Morgunblaðið - 13.08.2020, Qupperneq 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
Sími 557 8866 | pantanir@kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími7.30-16.30
Mjög gott úrval af gæðakjöti
60 ára Ingólfur ólst
upp á Bessastöðum og
í Reykjavík og býr í
Skerjafirði. Hann er
tannlæknir og sérfræð-
ingur í tannhaldslækn-
ingum, er með eigin
stofu og er lektor við HÍ.
Maki: Guðrún Björg Erlingsdóttir, f. 1960,
hjúkrunarfræðingur og aðjunkt við hjúkr-
unardeild HÍ.
Börn: Halldóra Kristín, f. 1989, Árni, f.
1990, og Oddur, f. 1992, dóttir Guðrúnar
er Margrét Guðnadóttir, f. 1976. Barna-
börnin eru Brynhildur, Þórður, Grímur og
Þóranna Guðrún.
Foreldrar: Kristján Eldjárn, f. 1916, d.
1982, forseti Íslands og þjóðminjavörður,
og Halldóra Eldjárn, f. 1923, d. 2008, hús-
móðir.
Ingólfur Árni Eldjárn
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að leggja þig fram og ná
aftur stjórn á hlutunum. Reyndu ekki að
vera örlátur heldur beittu almennri skyn-
semi og verndaðu eigin hagsmuni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú nýtir kraftana í þjónustu við aðra.
Hristu upp í hlutunum og vertu djarfur.
Gefðu þér nú tíma til að setja reynslu þína
niður á blað og miðlaðu henni til annarra.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Notaðu daginn til þess að sinna
viðgerðum á heimilinu og lagaðu það sem
er bilað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur sterkar skoðanir og er
meira en sama hvort aðrir deila þeim með
þér eða ekki. Einhver sem á hugsanlega
eftir að gegna þýðingarmiklu hlutverki í lífi
þínu kemur til sögunnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert eirðarlaus og þarft því að vera
sérstaklega á verði svo tækifærin renni
þér ekki úr greipum. Gefðu þér tíma til að
spjalla.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú átt auðvelt með að fá þá sam-
vinnu sem þú sækist eftir í dag. Varastu
því alla fljótfærni og athugaðu vel þinn
gang.
23. sept. - 22. okt.
Vog Einhver sem þú þekkir vel mun koma
þér verulega á óvart í dag. Hikaðu ekki við
að leggja líka til málanna.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ekki líta fram hjá hjálpar-
beiðni einhvers, sem þér er nákominn.
Hringdu í vini þína og myndaðu tengsl.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Létta lundin þín mun afla þér
stuðnings og samvinnu á vinnustað.
Sýndu sveigjanleika og leyfðu brjóstvitinu
að njóta sín.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur afskaplega gaman af
því að leika þér með börnum og full-
orðnum. Einbeittu þér að markmiðinu og
láttu allar neikvæðar hugsanir lönd og
leið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft á allri þinni einbeit-
ingu að halda og mátt því ekki láta hugann
reika um of. Fólk kann að meta það hvað
þú gerir hlutina af mikilli vandvirkni.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Gerðu ráð fyrir að rekast á alls
konar fólk úr fortíðinni næstu vikurnar.
Sýndu þolinmæði.
G
réta María Grétars-
dóttir er fædd 13.
ágúst 1980 í Reykjavík
en ólst upp á Flateyri.
„Pabbi var skipstjóri á
togaranum Gylli á Flateyri.
Reykjavík togaði alltaf í mömmu
sem er alin upp í Reykjavík og þeg-
ar yngstu systkini mín fæðast þá
flytjum við fljótlega suður. Ég fer
þá í Seljaskóla sem var þá fjöl-
mennasti grunnskóli á landinu eftir
að hafa verið í Grunnskóla Flat-
eyrar þar sem voru um 60 nem-
endur.“
Gréta gekk síðan í Mennta-
skólann við Hamrahlíð og varð
stúdent þaðan frá eðlisfræðibraut
2001. Hún lauk B.Sc.-gráðu í véla-
verkfræði 2004 og M.Sc-gráðu í iðn-
aðarverkfræði 2008 frá Háskóla Ís-
lands. Hún lauk einnig prófi í
verðbréfaviðskiptum frá Háskól-
anum í Reykjavík 2019.
Gréta var ráðgjafi í upplýsinga-
tækni og sérfræðingur í gæða-
málum hjá Kögun/VKS 2004-2007,
sérfræðingur við fjárstýringu hjá
Sparisjóðabankanum 2007-2009 og
sérfræðingur í lausafjárstýringu
hjá Seðlabankanum 2009-2010. Hún
var forstöðumaður Hagdeildar hjá
Arion banka 2010-2016, fjár-
málastjóri Festi 2016-2018 og fram-
kvæmdastjóri Krónunnar 2018-
2020. Hún hlaut Viðskiptaverðlaun
Viðskiptablaðsins og Frjálsrar
verslunar árið 2019 fyrir að hafa
markvisst lagt áherslu á umhverfis-
og lýðheilsumál í rekstri Krón-
unnar. Hún hefur sinnt kennslu
bæði við HÍ og HR. Gréta var í júní
skipuð formaður stjórnar hins ný-
stofnaða Matvælasjóðs.
