Morgunblaðið - 13.08.2020, Qupperneq 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. ÁGÚST 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is
Fékk bíllinn
ekki skoðun?
Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl
Sameinuð gæði
BJB-Mótorstilling þjónustar
flesta þætti endurskoðunar
anngjörnu verði og að
ki förum við með bílinn
n í endurskoðun, þér
kostnaðarlausu.
á s
au
þin
að
Enska leikskáld-
ið David Hare
hefur skrifað
einleik um þá
reynslu sína að
veikjast af Covid-
-19 og þá reiði
sem hann fann
fyrir í garð
breskra stjórn-
valda fyrir að
grípa ekki nógu snemma til að-
gerða til að hefta útbreiðslu veir-
unnar. Ralp Fiennes mun fara með
hlutverk leikskáldsins í verkinu.
Leikhúsið The Bridge í London
verður opnað að nýju í september
með fjöldatakmörkunum og bili
milli gesta, að því gefnu að stjórn-
völd leyfi það. Fyrsta verkið á fjöl-
um þess verður einleikur Hare sem
nefnist Beat the Devil og er á vef
BBC sagður vera viðbragð leik-
skáldsins við veikindunum. Koma
þar við sögu ótti, draumar, lyf og
óheiðarlegir stjórnmálamenn, að
því er fram kemur í fréttinni.
Hare ræddi veikindi sín við BBC í
apríl og sagði þau hafa komið hon-
um í opna skjöldu. Einn daginn hafi
hann verið með hita, þann næsta
hafi hann verið ískaldur og líka
kastað upp, fengið hósta og átt erf-
itt með að anda. Tíundi dagur veik-
indanna hafi verið fimm sinnum
verri en sá fimmti.
Hare skrifar einleik um Covid-19
David Hare
Rómantíska dansdramamyndin
Dirty Dancing, eða Í djörfum dansi,
hefur nú ratað aftur á lista yfir best
sóttu kvikmyndir Bretlands eftir að
bíóhús voru opnuð þar að nýju í júlí.
Og nú berast fréttir af því að fram-
haldsmynd sé væntanleg og ekki
nóg með það heldur mun ein af
stjörnum upphaflegu myndarinnar,
Jennifer Grey, leika í henni og að
sjálfsögðu sjálfa Baby. Jon Felt-
heimer, forstjóri Lionsgate Films
sem framleiða mun myndina, heitir
því að myndin muni svala þörfum
aðdáenda frummyndarinnar hvað
varðar rómantík og fortíðarþrá.
Fyrir þá sem ekki vita fjallar Í
djörfum dansi um Frances „Baby“
Houseman, unga stúlku sem fellur
fyrir danskennaranum Johnny
Castle, sem leikinn var af Patrick
heitnum Swayze, á meðan hún er í
sumarfríi með fjölskyldu sinni.
Castle kennir Baby að elska og
dansa, eins og sagði í gagnrýni Sæ-
björns Valdimarssonar í Morgun-
blaðinu í nóvember 1987. Spáði
hann því síðar að myndin myndi
njóta mikilla vinsælda þegar hún
kæmi út á VHS-spólu og reyndist
heldur betur sannspár.
Um framhaldsmyndina er lítið
vitað en þó það að Jonathan Levine
mun leikstýra henni. Eitt er þó víst
að í henni verður stiginn djarfur
dans enn og aftur.
Ógnarvinsæl Dirty Dancing sló í gegn árið
1987, kostaði 5 milljónir dollara í fram-
leiðslu en skilaði um 218 milljónum.
Í djörfum dansi
33 árum síðar
Veronika Steinunn Magnúsdóttir
veronika@mbl.is
„Ég er að bregða upp mynd af lífi
baráttumannsins,“ segir Hörður
Torfason um nýútkomna söng- og
ljóðabók sína, 75 sungnar sögur.
Vísar titillinn til ársins 1975 þegar
Hörður hóf að berjast fyrir mann-
réttindum samkynhneigðra.
„Þegar fólk les þessar sögur, sér
það inn í heim sem það hafði ekki
hugsað út í. Ég heyri oft frá fólki að
því líði mun betur eftir að hafa lesið
bókina og það er tilgangurinn - að fá
fólk til að hlæja, hugsa og skoða,
sýna fólki inn í þennan hugarheim,“
segir hann.
Eftir að viðtal birtist við Hörð í
tímaritinu Samúel árið 1975, sem
fjallaði um samkynhneigð hans,
snerist stór hluti samfélagsins gegn
honum. Hófst þannig mannréttinda-
barátta hans og þá einkum fyrir
réttindum samkynhneigðra sem fór
að stórum hluta af stað með stofnun
Samtakanna 78. „Að koma því sam-
an var ekki eins og að borða korn-
flex í morgun-
mat. Það þurfti
reynslu leikhús-
mannsins,“ seg-
ir hann. Hin-
segingangan
hafi farið fram
síðustu 25 ár en
barátta Harðar
hófst fyrir 45 árum.
„Þetta var erfitt á fyrstu árun-
um,“ segir Hörður, þar sem bar-
áttan hafði umtalsverð áhrif á söng-
og leiklistarferil hans, ekki síður en
á sálarlífið. „En þar sem ég hóf bar-
áttuna sá ég þá skyldu mína að taka
um hana föstum tökum og hætti
ekki fyrr en ég stofnaði Samtökin
’78.“
Var þá baráttan komin á skrið en
hún þarf að ganga á í mörg ár, til
þess að mannréttindi minnihluta-
hópa verði tryggð: „Ef menn líta út
í heim, til dæmis til Póllands, þá er
staðan ekki jafngóð. Það er ráðist á
hinsegin fólk í mörgum löndum. Og
það er vegna þess að þar hefur ekki
verið unnin sú baráttuvinna sem var
unnin hér á landi. Baráttan hér á
landi er 45 ára gömul,“ segir Hörð-
ur. Og stendur yfir enn.
