Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.2020, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar 13. ágúst 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 136.52 Sterlingspund 178.93 Kanadadalur 102.73 Dönsk króna 21.629 Norsk króna 15.234 Sænsk króna 15.669 Svissn. franki 149.74 Japanskt jen 1.2872 SDR 192.51 Evra 161.07 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 189.3766 Hrávöruverð Gull 1996.6 ($/únsa) Ál 1730.0 ($/tonn) LME Hráolía 45.05 ($/fatið) Brent greiða niður lánið í júlí með lausu fé en í ljósi ástandsins var leitað er- lendrar fjármögnunar. Um er að ræða varúðarráðstöfun til að tryggja sem besta sjóðsstöðu, ef þurfa þykir. Jafnframt hefur verið brugðist við mikilli óvissu með því að auka inn- lenda sjóðsstöðu með útgáfu ríkis- víxla. Ríkisvíxlar eru skráðir í kaup- höll og ganga kaupum og sölum. Útboðsfyrirkomulagið er með sama hætti og í ríkisbréfum en aðalmiðl- arar taka þátt í útboðunum. Víxlarn- ir eru gefnir út til að hámarki eins árs. Aukin sjóðsstaða skýrir hvers vegna hrein skuld ríkissjóðs hefur ekki aukist meira en raun ber vitni. Aukin útgáfa ríkisvíxla Óverðtryggðar skuldir ríkissjóðs jukust úr 425 milljörðum í janúar í 607 milljarða í júlí. Aukninguna má einkum rekja til útgáfu ríkisvíxla, en við óvissuað- stæður sem þessar getur slík fjár- mögnun hentað betur en langtíma- fjármögnun með útgáfu ríkisbréfa. Jafnframt hefur útgáfa óverð- tryggðra ríkisbréfa verið aukin en umfangið er minna en í víxlunum. Verðtryggðar skuldir ríkissjóðs hafa hins vegar nær staðið í stað. Þær voru um 270 milljarðar í janúar en voru um 277 milljarðar í lok júlí. Hefur ríkissjóður gefið út óverð- tryggð ríkisbréf fyrir 60,7 milljarða í ár að söluverði en verðtryggð ríkis- bréf fyrir 4,4 milljarða. Til saman- burðar hafa verið seldir ríkisvíxlar fyrir 247 milljarða í ár og var staða þeirra í lok júlí 155 milljarðar. Fram undan er svo útgáfa óverð- tryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa sem liður í langtímafjármögnun ríkissjóðs. Samdráttur hefur áhrif Á það ber að líta í þessu samhengi að í Peningamálum Seðlabankans í febrúar var gert ráð fyrir 0,8% hag- vexti í ár. Horfurnar breyttust svo mikið með faraldrinum að í Peninga- málum Seðlabankans í maí var spáð 8% samdrætti í ár. Síðan hefur Ás- geir Jónsson seðlabankastjóri sagt við Morgunblaðið að mögulega verði samdrátturinn minni en þá var spáð. Þessi neikvæðu áhrif á landsfram- leiðslu hafa í för með sér að skulda- hlutföll á mælikvarða landsfram- leiðslu hækka. Þessi samdráttur, ef hann raungerist, skýrir þó ekki nema hluta hinnar hlutfallslegu skuldaaukningar. Hreinar skuldir eru heildarskuldir að frádregnum bankainnstæðum og endurlánum, sem Seðlabankinn lán- ar jafnan öðrum stofnunum. Endurlán eru lán í erlendri mynt, verðtryggð lán og óverðtryggð lán. Ríkisskuldir hafa aukist hratt vegna faraldursins Þróun skulda ríkissjóðs 2009-2020 1.800 1.600 1.400 1.200 1.000 800 600 400 200 0 90% 80% 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 Heildarskuldir ríkissjóðs í janúar og júlí 2020 Janúar 2020 Júlí 2020 Óverðtryggðar skuldir 424.587 607.139 Verðtryggðar skuldir 269.947 276.645 Erlendar skuldir 187.186 252.105 Samtals 881.720 1.135.889 Hlutfall skulda af vergri landsframleiðslu* 28,3% 39,9% Hrein skuld ríkissjóðs 618.511 745.157 Hlutfall hreinna skulda af vergri landsframleiðslu 19,9% 26,2% *Miðað við spá Seðlabanka Íslands í nýjasta hefti Peningamála. Heimild: Markaðsupplýsingar/Lánamál Seðlabanka Íslands. Skuldaaukning eftir kórónuveirufaraldurinn Nafnverð með áföllnum verðbótum, ma.kr. Heildarskuldir ríkissjóðs, ma.kr. Hreinar skuldir ríkissjóðs (að frádregnum endurlánum og innstæðum hjá SÍ) Heildarskuldir sem hlutfall af VLF Hreinar skuldir sem hlutfall af VLF 2020  Ríkissjóður sækir skammtímafjármögnun með víxlum vegna mótvægisaðgerða Morgunblaðið/Ómar Seðlabanki Íslands Umskipti hafa orðið í ríkisfjármálunum á þessu ári. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hlutfall skulda ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu mælist nú tæplega 40%. Það var til samanburðar rúm- lega 28% í janúar. Þetta má lesa úr nýjum Markaðs- upplýsingum Lánamála ríkisins í Seðlabanka Íslands. Heildarskuldir ríkissjóðs voru tæplega 882 milljarðar í lok janúar en var tæplega 1.136 milljarðar í lok júlí. Þær hafa því hækkað um ríflega 250 milljarða á sex mánuðum, eða um vel á annan milljarð á dag. Hrein skuld hækkar minna Hrein skuld ríkissjóðs hefur hins vegar ekki hækkað jafn mikið. Hún var tæpir 619 milljarðar í janúar en var 745 milljarðar í lok júlí. Það er hækkun um 126 milljarða. En hlut- fall hreinna skulda ríkissjóðs sem hlutfall af landsframleiðslu hækkaði úr 19,9% í 26,2% á tímabilinu. Ríkisskuldir voru mjög íþyngjandi fyrir þjóðarbúið eftir efnahagshrun- ið 2008 og voru afborganir lána stór hluti af útgjöldum ríkissjóðs. Þær lækkuðu mikið í kjölfar uppgjörs fjármagnshafta og lækkuðu svo enn frekar, sem hlutfall af landsfram- leiðslu, í uppsveiflunni 2015-18. Síð- an tók að hægja á lækkun ríkis- skulda samhliða versnandi efnahagshorfum. Með kórónuveiru- faraldrinum hafa þær aukist á ný. En ríkisstjórnin hefur boðað margvíslegar aðgerðir í efnahags- málum til að bregðast við niður- sveiflunni. Veiking krónu hefur lítil áhrif Veiking krónunnar hefur lítil áhrif á skuldahlutföllin. Erlendar eignir námu 158 milljörðum í janúar en er- lendar skuldir voru um 187 milljarð- ar. Mismunurinn var 29 milljarðar. Í lok júlí var erlenda sjóðsstaðan 222 milljarðar en erlendar skuldir 252 ma. Mismunurinn var því 30 ma. eða álíka mikill og í ársbyrjun. Ríkissjóður tók 500 milljóna evra lán í júní en greiddi upp um 292 milljóna evru lán í júlí. Vegna þessa jukust skuldir ríkissjóðs um rúmar 200 milljónir evra, eða sem svarar um 32 milljörðum króna. Til stóð að Skeljungur hagnaðist um 274 millj- ónir króna á fyrri helmingi ársins. Dróst hagnaðurinn saman um 61% frá sama tímabili í fyrra þegar hann nam 706 milljónum. Framlegð af vörusölu jókst milli ára og nam 4.615 milljónum, samanborið við 4.226 milljónir á fyrri árshelmingi 2019. Hins vegar jukust laun og launa- tengd gjöld verulega og námu rúm- um 2 milljörðum, samanborið við rúma 1,3 milljarða á fyrra ári. Sölu- og dreifingarkostnaður jókst um 137 milljónir og stóð í 1.162 milljónum. Annar rekstrarkostnaður jókst minna og nam 306 milljónum. Eignir Skeljungs stóðu í 26,8 milljörðum í lok júní og höfðu þá aukist um 2,3 milljarða frá áramót- um. Skuldir höfðu að sama skapi aukist og námu 17,2 milljörðum, samanborið við 14,6 milljarða skuld- ir um áramót. Eigið fé félagsins var því 9,6 milljarðar í lok annars árs- fjórðungs, samanborið við 9,8 millj- arða um áramót. Lægri spá Félagið sendi frá sér nýja afkomu- spá í tengslum við hálfsárs- uppgjörið. Telja stjórnendur þess nú að EBITDA ársins verði á bilinu 2.800 til 3.200 milljónir en fyrri spá gerði ráð fyrir að hún yrði á bilinu 3.000 til 3.400 milljónir króna. Í afkomuspánni er gert ráð fyrir stöð- ugu gengi gjaldmiðla og stöðugu ol- íuverði og að tekjur af erlendum ferðamönnum verði óverulegar. Árni Pétur Jónsson, forstjóri fyrir- tækisins, segir fyrri helming ársins hafa reynst því og starfsfólki krefj- andi. Segir hann að vegna aðstæðna í þjóðfélaginu hafi verið gripið til ýmissa hagræðingaraðgerða til að bæta afkomu og efnahag félagsins. Hagnast um 274 milljónir Uppgjör Forstjóri Skeljungs segir fyrri árshelming hafa verið krefjandi.  Tekjur Skeljungs 20,4 milljarðar á fyrri helmingi ársins Allt um sjávarútveg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.