Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 40

Morgunblaðið - 13.08.2020, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Vélgæslu- og viðhaldsstarf Loðnuvinnslan óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna vélgæslu við bolfisk- og uppsjávar- vinnslu hjá fyrirtækinu. Helstu verkefni og ábyrgð • Vélgæsla og viðhald • Umsjón með viðhaldi og viðgerðum • Önnur tilfallandi störf Menntunar- og hæfniskröfur • Reynsla og þekking á vélbúnaði • Geta til að skipuleggja og vinna verkefni • Sjálfstæði í starfi • Góð samskiptahæfni Loðnuvinnslan er rótgróið sjávarútvegsfyrirtæki í fremstu röð og fer öll starfsemi fyrirtækisins fram á Fáskrúðsfirði. Áhugavert tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling. Við hvetjum konur jafnt sem karla að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragnheiður Elmarsdóttir mannauðsstjóri í síma 892-7484 en umsókn ásamt ferilskrá skal senda á netfangið ragna@lvf.is Umsóknarfrestur er til og með 21. ágúst 2020. LEX LÖGMANNSSTOFA Borgartúni 26 105 Reykjavík Fax 590 2606 Sími 590 2600 lex@lex.is www.lex.is LEX er ein stærsta lögmannsstofa landsins með um 40 lögmenn innan sinna raða og sinnir verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum og stofnunum landsins. LEX LEITAR AÐ LÖGMÖNNUM LEX lögmannsstofa hefur hug á að bæta við lögmönnum í öflugan hóp félagsins. LEX er leiðandi lögmannsstofa á Íslandi með um 40 sérfræðinga í sinni þjónustu. Með heiðarleika, trúnað og fagmennsku að leiðarljósi sinnir LEX þörfum viðskiptamanna sinna á öllum meginsviðum lögfræðinnar. Krafa er gerð um að umsækjendur hafi lokið embættis- eða meistaraprófi í lögum og að þeir hafi gott vald á íslenskri tungu. Málflutningsréttindi eru kostur. Umsóknarfrestur er til 17. ágúst 2020 og skulu umsóknir sendar á umsokn@lex.is ÍS LE N SK A / SI A. IS / L O G 9 38 53 0 8/ 20 Sjóvá 440 2000 Forstöðumaður markaðsmála Við leitum að kraftmiklum og metnaðarfullum stjórnanda til að leiða áfram okkar öfluga markaðsstarf. Þetta er krefjandi leiðtogastarf sem kallar á frumkvæði og eldmóð, en einnig skýra sýn og stefnufestu. Hjá Sjóvá starfar samstilltur hópur starfsfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi þjónustu og erum við með ánægðustu viðskiptavinina á íslenskum tryggingamarkaði. Við viljum ekki bara halda þeirri stöðu, heldur gera enn betur. Við leitum að einstaklingi sem: › er með háskólamenntun sem nýtist í starfi › hefur viðamikla reynslu af markaðsmálum og almannatengslum › sýnir frumkvæði, framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæð vinnubrögð › á auðvelt með að koma frá sér efni í ræðu og riti › hefur drifkraft og metnað í starfi Starfið felur í sér: › mótun stefnu, markmiða og aðgerða í markaðsmálum › eftirfylgni og samræmingu markaðsaðgerða › daglega stjórnun og rekstur markaðsdeildar › ábyrgð á ímynd félagsins › ábyrgð á samskiptum við ytri þjónustuaðila vegna markaðsmála › ábyrgð á almannatengslum og samskiptum við fjölmiðla Nánari upplýsingar um starfið veitir Auður Daníelsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafarsviðs, audur.danielsdottir@sjova.is. Umsóknarfrestur er til og með 17. ágúst. Sótt er um á sjova.is/starfsumsoknir Jafnlaunavottun forsætisráðuneytisins Framúrskarandi fyrirtæki í flokki stærri fyrirtækja Efst tryggingafélaga í Ánægjuvoginni Atvinnuauglýsingar 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.