Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 48

Morgunblaðið - 13.08.2020, Síða 48
48 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020 Vinnur gegn Laktósaóþoli Fæst í næsta apóteki Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is biljofur.is Verkstæði // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir 544 5151 Tímapantanir Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is Hljómsveitarstjórinn Guðni A. Emilsson, sem hefur starfað á alþjóð- legum vettvangi í áratugi, gaf nýverið út plötu ásamt píanóleikurunum Marco Schiavo og Sergio Marchegiani og hinni þekktu, ensku fílharm- óníusveit Royal Philharmonic Orch- estra. Alþjóðlega útgáfufyrirtækið Decca stendur fyrir útgáfunni. „Þetta er eitt frægasta píanódúóið á Ítalíu. Ég hef unnið með þeim í mörg ár og þetta eru orðnir góðir kunningjar,“ segir Guðni. „Þeir hafa verið að vinna fyrir Decca og hringdu í mig í júlí á síðasta ári og spurðu hvort ég vildi koma með þeim til Lundúna. Þeir væru að fara að taka upp með Royal Philharmonic Orchestra.“ Guðni segir það hafa verið skemmtilega ferð. „Það varð úr að við fórum til London og það var góð stemning. Ég hitti þar gamla kunn- ingja, þetta er svo lítill heimur.“ Mozart er alltaf Mozart Á plötunni eru konsertar fyrir tvo píanóleikara, sem annars vegar leika tvíhent og hins vegar á tvö píanó, eftir Mozart og Kozeluch. „Kozeluch átti að verða eftirmaður Mozarts í Vín en af- þakkaði það og Mozart vann mikið í Prag og Kozeluch kemur frá Bohe- míu. Þannig að þetta passaði vel sam- an.“ Tónskáldin tvö voru samtímamenn en þegar Guðni er spurður að því hvort verk þeirra séu lík segir hann kíminn: „Kozeluch er auðvitað ekki það sama og Mozart, Mozart er alltaf Mozart.“ Fyrir þremur árum tók Guðni upp annan disk með Royal Philharmonic Orchestra sem er væntanlegur hjá út- gáfurisanum Deutsche Grammophon. Guðna þykir líklegt að útgáfan hafi tafist vegna heimsfaraldursins. Á þeirri plötu verða verk eftir Rach- maninoff. Guðni á langan feril að baki. Hann hefur stjórnað ótal merkum hljóm- sveitum, komið fram í mörgum helstu tónleikahúsum Evrópu og haldið í tón- leikaferðir um allan heim. Hann hefur einnig hlotið ýmis verðlaun og viður- kenningar fyrir störf sín. Hann var sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Kazakh-listaháskólann í Kasakstan árið 2018. Stjórnaði í Taílandi í 10 ár Guðni tók við stöðu aðalstjórnanda nýrrar hljómsveitar í Taílandi, Thai- land Philharmonic Orchestra, árið 2005. „Það var alveg ný hljómsveit. Við byrjuðum með um 30 hljóðfæra- leikara en þegar ég hætti var þetta komið upp í 90 manns, alveg full hljómsveit.“ Hann var ráðinn af taí- lenska ríkinu í þetta verkefni og vann að því í tíu ár. Guðni segir frá því að nýtt kons- erthús hafi verið reist undir hljóm- sveitina fyrir 100 milljónir evra. Húsið, sem ber nafnið Prince Mahidol Hall, er mikilfenglegt ásýndum og hefur að geyma stóran tónleikasal í nútíma- legum stíl. „Ég átti mikinn þátt í því að þetta hús yrði byggt,“ segir stjórn- andinn. Þrátt fyrir að starfa hinum megin á hnettinum bjó Guðni allan tímann í Þýskalandi ásamt eiginkonu og dótt- ur. „Ég tók þá ákvörðun þegar þeir vildu að ég flytti til Bangkok með fjöl- skylduna að fljúga frekar. Ég flaug þangað 150 sinnum á tíu árum.“ Að tíu árum liðnum ákvað Guðni að fram- lengja ekki samninginn við taílensku hljómsveitina. Eins og von er tók tíu tíma ferðalag hvora leið, mörgum sinnum á ári, sinn toll. „Eftir tíu ár þar sagði ég: „Ég er Evrópubúi og ég held mig við Evrópu“.“ Rólegur og góður tími Guðni býr í Suður-Þýskalandi við rætur Stuttgart en starfar víðs vegar í Evrópu. „Ég vinn mikið í Prag með óperuhljómsveitinni þar og útvarps- hljómsveitinni.