Þögnin er stærsti
áhrifavaldurinn
Þrátt fyrir að flestir kunni að
þekkja Hörð sem tónlistarmann eða
trúbador á hann sterkar rætur að
rekja til leikhússins, verandi fyrrum
leikstjóri til nokkurra ára. Sannast
það í ljóðum og tónleikum Harðar:
„Ég er leikhúsmaður, það skín í
gegn. Kjarninn að því að segja sögu
er í leikhúsinu og það eru ekki
margir sem átta sig á því að stærsti
áhrifavaldurinn í leikhúsinu er
þögnin,“ segir hann. Lykillinn sé að
spegla sjálfan sig í öðrum og leyfa
öðrum að spegla sig í sjálfum sér.
„Það er ekki barátta með hávaða,
öskrum og ásökunum heldur spegl-
un. Textarnir eru innsýn í eins
manns leikhús,“ segir hann.
Árið 1976 hóf Hörður að halda
hausttónleika og vortónleika, sem
oft voru kallaðir kertaljóstónleikar.
Lauk Hörður hverju starfsári sínu
með þessu upphafi og niðurlagi.
„Þannig er baráttan og þannig fer
hún fram. Hún er meðal okkar allra,
við erum í stanslausri baráttu,“ seg-
ir hann.
Að vera bestur í öllu
Ljóðin spanna þó allan tilfinn-
ingaskalann og fjalla um fleira en
einungis mannréttindabaráttu.
Ljóðið Sá besti fjallar um þörf
mannsins fyrir að vera bestur í öllu.
Nútímatæknin og áhrifavaldar, sem
keppast um að eiga besta lífið, gerir
hana kannski sýnilegri en nokkru
sinni.
„Það eru svo margir uppteknir af
því að kaupa sér hamingju og eign-
ast peninga og svo framvegis. Mér
finnst það alltaf dálítið einkennilegt
viðhorf vegna þess að það hefur ver-
ið margbent á það að þú getur reynt
að græða meira. En þannig verður
þú aldrei hamingjusamur,“ segir
Hörður og heldur áfram: „Það gefst
kannski mest tækifæri til þess í dag
í nútímatækninni - það eru þessar
vinsældaveiðar. Allt snýst um að
vera vinsæll, fullkominn og ríkur, en
það stangast á við að vera mann-
eskja,“ segir hann.
Í 75 sungnum sögum hefur Hörð-
ur skapað hina ýmsu karaktera -
karlinn í karlrembunni og konan í
kvenrembunni eru hjón og sonur
þeirra heitir Sveinn. „Þetta er ævin-
týraheimur sem ég skóp og gerist á
eyjunni Æ, þar sem menn hafa allt
á hornum sér,“ segir hann.
Er skáldsaga í smíðum?
„Nei, þetta er svona þráður sem
ég hef verið að gera í gegnum árin.
Ég er að gera grín að því að við get-
um gleymt okkur í kvörtunarheim-
inum. Sjálfsupphafningin, hatrið,
mannfyrirlitningin - mér finnst hún
fyndin. Það er það sem ég er að
reyna að benda á. Hún er meinfynd-
in ef þú ert að reyna að upphefja þig
á kostnað annarra.
Maður verður að geta hlegið að
sjálfum sér.
„Ef maður getur það ekki, þá er
eitthvað að,“ segir Hörður kíminn.
Hann tekur dæmi. Í ljóðinu Lauf-
ey kemur fram karakter sem er
tilbúinn að gera hvað sem er fyrir
stundargleðina.
„Það er siðleysi sem ég tek fyrir
þar,“ segir hann. Ljóðið Kerlingin
fjallar síðan um heimilisofbeldi en
snýst um að nálgast alvarleikann
með fyndni:
„Það er það sem ég geri við paró-
díuna, að nálgast alvarleikann með
fyndni, en sökkva ekki of djúpt í
það,“ segir hann.
Ljósmynd/Eydís G. Guðmundsdóttir
Sögur Bók Harðar Torfasonar fer yfir allan tilfinningaskalann.
Eins manns leikhús
Hörður Torfason gefur út 75 sungnar sögur Baráttan
sem hófst árið 1975 Innsýn í hugarheim baráttumannsins
það rigndi hérna í reykjavík
rólega og mig vakti
ilmurinn og angan
unaði mig þakti
þitt nafn hver dropi nefndi
í notalegum takti
ég hlustaði með hjartans glóð
á hörund mitt féll ástarljóð
það rignir oft í reykjavík
og ruglar svefnsins miðju
hjarta mitt hamast
sem hamar í smiðju
staddur í auga eldsins
akkúrat í miðju
ég hlustaði með hjartans glóð
á heimsins tæra ástarljóð
ég hlusta svo hægt
að það hlýtur að sjást
að í rigningunni í reykjavík
er ég rennblautur af ást
rigningin í reykjavík
rennur niður kinnar
þar týnast öll mín tár
treginn leynist innar
fjarskinn er faðmlag
fegurðarinnar
ég hlustaði með hjartans glóð
á heimin flytja ástarljóð
í rigningunni í reykjavík
er rosalega gaman
ég er örugglega alveg eins
og álfur í framan
ég veit að í alls kyns veðrum
verðum við hér saman
hlæjandi með hjartans glóð
við hrópum okkar ástarljóð
Rigningin
í Reykjavík
ÚR 75 SUNGNUM SÖGUM