„Bakgrunnurinn úr verkfræðinni
hefur komið sér vel í því að takast
á við þessi ólíku verkefni og ég hef
kynnst frábæru fólki á hverjum
stað. Það sem drífur mig áfram er
að geta hjálpað öðru fólki að vaxa
og ég held að með því að byggja
upp gott lið þar sem allir fá að
vinna á sínum styrkleikum þá komi
aðrir hlutir nánast af sjálfu sér. Ég
hef verið virk í LeiðtogaAuði í Fé-
lagi kvenna í atvinnulífinu og er
líka í frábærum félagsskap úr verk-
fræðinni sem nefnist Saumavélin,
þar sem flestar okkar vorum í véla-
verkfræði.“
Gréta er fyrrverandi Íslands-
meistari og landsliðskona í körfu-
bolta og var valin efnilegasti leik-
maðurinn árið 1994. „Það er mikill
áhugi á íþróttum í bæði móður- og
föðurfjölskyldu og það skilaði sér.
Ég prófaði ásamt systkinum mínum
margar íþróttir en að lokum varð
karfan fyrir valinu. Við unnum alla
titla upp yngri flokkana í ÍR þar
sem ég var í góðu liði þar sem
kjarninn var stelpur úr sama ár-
gangi í Seljaskóla. Eftir yngri
flokkana í ÍR skipti ég yfir í KR
þar sem við urðum tvö ár í röð Ís-
lands- og bikarmeistarar.“ Þær
urðu Íslands- og bikarmeistarar
2001 og 2002.
„Ég hætti reyndar snemma í
körfunni þar sem ég meiddist og
sneri mér þá að þjálfun meistara-
flokks KR aðeins 23 ára en ég var
þó með mikla reynslu enda búin að
þjálfa í 10 ár.“ Gréta var valin þjálf-
ari ársins strax á sínu fyrsta ári.
„Í gegnum íþróttirnar er maður
svo lánsamur að hafa kynnst mjög
mörgu fólki og þar á meðal mann-
inum mínum en við kynntumst úti á
körfuboltavelli í Seljahverfinu. Við
eigum þrjú börn, tvo stráka sem
eru 14 og 9 ára. Við gerum ekkert
skemmtilegra en að fylgja strákun-
um okkar eftir í þeirra íþróttum.
Við eigum svo eina stelpu sem
verður 1 árs í september. Við höf-
um grínast með það og samt í smá
alvöru að hún fari í körfuna eins og
foreldrarnir.“
Fjölskylda
Sambýlismaður Grétu er Jón
Viðar Ágústsson, f. 25.6. 1977, þjón-
ustufulltrúi. Þau eru búsett í
Reykjavík. Foreldrar Jóns Viðars:
Hjónin Ágúst Guðjónsson, f. 20.3.
1943, kokkur, búsettur í Reykjavík,
og Ragnheiður Ágústsdóttir, f.
21.12. 1948, d. 5.7. 2020, matráður.
Börn Grétu og Jóns Viðars eru
Daði Berg Jónsson, f. 11.6. 2006,
Ari Berg Jónsson, f. 22.5. 2011, og
Ásta María Jónsdóttir, f. 15.9. 2019.
Systkini Grétu eru Herdís Gúst-
Gréta María Grétarsdóttir verkfræðingur – 40 ára
Fjölskyldan Fermingardagur frumburðarins 31. maí 2020.
Afrekskona í íþróttum og starfi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Körfuboltakonan Gréta, 2. frá hægri, ásamt liðsfélögum sínum árið 2000.
50 ára Margrét ólst upp
í Kópavogi og Gentofte í
Danmörku en býr í Þing-
holtunum í Reykjavík.
Hún er búningahönn-
uður og er margverð-
launuð fyrir búninga
sína. Margrét vann síð-
ast Guldbaggen, sem eru sænsku kvik-
myndaverðlaunin, árið 2019 fyrir bestu
búningana, í myndinni Eld och lågor.
Maki: Magnús Guðmundsson, f. 1968,
blaðamaður og rithöfundur.
Börn: Sturla, f. 1996, Egill, f. 1998, og Vala,
f. 2000. Barnabörnin eru Ylja Sál og Villi-
mey Vaka.
Foreldrar: Einar Oddsson, f. 1943, d. 2019,
læknir, og Eva Østerby Christensen, f.
1948, hjúkrunarfræðingur, búsett í Garða-
bæ.
Margrét Einarsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is