“ Hann starfar einnig með tveimur kammersveitum, einni í Prag og einni í Þýskalandi. „Svo er ég að þvælast í Póllandi, hér í Þýskalandi, í Prag og á Ítalíu töluvert líka. Ég vinn mikið sem gestastjórnandi.“ Guðni hefur, eins og kollegar hans í tónlistarheiminum, haft lítið að gera undanfarna mánuði. Tónleikahald lagðist að mestu niður á meðan farald- urinn stóð sem hæst. „Ég hef bara verið heima að lesa nóturnar og spila á píanóið og svona. Þetta er búið að vera rólegur og góður tími,“ segir hann en viðurkennir að hann sé ekki sú týpa sem eigi auðvelt með að vera heima við til lengdar. Sem betur fer er aðeins farið að rétta úr kútnum og tónleikahald farið af stað í sumum Evrópulöndum. „Ég var að koma frá Ítalíu. Þeir eru með tónleika undir berum himni, veðrið leyfir það og þeir biðja bara um einn metra á milli fólks.“ Síðan heldur leið- in til Prag og því næst aftur til Ítalíu undir lok mánaðarins. Tónleikahald að lifna við „Ég hef gaman af því sem ég er að gera og hef nóg að gera,“ segir Guðni en bætir við að hann vonist til að þessu faraldursástandi fari að ljúka. „Ég missti 20 tónleika á þessu tímabili. Ég átti meðal annars að fara til Frakk- lands og vera með sex tónleika í júlí. Það datt allt upp fyrir.“ Honum virðist þó tónleikalífið vera að fara af stað á ný hægt og rólega. „Ég á að fara til Austurríkis í september og ég var að tala við þá í gær og það verður úr því. Svo ég vona að að þetta hreyfist núna áfram svo ég geti farið að taka upp tónsprotann.“ Liðin eru þó nokkur ár frá því Guðni kom síðast fram hér á landi. Hann hefur tvisvar komið fram með Sinfóníuhljómsveitinni en það er dá- góður tími liðinn síðan. „Kannski fer ég að taka upp pennann og skrifa þeim. Það gæti orðið að einhverju. Það er komið svo flott hús þarna heima.“ Vill taka upp tónsprotann á ný  Guðni A. Emilsson hljómsveitarstjóri hefur gefið út plötu ásamt tveimur ítölskum píanóleikurum og Royal Philharmonic Orchestra  Starfaði lengi í Taílandi en einbeitir sér nú að Evrópu Ljósmynd/Bob Stewart Hljómsveitarstjóri „Ég hef gaman af því sem ég er að gera og hef nóg að gera,“ segir Guðni Emilsson sem á langan og fjölbreyttan feril að baki á alþjóðlegum vettvangi. Hann gaf nýverið út plötu með verkum Mozart og Kozeluch. Tónleikahús Guðni átti stóran þátt í að láta reisa Prince Mahidol Hall í Bangkok utan um hljómsveitina sem hann stjórnaði þar í borg. Sýningar á kvikmyndinni Inception, eftir leikstjórann Christopher Nol- an, eru hafnar á ný hjá Sambíóunum í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá því hún var frumsýnd. Á undan myndinni verður sýnd sérstök stikla þar sem Nolan kynnir níu mínútna efni bak við tjöldin úr nýjustu kvik- mynd sinni Tenet sem frumsýnd verður 26. ágúst. Í Inception segir af Dom Cobb, þjófi sem er sá allra besti þegar kemur að því að stela verðmætum leyndarmálum úr hugum fólks þegar það er í draumsvefni. Fyrir vikið er Cobb afar eftirsóttur í heimi iðn- aðarnjósna en einnig hefur þetta orðið til þess að hann er nú eftir- lýstur flóttamaður og hefur fórnað öllu sem hann hefur elskað, eins og segir í tilkynningu. Dag einn býðst honum sakaruppgjöf en fyrst þarf hann að leysa eitt verkefni, það síð- asta. Verkefni hans og samstarfs- manna hans felst í að gera hið gagn- stæða, að koma hugmynd fyrir í huga manns. Reynist verkefnið allt að því óleysanlegt. Með aðalhlutverk í myndinni fara Leonardo DiCaprio, Joseph Gordon-Levitt, Ellen Page, Tom Hardy, Cillian Murphy, Mich- ael Caine og Marion Cotillard. Sambíóin hafa í sumar sýnt helstu kvikmyndir Nolan í tilefni þess að hans nýjasta, Tenet, verður brátt tekin til sýninga. Tíu ára afmæli Inception fagnað Blekkingaleikur Leonardo DiCap- rio í Inception frá árinu 2010.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.