum greininga á þungmálmum og PCB- efnum úr efsta hluta setlaganna inn- an fyrirhugaðs dýpkunarsvæðis eru efnin á fyrirhuguðu dýpkunarsvæði í flokkum I-III en efni í þeim flokkum má almennt séð varpa í hafið sam- kvæmt leiðbeinandi reglum um dýpkunarefni sem Umhverfisstofnun hefur gefið út. Ljóst sé að efnið sem losað verður er lítið mengað og ekki þörf á að meðhöndla það sérstaklega áður en því er varpað í hafið. Ekki verði dýpkað á svæðum þar sem mengun kann að vera meiri. Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til úrskurðarnefndar umhverf- is- og auðlindamála og er kæru- frestur til 7. september 2020. Dýpka fyrir nýju gámaskipin  Snúningssvæði fyrir skipin á Viðeyjarsundi  Dýpkunarefnið losað í efnisnámu austur af Engey Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Sundahöfn Dettifoss leggst að Sundabakka í fyrstu ferð sinni til landsins. Viðey sést í bakgrunni en dýpkað verður í sundinu sem kennt er við eyjuna. Dýpkun Sundahafnar utan Sundabakka Kortagrunnur: atlas.lmi.is Dýpkunarsvæði Engeyjarsund Viðeyjarsund Efnislosunarsvæði Eldri mörk svæðis VIÐEY REYKJAVÍK ENGEY Skarfa- bakki Sunda- bakki Afurðaverð á markaði 11. ágúst 2020, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 386,96 Þorskur, slægður 449,47 Ýsa, óslægð 359,01 Ýsa, slægð 303,02 Ufsi, óslægður 114,90 Ufsi, slægður 135,95 Gullkarfi 262,25 Langa, óslægð 218,75 Langa, slægð 162,72 Keila, óslægð 60,36 Keila, slægð 96,69 Steinbítur, óslægður 141,44 Steinbítur, slægður 298,98 Skötuselur, slægður 621,41 Grálúða, slægð 44,60 Skarkoli, slægður 434,01 Þykkvalúra, slægð 341,64 Langlúra, óslægð 212,01 Bleikja, flök 1.441,00 Gellur 1.075,91 Hlýri, óslægður 248,77 Hlýri, slægður 258,76 Kinnfiskur/þorskur 921,08 Lúða, slægð 791,00 Lýsa, óslægð 11,04 Undirmálsýsa, óslægð 66,12 Undirmálsþorskur, óslægður 184,00
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.